Morgunblaðið - 02.03.1999, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistarfélag Gerðahrepps 20 ára
Morgunblaðið/Þorkell
Grúskað
á bóka-
markaði
VIÐSKIPTAVINIR á bókaniarkaði
Félags íslenskra bókaútgefenda í
Perlunni voru svo niðursokknir í
bókmenntirnar þegar ljósmyndari
leit þar inn í gær að þeir tóku ekk-
ert eftir því þegar liann smellti af.
Kannski ekki að undra, þar sem
fjökli góðra bóka er á boðstólum
með umtalsverðum afslætti.
Fjölbreytnin er líka í fyrirrúmi,
svo allir ættu að geta fundið bók
við hæfi, hvort sem menn hafa
áhuga á Ijóðum eða lausamáli,
skák eða skíðum, fræðibókum eða
fomritum, svo aðeins fátt eitt sé
nefnt af úrvalinu. Bókamarkaður-
inn stendur fram á sunnudag, 7.
mars.
Garði, Morgunblaðið
TÓNLISTARFÉLAG
Gerðahrepps varð 20
ára sl. föstudag og af því
tilefni var haldin afmæl-
ishátíð í samkomuhús-
inu. Halldóra Jóna Sig-
urðardóttir setti hátíð-
ina en síðan tók Soffía
Ólafsdóttir við stjórn
samkomunnar.
Fyrst á dagskránni
var trompetleikur Eddu
Rutar Björnsdóttur við
undirleik Esterar Ólafs-
dóttur en hún lék kafla
úr trompetkonsert eftir
Haydn. Þótt Edda Rut
sé aðeins 18 ára hefir
hún nú þegar komið víða
við og spilar í nær öllum
lúðrasveitum Suðurnesja auk þess
sem hún hefir spilað í Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar og víðar á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá kennir hún við
Tónlistarskólann í Garðinum.
Halldóra Jóna Sigurðardóttir for-
maður félagsins rakti sögu þess og
kom þar m.a. fram að það voru Edda
Karlsdóttir og Kristjana Kjartans-
dóttir sem voru upphafskonurnar að
stofnun félagsins. Þær leituðu ráða
hjá ýmsum aðilum m.a. hjá Jóni As-
geirssyni tónskáldi, sem var meðal
gesta ásamt eiginkonu sinni á sam-
komunni, en markmiðið með stofnun
félagsins var alltaf að koma tónlist-
arkennslu af stað í bænum.
Tónlistarskólinn var svo stofnaður
15. september 1979 og var hann þá
fyrst útibú frá tónlistarskólanum í
Keflavík og Herbert H. Ágústsson
skólastjóri. Skólinn hefir verið starf-
ræktur síðan með miklum myndar-
brag í samstarfi við Gerðahrepp.
Nemendur eru nú 75 og það nýjasta
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
FRUMKVÖÐLAR Tónlistarfélagsins voru
heiðraðir á samkomunni. Talið frá vinstri:
Kristín Guðmundsdóttir, Jóna Hallsdóttir,
Kristjana Kjartansdóttir og Edda Karlsdóttir
ásamt núverandi formanni Halldóru Jónu
Sigurðardóttir.
í skólastarfinu er einsöngskennsla.
Núverandi skólastjóri er Hjördís
Einarsdóttir.
Fimm konur voru heiðraðai' á
þessum tímamótum fyrir ærið starf í
þágu félagsins. Það voru frumkvöðl-
arnir Edda Kai’lsdóttir, Kristjana
Kjartansdóttir, Kristín Guðmunds-
dóttir og Jóna Hallsdóttir. Þá var
Soffia Ólafsdóttir heiðruð fyrir ýmis
störf í þágu félagsins undanfarin 20
ár en hún hefir verið gjaldkeri þess í
mörg ár.
Fleiri listamenn komu fram. Má
þar nefna Guðbjörgu Jóhannesdótt-
ur sem lék píanóverk eftir Tsjækov-
skí en hún hefír verið viðloðandi
skólann frá 6 ára aldri og kennir nú á
píanó. Þá söng skólastjórinn Hjördís
Einarsdóttir nokkur lög við undir-
leik Esterar Ólafsdóttur.
Félaginu bárust margar góðar
gjafir á þessum tímamótum þ.ám.
peningagjafir sem eflaust munu
koma í góðar þarfir í framtíðinni.
STÓRSVEIT Reykjavíkur og
Reykjavíkurborg hafa gert með
sér samstarfssamning, sem undir-
ritaður var í Ráðhúsi Reykjavíkur
á laugardag við tilheyrandi hljóð-
færaslátt og söng.
Samningurinn felur m.a. í sér
að Stórsveit Reykjavíkur haldi
þrenna tónleika í Ráðhúsinu og
eina tónleika í miðborg Reykja-
víkur á árinu 1999. Reykjavíkur-
borg greiðir Stórsveitinni 375.000
kr. fyrir hverja tónleika fyrir sig
og skal aðgangur að tónleikunum
vera ókeypis.
Samningurinn kveður ennfrem-
ur á um að Stórsveit Reykjavíkur
láti útselja tíu lög sem tengjast
Reykjavík og Reykjavíkurborg
greiði kr. 100.000 upp í kostnað
vegna þessa. Lögin eru: Ó, borg
mín borg, Fröken Reykjavík, Vor-
kvöld í Reykjavík, Við Reykjavík-
urtjörn, Við Vatnsmýrina, Haga-
vagninn, Síðasti vagninn í Soga-
mýri, Braggablús, Fyrir sunnan
Fríkirkjuna og Austurstræti.
Þá hafa Stórsveitin og Reykja-
víkurborg komið sér saman um að
Stórsveitin kynni Reykjavík með
því að setja merki borgarinnar á
kynningargögn, svo sem plaköt,
dagskrár, auglýsingar o.fl.
I fréttatilkynningu vegna samn-
ingsins segir að Stórsveit Reykja-
víkur hafí til þessa átt farsælt
samstarf við Reykjavíkurborg. í
samningnum sem nú hafi verið
undirritaður felist að samstarfið
verði aukið og útvíkkað, þar sem
markmið samningsins sé að renna
styrkari stoðum undir rekstur
stórsveitarinnar eða með öðrum
orðum að koma sveitinni á fastan
grunn. Þeir fjármunir sem komi í
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, og Sæbjörn Jónsson,
stjórnandi Stórsveitar Reykjavíkur, undirrita samstarfssamninginn.
hlut stórsveitarinnar vegna sam-
starfssamningsins nýtist m.a. til
þess að standa straum af föstum
rekstrarkostnaði, svo sem vegna
nótnakaupa, erlendra hljómlistar-
manna, útsetninga á íslenskum
lögum, flutningi hljóðfæra, endur-
nýjun á nótnapúltum og búning-
um.
„Samstarfssamningurinn við
Reykjavíkurborg gerir það einnig
kleift að í fyrsta skipti verður
mögulegt að greiða hljóðfæraleik-
urum lágmarkslaun fyrir tón-
leika, en æfingar verða áfram
ólaunaðar. Ávinningur borgarinn-
ar felst m.a. í auknu lífi í borg-
inni, þjónustu og aðdráttarafli
fyrir ferðamenn, góðri ímynd og
glaðlegri borg og síðast en ekki
síst má segja að þetta samstarf
renni styrkari stoðum undir list
og menningu í höfuðborginni,"
segir í fréttatilkynningunni.
Stórsveit Reykjavíkur var
stofnuð veturinn 1992 og var
helsti hvatamaðurinn að stofnun
hennar og aðalstjórnandi frá upp-
hafi Sæbjörn Jónsson. Sveitin tel-
ur tuttugu hljóðfæraleikara sem
flestir eru atvinnutónlistarmenn,
þar af nokkrir fremstu djasstón-
listarmenn þjóðarinnar.
-----------------
Sýningu lýkur
Gallerí Hornið
SÝNINGU Alans James í Galleríi
Horninu, Hafnarstræti 15, lýkur á
morgun, miðvikudag. Á sýningunni
eni málverk og verk unnin með
blandaðri tækni. Sýningin er opin
frá kl. 11-24 en sérinngangur aðeins
kl. 14-18.
SAMRÆÐUR
SIGURÐAR
MÓÐIR, frá 1999, eftir Sigurð Magnússon.
Olía á striga, 190 x 90 cm.
MYNDLIST
Listmunahús Ófeigs,
Skólavörðustíg
MÁLVERK
SIGIJRUER
MAGJVfJSSOIV
Til 6. mars. Opið ó versl-
unartíma, mánud. til
föstud. frá kl. 10-18;
laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 11-14.
ÉG VERÐ að játa
að mér er ekki fylli-
lega ljóst hvert Sig-
urður Magnússon er
að fara með sýningu
sinni „Samræður", hjá
Ofeigi við Skólavörðu-
stíg. Skilaboðin sem
hann lætur áhorfand-
anum eftir í 26 verk-
um á jarðhæð og lofti
listmunahússins eru
svo dauf og loðin að
varla er um samræður
að ræða. f mesta lagi
er hægt að tala um
tuldur í barm sér.
Þetta getur varla
talist fullnægjandi
þegar tekið er tillit til
langrar skólagöngu
Sigurðar, hér heima
og í Lundúnum, þar
sem hann tók
masterspróf í málara-
list eftir þriggja ára
framhaldsnám.
Nú mun Sigurður
væntanlega svara því
til að hann hafi að leið-
arljósi heiðarleik og einlægni og
svona komi hann þeim eigindum
tO skila. En þá er manni spurn
hvers vegna hann lagði á sig langt
og strangt nám ef ætlunin var að
tjá sig eins og sá sem aldrei hefur
sest á skólabekk. Varla fer maður
í Skíðaskólann í Kerlingarfjöllum
og framhaldsnám í alpagreinum
til Austurríkis til þess eins að
komast að því að miklu vænlegra
sé að hoppa um berfættur í fönn-
inni?
En látum nú vera þennan
margupphitaða expressjónisma
sem rekja má aftur til aldamót-
anna síðustu - þegar listamenn
héldu að þeir gætu orðið grænir
eins og böm eða villimenn - en
dúkkar svo upp með vissu millibili
og allra handa soðbragði í metn-
aðarlitlum listmunahúsum um
heim allan. Það sem er alvarlegra
er inntaksleysið sem lýsir sér í
hugmyndasnauðum titlum og
vanabundnu myndefni þar sem
ekkert er gert til að róa á per-
sónuleg mið, eða brydda upp á
opnun til óvæntra átta.
Án þess ég vilji draga þennan
dóm út á pólitísk mið get ég þó
ekki varist því að minnast fyrri
starfa Sigurðar sem frammá-
manns í ákveðnu stéttarfélagi
iðnaðarmanna. Varla hefur hann
verið þar í forsvari í eintómu til-
gangsleysi? Ég spyr vegna þess
að stórpólitískir menn eru alltof
ginnkeyptir fyrir þeirri kórvillu
að listir standi utan og ofan við
allar marktækar athafnir og séu
því ekki annað en innihaldslaus
munaðarframleiðsla gróðabrall-
ara handa öðrum gróðabröllur-
um. Getur verið að Sigurður tjái
sig sem raun ber vitni vegna
slíkra ómerkilegra ranghug-
mynda?
Halldór Björn Runólfsson
Eldri nemendurn-
ir eru nú kenn-
arar við skólann
Samstarfssamningur Stórsveit-
ar Reykjavíkur og borgarinnar