Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 17
Læknisleysi harð-
lega mótmælt
Ólafsvík- Nú stendur yfír söfnun
undirskrifta í Snæfellsbæ þar sem
mótmælt er harðlega viðvarandi
læknisleysi á Heilsugæslustöð
Ólafsvíkurlæknishéraðs, en þar eru
tvö stöðugildi lækna, sem ekki hafa
verið mönnuð í rúm tvö ár.
Er þeirri áskorun beint til heil-
brigðisráðherra og landlæknis að
framtíðarlausn þessa vanda verði
fundin hið snarasta, en mikils ör-
yggisleysis er farið að gæta meðal
íbúanna af þessum sökum og
margir þreyttir á að rekja sjúkra-
sögu sína í hvert sinn sem til lækn-
is er leitað. Fjöldamargir læknar
og læknanemar hafa þjónað hér
eftir bestu getu í stuttan tíma í
senn á nefndu tímabili.
Að vetri til geta vegir til og frá
Ólafsvík lokast og skemmst er að
minnast óveðurs í síðustu viku
sem hindraði öll ferðalög til og frá
staðnum. Þátttaka í undirskrifta-
söfnuninni er almenn, en undir-
skriftalistarnir verða afhentir
heilbrigðisráðherra á næstu dög-
um.
Fundur um „Þjóðfélag
fyrir fólk á öllum aldri“
¥■ ••1
Nú ætlum við að koma fiskiþjóðinni á óvart með ótal góm-
sætum fiskréttum.
Sturla Birgisson einn af 5 bestu matreiðslumeisturum í
heimsmeistarakeppninni Bocuse d'Or 99 er höfundurinn
að fiskréttunum.
Húsavík - Framkvæmdastjóm ,Árs
aldraðra" og félag eldri borgara á
Húsavík boðuðu Þingeyinga nýlega
til fundar á Hótel Húsavík og mættu
þar eldri borgarar bæði úr Suður- og
N orður-Þingeyj arsýslum.
Formaður eldri borgara á Húsa-
vík, Ásmundur Bjarnason, setti
fundinn með ávarpi og stjómaði
honum.
Fyrsti frummælandi var Jón
Helgason, fyrrverandi alþingismað-
ur, formaður framkvæmdastjórnar
Árs aldraðra, sem heilbrigðisráð-
herra skipaði á síðasta ári. Hann
ræddi um markmið og stefnumið á
Ári aldraðra. Gat um ýmis verkefni
sem þegar hefði verið unnið að og
framkvæmd eða væm í úrvinnslu.
Asgeir Jóhannsson, fyrrverandi
forstjóri, ræddi um efnahagsmál
aldraðra í víðu samhengi. Hann
Hlynur
íþróttamað-
ur ársins í
Eyjum
Vestmannaeyjum - HLYNUR
Stefánsson, knattspyrnumaður
og fyrirliði íslands- og bikar-
meistara IBV, var um helgina út-
nefndur iþróttamaður Vest-
mannaeyja 1998. Sérstök val-
nefnd á vegum IBV sér um val
íþróttamanns ársins en Hlynur
var nú útnefndur annað árið í
röð.
Þorsteinn Gunnarsson og Þór
I. Vilhjálmsson, fulltrúar val-
nefndarinnar, gerðu grein fyrir
valinu og afhentu Hlyni síðan
viðurkenningu sem fylgir sæmd-
arheitinu.
Auk þess að útnefna íþrótta-
mann Vestmannaeyja var nú eins
og undanfarin ár einstaklingur
heiðraður fyrir framlag sitt til
íþróttamála í Vestmannaeyjum.
skýrði ráðstöfunartekjur aldraðra og
rakti launatekjur þeirra undanfarin
ár, sem sýndu sérkennOega niður-
stöðu á ýmsan hátt Benti á mismun
ráðstöfunartekna íbúa á höfuðborg-
arsvæðinu og úti á landsbyggðinni
og margt fleira, sem athyglisvert
var.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
HLYNUR Stefánsson, íþrótta-
maður ársins í Eyjum.
Að þessu sinni hlaut þá viður-
kenningu Sigurlás Þorleifsson,
sem um árabil lék bæði knatt-
spyrnu og handknattleik auk
þess sem hann hefur í áraraðir
fengist við þjálfun hjá ÍBV. Þá
veitti IBV nú í fyrsta sinn viður-
kenningar til íþróttamanns árs-
ins innan hvers sérsambands inn-
an ÍBV.
Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN í Ólafsvík.
Undirskriftasöfnun í Snæfellsbæ
Furðuheimur fiskréttanna
í Perlunni kemur þér
vissulega á óvart!
§
ff Borðapantanir
| í síma 5620200
Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar
HUGMYNDARIKIR foreldrar útbjuggu leiktæki við grunnskólann.
Sóknaráætlun í Grunnskólanum í Ólafsvík
Soffía Gísladóttir, félagsmála-
stjóri Félagsþjónustu Þingeyinga,
ræddi um stöðu aldraðra í Þingeyj-
arsýslu og þá þjónustu, sem þeir
fengju nú en ekki hefði verið á
boðstólum fyrir fáum árum.
Verði virkari þátttakendur í
þjóðfélaginu
Benedikt Davíðsson, formaður
Landssambands eldri borgara, taldi
að eldri borgarar ættu að vera virk-
ari þátttakendur í þjóðfélaginu en
þeir hefðu verið, þótt þeir væru
ekki í baráttu við stjórnvöld ættu
þeir að vekja athygli þeirra á mál-
efnum aldraðra og að þeir vildu
samstarf við stjómvöld.
Að framsöguræðum loknum voru
frjálsar umræður og fyrirspumir
gerðar til fmmmælenda og var
þeim skilmerkilega svarað. Langur
og góður fundur.
Stofnaður ný-
sköpunarsjóður
Ólafsvík - Hmndið hefur verið af
stað sérstakri sóknaráætlun í
Grannskólanum í Ólafsvík. Felur
hún meðal annars í sér markvissa
þróunarvinnu og er gerð í þeim til-
gangi að bæta og efla skólastarfið.
Hluti af þessari vinnu er fólginn í
sérstöku leiðbeinendanámskeiði
fyrir alla skólana í Snæfellsbæ, en
það er skipulagt af Skólaskrifstofu
Vesturlands.
Nú hefur einnig verið stofnaður
sérstakur nýsköpunarsjóður við
skólann, en honum er einkum ætl-
að að vinna að endurnýjun og upp-
byggingu á tölvu- og upplýsinga-
tæknibúnaði skólans, en sam-
kvæmt ákvæðum nýrrar aðalnáms-
skrár grunnskóla sem tekur gildi
síðar á árinu em þau tæki sem
skólinn býr við í dag löngu úrelt og
svara ekki þeim kröfum sem gerð-
ar em í tæknivæddu nútímasamfé-
lagi.
Beint hefur verið þeirri ósk til
fyrirtækja, félagasamtaka og
styrktaraðila skólans, eins og for-
eldraráði og fleiram, að styrkja
skólann með framlögum í þennan
sjóð. I þessum tilgangi hafa verið
opnaðir reikningar í innlánsstofnun-
um. Reikningamir era nr. 2000 í
Sparisjóði Ólafsvíkur og nr. 60884 í
Landsbanka íslands í Ólafsvík.
Bindur skólinn vonir við jákvæðar
undirtektir og að þetta og fleira
verði til þess að efla hag allra nem-
enda skólans og starfsfólks hans.
/I S> K m É Tí W M
4 i § $ O R Ð
Þar sem allt snýst umfólk