Morgunblaðið - 02.03.1999, Side 25

Morgunblaðið - 02.03.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999 25 ERLENT Israelar engjast í líbanska kviksyndinu Skæruliðar Hizbollah verða ekki upprættir með loftárásum og öðrum hefndaraðgerðum Israelshers Reuter FLUTNINGABÍLL ísraelskra hersins í Suður-Líbanon flytur burt leif- ar bifreiðar Erez Gersteins hershöfðingja. Jerúsalem, Beirut. Reuters. ÍSRAELSHER bjó sig í gær undir mikla herfór gegn skæruliðum Hiz- bollah-hreyfmgarinnar í Suður-Lí- banon og var ætlunin að ráðast gegn stöðvum þeirra úr lofti, á landi og af sjó til að hefna þess, að á sunnudag felldu skæruliðar fjóra ísraelska her- menn, þar af einn hershöfðingja. Þykir sá atburður hafa sýnt það enn einu sinni í hvers konar kviksyndi Israelar komu sér með hernámi S- Líbanons. Hizbollah, sem Israelar afgreiddu áður sem eitthvert saman- skrap af hryðjuverkamönnum, er orðin að þeirra verstu martröð. Israelskir hermenn eru vel þjálfaðir og búnir fullkomnum vopn- um en áfóllin, sem þeir hafa orðið fyrir í S-Líbanon, sýna, að það getur verið erfitt að ráða niðurlögum nokk- urra hundraða manna þótt þeir séu aðeins vopnaðir rifflum og sprengj- um, sem þeir koma íyrir við veg- brúnir eða annars staðar. Tvær slík- ar sprengjur urðu ísraelsku her- mönnunum að fjörtjóni í fyrradag. Var einn þein-a Ezer Gerstein hers- höfðingi en Israelar hafa ekki misst jafn háttsettan foringja í S-Líbanon í 17 ár eða síðan þeir réðust inn í land- ið 1982. „Israelskt Víetnam" A aðeins nokkrum vikum hafa Israelar misst sjö hermenn í S-Lí- banon og hefur það kynt enn frekar undir kröfum um, að herinn verði kallaður heim frá þessu „ísraelska Víetnam" eins og sumir kalla það. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, hefur raunar boð- ist til að kalla herinn heim en þó með því skilyrði, að stjórnarherinn í Líbanon taki að sér gæslu á landa- mærunum og komi í veg fyrir, að skæruliðar Hizbollah ráðist á ísrael. Líbanonsstjórn krefst aftur á móti skilyrðislauss brottflutnings ísra- elska herliðsins og undir það tekur sýrlenska stjórnin, sem er með 35.000 manna herlið í Líbanon og ræður miklu um stefnu stjórnarinn- ar. „Þetta er eins og fjárhættuspil. Ef við fórum burt án nokkurra samn- inga gæti ástandíð hugsanlega batn- að en það gæti líka versnað. Meðan við erum hér, vitum við þó hvað við höfum,“ sagði háttsettur, ísraelskur herforingi, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Verðið, sem Israelar LOFTARASIR ISRAELA Stjórnvöld í ísrael skipuðu þúsundum manna í norðurhluta landsins að halda sig í loftvarnabyrgjum vegan hugsanlegra átaka við skæruliða Hizbollah. 0 Sunnudagur Sprengjur við vegbrún verða fjórum ísraelskum hermönnum að bana, þar á meðal einum hershöfðingja. 0 Sunnudagur Israelskar herþotur ráðast á skotmörk skammt frá Beirut og í Austur-Líbanon þarsem Sýrlendingar eru með mikið herlið. © Sunnudagur Skæruliðar skjóta flugskeytum á N-lsrael 0 Mánudagur Loftárásum haidið áfram og Israelar hóta að sækja að skæruliðum á landi og af sjó. 0 Beirut 20 km GÓLAN- HÆÐIR fr (Israelskt hemáms- svæði) SÝRL. Galíleu-',, , i , vatn • i/ s ISRAEL greiða fyrir óbreytt ástand, er dauði 25 til 30 hermanna á ári. Þetta mál, hugsanlegur brottflutn- ingur frá S-Líbanon, hefur ekki ver- ið ofarlega á baugi í kosningabarátt- unni, sem nú er háð í ísrael, enda eru allir helstu frambjóðendurnii- sammála um að krefjast þess, að Lí- banonsstjórn ábyrgist landamærin verði ísraelska herliðið flutt burt. Að mati ýmissa fréttaskýrenda mun Sýrlandsstjórn þó ekki leyfa stjórn- inni í Beh-ut að ganga til samninga um það fyrr en Israelar hafi skilað Golanhæðum, sem þeir tóku af Sýr- lendingum 1967. Hizbollah-hreyfingin hefur reynst Israelum erfiður ljár í þúfu en hún var stofnuð eftir innrás Israela 1982. Hefur hún það á stefnuski-ánni að hrekja ísraela á brott frá Líbanon þótt hún hafi vissulega enga hernað- arlega burði til þess. Stöku sinnum hafa skæruliðarnir skotið á Israel Katjúsha-flugskeytum, sem litlu tjóni hafa valdið, en vopnabúnaður þeirra er annars aðallega riffiar og sprengjur, sem þeir nota við ýmiss konar tilræði. Styrkur hreyfingar- innar felst hins vegar í hatrinu, sem liðsmenn hennar bera til ísraela, og í trúarofstækinu. Margir þeirra eru tilbúnir til að fórna iífinu geti það orðið til að gera Israelum einhverja skráveifu um leið. Marklaust vopnaskak Israelar hótuðu í gær miklum að- gerðum gegn skæruliðum en frétta- skýrendur benda á, að jafnvel þótt af þeim yrði, myndu þær engu breyta. Þeir réðust raunar gegn stöðvum skæruliða þegai- á sunnudag án þess, að þeir svöruðu fyrir sig og líklegast þykir, að þeir muni ekki láta ísraela tæla sig til beinna átaka. Þrátt fyi’ir vopnaskakið hefur í raun ekkert breyst á vígstöðvunum og viðbúið, að ísraelskar útvarpsstöðvar muni enn um hríð verða að rjúfa dagskrána með sorgarmörsum og tilkynningum um útfarir fallinna hermanna. ACO ~ ANDllT ACO andlitslínan er sex hógæöavörur fyrir milda en óhrifaríka vernd viðkvæmrar andlitshúðar. ACO Andlitslínan dekrar við húðina og uppfyllir allar ströngustu kröfur ACO um öryggi og óreiðanleika. ACO ~ HVBm DAG ACO HVERN DAG ernútímaleg lína húðvemdarvara sem notaðar em daglega til að viðhalda heilbrigðri húð andlits, bols, handa og fóta. ACO ~ LÁGT VERD Þessi húðvörulína sameinar mikil gæði og lágt verð. Stórar pakkningar stuðla að því að magn og gæði fáist fyrir lítið. ACO ~ MEDICUS ACO MEDICIN línan er til að leysa vandamál varðandi húðina, hvortsem það ermjög þurrhúð, svitavandamál eða viðkvæmur hársvörður. ACO býður upp á bestu fáanlegu lausnina. ACO ~ KARIMEM Mikil þekking og löng reynsla ACO er hér nýtt sérstaklega með þarfir karlmanna í huga. ACO ~ ACNE Margir unglingar eiga í stríði við bólur á húð og fílapensla. ACO býður hér upp á bestu fáanlegu lausn. Salicylsýran leysir upp nabbana sem stífla svitaholurnar og hindrar þannig fílapenslamyndun um leið og þeim gömlu er eytt. ACO ~ BARM Húð smábarna er sérstaklega viðkvæm og er t.d. mikið þynnri en húð fúllorðinna. Hér koma ACO vömmar að sérlega góðum notum og að sjálfsögðu eru engin ilmefni notuð. «ACO APOTEKENS COMPOSITA ACO húðvörumar búa yfir hreinum kostum og miklu öryggi. Þær eru framleiddar eftir ströngustu öryggiskröfum og í þær eru aðeins valin hráefni sem þekkt eru afþví að valda ekki ofhæmi. í flestum tilvikum er hægt að velja á milli ACO húðvara með eða án ilmefha.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.