Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 29

Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 29 LISTIR Eyjólfur Einarsson sýnir á Mokka EYJÓLFUR Einarsson opnar sýningu á Mokka 5. mars. Þar sýnir hann tíu nýleg steinþrykk. Rúm þrjátíu ár eru síðan Eyjólfur sýndi síðast á Mokka, en þar sýndi hann tvisvar í upphafi starfsferils síns sem spannar yfir 35 ár. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég sýni steinþrykk, en það hefur lengi verið gamall draumur minn að kynnast þessari tækni. Undan- farin þrjú haust hef ég dvalið á grafíkverkstaeði í Amsterdam undir leiðsögn góðs kennara og er það árangur þeirrar dvalar sem ég sýni núna á Mokka. Eftir að hafa nær eingöngu unnið með ol- íulitum á Iéreft, má eflaust sjá einhver merki málarns í þessum verkum, þó að tilgangurinn sé að láta hina grafísku tækni ráða ferðinni." Sýningunni lýkur 6. apríl nk. KROSSGÖTUR ‘96, 35,5x46 cm. Ráðstefna um endurhæfingu MG-sjúkra á Hótel Sögu Nú gefst þér einstakt tækifaeri á að kynna þér sjálfnaemissjúkdóm sem leynst getur í sjúklingum ógreindur í fjölda ára. Tarja Ketola, taugasálfræðingur, mun ræða um meðferð á MG, | vöðvaslensfári, í Finnlandi. MG-sjúklingur segir frá árangri sínum í endurhæfingarmeðferð og baráttunni við þennan erfiða sjúkdóm. Finnbogi Jakobsson, taugasérfræðingur, mun einnig kynna sjúkdóminn og helstu einkenni hans. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Sögu, A-sal, föstudaginn 5. mars 1999 kl. 13.30. Allt fundarefni verður túlkað á íslensku. Aðgangur ókeypis. gin máli að þú sért upplýst/ur. Systkíni í listinni TÓJVLIST Neskirkja SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveit áhugamanna flutti verk cftir Mozart og Dvorák undir stjórn Ingvars Jónassonar. Ein- leikarar: Áshildur Haraldsdóttir og Elísabet Waage. Sunnudagurinn 28. febrúar, 1999. ÞAÐ ER í raun ekki langt síðan Sinfóníuhljómsveit Islands var í svipaðri stöðu og Sinfóníuhljóm- sveit áhugamanna, nema að fyrrum voru færri er kunnu nokkuð til verka, auk þess sem ýmis hljóðfæri voru ekki til í landinu. Skólarnir hafa skilað út í samfélagið mörgum vel spilandi hljóðfæraleikurum og nú er hljóðfæraeign mjög almenn, jafnvel af þeim sem til sjaldgæfari teljast. Sinfóniuhljómsveit áhuga- manna var stofnuð 1990 og hefur starfað óslitið síðan undir leiðsögn Ingvars Jónassonar. A tónleikunum sveitarinnar, s.l. sunnudag, í Nes- kirkju, voru tvö verk, Konsert fyrir flautu og hörpu, K.299, eftir Mozart og Sinfónía nr 9, „Frá nýja heimin- um“, eftir Dvorák. Sagnfræðingar hafa togast á um hvort rétt sé, að Mozart hafí haldið lítið upp á flautuna og verið jafnvel enn minna um hörpuna. Það er ljóst, að í klassískri tónlist var flautan ekki virt sem einleikshljóðfæri, en var hins vegar mikið notuð í kamm- DJASSTRÍÓIÐ Svartfugl. Svartfugl á Jómfrúnni í TILEFNI af þriggja ára afmæli Jómfrúarinnar og tíu ára bjórsölu á Islandi efnir Jómfníin til djass- tónleika dagana 4.-7. mars. Fram kemur djasstríóið Svartfugl en það skipa Sigurður Flosason, altsaxó- fónn, Björn Thoroddsen, gítar, og Gunnar Hrafnsson, kontrabassi. Jómfrúin hefur staðið fyrir tón- listaruppákomum allt frá upphafi starfsemi sinnar. Má þar nefna þátttöku í RúRek og stofnun djass- klúbbsins Múlans. Svartfugl mun leika frá kl. 17-19 í dag, fímmtudag, og á morgun, föstudag, og frá kl. 16-18 laugar- dag og sunnudag. ertónlist, sérstaklega þó þeh-ri teg- und skemmtitónlistar, sem gekk undir nafninu „divertimento" og svo auðvitað, sem mikilvægt hljóðfæri sinfóníuhljómsveitarinnar, þó óbóið væri á tímabili jafnvel algengara en flautan, sem „efsta rödd“. Það er því ekki að undra, hvers vegna Mozart áttaði sig ekki því dálæti sem Frakkar höfðu á þessu hljóðfæri. Þá var harpan ekki síður sér-franskt hljóðfæri og fékk t.d. ekki viður- kennda stöðu í sinfónískri tónlist ut- an Frakklands fyrr en í síðróman- tíkinni. Þannig má segja að Mozart hafí verið vorkunn, að vera eingöngu beðinn um að semja einleiks- konserta fyrir þessi hljóðfæri, ver- andi afbragðs píanóleikari, jafnvel slyngur fiðlari og alinn upp í sin- fónískri tónlist, en Frakkar töldu, svo vitnað sé í heimspekinginn Rousseau (1712 -78), að hljóð- færatónlist væri „aðeins nothæf til stuðnings við söng“. Konsertinn fyrir flautu og hörpu er samt sem áður býsna góð tón- smíð og sérstaklega hægi þátturinn, þar sem Mozart leikur sér að tónlín- um, sem hann einn á til. Konsertinn var mjög fallega fluttur af Áshildi Haraldsdóttur og Elísabet Waage en sérstaklega þó í samleiks- kadensunum, sem voru sérlega fal- lega mótaðar og leiknar af miklu ör- yggi. I heild var leikur hljómsveit- arinnar góður og hljómurinn einnig, svo að flutningurinn í heild var vel frambærilegur. Seinna verkið á konsertinum var sú níunda eftir Dvorák, eitt af mestu meistaraverkum sinfónískrar tónlistar og í flutningi þessa verks komu einmitt fram veikleikar sveit- arinnar, sérstaklega fámenni strengjasveitar, sem hafði ekki í fullu tré við fullmannaða sveit blás- ara. Þrátt yfir þetta var oft skemmtilegur blær yfir flutningi þessa erfiða verks, t.d. í hinum fræga Largo-þætti og þá sérstak- lega einleikurinn á enska hornið. þá var og töluvert bragð af horna- blæstrinum í upphafí fjórða þáttar og stundum nokkuð vel tekið til hendi í tréblásarasveitinni, svo að á köflum var flutningurinn ánægju- legur. Nauðsynlegt er að stækka strengjasveitina, sérstaklega ef flytja skal verk eins og þá níundu eftir Dvorák. Ef það tekst, ætti sveitin að ráða nokkuð vel við sin- fónísk verk af stærri gerðinni, þó líklega væri vænlegast til árangurs, að sníða sér þar stakk eftir vexti, því nóg er af góðum sinfónískum verkum, sem ekki eru eins erfíð og krefjandi um túikun og sú níunda eftir Dvorák. Hvað sem þessu líður, er Sinfóníuhljómsveit áhugamanna merkilegt framtak, sem tónlistar- menn og opinberir aðilar mættu styðja við og efla, því atvinnu- mennska og áhugamennska era sprottnar upp af sama meið, era systkin í listinni. Jón Ásgeirsson Maraþontón- leikar í Lang- holtskirkju GRADUALEKOR Langholts- kirkju heldur maraþontónleika í Langholtskirkju laugardaginn 6. mars frá kl. 10 til 20. Tónleikamir eru hluti af fjáröflun kórsins vegna tónleikaferðar til Kanada næsta sumar. Kórinn þáði boð um að syngja á alþjóðlegri tónlistarhátíð, Niagara Falls International Music Festi- val, í byrjun júlí. í tengslum við ferðina er verið að skipuleggja ferð um Islendingabyggðir. A tón- leikunum verða sérstakir gestir Barnakórar Hallgrímskirkju und- ir stjórn Bjameyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur og Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Einnig mun kvar- tettinn „Djúsí systur" syngja. Þess má geta að kvartettinn vann nýlega söngkeppni MR og mun fyrir skólans hönd taka þátt í söngkeppni framhaldsskólanna. Ein þeirra, Lára Bryndís Egg- ertsdóttir, mun einnig leika ein- leik á píanó. Nokkrir fyrrverandi og núver- andi „Grallarar" eru í söngnámi og munu syngja einsöng. Innan Gradualekórsins starfar kammersveit sem samanstendur af sjö fíðluleikurum, lágfíðlu, þrem sellóleikurum og tveim flautuleik- urum. Strengjasveitin mun leika undir í nokkrum verkum með kómum og einnig sjálfstætt og nokkrir félagar munu leika einleik. Þá munu „Krúttakór" (4-7 ára) og Kórskólakór Langholtskirkju (eldri en 8 ára) syngja undir stjóm þjálfara sinna, Bryndísai’ Bald- vinsdóttur, Hörpu Harðardóttur og Laufeyjar Ólafsdóttur. Kórfélagar munu dagana fyrir tónleikana safna áheitum og einnig er hægt að hringja í kirkj- una til að gefa í ferðasjóðinn. Aðgangseyrir er kr. 500 og kaffi eða djús og meðlæti er innifalið. AÐALFUTMDUR 1999 Aöalfundur Skeljungs hf. veröur haldinn þriðju- daginn 23. mars 1999 í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, og hefst fundurinn kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 17. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins um ijölda á stjómarmönnum. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, tillögur og reikningar félagsins liggja frammi á aöalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aöalfund. Aðgöngumiðar og fundargögn eru afhent á aðal- skrifstofu félagsins aö Suðurlandsbraut 4, 5. hæð, frá og með hádegi 16. mars til hádegis á fundar- dag, en eftir það á fundarstað. Að loknum aðalfundarstörfum verður móttaka fyrir hluthafa i Setrinu á sama stað. Förðunar-og snyrtifræðingar verða hjó okkur amorgunog Hægt er að panta tíma í förðun í síma 568 9033 á laugardag. Við kynnum - nýja liti - nýjar vörur - nýjan ilm Vertu velkomin OLCA Kringlunni )ÁE$AIN1^URENI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.