Morgunblaðið - 04.03.1999, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
k
ERLENT
Vaxandi krafa um að ísraelska herliðið í Líbanon verði kallað heim
Ariel Sharon vill þjóðstjórn
og' einhliða brottflutning
Jerúsalem. Reuters.
Lausn á
byggða-
vanda?
Ósltí. Reuters.
BÆJARSTJÓRINN í Kaafjord
í Norður-Noregi hefur lagt til,
að ríkið greiði niður ferðir pip-
arsveina í bænum til framandi
landa í von um, að þeir snúi aft-
ur færandi hendi, þ.e.a.s. með
konu sér við hlið.
„Piparsveinalífið er eríitt,
jafnt félagslega sem tilfínninga-
lega,“ sagði Aage Pedersen bæj-
arstjóri um leið og hann kynnti
tillögu sína um niðurgreiddar
ferðir, til dæmis til landa í Asíu,
Rússlands og Póllands. Sagði
hann. að nota mætti til þessa op-
inbert fé, sem ætlað er að draga
úr byggðaröskun.
I Kaafjord búa 2.500 manns
og þar af eru piparsveinarnir 8%
eða 200. Hefur fækkað í bænum
um 30-40 manns árlega síðustu
10-15 árin og það er er ekki síst
kvenfólkið, sem flýr burt.
ARIEL Sharon, utanrikisráðheira
Israels, hreyfði þeirri hugmynd í
gær, að þingkosningunum í maí yrði
frestað og neyðarstjóm skipuð til að
annast einhliða brottflutning ísra-
elska hersins frá Líbanon. Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Israels,
og Moshe Arens varnarmálaráðhen-a
hafa vísað þessu á bug og einnig
Ehud Barak, leiðtogi Verkamanna-
flokksins og stjórnarandstöðunnar.
„Það er óhjákvæmilegt að skipa
strax neyðarstjórn með þátttöku
Likudfloksins og Verkamanna-
flokksins til að unnt sé að taka
ákvörðun um einhliða brottflutning
frá Líbanon og framkvæmd Wye-
samninganna við Palestínumenn,“
sagði Sharon. „Þetta er eina leiðin til
að komast upp úr líbanska kviksynd-
inu og það er aðeins á færi þjóð-
stjórnar að ákveða það.“ Sharon
benti á, að kosningum hefði áður
verið frestað en það gerðjst eftir að
stríð braust út milli Israels og
arabaríkjanna 1973.
Sharon hefur alla tíð verið mjög
herskár og það var hann, sem
skipulagði innrásina í Líbanon 1982
sem varnarmálaráðherra. A síðustu
árum hefur hann þó lagt til oftar en
einu sinni, að ísraelska herliðið í Lí-
banon verði kallað heim einhliða.
Netanyahu andvígur
Netanyahu hafnaði í gær þessum
hugmyndum Sharons og sagði, að
flyttu Israelar herinn einhliða frá Lí-
banon myndu þeir þurfa að kljást við
Hizbollah-skæruliða í Israel en ekki í
Líbanon.
Barak, sem hefur heitið því að
kalla herinn heim fyrfr mitt næsta ár
sigri Verkamannaflokkurinn í kosn-
ingunum í maí, hafnaði líka tillögu
Sharons strax og einnig Ai'ens varn-
armálaráðherra, sem sagði hana
vera óraunhæfa. Sagði hann, að nær
væri að endurskoða samninga frá
1996, sem takmörkuðu hernaðarum-
svif ísraelska hersins í Libanon.
Voru þeir gerðir við skæruliða
Hizbollah-hreyfingarinnar með milli-
göngu Bandaríkjamanna og sam-
kvæmt þeim hétu hvorirtveggju að
stefna ekki lífi óbreyttra borgara í
hættu með aðgerðum sínum. Sagði
Arens samkomulagið hafa gagnast
skæruliðum fyrst og fremst. Þeir
væru frjálsir að því að ráðast á ísra-
elska hermenn en skýldu sér síðan á
bak við óbreytta borgara í þorpun-
um.
25-30 falla árlega
Mikil og vaxandi óánægja er í Isr-
ael með veru hersins í Líbanon enda
hafa fallið þar 25-30 hermenn á ári
og sjö frá síðustu árarnótum, þai’ af
einn herforingi. Benjamin Netanya-
hu, forsætisráðherra Israels, hafði
ekki tjáð sig um hugmyndir Sharons
í gær en hann segist sjálfur geta
flutt herinn heim á einu ári þótt
hann hafí ekki verið með neinar
tímasetningar.
Hagnaður af
Fnroya Banka
Þórshöfn. Morgunblaðið.
MIKILL hagnaður var af rekstri
Foroya Banka, fjórða árið í röð, en í
upphafi þessa áratugar var honum
bjargað frá gjaldþroti með margra
milljarða kr. framlagi frá hinu opin-
bera.
Hagnaður bankans iyrir skatt á
síðasta ári var rúmlega 3,8 milljarð-
ar ísl. kr., sá næst mesti sl. fjögur
ár. Er hann nú eini bankinn í
Færeyjum en 1994, þegar kreppan
var hvað mest, var Sjóvinnubankinn
sameinaður honum.
Hagnaðurinn er sagður stafa
fyrst og fremst af því, að vel hafí
árað til sjávarins, en eigandi bank-
ans er Fjárfestingarsjóðurinn frá
1992 eða með öðrum orðum lands-
sjóðurinn.
Vegna góðrar afkomu bankans
aukast tekjur færeyska landssjóðs-
ins um rúmlega 1,8 milljarða ísl. lcr.
og er það miklu meira en gert hafði
verið ráð fyrir.
Reuters
Sakaður um
stríðsglæpi
í seinni
heimsstyrj-
öldinni
KRÓATINN Dinko Sakic, sem
stýrði fangabúðum í seinni
heimsstyrjöldirmi, var lagður inn
á sjúkrahús degi áður en hann
átti að mæta fyrir rétti vegna
ákæru um stríðsglæpi. Sakic,
sem er 76 ára gamall, var lagður
inn á sjúkrahús í Zagreb í Króa-
tíu vegna skyndilegra veikinda.
Zakic var framseldur frá Argent-
ínu í júní sl. og ákærður fyrir að
bera ábyrgð á dauða 2.000
manna í hinum illræmdu Ja-
senovac-fangabúðum í síðari
heimsstyrjöldinni, en þá var
Króatía leppríki Þýskalands.
Monica Lewinsky segir sögu sína í sjónvarpsviðtali og nýrri bók
Leið „eins og dræsu“ þegar
Clinton baðst afsökunar
Wæshington. Reuters, The Daily Telegraph.
MONICA Lewinsky sagðist í sjónvarpsvið-
tali sem sýnt var í Bandaríkjunum í nótt að
íslenskum tíma hafa liðið „eins og dræsu“
þegar hún horfði á Bill Clinton Bandaríkja-
forseta viðurkenna í sjónvarpsávarpi 17.
ágúst á síðasta ári að hann hefði átt í kyn-
ferðissambandi við Lewinsky. Clinton bað
bandarísku þjóðina þar afsökunar á gerð-
um sínum en ekki Lewinsky. í dag kemur
út bók Bretans Andrew Morton, Monica’s
Story, þar sem Lewinsky segir sögu sína
en gert er ráð fyrir að bókin seljist eins og
heitar lummur. Breska dagblaðið Sunday
Mirror hefur þegar birt útdrátt úr bókinni
og efni úr bókinni hefur einnig verið lekið
til margra annarra dagblaða að undan-
förnu.
ABC-sjónvarpsstöðin bandaríska sýndi
fyrr í gær brot úr viðtalinu sem fjölmiðla-
konan Barbara Walters tók við Lewinsky
20. febrúar síðastliðinn. „Mér leið eins og
dræsu. Mér fannst ég óhrein og mér fannst
sem ég hefði verið notuð og ég var afar von-
svikin," sagði Lewinsky, sem á sínum tíma
var starfsstúlka í Hvíta húsinu, í viðtalinu
við Walters. Játaði Lewinsky að henni hefði
fundist Clinton gefa í skyn í sjónvarpsávarpi
sínu 17. ágúst að hún hefði veitt honum
„kynferðislega þjónustu".
Lewinsky sagði í viðtalinu að þegar hún
leiddi hugann að þeim manni sem hún
þekkti sem Bill Clinton þá væri hún viss um
að hann hefði mikla eftirsjá vegna sam-
Gagnrýnir Kenneth
Starr harkalega
bandsins, og hvemig það komst í hámæli.
„En þegar ég hugsa um manneskjuna sem
ég nú sé að störfum, og er eitt hundrað pró-
sent stjórnmálamaður, þá held ég að hann sé
einfaldlega leiður yfir því að upp um hann
komst.“
Lewinsky og Clinton
„sálufélagar í kyniífínu“
Lewinsky kvaðst í viðtalinu við Walters
ekki eiga von á því að Hillary og Chelsea
Clinton, eiginkona og dóttir forsetans,
myndu taka afsökunarbeiðni sína gilda. „En
ég vil þó gjaman að þær viti að ég er mjög
leið yfír því sem gerðist og öllu því sem þær
hafa mátt þola.“
Sagði Lewinsky aðspurð að Clinton væri
afar tilfinninganæmur og blíður maður. En
hún sagði að e.t.v. ætti Clinton í innri bar-
áttu, þar sem á tækjust strangt trúarlegt
uppeldi og sterk kynhvöt hans. „Ég held að
hann reyni að hafa stjórn á kynhvöt sinni af
því ég held ekki að honum fínnist undanláts-
semi við kynhvötina í lagi,“ sagði Lewinsky.
„Ég held að hann reyni að hafa stjórn á sér í
þessum efnum. En síðan mistekst honum
ætlunarverkið.“
Clinton „kyssir afar vel“ að sögn Lewin-
sky sem bætti því við að forsetinn hefði verið
hennar „sálufélagi í kynlífínu“. Jafnframt
kvað hún sambandið við forsetann eina
merkilegustu lífsreynslu lífs síns.
Lewinsky lét fyrrverandi vinkonu sína,
Lindu Tripp, hafa það óþvegið í viðtalinu við
Walters. Tripp tók á sínum tíma samtöl sín
við Lewinsky, þar sem þær ræddu um sam-
band Lewinsky við Clinton, upp á band og af-
henti síðan Starr. „Ég vorkenni henni,“ sagði
Lewinsky. „Ég myndi aldrei vilja vera hún.“
Fer hörðum
orðum um Starr
í bók Mortons er Lewinsky sögð fara afar
hörðum orðum um Kenneth Starr, sem
stýrði rannsókninni á hendur Clinton, og
starfsháttum hans. Ottast vinir hennar og
vandamenn mjög að þau ummæli, sem eftir
Lewinsky eru höfð í bókinni, reiti Starr svo
til reiði að hann endurskoði það samkomulag
sem þau Lewinsky gerðu. Samkomulagið
tryggði Lewinsky friðhelgi gegn því að hún
sýndi Starr og félögum hans samstarfsvilja,
og vitnaði um samband sitt við forsetann, en
nú óttast vinir Lewinsky að Starr muni engu
síður reyna að höfða mál á hendur henni.
í bókinni segir Lewinsky að henni hafi lið-
ið svo illa vegna þeirrar meðferðar sem hún
hlaut hjá Starr og félögum, er þeir komu að
máli við hana 16. janúar 1998 og reyndu að
fá hana til að vitna gegn Clinton, að hún hafi
hugleitt sjálfsmorð. Þegar StaiT sagði henni
að hún gæti átt yfir höfði sér 27 ára fangels-
Author of the 11 Wnu Yorlt Tma btslseller Dmmi Htr Tntt Story
Reuters
FORSÍÐA bókar Andrews Mortons
um Monicu Lewinsky.
isdóm, sýndi hún ekki samstarfsvilja, hafí
hún hugleitt að kasta sér út um glugga þar
sem hún var stödd í viðumst Starrs og fé-
laga á tíundu hæð hótels í Virginíuríki.
Kvartar Lewinsky yfir því í bókinni að
samstarfsmenn Starrs hafi hindrað hana í
því að hringja eftir aðstoð lögfræðings síns
og móður sinnar. Mun Jackie M. Bennett,
einn aðstoðarmanna Starrs, hafa sagt við
Lewinsky: „Þú ert 24 ára gömul. Þú ert
greind stúlka. Þú ert nógu gömul til að taka
eigin ákvarðanir. Þú þarft ekki að hringja í
mömmu.“
Starr á yfir höfði sér rannsókn dómsmála-
ráðuneytisins bandaríska vegna ásakana um
að hafa notað óvönduð meðul til að ná ár-
angri í rannsókn sinni. í vitnisburði fyrir
dómsmálanefnd Bandaríkjaþings í nóvem-
ber sagði Starr það rangt hjá Lewinsky að
samstarfsmenn hans hefðu hindrað hana í
því að hringja eftir aðstoð.
I
|
I