Morgunblaðið - 04.03.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 33
Félag íslenskra
landsbyggðarlækna
HINN 2. október
1998 var Félag ís-
lenskra landsbyggðar-
lækna (FILL) formlega
stofnað. Fyrirmynd fé-
lagsins er sambærileg
félög í Kanada og
Ástralíu sem byggja á
„rural-medicine“ sem
við höfum kosið að
nefna landsbyggðar-
lækningar. Félagið er
ætlað þeim læknum er
deila með sér svipuðum
kjörum og starfsað-
stöðu á landsbyggðinni.
Markmið félagsins
er;
að vinna að bættri heil-
brigðisþjónustu dreif-
býlisins
að gæta almennra hagsmuna lands-
byggðaj'lækna
að vinna að viðeigandi endurmennt-
un og sérfræðimenntun fyrir lands-
byggðarlækna
Af hverju nýtt félag?
Læknaskortur á landsbyggðinni er
tilfinnanlegur og hefur verið svo um
árabil. Óþarfi er rifja hér upp söguna
um fjöldauppsagnir heilsugæslu-
lækna, svo fersk er hún í minni. Um-
rótið sem varð í kjölfar uppsagnanna
hefur markað djúp spor í huga okkar
sem úti á landsbyggðinni vinnum og
viljum vera þar áfram homsteinai'
heilbrigðisþj ónustunn-
ar, hver á sínum stað.
Ný staða er komin upp
þar sem nýr aðili, kjara-
nefnd, ákvarðar nú kjör
okkar heilsugæslu-
lækna. Þetta fyrir-
komulag hefur sína
kosti og galla eins og
við er að búast. Þetta
býður upp á meiri
sveigjanleika en hingað
til hefur þekkst en á
móti kemur að kjaramál
heilsugæslulækna era í
stöðugri endurskoðun
dag frá degi og ekki
alltaf ljóst hvert stefnir.
Nokkur atriði eru þó
enn með slæmri slag-
síðu í kjaramálum landsbyggðar-
lækna. Helst er að nefna lág vakta-
laun lækna á heilsugæslustöðvum
auk lægiá dagvinnulauna en við-
gengst í þéttbýlinu. Niðurstaðan
verður lág heildarlaun margra lands-
byggðarlækna í samanburði við þétt-
býlið þegar vaktaálag er haft í huga.
Þetta þarf að laga ef læknar eiga að
fást til að vera áfram í dreifbýlinu.
Þessi staða í kjaramálum og mönn-
unarvandi læknishéraða á lands-
byggðinni, ásamt þörfinni fyrir
markvissari endurmenntun og sér-
menntun fyrir landsbyggðarlækna,
hefur verið aðalhvatinn að stofnun
félagsins.
Heilbrigðisþjónusta
Heilbrigðisyfirvöld
verða því að fara að
bretta upp ermarnar,
------3»--------------
segir Agúst Oddsson,
og hætta þessu rölti
yfir bæjarlækinn eftir
vatni.
Yfír bæjarlækinn
Yíírvöld heilbrigðismála hafa með
ýmsu móti reynt að ráða bót á
læknaskorti á landsbyggðinni en
orðið lítið ágengt. Bæði landlæknir
og fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins
hafa verið á faraldsfæti erlendis við
að kynna kjör okkar. Þessir aðilar
hafa væntanlega upplýst heimilis-
lækna erlendis um að nú sé lag að
koma heim þar sem kjörin séu orðin
„fyllilega sambærileg" svo vitnað sé í
fréttatilkynningu heilbrigðisráðu-
neytisins. Við landsbyggðarlæknar
könnumst því miður ekki við að þessi
yfirlýsing eigi við okkar kjör.
Heilbrigðisyfu-völd verða því að
fara að bretta upp ermamar og
hætta þessu rölti yifir bæjarlækinn
eftir vatni. Það þarf að skilgreina
vandann betur og skipta honum upp
í bráðavanda og langtímavanda.
Bráðavandinn er það sem blasir við
hér og nú, flótti lækna af lands-
byggðinni á mölina og enginn kemur
í þeirra stað. Það lætur nærri að
16-20 læknishéruð séu ómönnuð í
dag og einungis tæplega helmingur
læknishéraða á landsbyggðinni er
setinn sérmenntuðum heimilislækn-
um. Losni stöður í þéttbýlinu eru
það fyrst og fremst þessir heimilis-
læknar á landsbyggðinni sem munu
sækja um þær, hugsanlega í sam-
keppni við kollega erlendis. Á lands-
byggðina fer varla nokkur maður við
núverandi aðstæður. Hér duga engin
langtímamarkmið eins og fjölgun
læknanema, aukin kennsla heimilis-
lækninga í læknadeild eða héraðs-
skylda. Héraðsskyldu verður heldur
ekki komið á nema sem lið í námi og
þjálfun unglækna, nokkuð sem kem-
ur til með að leggja aukna vinnu á
herðar heimilislækna á landsbyggð-
inni. Það er einfaldlega liðin sú tíð að
unglæknar séu settir á beit einir á
báti í héruðum landsins, eins og tíðk-
aðist hér áður fyrr, til að leysa tíma-
bundinn læknaskort.
Kjarabætur
Það sem gera þarf er að bæta kjör
landsbyggðarlækna. Með bættum
kjörum er ekki eingöngu átt við
launakjör. Önnur atriði vega hér
þungt svo sem endurmenntun,
starfsumhverfi, vaktabyrði, félags-
legt umhverfi og svo mætti lengi
telja. Til að mæta þeim kröfum sem
dreifbýlið gerir um víðtæka menntun
og kunnáttu þarf landsbyggðarlækn-
irinn að hafa mun meiri möguleika á
endurmenntun og símenntun en
læknar þéttbýlisins. Starfsumhverfið
þarf að vera fjölskylduvænna en nú
er, vaktabyrði minni og möguleikar
til orlofs meiri. Vaktafríið sem fékkst
við síðasta úrskurð kjaranefndar var
stórt skref í rétta átt en menn mega
ekki gleyma því að um er að ræða
viðurkenningu fyrir lækna sem eru
með mikla vaktabyrði árið um kring.
Af hverju landsbyggðarlæknir?
Landsbyggðarlæknar eru í eðli
sínu sjálfstæðir, búa yfir mikilli og
víðtækri starfsreynslu við fíölbreytt-
ar aðstæður. Þeir verða að temja sér
sjálfstæð vinnubrögð og skipulag fyr-
ir utan það að treysta á sjálfa sig þeg-
ar á reynir, enda oftast einir á vakt
ólíkt því sem tíðkast í þéttbýlinu.
Nálægðin við samfélagið er afar
gjöful. Sambúðin við náttúruna og
náttúruöflin í sinni fegurstu en jafn-
framt ógnvænlegustu mynd er lífs-
reynsla sem landsbyggaðarlæknar
upplifa gjarnan bæði í starfi og leik.
Landsbyggðariæknirinn er einn af
máttarstólpum síns samfélags.
Hann er sá sem ber jafnan ábyrgð á
heilbrigðisþjónustu byggðarlagsins
og þá sérstaklega neyðarþjónust-
unni, að öðrum heilbrigðisstarfs-
mönnum ólöstuðum. I mínum huga
er því það að vera landsbyggðar-
læknir ákveðinn lífsstíll sem er ekki
allra að búa við, lífsstíll sem ég veit
að margir kollegar sakna þegar þeir
flytja á mölina. Þeir sakna oft þeirr-
ar lífsfyllingar og viðurkenningar
samfélagsins sem vinnan úti á lands-
byggðinni gefur en eru skiljanlega
ekki tilbúnir að snúa til baka þegar
álagið, vaktabyrðin og umhverfi fjöl-
skyldunnar er skoðað, svo ekki sé
minnst á launakjör miðað við vinnu-
framlag.
Höfundur cr yfirlæknir á Heilbrigð-
isstofnun Bolungnrvfkur.
Ágúst
Oddsson
HLÍÐIN og gilið þar sem snjóflóðið féll.
enn opin til að snjóflóð geti áfram
hlaupið niður á bátahöfnina. Eg
lagði til að snjóflóðarenna yrði
grafin í miðjan Hi'ygginn og ýtt
upp til beggja handa þannig að
snjóflóð væra í öraggum böndum
til sjávar. Vestari vamargarður
rennunnar kæmi niður úr Ytri-
Hjallanum niður á Krókinn, þar
sem nú er kominn neðri hluti varn-
argarðs VST/NGI, en neðsta hluta
hans þarf að beina enn meira til
austurs til að vemda bátahöfnina.
Ábyrgðin. Mínar tillögur gerðu
ráð fyrir að unnt yrði að halda allri
byggð við Ólafstún og unnt yrði að
nýta allt byggingarlandið, sem
eyðilagðist í snjóflóðinu 1995 og
Merarhvammurinn milli varnar-
garðanna myndi haldast óbreyttur.
Þar var upplagt skíðaland fyrir
Flateyringa, með skíðalyftu upp á
Ytri-Hjallann. Nú er þetta land allt
eyðilagt, og það er fyrst og fremst
að kenna ókunnugleika NGI (Nor-
ges Geotekniske Institutt) á stað-
háttum, sem allir íslenzkir ráða-
SÉÐ yfir Flateyri úr fjallinu,
þar sem snjóflóðið hljóp.
menn hafa látið villa um fyrir sér.
Slík mistök mega pkki endurtaka
sig annarsstaðar. I níræðisafmæli
heiðursborgarans, Maríu Jóhanns-
dóttur, 25. maí 1997, sagði eg að
bezta afmælisgjöfm til hennar væri
sú, að Flateyringar létu fara fram
endurskoðun á tillögum NGI/VST
um varnirnar. Á það var ekki hlust-
að, og því fór sem fór.
Höfundur cr fyrrverandi forstjðri.
Á fermingaborðið
BorðdúKaúrvalið
er hjá okkur
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
London
frá kr. 16.645
í sumar með
Heimsferðum
Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug vikulega til London í sumar,
en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska ferðalanga til
þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Nú getur þú valið um að
kaupa flugsæti eingöngu, flug og bíl eða valið um eitthvert
ágætis hótel Heimsferða í hjarta London. Brottför alla miðviku-
daga í sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér lága verðið.
Verðkr. 1Ó«Ó45 Verðkr 19.990
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, fiugsæti og skattar. Flug og skattur.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is