Morgunblaðið - 04.03.1999, Side 41

Morgunblaðið - 04.03.1999, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ 250 hrefnur árlega og 100 lang- reyðar. Málið hefur hins vegar fleiri hliðai- en hinar líffræðilegu. Hvalveiðar eru afar viðkvæmt mál í alþjóðlegu samhengi. Hvað ætla menn að gera með allt þetta hval- kjöt? Ekki liggur fyrir að unnt sé að selja teljandi magn af því til út- landa. Norðmenn sem stundað hafa hrefnuveiðar um nokkurra ára skeið leggja blátt bann við út- flutningi hvalaafurða. Þá er það mat margra í ferðaþjónustu og meðal útflytjenda sjávarafurða að hvalveiðar að lítt undirbúnu máli séu mikið hættuspil. Eg hef oft varað við einföldun í túlkun útreikninga á fæðunámi hvala og áhrifum þess á veiðar þorsks og annarra nytjastofna hér við land. Niðurstöður Hafrann- sóknastofnunai- um þessi efni byggjast á takmörkuðum gögnum og túlkun á þeim er oft út í hött eins og m.a. mátti sjá í myndriti með greininni „Togast á um hval- inn“ í Morgunblaðinu 28. febrúar sl. (bls.10-11). Sýnum mikla varúð Að mínu mati þurfa að liggja fyrir ítarleg gögn og rökstuðning- ur frá ríkisstjórn, áður en Alþingi fer að taka afstöðu til hugsanlegra hvalveiða. Afstöðu sína þarf þingið að byggja á traustum upplýsing- um og áhættumati, meðal annars á áhrifum hvalveiða á samskipti okkar við helstu viðskiptaþjóðir og ímynd landsins og stöðu í um- hverfísmálum. Eftir að ríkis- stjórnin hefur skorist úr leik í loftslagsmálunum með því að und- irrita ekki Kýótó-bókunina, er Is- land þegar í afar slæmu ljósi á al- þjóðavettvangi. Alyktun um hval- veiðar nú myndi bæta gráu ofan á svart. Grundvallaratriði í þessu máli er líka, hvort Island ætli sér að leita á ný inngöngu í Alþjóða- hvalveiðiráðið, eins og starfshópur sjávarútvegsráðuneytisins lagði til fyrir tveimur árum að athugað yrði. Það er líka reginmunur á því hvort menn eru að tala um að veiddar verði fáeinar hrefnur eða hvort hér eigi að hefja stórhvala- veiðar. Hið síðartalda væri hreint glapræði við núverandi aðstæður. Ríkisstjórnin hefur ekki unnið heimavinnuna og Alþingi á ekki að gefa grænt ljós á hvalveiðar við þessar aðstæður. Höfundur er alþingismaður. Ár aldraðra Jenna Jensdóttir s I sverðinum glitrar grasið“ Imannlegum samskiptum er dýrmætt að sýna ástúð og um- hyggju. Það hefur sannað sig að aldraðir sem lifa við slíka rækt- arsemi eiga mun betra með að taka mótlæti og þeim erfiðleikum sem óumflýjanlega fylgja háum aldri. Rósemi og gleði taka sér oft bólfestu í andliti ef aldraður getur eytt elliárum og háð sitt síðasta stríð í faðmi ástríkrar fjölskyldu. Það er staðreynd. I nútíma samfélagi er slík samvera kynslóða næsta óhugsandi. Samt er hún til. Það er ótrúlega hamingjuríkt að eiga hlutdeild í slíku í vinahúsi, þótt í stuttri heimsókn sé. Hafa samt alltaf vitað að þar er óhugsandi að sérgirni og lífsgræðgi geti nokkum tíma gripið inn í rótgróin viðhorf. Glaðari og betri í vitundinni gengur hver og einn frá heimsókn í svo sjaldgæft vinahús. Það er auðvelt að skilja að eilífðin kalli þá sem aldrað- ir eru. Viðskilnaður er samt oftast sársaukafullur. Það er ylrík huggun ef umönn- un og gott þel hafa ríkt í samskiptum. Það er auðvelt að skilja að ei- lífðin kalli þá sem aldraðir eru. Viðskilnaðui- er samt oftast sárs- aukafullur. Það er ylrík huggun ef umönnun og gott þel hafa ríkt í samskiptum. Kannski er ekki neitt eins þakkarvert í lífi aldraðra og það að andi og hugsun skerðist sem minnst, þótt líkamskraftar þrotni. Þá er ekkert háleitara til en sameinast í góðum hugsunum til þeirra er missa ástvini sem eru á manndóms-, æsku- eða barnsaldri. Þar brestur okkur alltaf skilning. Góðar hugsanir spyrja ekki um trú eða trúleysi. I þeim felst einfald- lega máttur kærleikans og því hljóta þær að gjöra öðrum gott. 1969-1999 30 ára reynsla Einangrunargler r I GLERVERKSMIÐJAN m$am¥ei*k Eyjasandur 2 • 850 Hella *■ » 487 5888 • Fax 487 5907 ORLANE P A R I S Hefur húð þín sofnað á verðinum? Vissir þú að húðin hefur „minni" sem dvínar með árunum? ORLANE býr yfir lausn til að vekja húð þína úr dvalanum, með nýja hrukkubananum, Soin Antirides Extreme d'Orlane. Nýtt varakrem sem inniheldur sömu eiginleika og Extréme. Notaðu nú tækifærið til að kynnast þessum frábæru kremum frá ORLANE. Snyrtivöruverslunin Glæsibæ Snyrtivöruverslunin Sandra, Smáranum, Kóp. Snyrtivöruverslunin Nana, Hólagarði Snyrtivöruverslunin Evita, Borgarkringlunni Snyrtivöruverslunin Spes Háaleitisbraut Regnhlífabúðin Laugavegi Laugavegsapótek Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáranum, Hagkaup Skeifunni Hilma, Húsavík FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 41 Sértilboð til Kanarí 22. mars frá kr. 39.955 Við seljum nú síðustu sætin til Kanarí fyrir páskana og bjóðum þér hreint einstakt tilboð til þessa vinsælasta sólarstaðar íslendinga. Nú getur þú valið um 1 vikur eða 2 í sól og sumri og um leið valið um fjölda spennandi kynnisferða meðan á dvölinni stendur með fararstjórum Heimsferða. Verð kr. 39.955 M.v. hjón með 2 böm, vika, flug, gisting og skattar. Verð kr. 44.9901 M.v. 2 í íbúð/smáhýsi, flug, gisting,| skattar, 22.mars. Verð kr. 49.850 M.v. hjón með 2 börn, 2 vikur,| flug, gisting og skattar. HEIM >FERE)IR Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is Nýting vatnsfalla! Hvernig hafa Norðmenn leyst málin? Friðun, virkjanir, útivist, ferðaþjónusta o.fl. í sátt? Geta íslendingar lært af áratuga vinnu Norðmanna? Náttúruverndarráð boðartil opins kynningar- fundar um rammaáætlun um vatnsföll í Noregi sem innlegg í umræðu um ný vinnubrögð við landnýtingu og skipulag á íslandi. Fundarstaður: Ráðhús Reykjavíkurföstudaginn 5. mars kl. 13—15.30. Fyrirlesarar: Ola Skauge, deildarstjóri „Direktoratet för Nat- urforvaltning," Þrándheimi og Hallvar Stensby yfirverkfræðingur hjá „Norges Vassdrags- og Energidirektorat". Fyrirspurnum svarað að loknum erindum. Allir áhugamenn velkomnir. Náttúruverndarráð SMAAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF \x---,/ KFUM V | Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30. Upp- hafsorð: Leifur Hjörleifsson. Hugleiðing: Benedikt Arnkels- son. Auk þess flytja 3 félagar stutt erindi. Allir karlmenn hjart- anlega velkomnir. Kl. 20.30 Lofgjörðarsam- koma. Ofurstarnir Norunn og Roger Rasmussen. I.O.O.F. 11 = 179348V2 = 9.III* Landsst. 5999030419 VIII KENNSLA Söngnðmskeið fyrir unga sem aldna, laglausa sem lagvísa, byrjendur/ framhald. Námskeiðstími: 7. mars—7. maí. Esther Helga Guðmundsdóttir, söngkennari. S. 561 5727 og 699 2676. —ALLTAT GiTTH\/A£> NÝTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.