Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 4

Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rændu konu eftir úttekt í banka KONA á sjötugsaldri var rænd í austurhluta Reykjavíkur að morgni þriðjudags er hún var að koma úr banka. Hafði hún tekið út um 50 þúsund krónur og fylgdust tveir menn með ferðum hennar og réðust síðan að henni. Eftir að hafa tekið fé úr bankan- um tók konan strætisvagn og fór annar mannanna einnig í vagninn en hinn fylgdi vagninum eftir í bfl. Þegar konan yfirgaf vagninn létu þeir til skarar skríða, annar hrifsaði af henni handtöskuna og síðan hurfu þeir á braut í bflnum. Konan meiddist ekki. Lögreglan segir greinilegt að mennirnir hafi fylgst með konunni og ákveðið að elta hana þegar þeir sáu hana handleika féð í bankanum. Lögreglan komst fljótlega á sporið, grunaði ákveðna menn og voru þeir handteknir aðfaranótt miðvikudags. Viðurkenndu þeir verknaðinn og er málið upplýst. Þeir höfðu notað pen- ingana til fíkniefnakaupa og báðir hafa ítrekað komið við sögu lög- reglu. Áburðarverksmiðjan komin í hendur nýrra eigenda Kaupverðið greitt með tveimur ávísunum Nýir eigendur stefna að fjölbreyttri starfsemi á svæðinu Morgunblaðið/Golli HARALDUR Haraldsson safnar saman hlutabréfunum í Áburðarverksmiðjunni hjá ríkisféhirði í gær eftir að hafa greitt fyrir þau. ÁBURÐARVERKSMIÐJAN í Gufunesi skipti um eigendur þegar kaupendur hennar, með Harald Haraldsson í forsvari, reiddu fram kaupverðið, 1.257 milljónir króna, hjá ríkisféhirði kl. 13.55 í gær. Greiðslan var innt af hendi með tveimur ávísunum. Að sögn Sigurðar Þorkelssonar ríkisféhirðis ræður bankakerfið ekki við að innleysa hærri ávísanir en 990 milljónir króna í einu lagi. Eitthvað virðist þetta þó hafa skolast tfl, því aðeins vantaði eina krónu upp á að önnur ávísunin væri upp á einn milljarð króna. Sigurður sagði að þetta ylli þó engum vandræðum því upphæðin yrði millifærð handvirkt. Þetta er líklega stærsta einstaka greiðslan íyrir viðskipti sem ríkisfé- hirðir hefur tekið á móti. Hinir nýju eigendur taka við rekstri verksmiðjunnar á hádegi í dag. Tilkynnt var um nýtt áburðar- verð í febrúar sl. Meðaltalshækkun milli ára er rúmlega 1%. Haraldur Haraldsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að skipt yrði um stjóm í fyrirtækinu í dag og hann tæki stöðu stjómarformanns. Hann sagði að ný eignaraðild fæli engar breytingar í sér varðandi rekstur verksmiðjunnar til að byrja með. „Þetta hefur gengið svo hratt fyrir sig að það hefur ekki verið svigrúm til að skoða það. Við mun- um skoða reksturinn og vinna áfram út frá því með það eitt að leiðarljósi að halda áfram fullri starfsemi og reyna að auka aðra starfsemi á svæðinu til að auka betur viðgang og hagnaðarmöguleika fyrirtækisins. Önnur hafnsækin starfsemi á þarna heima. Hafnaraðstaða er góð fyrir ýmsa stórvöra. Hægt er að hugsa sér að hafa þarna malbikunarstöð, sementssfló og birgðageymslur íyrir stóra hluti. Þetta era 20 hektarar lands. Það era uppi áform um að nýta það land og umhverfi sem er þama,“ sagði Haraldur. Haraldur sagði að fyrirspurn hefði borist inn í fyrirtækið um að- stöðu fyrir sementssfló. Hann segir nýja starfsemi þurfa inn á svæðið og jafnframt verði skoðað hvort einhver akkilesarhæll sé í rekstri verksmiðjunnar sjálfrar. „En það verður allt gert til þess að halda eins mörgum störfum við verk- smiðjuna og hægt er. Öll störf sem þarna verða era í raun störf sem var bjargað, því það átti jú að leggja fyrirtækið niður fyrir þrem- ur áram,“ sagði Haraldur. Hann sagði að menn væra stað- ráðnir í að halda áfram framleiðslu á áburði í verksmiðjunni. Fyrirtækið væri jafnframt hluthafi í Vistorku og stæði við skuldbindingar sinar í þeim efnum. Áburðarverksmiðjan reist 1952 Áburðarverksmiðjan var reist ár- ið 1952 og hefur þvj.verið starfrækt í 47 ár. Rekstur yerksmiðjunnar hef- ur verið umdeildur á síðustu árum í kjölfar nokkurra óhappa sem þar hafa orðið. Eldur kom upp í ammon- íaksgeymi í verksmiðjunni 15. apríl 1990. Taldi rannsóknarlögreglan að við bruna ammoníaks hefðu mynd- ast köfnunarefni og vatn. Brani ammoníaksins hefði komið í veg fyr- ir að eitrað ammoníaksský gætu borist til svæða í nágrenni verk- smiðjunnar, en slíkt hefði hugsan- lega getað gerst ef ammoníak hefði streymt úr geyminum án þess að brenna. Rannsóknarlögreglan taldi einnig hættu á að loft hefði getað komist inn í ammoníaksgeyminn og blandast þar ammoníaki og skapað sprengihættu. Ibúar mótmæltu verk- smiðjunni í kjölfar slyssins var haldinn fjölmennur borg- arafundur Grafarvogsbúa þar sem fram kom mikil andstaða íbúanna við Áburðarverksmiðjuna. Borgarráð samþykkti síðan i aprflmánuði 1990 að krefj- ast þess að rekstri verk- smiðjunnar yrði hætt. Da- víð Oddsson, þáverandi borgarstjóri, sagði þá að vorið 1988 hefðu miklar um- ræður verið í borgarráði um hættuna af rekstri verk- smiðjunnar. Það hefði verið vegna nýrra upplýsinga um skaðsemi ammoníaks, sem borgarverkfræðingur hefði bent á. Fram að því hefðu menn aðallega óttast sprengihættu vegna kjarná- burðar. 1985 fól borgarráð dr. Ágústi Valfells og Rúnai-i Bjarnasyni að gera úttekt á áhættuþáttum vegna starf- semi verksmiðjunnar. I greinargerð þeirra kemur fram að veruleg hætta geti stafað af geymslu fljótandi ammoníaks í kúlugeymi á verk- smiðjulóðinni. Meginhættan sé mengunarhætta, þ.e. að ammoníaks- ský kunni að berast frá verksmiðj- unni yfir borgina ef verulegt óhapp verði á verksmiðjusvæðinu. Eggert Hauksson, framkvæmda- stjóri Áburðaiverksmiðjunnar, segir að gert hafi verið mat á hættu frá Áburðarverksmiðjunni. Ibúðar- byggð sé utan hættumarka. heimilisbankinn _ á réttri s www.bi.is ókeypis aðgangur til ársins 2000 (P 0 BÚNAÐARBANTQNN S k í m a Trqiistur bajikii ,, t Morgunblaðið/RAX Ærslast í snjónum BÖRNIN á Blönduósi skottuðust úti í brekku og ærsluðust í snjón- um sem þar gaf og þurftu ekki að hafa áhyggjur af daglegu amstri hinna fullorðnu. Sjálfsagt var að prófa ýmsar aðferðir í brekkunni og gáfust þær allar vel. -------------- Krafa öryrkja um hærri bætur Kostnaður liggur ekki fyrir GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir ekki Ijóst hvaða möguleika rík- isstjómin hefur til þess að mæta kröfum öryrkja um hærri örorkulíf- eyri. Á fundi Sjálfsbjargar um stöðu ör- yrkja um síðustu helgi var samþykkt ályktun þess efnis að krafa yrði gerð um aukið fjármagn ríkisins til Tryggingastofnunar. Hljóðaði kraf- an þannig að frá og með 1. apríl og 1. september mjmdi örorkulífeyrir hækka um 10 þúsund krónur og aðr- ir greiðsluflokkar um 5%. Geir vildi ekkert segja um málið annað en verið væri að reikna út hve mikinn kostnað slík hækkun örorku- lífeyris hefði í fór með sér. Hann sat fund Sjálfsbjargar og hefur fengið ályktunina í hendur. Sagði hann að verið væri að fara yfir þau fjölmörgu atriði sem þar komu fram. ------♦♦♦----- Brotist inn vegna spila- kassa ÞRISVAR hefur verið brotist inn í söluturna í Reykjavík undanfamar nætur en í öllum tilvikum gripu þjót- ar í tómt. Þeir brutu upp spilakassa en höfðu ekkert uppúr krafsinu. Innbrotsmálin eru í rannsókn hjá lögreglunni. Að sögn Omars Smára Ármannssonar aðstoðai'yfirlög- regluþjóns var enga fjármuni að hafa í spilakössunum þar sem þeir eru í flestum tilvikum tæmdir á hverju kvöldi. Segir Ómar þjófana aðeins valda spjöllum með tilheyr- andi kostnaði fyrir eigendur sölu- turna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.