Morgunblaðið - 02.03.1999, Síða 59

Morgunblaðið - 02.03.1999, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999 59 FOLK I FRÉTTUM Heimildarmynd Olafs Sveinssonar á Berlinale Bensínið er aukaatriði Heimildarmyndin „Nonstop“ eftir og í * leikstjórn Olafs Sveins- sonar var sýnd á nýaf- staðinni kvikmyndahá- tíð í Berlín. Myndin hefur hlotið mjög vin- samlega umfjöllun í þýskum fjölmiðlum og var vel sótt á hátíðinni. Rósa Erlingsdóttir, fréttaritari í Berlín, fór í bíó og átti stutt spjall við Ólaf. INÆSTA nágrenni við heimili Ólafs, í Berlín-Moabit, er ósköp venjuleg bensínstöð sem er opin allan sólarhringinn. Þangað koma ólíkar manneskjur á kvöldin, nætumai- eða árla morguns til að ræða um dag- inn og veginn yfir kaffibolla eða bjór og snafsi. Þýskir leigubílstjórar frá austur- og vesturhluta Berlín- arborgar kvarta yfir lengri vinnudegi og lægri launum síðan múrinn féO. Lesbískur kynskiptingur finnur jarð- veg pólitískra skoðana sinna meðal hægri öfgasinna. Tveir ellilífeyrisþegar, sem báðir þjást af svefnleysi og drekka óhóflega mikið, eiga sitt annað heimiU á bensínstöðinni. Portú- galskir byggingaverka- menn sem búa í gámum og streða 65 stundir á viku fyrir hamingju- sömu fjöldskyldulífi þeirra sem eftir sátu í heimalandinu. Þeir bölva verkstjóranum og kvarta yfir léleg- um vinnuskilyrðum. Þeir þrá konur, blíðuhót og skemmtun en í fjögurra koja svefngámum er aðeins hægt að láta sig dreyma um ástarævintýri. Staifsmaður bensínstöðvarinnar þekkir alla og allir þekkja hann, enda minnir hann einna helst á yfir- þjón á góðri fastaknæpu. Ólafur Sveinsson festi brot úr lífi þessara borgarbúa á filmu í loka- verkefni sínu frá þýsku kvik- mynda- og sjónvarpsakademíunni í Berlín. Utkoman varð kjarnyrt heimildarmynd um mannlífið í Berlín handan skarkala byggingar- svæðisins á og allt í kring um Potzdamer-Platz, handan hins yfir- borðskennda glæsileika og ífki- dæmis heimsborgarinnar. Spegilmynd Berlínarborgar í göngufæri frá bensínstöðinni er hin nýja miðborg Berlínarborg- ar og gamla forsetahöllin Bellevue skartar sínu fegursta hinum megin við lestarteinana. Gestir bensín- stöðvarinnar sem við kynnumst í myndinni minnast ekki einu orði á byggingarframkvæmdirnar, á að- setursskipti þýsku rískisstjórnar- innar eða á „nýju miðjuna“ sem er nýtt heiti á miðborg Berlínar síðan Schröder varð kanslari. Þeir gera ekkert veður út af öllum þessum breytingum, sem annars eru á allra vörum. Gestunum er alveg sama enda snerta flutningar ríkisstjórn- arinnar ekki líf eða tilvist þeirra. Þeir taka jafnvel ekki eftir öllum látunum. Amast kannski við rykinu sem berst frá svæðinu þar sem all- ir byggingarkranarnir standa. Werner ellilífeyrisþegi og alkó- hólisti segir: „Litli maðurinn er ætíð sá heimski, þeir stóru fá pen- ingana.“ Viðmælandi hans svarar á nær óskiljanlegri berlínskri mállýsku: „En þeir ríku þurfa líka að bíta grasið." Líf þeirra er dæmigert fyrir milljón mannleg örlög stórborgarinnar, lífið er ekkert annað en sársauka- fullt ferli og maður lætur sér það lynda, sérstaklega seint á lífsleið- inni þegar lífsorkan er hér um bil á þrotum. Áhorfandi myndarinnar fær nægan tíma til að skyggnast inn í líf persónanna á bensínstöðinni og fer jafnframt í ferðalag með nokkrum þeirra um næturlíf Berlínar. Kynskiptingurinn fer á diskótek samkynhneigðra, portú- gölsku byggingaverkamennirnir leita að konum, ást og virðingu á brasilískum dansstað. Kvik- myndatökuvélinni er komið fyrir í leigubíl og keyrt er um götur borgarinnar meðan leigubílstjór- inn segir okkur sögur. Skammt frá Brandenburger-hliðinu lætur leigubílstjórinn þýska þjóðsönginn í segulbandstækið, geysist í gegn- um hliðið og keyrir hamingjusam- ur á fagurri sumarnóttu eftir frægustu breiðgötu Berlínar „Unter den Linden“. En ferðin endar alltaf aftur þar, þaðan sem upphaflega var lagt í hann, á bens- ínstöðinni. Annað sjónarhorn á lífið „Nonstop" er frábær mynd. í 78 mínútur kynnast jafnvel Berlínar- búar borginni sinni á nýjan hátt en viðurkenna einnig að sýningu lok- inni að „Nonstop" sýni mjög raun- hæfa mynd af borginni og af Þýskalandi við aldahvörf. Áhorf- andinn fylgist með brotum úr lífi fastagesta bensínstöðvarinnar; hann fyllist hryllingi vegna til- gangsleysis og hörku lífsins en er allan tímann spenntur að vita meira um vonir eða vonbrigði gest- anna. Já, mann langar allra helst að skella sér í kaffi á bensínstöð- inni í hvei’finu hans Ólafs. Eftir sýningu myndarinnar segir Ólafur ánægðum bíógestum að tök- urnar hafi aðeins staðið yfir í fimm nætur, hann hafi að lokum átt 32ja stunda efni sem tók ellefu vikur að klippa saman í þá sögu sem úr varð. Það lætur næstum lygilega í eyrum að ekki ein einasta sena hafi verið und- irbúin heldur sé myndin spegilmynd þess veruleika sem Ölafur fann á bensín- stöðinni. I viðtali við vikublaðið „Die Zeit“ sagði Ólafur: „Allt það sem er vert að segja frá, á sér stað innan hundrað metra frá eigin heimili. Maður opnar augun og sér hlutina frá öðru sjónarhorni. í Berlín miðast alltof margar sögur við endurbæturnar á „Reichstag" (þinghúsið). Ef borgir eiga sál og ef í þeirri sál býr persóna er það miklu frekar Werner en kanslar- inn.“ Heiður að vera á Berlinale Ólafur sagði það mikinn heiður fyrir sig að myndin skyldi hafa ver- ið valin til sýningar á Berlinale- kvikmyndahátíðinni. En það gerist ekki oft að lokaverkefni ungs leik- stjóra sé sýnt á svo merkri hátíð. Hann vonast til að myndin verði í kjölfarið sýnd í litlu „off‘-bíóhúsi í Berlín. Annai’s þurfi bara að koma í Ijós hvað framtíðin ber í skauti sér, segir Ólafur. Hann langar að halda áfram á sömu braut, jafnvel á Islandi og segir áhorfendum frá Hlemmi og draumi sínum um að fjalla um fólkið sem hangir þar með sínar brostnu vonir í fartesk- inu. Því miður sé íslenska lögregl- an búin að fæla fólkið í burtu. En hver veit, kannski kemur fólkið aft- ur og draumur Ólafs verður að veruleika. ERLENDAR oooooo Kristín Björk spúnkstelpa fjallar um safndiskinn Japanese Homegrown Beats með ýmsum flytjendum. Japanskur teikni- myndahávaði HÁU ljósin í jap- anskri raftón- list eru ekki endilega alltaf framan í okkm\ Þess vegna var ég þakklát þegar ég gróf safndiskinn Japa- nese Homegrown Beats upp í 12 tónum, þar sem má oft finna ýmislegt skrýtið sem fæst hvergi annars staðar. Þessi diskur er sá þriðji í röð sem er ætlað að opna glugg- ann að japanskri raf- tónlist fyi-ir okkur hina í heiminum. Á diskinum eru 11 lög, allt frá gítai-júngli út í geðveikislegan teikni- myndahávaða með viðkomu í tíðinda- lausu húsi. Hérna gefst til tíðindasnauðar hús- lummur ft-á DJ Shufflemaster og O.Y.M. En eftir frekar kjánalega byrjun, sem er ávarp grassérfræð- ingsins um maríjúana, koma Audio Áctive nokkuð sterldr inn í hressandi dubsveiflu. Þegar þeir eru ekki að vesenast í tónlist, segj- ast þeii- sveima útúr- reyktir í himinhvolf- inu. Lagið þeirra, Weed Specialist, er einkennilegt, svart reggí innlegg sem maður á síst von á frá Japan. Síðasta númerið á Homegrown Beats er eftir gaur sem heitir Nobukazu Takemura. Hann segist vilja forðast hefðbundna tónlist tækifæri til að tékka á mörgu í einu, sem maður getur svo gramsað sig áfram með. Diskurinn tekur áreynslulaust af stað í mjúku, þjóðlegu trip hoppi frá DJ Krush sem er hérna í samstarfi við DJ Hide og DJ Sak undir nafn- inu RYU. Lagið var upphaflega tekið upp fyrir heimildamynd um Hong Kong sem ungverskur leikstjóri stýrði enda er einhver bakgrunnstil- finning við það þótt það standi alger- lega með sjálfu sér. Það næsta sem telst til tíðinda eru geðsjúklingarnir í Cycheouts sem framreiða harðan bor og bassa í teiknimyndastíl úr smiðju Simple Red. Virkilega hressandi orkutónlist sem þó siglir hraðbyri í hávaðadeild- ina ef partískórnir eru ekki á tánum. Það sama á reyndar við um næsta númer á eftir þessu sem er Kirihito og er brjálaður hasar fluttur af að- eins tveim mönnum sem hljóma eins og allavega þrettán. Dr. Shunsuke Hayakawa spilar standandi á trommurnar og notar ekki bassatrommu, á meðan félagi hans Takehisa öskrar og spilar á raf- magnsgítar um leið og hann sparkar í Casio-hljómborð á gólfinu. Hama- gangurinn, sem er eiginlega n.k. gítarjúngl, minnir dálítið á Bor- edoms á góðum degi þrátt fyrir að söngvara þeirra, Yamantaka Eye, verði seint slegið við í öskrunum. Yamantaka sagði einu sinni að sam- kvæmt japanskri þjóðtrú öskruðu andalæknar til að brúa frá veruleika okkar yfir í aðra vidd, en hann og fé- lagar hans í hávaða, öskri til að finna sjálfan sig. Ætli þeir öskri ekki frek- ar til að finna fyrir sér, strákamir? Það er tilfinnanleg vöntun á öskri í næstu tveimur lögum sem eru helst þar sem „aðallag- línan er eins og leikari studdur af aukaleikurum". Hann segist vilja að hlustandinn sé ekki aðeins dáleiddur af laglínunni heldur viU hann að hver sá sem hlusti á tónlist hans finni sér sinn persónulega stað í henni. Take- mura er ólíkur öllum hinum á diskn- um, er meira í vægðarlegu klassísku deildinni með Pétri, úlfinum og fé- lögum. Annars eru bragðtegundirn- ar á Homegrown Beats jafnmargar lögunum og ekkert hægt að reikna út - án þess þó að heildin verði sund- urlaus. Ef þetta er þverskurður af öUum tónlistarhasarnum sem ei' í gangi hjá Japönum núna þá er viss- ara að vera við öllu búinn því það er greinUega allt að verða vitlaust í Japan. Aukin ökuréttindi Ökuskóli íslands (Meirapróf) Leigubíll, vörubifreið, hópbifreið og eftirvagn. Ný námskeið hefjast vikulega. Gerið verðsamanburð. Sími 5683841, Dugguvogur2 V/SA mmm VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4539-8700-0003-2001 4539-8700-0003-2019 4539-8100-0003-9374 4539-8100-0003-8897 4543-3700-0022-1781 4543-3700-0027-9888 4543-3700-0024-0435 4507-4300-0022-4237 Afgreiðslufólk, vinsamlegast taklð ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og vísa á vágest VISA ISLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.