Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 31

Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 31 LISTIR Málverk í undar- legu umhverfí MYMPLIST Gallerf Fold / Kri nglan MÁLVERK HRAFNHILDUR BERNHARÐSDÓTTIR Sýnmgin er opin á verslunartíma og stendur til 6. mars. GALLERÍ Fold rekur auk aðal- sýningarrýmisins við Rauðarárstíg sýningar og sölurými í Kringlunni og mun það vera liður í að koma listinni íýrir augu sem flestra lands- manna meðan þeir sinna innkaup- unum í verslanamiðstöðinni. Sýn- ingarrýmið í Kringlunni er í raun aðeins fleki sem stendur á annarri hæð hússins og má hengja á hann Sænskur, kauðskur Schwarze negger KYIkllVMHIi Sainlifóin, Álfabakka HAMILTON ★% Leikstjóri Harald Zwart. Handrits- höfundur William Aldridge, e. sögu Jans Guillou. Kvikmyndatökustjóri Jerone Robert. Aðalleikendur Peter Stormare, Mark Hamill, Lena Olin, Mats Lángbacka, Madeleine Elfstrand. Sænsk. Buena Vista 1998. NORÐURLANDABÚUM er margt betur gefið á kvikmyndasviðinu en að gera harðhausamyndir, oft kenndar við Stallone, Wiliis, Schwarzenegger, og þá félaga alla. Þetta hefur þó skirið árangri og honum ekki litlum. Árið 1986 gerði óþekktur læknissonur frá útnára í Finnlandi smámynd í alþjóðlegum hasarstíl og bar það óaðgengilega heiti Jáátaavá polte, sem fékk heimsdreifingu undir nafninu Artic Heat. Var m.a. sýnd hérlendis í Laugarásnum. Ekki var mannvalinu til að dreifa, framleiðendur höfðu ekki einu sinni efni á Chuck Norris, urðu að gera sér drengstaulann hans, Mike, að góðu. Hvað með það, myndin skaut læknissoninum á sporbraut um stjörnuheiminn í Hollywood, þar sem hann hefur yfir- leitt skinið ágætlega síðan. Hann heitir Renny Harlin. Norðmaðurinn Harald Zwart stenst engan samanburð við Harlin, Hamilton, sem er byggð á reyfara- hetju sem kvikmynduð hefur verið í marggang í Svíaríki, er vandræða- leg, sundurlaus og sálarlaus spennumynd um titilhetjuna, ofur- svalan leyniþjónustumann, sem fenginn er til að hafa uppá stolnum gjöreyðingarvopnum. Berst leikur- inn víða um lönd, kryddaður þssum vanabundnu hliðarsögum. Afrakst- urinn klisjusúpa, þar sem helst er treyst á alþjóðafrægð Peters Stormare og Lenu Olin, þótt lítil sé. Þau eru engir aukvisar, hafa hæfí- leika, sterka návist og persónuleika, sem hefur nýst mönnum einsog Mazursky og Coen-bræðrum. Þau eiga betra skilið. Þessi tilraun „frænda" okkar er mestmegnis klúður og borin von hjá herra Zwart að hún dugi til að feta slóð Finnans frækna. Sæbjörn Valdimarsson ----------------- Upplestur í Gerðarsafni LESIÐ verður upp í kaffístofu Gerðarsafns, Listasafni Kópavogs, á vegum Ritlistarhóps Kópavogs, í dag kl. 17 til 18. Olafur Haukur Símonarson rit- höfundur er gestur að þessu sinni og mun hann lesa úr eigin verkum. Aðgangur er ókeypis. myndir báðum megin. Hins vegar stendur flekinn á miðjum gangi og því ættu flestir sem um ganginn fara að verða hans varir og geta velt iyiTi' sér því sem á honum er sýnt. Myndir Hrafnhildar eru nett en átakalítil málverk, myndefnið hefð- bundið og úrvinnslan einnig. Nú er líklega úr vöndu að ráða þegar sýna á myndlist á stað eins og þessum svo ekki er hægt að dæma það sem þar er hengt upp á sömu forsend- um og verk sem sýnd eru í þar til gerðum sölum og galleríum. Kring- um flekann í Kringlunni er sífelldur erill og umhvei'fíð í raun alls ekki til þess fallið að fólk staldri þar við til að skoða myndlist af neinni alvöra - en það hlýtur þó alltaf að vera markmiðið þegar sýning er sett upp, hvar sem það er. Listauppákomur á stöðum sem þessum era sjaldgæfar en þó þekkjast þess dæmi að verslana- miðstöðvar hafi verið nýttar fyrir nútímalist af einhverju tagi. Þá virðist hafa komið best út að búa til verk sem era í takt við erilinn og fh'ringuna sem slíka staði ein- kenna, en reyna jafnframt að koma einhverjum einföldum skilaboðum inn hjá kúnnanum. Þannig virka stór og ögrandi verk, gjarnan í hálfgerðum auglýsingastíl, stund- um ágætlega í þessu umhvei'fi. Hins vegai' er það vafasamara að setja upp hefðbundin listaverk á borð við málverk Hrafnhildar. Þeg- ar slík verk birtast innan um allt skrumið og vöraúrvalið verður lítið úr þeim og á vissan hátt má segja að það sé verið að gera lítið úr þeim með því að sýna þau þar. Þau virðast þá ekkert merkilegin en hvert annað skópar eða skrautlegir auglýsingabæklingarnir sem dreift er á göngunum. Málverk Hrafnhildar era alls ekki slæm og eiga betra skilið en að þeim bregði aðeins fyrir eins og gluggaútstillingu eða auglýsinga- spjaldi þar sem fólk hendist fram- hjá á leið sinni úr Ríkinu í Hag- kaup. Jón Proppé mbiM* Rlsaryin AB10KUM á Fosshálsi og því seljum við allan lagerinn með allt að afslætti STÓRAUKINN AFSLÁTTUR AF FJÖLMÖRGUM VÖROM Nll UM VER Úlpur Öndunarflíkur Hettupeysur Háskólapeysur Allir bolir Pólóbolir Sundbolir Sundbuxur Joggingbuxur Kakíbuxur frá kr. 4.950 frá kr. 7.450 frá kr. 1.990 frá kr. 750 kr. 650 f rá kr. 745 frá kr. 598 frá kr. 460 frá kr. 750 frá kr. 1.990 2 stk. barna pólóbolir kr. 990 Barna-fleecepeysur frá kr. 1.990 ►Columbia Sportswear Company • n RUSSELL ■m ATHLETIC TYR [ciLDAmarx] Bakpokar Russell Athletic verð áður kr. 11.900,- ■ dag 30-50% afsláttur HREYSTR . —spottvömfius Fosshálsi 1 - Sími 577-5858 föstud. og laugard.kl. 11-18 Ath. full búð af nýjum vöixim í Hreysti fitness Shop, Skeifunni 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.