Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 25
ERLENT
ÓEIRÐIR í INDÓNESÍU
Stjórn Indónesíu hefur sent 3.000
hermenn til eyjunnar Ambon að
kveða niður óeirðir. Þeir hafa skipun
um að skjóta á og særa óeirðaseggi
Um 200 manns hafa týnt lífi í
blóðugum bardögum á milli múslima
og kristinna manna á eynni Ambon
þ.s. af er þessu ári
3.000 her-
menn sendir
til Ambon
Jakarta, Ambon. Reuters.
ÞRJÚ þúsund hermenn hafa verið
sendir til eyjunnar Ambon í
Indónesíu tU að stilla tU friðar á mUli
hópa múslima og kristinna manna er
borist hafa á banaspjót frá því í árs-
byrjun. Hermönnunum hefur verið
skipað að skjóta á og særa óeirða-
seggi. Lögreglustjóranum í Ambon
var vikið frá störfum í gær en hon-
um hefur ekki tekist að lægja ófrið-
aröldur á eyjunni. Talið er að tæp-
lega 200 manns hafi týnt lífi í óeirð-
unum það sem af er þessu ári. Yfir-
maður hersins, Wiranto hershöfð-
ingi, tók fram að hermennirnir
hefðu skýr fyrimæli um að drepa
ekki óeirðaseggi, einungis særa þá.
Um tvö þúsund námsmenn komu
saman við aðalstöðvar hersins í höf-
uðborginni Jakarta í gær og mót-
mæltu morðum á fólki íslamskrar
trúai' í óeirðunum á Ambon á hðnum
vikum. Stúdentamir, sem hrópuðu
vígorð á borð við „Heilagt stríð!“,
saka hermenn um að draga taum
kristinna manna í róstunum á eyj-
unni.
Eyjarskeggjar
flestir kristnir
Ambon er lítil eyja í Mólúkka-
eyjaklasanum í Indónesíu, sem áður
var nefndur Kryddeyjar. Eyjar-
skeggjar em flestir kristinnar trúar
og af öðm þjóðarbroti en þorri
Indónesa. Indónesía er fjölmennasta
ríki múslima í heimi. Ibúar em 210
milljónir og eru 90% þeirra ís-
lamskrar trúar.
A liðinni viku hafa 38 manns týnt
lífi í óeirðunum á Ambon. Hundruð
húsa hafa verið brennd til gmnna og
tugþúsundir manna hafa neyðst til
að flýja heimili sín í höfuðstað eyjar-
innar vegna ofbeldisöldunnar. Hóp-
ar múslima og kristinna hafa barist
með sverðum, bogum og örvum og
bensínsprengjum.
GCCent
1500 cc vél, 9o hestöfl
Verðdæmi:
i áftA Aecent X . 22. „ Ö Ö Ö
5 <Syr* Acc«rtt
1.-209.000
HYunom
Ármúla 13 Sfmi $7$ xaoo Söludcild 57; 1110 www.bl.is
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali landsins
af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
WESLO
CADENCE 925
Rafdrifin göngu- og hlaupabraut
Hraöi 0-13 km/klst.
Fjaörandi bretti sem minnkar álag á liðamót.
Einfaldur hæöarstillir, vandaöur tölvumaelir,
statff fyrir vatnsbrúsa og handklæði.
Hægt að leggja saman og því hentug
fyrir heimili og vinnustaði.
Stgr. 99.750,
kr. 105.000.
Stærö: L144 x br. 70 x h. 133 cm.
ÖRNINNP9
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588 9890