Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rændu konu
eftir úttekt
í banka
KONA á sjötugsaldri var rænd í
austurhluta Reykjavíkur að morgni
þriðjudags er hún var að koma úr
banka. Hafði hún tekið út um 50
þúsund krónur og fylgdust tveir
menn með ferðum hennar og réðust
síðan að henni.
Eftir að hafa tekið fé úr bankan-
um tók konan strætisvagn og fór
annar mannanna einnig í vagninn
en hinn fylgdi vagninum eftir í bfl.
Þegar konan yfirgaf vagninn létu
þeir til skarar skríða, annar hrifsaði
af henni handtöskuna og síðan
hurfu þeir á braut í bflnum. Konan
meiddist ekki.
Lögreglan segir greinilegt að
mennirnir hafi fylgst með konunni
og ákveðið að elta hana þegar þeir
sáu hana handleika féð í bankanum.
Lögreglan komst fljótlega á sporið,
grunaði ákveðna menn og voru þeir
handteknir aðfaranótt miðvikudags.
Viðurkenndu þeir verknaðinn og er
málið upplýst. Þeir höfðu notað pen-
ingana til fíkniefnakaupa og báðir
hafa ítrekað komið við sögu lög-
reglu.
Áburðarverksmiðjan komin í hendur nýrra eigenda
Kaupverðið greitt
með tveimur ávísunum
Nýir eigendur stefna að fjölbreyttri
starfsemi á svæðinu
Morgunblaðið/Golli
HARALDUR Haraldsson safnar saman
hlutabréfunum í Áburðarverksmiðjunni
hjá ríkisféhirði í gær eftir að hafa greitt
fyrir þau.
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN í
Gufunesi skipti um eigendur þegar
kaupendur hennar, með Harald
Haraldsson í forsvari, reiddu fram
kaupverðið, 1.257 milljónir króna,
hjá ríkisféhirði kl. 13.55 í gær.
Greiðslan var innt af hendi með
tveimur ávísunum.
Að sögn Sigurðar Þorkelssonar
ríkisféhirðis ræður bankakerfið ekki
við að innleysa hærri ávísanir en 990
milljónir króna í einu lagi. Eitthvað
virðist þetta þó hafa skolast tfl, því
aðeins vantaði eina krónu upp á að
önnur ávísunin væri upp á einn
milljarð króna. Sigurður sagði að
þetta ylli þó engum vandræðum því
upphæðin yrði millifærð handvirkt.
Þetta er líklega stærsta einstaka
greiðslan íyrir viðskipti sem ríkisfé-
hirðir hefur tekið á móti.
Hinir nýju eigendur taka við
rekstri verksmiðjunnar á hádegi í
dag. Tilkynnt var um nýtt áburðar-
verð í febrúar sl. Meðaltalshækkun
milli ára er rúmlega 1%.
Haraldur Haraldsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að skipt yrði
um stjóm í fyrirtækinu í dag og
hann tæki stöðu stjómarformanns.
Hann sagði að ný eignaraðild fæli
engar breytingar í sér varðandi
rekstur verksmiðjunnar til að byrja
með. „Þetta hefur gengið svo hratt
fyrir sig að það hefur ekki verið
svigrúm til að skoða það. Við mun-
um skoða reksturinn og vinna áfram
út frá því með það eitt að leiðarljósi
að halda áfram fullri starfsemi og
reyna að auka aðra starfsemi á
svæðinu til að auka betur viðgang og
hagnaðarmöguleika fyrirtækisins.
Önnur hafnsækin starfsemi á þarna
heima. Hafnaraðstaða er góð fyrir
ýmsa stórvöra. Hægt er að hugsa
sér að hafa þarna malbikunarstöð,
sementssfló og birgðageymslur íyrir
stóra hluti. Þetta era 20 hektarar
lands. Það era uppi áform um að
nýta það land og umhverfi sem er
þama,“ sagði Haraldur.
Haraldur sagði að fyrirspurn
hefði borist inn í fyrirtækið um að-
stöðu fyrir sementssfló. Hann segir
nýja starfsemi þurfa inn á svæðið
og jafnframt verði skoðað hvort
einhver akkilesarhæll sé í rekstri
verksmiðjunnar sjálfrar. „En það
verður allt gert til þess að halda
eins mörgum störfum við verk-
smiðjuna og hægt er. Öll störf sem
þarna verða era í raun störf sem
var bjargað, því það átti jú að
leggja fyrirtækið niður fyrir þrem-
ur áram,“ sagði Haraldur.
Hann sagði að menn væra stað-
ráðnir í að halda áfram framleiðslu á
áburði í verksmiðjunni. Fyrirtækið
væri jafnframt hluthafi í Vistorku og
stæði við skuldbindingar sinar í
þeim efnum.
Áburðarverksmiðjan reist 1952
Áburðarverksmiðjan var reist ár-
ið 1952 og hefur þvj.verið starfrækt í
47 ár. Rekstur yerksmiðjunnar hef-
ur verið umdeildur á síðustu árum í
kjölfar nokkurra óhappa sem þar
hafa orðið. Eldur kom upp í ammon-
íaksgeymi í verksmiðjunni 15. apríl
1990. Taldi rannsóknarlögreglan að
við bruna ammoníaks hefðu mynd-
ast köfnunarefni og vatn. Brani
ammoníaksins hefði komið í veg fyr-
ir að eitrað ammoníaksský gætu
borist til svæða í nágrenni verk-
smiðjunnar, en slíkt hefði hugsan-
lega getað gerst ef ammoníak hefði
streymt úr geyminum án þess að
brenna. Rannsóknarlögreglan taldi
einnig hættu á að loft hefði getað
komist inn í ammoníaksgeyminn og
blandast þar ammoníaki og skapað
sprengihættu.
Ibúar mótmæltu verk-
smiðjunni
í kjölfar slyssins var
haldinn fjölmennur borg-
arafundur Grafarvogsbúa
þar sem fram kom mikil
andstaða íbúanna við
Áburðarverksmiðjuna.
Borgarráð samþykkti síðan
i aprflmánuði 1990 að krefj-
ast þess að rekstri verk-
smiðjunnar yrði hætt. Da-
víð Oddsson, þáverandi
borgarstjóri, sagði þá að
vorið 1988 hefðu miklar um-
ræður verið í borgarráði um
hættuna af rekstri verk-
smiðjunnar. Það hefði verið
vegna nýrra upplýsinga um
skaðsemi ammoníaks, sem
borgarverkfræðingur hefði
bent á. Fram að því hefðu
menn aðallega óttast
sprengihættu vegna kjarná-
burðar.
1985 fól borgarráð dr.
Ágústi Valfells og Rúnai-i
Bjarnasyni að gera úttekt á
áhættuþáttum vegna starf-
semi verksmiðjunnar. I greinargerð
þeirra kemur fram að veruleg hætta
geti stafað af geymslu fljótandi
ammoníaks í kúlugeymi á verk-
smiðjulóðinni. Meginhættan sé
mengunarhætta, þ.e. að ammoníaks-
ský kunni að berast frá verksmiðj-
unni yfir borgina ef verulegt óhapp
verði á verksmiðjusvæðinu.
Eggert Hauksson, framkvæmda-
stjóri Áburðaiverksmiðjunnar, segir
að gert hafi verið mat á hættu frá
Áburðarverksmiðjunni. Ibúðar-
byggð sé utan hættumarka.
heimilisbankinn _
á réttri s
www.bi.is
ókeypis aðgangur til ársins 2000
(P 0 BÚNAÐARBANTQNN
S k í m a Trqiistur bajikii ,, t
Morgunblaðið/RAX
Ærslast í
snjónum
BÖRNIN á Blönduósi skottuðust
úti í brekku og ærsluðust í snjón-
um sem þar gaf og þurftu ekki
að hafa áhyggjur af daglegu
amstri hinna fullorðnu. Sjálfsagt
var að prófa ýmsar aðferðir í
brekkunni og gáfust þær allar
vel.
--------------
Krafa öryrkja um
hærri bætur
Kostnaður
liggur ekki
fyrir
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
segir ekki Ijóst hvaða möguleika rík-
isstjómin hefur til þess að mæta
kröfum öryrkja um hærri örorkulíf-
eyri.
Á fundi Sjálfsbjargar um stöðu ör-
yrkja um síðustu helgi var samþykkt
ályktun þess efnis að krafa yrði gerð
um aukið fjármagn ríkisins til
Tryggingastofnunar. Hljóðaði kraf-
an þannig að frá og með 1. apríl og 1.
september mjmdi örorkulífeyrir
hækka um 10 þúsund krónur og aðr-
ir greiðsluflokkar um 5%.
Geir vildi ekkert segja um málið
annað en verið væri að reikna út hve
mikinn kostnað slík hækkun örorku-
lífeyris hefði í fór með sér. Hann sat
fund Sjálfsbjargar og hefur fengið
ályktunina í hendur. Sagði hann að
verið væri að fara yfir þau fjölmörgu
atriði sem þar komu fram.
------♦♦♦-----
Brotist inn
vegna spila-
kassa
ÞRISVAR hefur verið brotist inn í
söluturna í Reykjavík undanfamar
nætur en í öllum tilvikum gripu þjót-
ar í tómt. Þeir brutu upp spilakassa
en höfðu ekkert uppúr krafsinu.
Innbrotsmálin eru í rannsókn hjá
lögreglunni. Að sögn Omars Smára
Ármannssonar aðstoðai'yfirlög-
regluþjóns var enga fjármuni að
hafa í spilakössunum þar sem þeir
eru í flestum tilvikum tæmdir á
hverju kvöldi. Segir Ómar þjófana
aðeins valda spjöllum með tilheyr-
andi kostnaði fyrir eigendur sölu-
turna.