Morgunblaðið - 02.03.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999 9
FRÉTTIR
Lóðum úthlutað
við Astjörn
Hunda- og
kattahald
bannað
148 LÓÐUM í blandaðri byggð 1.
áfanga nýs íbúðahverfis í Aslandi,
við fólkvanginn við Astjörn í Hafn-
arfirði, verður úthlutað á næstunni.
Uthlutað verður 40 lóðum fyrir
einbýlishús á einni hæð, 20 par-
húsa- og 16 raðhúsalóðum fyrir hús
á tveimur hæðum og lóðum fyrir 72
íbúðir í 12 sex íbúða fjölbýlishús-
um.
Einnig er gert ráð fyrir sambýli
fatlaðra, leikskóla, náttúrustofu og
fólkvangsmiðstöð á svæðinu, sem
er ofan og norðan við fólkvanginn
við Astjörn en við friðlýsta tjömina
er eini árvissi varpstaður flórgoð-
ans hér á landi. Gert er ráð fyrir
3-4.000 manna byggð í fullbyggðu
hverfínu í Aslandi.
í frétt frá Hafnarfjarðarbæ seg-
ir að lögð verði mikil áhersla á að
laga byggðina að landslagi svæðis-
ins. „Vegna nálægðar byggðarinn-
ar við friðlandið og hið einstaka
fuglalíf er bæjaryfirvöldum í Hafn-
arfírði mjög í mun að stuðla að
verndun þess. Með það í huga að
hunda- og kattahald getur skaðað
fuglalíf á svæðinu verður ekki
leyfilegt að halda slík gæludýr
þar,“ segir í fréttinni.
------♦-♦♦------
Framboðslisti
framsóknarmanna
á Vestfjörðum
Kristinn H.
Gunnarsson í
efsta sæti
FRAMBOÐSLISTI framsóknar-
manna á Vestfjörðum var sam-
þykktur á kjördæmisþingi flokks-
ins sl. laugardag. Að sögn Agnesar
Láru Magnúsdóttur, framkvæmda-
stjóra kjördæmasambands fram-
sóknarmanna á Vestfjörðum, kom
tillaga frá minnihluta uppstillinga-
nefndar um að Magnús Reynir
Guðmundsson tæki 1. sætið.
Greiddi kjördæmisþingið atkvæði
um fyrsta sætið og hlaut Magnús
Reynir 21 atkvæði en Kristinn H.
Gunnarsson 51 atkvæði.
Gunnlaugur Simundsson skipaði
efsta sæti Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum við síðustu alþingis-
kosningar, en gaf ekki kost á sér til
þingmennsku áfram. Kristinn H.
Gunnarsson skipaði efsta sæti á
lista Alþýðubandalagsins 1995, en
gekk til til liðs við Framsóknar-
flokkinn fyrir nokkru.
Tillaga meirihluta uppstillinga-
nefndar var samþykkt óbreytt og
er listinn eftirfarandi:
1. Kristinn H. Gunnarsson
2. Ólöf Valdimarsdóttir
3. Björgmundur Guðmundsson
4. Anna Jensdóttir
5. Svava Friðgeirsdóttir
6. Jóhannes Hai-aldsson
7. Agnes Lára Magnúsdóttir
8. Haraldur Jónsson
9. Þórunn Guðmundsdóttir
10. Sigurður Sveinsson
----------------
Eldur í bifreið
ELDUR kviknaði í bifreið fyrir
framan íbúðarhús í Fannafold í
gærmorgun. Ökumaðurinn var að
ræsa bifreiðina þegar hann fékk
ábendingu frá íbúa í húsinu um að
kviknað væri í henni.
Reyndist eldurinn hafa komið
upp í aftursæti hennar. Slökkvilið
Reykjavíkur kom á vettvang og
slökkti eldinn. Engin slys urðu á
fólki en bifreiðin skemmdist nokk-
uð.
Ný sending af
gluggatjaldaefnum
Við ráðleggjum og saumum fyrir þig
Skipholti 17a, símí 551 2323
Franskir bómullarbolir meö síðum og
stuttum ermum. Verð frá kr. 2.800.
TESS
Neðst við Dunhoga,
sími 562 2230
Aukin ökuréttindi; á rútu, vörubíl og leigubíl
Skraðu þia /• ÖKU SKOMNN tW/ 1 MJOÐÐ
anœsta
, námskeio Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík. UPPLÝSINGAR/BÓKANIR í Sl'MA 567-0-300
abecita
Einn söluhæsti
brjóstahaldari hjó abecita.
Fæst í svörtu, fílabeinslit og hvítu.
Verð frá kr. 2.300.
Laugavegi 4, sími 551 4473.
1969 - Jinlfurlþú&mt. 1999
Við erum 30 ára
Allt að 30% afsláttur á silfurhúðun
á gömlum munum.
J§tífurí|ú& mx
Opið þriðjud., miðvikud.
og fímmtud. frá kl. 16—18
Álfhólsvegi 67, sími 554 5820
NYJAR
• •
V0RUR
TÍSKUVERSLUN KRINGLUNNI, SÍMI 553 3300
Ný sending
Silkibolir
ferminguna
Bænahringir og krossar í úrvali
Boutiqe
V
á horni Laugavegs og Klapparstígs, s. 552 2515
Góður
vinnufatnaður
þarf ekki að
kosta mikið
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855
L0KAÐ LAUGARDAGINN 6. MARS VEGNA
ÁRSHÁTÍÐAR STARFSFÓLKS
Köflóttar vinnuskyrtur
Skyrtur úr bómull, verð frá 990-
Vinnuskór með stáltá
og stálbotni
Leðurskór í
st. 41-47.
NOKKUR DÆMI:
Hjálmur
Verð 1.440- (úrval af öryggisbúnaði)
Norskar ullarpeysur
Þessi heitir Svalbard úr 100% ull
og kostar 9.537-.
Aðrar ullarpeysur kosta frá 3.177-
Gallabuxur og belti
Buxur frá 2.388-. Leðurbelti frá 929
PANTAÐU
FERMINGARVHSLUNA
HEIMIST0FU
Verö frá 1.690 á mann.
VeSLUSMIÐJAN
Þórarinn Guömundsson matreiöslumeistari.
Garöatorgi, Garöabæ, sími 565-9518 og 588-7400