Morgunblaðið - 04.03.1999, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 04.03.1999, Qupperneq 11
MORGUNB LAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 11 FRÉTTIR Hart deilt á samningsdrög um íþróttahús í bæjarstjórn Reykjanesbæjar Minnihluti hyggst kæra málsmeðferð ÚTLITSTEIKNING af hina nýja fjölnota íþróttahúsi sem Verkafl mun reisa í Reykjanesbæ. MINNIHLUTI bæjarráðs í Reykjanesbæ hefur í hyggju að kæra málsmeðferð meirihlutans vegna fjölnota íþróttahúss í Reykja- nesbæ, en á fundi bæjarráðs á mánudag var samþykkt að taka til- boði frá fyrirtækinu Verkafli hf. um byggingu hússins og drög að leigu- samningi vegna þess. I samnings- drögunum er gert ráð fyrir að bær- inn leigi húsið til 35 ára fyrir 2.250.000 krónur á mánuði, allt frá því að húsið verður afhent sem á ekki að vera síðar en 18. febrúar á næsta ári. Þá samþykkti bæjarráð að greiða Verkafli hf. sérstaklega vegna fjár- magnskostnaðar á byggingartíma hússins, samtals 7.350.000 krónur, þar af 4,9 milljónir á þessu ári. Á fundinum á þriðjudag lagði minni- hlutinn fram útreikninga sína á kostnaði samfara leigusamningnum og öðrum valkostum, ásamt lög- fræðiáliti sem samið var að ósk minnihlutans vegna útboðs og mats á tilboðum í fjölnota íþróttahús fyrir Reykjanesbæ. Eftir að meirihlutinn samþykkti að ganga að tilboði Verkafls hf., lagði minnihlutinn fram bókun þar sem hann lýsir þeirri skoðun að „veruleg réttaróvissa ríkir um þennan gjöming“, og að verið væri að umbuna tilteknum einstaklingum með óeðlilegum hætti í tengslum við þetta mál. Minnihlutinn neitaði síð- an að taka þátt í frekari afgreiðslu samningsins. I upphafí fundar vék Ellert Eiríksson bæjarstjóri af fundi og tjáði viðstöddum að hann væri vanhæfur í allri umræðu og af- greiðslu er varðar fjölnota íþrótta- hús. Að sögn Jónínu Sanders, for- manns bæjairáðs, er ástæðan sú að Ellert og systkini hans eiga hluta- bréf í Islenskum aðalverktökum, eiganda Verkafls hf. Telur reglur brotnar Jóhann Geirdal, einn bæjarfull- trúa minnihlutans, kveðst telja að málsmeðferð vegna íþróttahússins sé óeðlileg og hyggi minnihlutinn á að fara kæruleiðina í því sambandi. Hann telji málsmeðferðina m.a. varða við skipulagslög og reikni hann með að yfirstjórn þeirra mála muni verða sett erindi vegna húss- ins. Þá verði þeim hluta samnings- ins, sem snertir fjármál sveitarfé- laga, vísað til félagsmálaráðuneytis til umsagnar. Hann telji einnig út- boðsreglur brotnar og muni minni- hlutinn afla sér lögfræðilegrar ráð- gjafar til að þeim hluta málsins verði beint í réttan farveg. „Þarna er gerður leigusamningur við verktaka um hús sem á að vera á lóð sem er á svæði sem ekkert deiliskipulag er fyrir og hefur ekk- ert verið kynnt með nokki-um hætti fyrir íbúum. I öðru lagi er það ekki í neinu samræmi við þær reglur sem opinberir aðilar eiga að starfa eftir, að gera samning upp á tæplega milljarð króna án útboðs. Fram- kvæmdin er meira að segja svo um- fangsmikil að hún ætti að vera boð- in út á Evrópska efnahagssvæðinu. Mér skilst að Ármannsfell hf. hafí falið Samtökum iðnaðarins að kanna hvort farið hafi verið að lög- um í þeim efnum, og í mínum huga leikur enginn vafí á að um brot sé að ræða. Eg er jafnframt sannfærður um að þessi samningur sé mjög óhag- stæður og kosti sveitarfélagið mun meira en ýmsar aðrar lausnir sem skila sama árangri, þannig að hags- munum sveitarfélagsins og íbúa þess er varpað fyrir róða,“ segir Jó- hann. Leigutaki greiðir gjöld „Meðal annars ber leigjanda sam- kvæmt samningnum að greiða öll þau gjöld sem venjulega falla á eig- endur fasteigna, ásamt því greiða allan kostnað samfara viðhaldi bún- aðar og lóðar ásamt tryggingum og fasteigna- og lóðagjöldum. Eins og þetta væri ekki nóg, þá skuldbindur bærinn sig samkvæmt samningi til að endurgreiða alla skatta og gjöld sem kann að verða beint á leiguna eða leigusalann vegna samningsins og framkvæmda við byggingu húss- ins. Ekki aðeins er því bærinn að tryggja verktakanum endurgreiðslu sem er verulega umfram eðlilegan kostnað og vexti, heldur tekur hann á sig allar kvaðir og ábyrgðir sem ættu að hvíla á eiganda, og borgar þar að auki þá skatta sem verktak- inn kynni að fá vegna gróðans af leigunni," segir hann. Jóhann kveðst telja að kostnaður samfara húsinu sé um 50% hærri en aðrir sambærilegir möguleikar myndu kosta. Húsaleiga ekki útboðsskyld Jónína Sanders segir að vegna lögbundinna, kostnaðarsamra fram- kvæmda sem bæjarsjóður standi í um þessar mundir, meðal annars í tengslum við einsetningu grunn- skóla og frárennslismál, hafí verið hagstæðara að leigja íþróttahúsið. „Bæjarsjóður stendur vel, en við tókum í fyrra 700 milljóna króna lán til að byggja grunnskóla og fyrirsjá- anlegar eru fleiri stórar lántökur. Með þvi að taka lán fyrir íþrótta- húsinu værum við að rýra þau vaxtakjör sem bænum bjóðast.“ Jónína bendir á að samkvæmt samningnum við Verkafl geti bæj- arsjóður fest kaup á húsinu þegar betur hentar fjárhagslega. Hún vísar því á bug að réttaró- vissa sé um framkvæmdina. „Húsa- leiga er ekki útboðsskyld, hvorki á íslandi né á Evrópska efnahags- svæðinu. Þetta er hlutur sem við höfum kannað.“ Jónína segir að gagnrýni minni- hlutans á val á lóð undir íþróttahús- ið og skort á deiliskipulagi sé ekki byggð á réttum forsendum. „Við fórum í það að breyta aðalskipulagi á þessari lóð. Aðalskipulag er sam- þykkt hjá skipulagsstjóra og ég á von á því að ráðherra undirriti það einhvem tíma næstu daga. Þegar það er búið er farið í að deiliskipu- leggja þessa lóð og auglýsa skipu- lagið. Þegar að því kemur verður málið kynnt fyrir nágrönnum. Reykjanesbær á mikið land þannig að við eigum nægjanlegt pláss undir þetta hús ef það fær ekki þann reit sem ætlaður hefur verið fyrir það. Við gátum ekki farið að kynna fyrir íbúunum einhverja byggingu sem ekki var búið að ákveða að ætti að reisa.“ Jónína segir að þegar hafi fengist reynsla af því fyrirkomulagi sem haft er við byggingu íþróttahússins, því fyrir um tíu árum hafí svipaður háttur verið hafður á þegar samið var við Islenska aðalverktaka um byggingu bæjarskrifstofanna. Saltsíld til Evrópusambandsins Samið um fjögur þúsund tonna tollfrjálsan kvóta ÍSLENSKIR síldarútflytjendur töpuðu mikilvægum tollfrjálsum mörkuðum fyrir ákveðnar tegundir síldarafurða þegar fyrrverandi EFTA-ríkin Svíþjóð, Finnland og Austurríki gengu inn í Evrópusam: bandið fyrir nokkrum árum. I framhaldi af því var samið um rúm- lega fjögur þúsund tonna tollfrjáls- an innflutningskvóta á síld til Evr- ópusambandsins, sem var minni kvóti en íslendingar fóru fram á, og síðan þá hafa íslensk stjórnvöld ít- rekað reynt að að fá þennan kvóta aukinn. Breytingar á tollareglum nokk- urra íslenskra afurða á innri mark- aði Evrópu, einkum síld, voru með- al þess sem var til umræðu á fundi Halldórs Ásgrímssonar utann'kis- ráðherra og Emmu Bonino, sem fer með sjávarútvegsmál og mannúðar- og neytendamál í framkvæmda- stjórn ESB, í Brussel á þriðjudag. Niðurstaða þess fundar var fyrir- heit um að viðræður yi-ðu teknar upp í þessum efnum, að því er fram kemur í samtali við utanríkisráð- herra í Morgunblaðinu í gær. Samið var um 4.150 tonna toll- frjálsan innflutningskvóta milli ís- lands og Evrópusambandsins haustið 1995 og var við setningu kvótans tekið tillit til meðaltalsút- flutnings íslenski-a síldarafurða til Finnlands og Svíþjóðar undan- gengin þrjú ár. Ekki tekið tillit til vaxandi útflutnings Ekki var tekið tillit til þess að út- flutningur hafði farið vaxandi á þessa markaði á þessu tímabili, auk þess sem sfldarstofnar voru í vexti og því líklegt að útflutningur gæti aukist verulega næstu árin. Utflutningskvóti á ýmiss konar krydd- og edikssfld var ákveðinn 2.400 tonn, en slík vara hefði ella borið 10% toll samkvæmt fríversl- unarsamningi Islands og Evrópu- sambandsins. Þessi kvóti var búinn strax á vormánuðum árið 1996 og bar útflutningurinn eftir það 10% toll. Þá var tollfrjáls kvóti á heila hausskorna saltsíld ákveðinn 1.750 tonn, en hún ber annars 12% toll. Söltuð síldarflök eru hins vegar tollfrjáls samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. FLISFATI 1 STK 1 980 2 STK 2980 ATH. OPfÐ ALLA VIRKA DAGA 10-20 OG ALLA LAUGARDAGA 10-18 Ath Sendum í póstkröfu. Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730. Fax 562-9731 LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.