Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 23
ERLENT
,-r -- '-Jl. I Lr l
i;
Reuters
Endurnýjun þinghússins
í Berlín að ljúka
HIÐ endurnýjaða ríkisþinghús
Þýskalands, Reichstag, í Berlín
verður brátt tekið í notkun.
Fyrsti fundur Sambandsþingsins
eftir niiklar breytingar á húsinu
verður haldinn þar í næsta
mánuði, nánar tiltekið 19. apríl.
Þingið flytur aðsetur sitt alfarið
frá Bonn til Berlínar í sumar.
Hér má sjá gesti á gangi í
nýrri glerhvelfingu þinghússins,
sem er mikilfengleg á að líta.
„Bananadeilan“ enn í hnút
Fundi WTO um refsi-
tollahótanir aflýst
Genf. Reuters.
BANDARISK stjórnvöld aflýstu í
gær fundi hjá Heimsviðskiptastofn-
uninni (WTO) í Genf, þar sem ætlun-
in hafði verið að fjalla um réttmæti
hótana Bandaríkjamanna um að
setja á 100% refsitolla á nokkrar vör-
ur frá Evrópusambandinu (ESB)
vegna meintrar mismununar sem
bandarísk bananasölufyrirtæki telja
sig verða fyrir með þeim reglum sem
gilda hjá Evrópusambandinu um
innflutning á banönum.
Bandaríkjamenn höfðu áður kraf-
izt þess að WTO gæfi sjálfkrafa sam-
þykki við hinum fyrirhuguðu refsi-
tollum, á þeim forsendum að ESB
hefði ítrekað skirrst við að hlíta sem
skyldi úrskurði WTO um bananainn-
flutningsreglurnar. Stjómarerind-
rekar í Genf töldu víst, að ástæðan
fyrir afboðun fundarins í gær lægi í
því, að Bandaríkjamenn hefðu gert
sér grein fyrir að þeir fengju enga
fljótafgreidda blessun WTO yfir
refsitollaáformin.
Bandaríkjamenn halda því fram,
að innflutningsreglur ESB, sem
veita bananaframleiðslu þróunar-
landa sem áður voru nýlendur Evr-
ópuríkja forgangsaðgang að Evrópu-
markaðnum, skerði viðskiptahags-
muni fyrirtækja á borð við Dole og
Chiquita, sem selja banana úr mið-
amersískri framleiðslu, um sem
nemur yfir 520 milljónum Banda-
ríkjadollara, sem samsvarar um 3,6
milljörðum króna.
Þeir vildu að WTO gæfi þeim
heimild til að leggja 100% refsitolla á
evrópskar vörur sem myndi skaða
útflutning frá ESB um sömu upp-
hæð. Sendierindrekar í Genf sögðu í
gær að hygðust Bandaríkjamenn
hrinda refsitollunum í framkvæmd
án þess að leita heimildar til þess hjá
WTO myndi það skaða mjög það
kerfi sem komið hefur verið á innan
stofnunarinnar til að leysa deilumál
sem þetta.
í kvöld verður leitað svara við þessari
spurningu en þá verður sýnd í
sjónvarpinu myndin:
Feður í fæðingarorlofi
Þetta er einstaklega athyglisverð íslensk
heimildarmynd sem Nýja bíó hf. gerði. Nokkrir
karlar sem vinna hjá Reykjavíkurborg fengu
fæðingarorlof í þrjá mánuði í tilraunaskyni
og í myndinni lýsa þeir reynslu sinni. Fylgst er
á einstæðan hátt með einni fjölskyldu og rætt
við innlenda og erlenda sérfræðinga um feður,
fæðingarorlof og ný hlutverk karla. Myndin
verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins kl. 23.20
í kvöld.
Einnig er komið út rit um íslenska
karla í fæðingarorlofi sem ber heitið:
Gegnum súrt og sætt
Þetta er viðtalsrannsókn sem dr. Þorgerður
Einarsdóttir annaðist en rannsóknin brýtur
blað í sögu fjölskyldurannsókna hér á landi.
Rannsóknin var ásamt gerð myndarinnar liður
í verkefninu „Karlar í fæðingarorlofi".
Háskólaútgáfan sér um dreifingu ritsins. Það
hefur einnig komið út á ensku undir heitinu
„Through Thick and Thin".
Feður
orlof
eða hvað?
Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar
fjármagnaði verkefnið með styrk frá
Evrópusambandinu en samstarfsaðilar voru
Karlanefnd Jafnréttisráðs, Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar og Kvenfélagasamband
íslands.
Jafnréttisnefnd
Reykjavíkurborgar
Maria
dagar í Nettó Mjódd og á Akureyri
Kynningar á mexikóskri matargerð 4. og’ 5. mars.
Úrvals nautakjöt frá Kjötbankanuni
Nautahakk: 598 kr. kQóið
Nautastrimlar: 998 kr. kílóið
$ rn & ^
Santa Maria Ttex Mex
vörur á tilboösveröi
Nýrkostur!