Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 59 r BRÉF TIL BLAÐSINS Þetta með agann Frá Júlíusi Valdimarssyni: EG VAR að hlusta á morgunútvarp- ið einn morguninn og umræðuefnið var unga fólkið. Nýlegar upplýsing- ar greina frá því að um 20% ung- menna þurfa að leita sér aðstoðar vegna svonefndra geðrænna vanda- mála. Fjöldi þeirra ungmenna sem þurfa að leita sér slíki-ar aðstoðar fer hratt vaxandi. Sérfræðingurinn sem var í morgunútvarpinu til að leiða hlustendur í allan sannleika, eins og sérfræðinga er siður, sagði að í flestum þessara tilfella væri um agavandamál að ræða. Þessi skil- greining minnti mig á blaðagrein sem ég sá á dögunum, skrifaða af virtum námsráðgjafa, en hún lagði áherslu á að börn og unglingar þyrftu að læra tillitsemi og sjálf- saga, ekki bara sumir heldur allir. Vandinn er bara sá að sá heimur sem unga fólkið fæðist inn í er ekki góður skóli í góðum siðum og góðri framkomu. Óarðbær tilfinningasemi Unga fólkið fæðist inn í heim fullorðna fólksins sem um þessar mundir byggist á frumskógarlög- málum samkeppninnar þar sem hver vegur annan á markaðstorg- inu og tillitsemi við náungann flokkast undir óarðbæra tilflnn- ingasemi. Það fæðist inn í þjóðfé- lag neysluæðis þar sem háþróuð auglýsingatækni markaðsvæddrar fjölmiðlunar sérhæfir sig í að fá fólk til að skuldsetja sig um efni fram. Það fæðist inn í yflrvinnu- samfélag þar sem fólk, þar með talið foreldrarnir, vinnur myrkr- anna á milli og hefur ekki orku í að sinna samskiptum við börnin. Það fæðist inn í heim þar sem þeim sem ekki standa sig eða ekki er hægt að nota lengur er hent út í pytt fá- tæktar og vosbúðar. Það fæðist inn í heim þar sem sprengjum er varp- að á saklausa borgara og börn og gamalmenni deyja úr hungri og veikindum vegna viðskiptaþving- ana undir yfirskyni réttlætis en af undirrót kaldrifjaðra markaðs- hagsmuna. Og í þessu vitfirrta um- hverfí sem tekur við börnum og unglingum ómótuðum og varnar- lausum mætir þeim fullorðna fólkið sem bendir ásakandi á þau fmgrin- um og heimtar að þau læri tillit- semi og sýni þann sjálfsaga að hlýða settum reglum. Lftill metnaður ráðamanna Lífsflótti, ofbeldi og örvænting einkennir lífsstíl ungs fólks í sorg- lega miklum mæli. Ungt fólk er óvitlaust og það sér, skilur eða fínn- ur á sér þann innantóma og mann- fjandsamlega lífsstíl sem er í gangi. Sumir harka þetta af sér, læra að hlýða, fara í Versló eða á aðrar við- skiptabrautir til að meika það en verða oft tilfmningaskertir, kald- hæðnir og sjálfumglaðir markaðs- sinnar án tillitsemi við aðra. Aðrir meika þetta ekki, fmna sér ekki stað í þessu öllu saman, fá sér bjór, eða í pípu, brjóta rúðu eða bara stytta sér aldur því enga framtíð er að sjá. Það ríkir lítill metnaður hjá stjórnmálamönnum, fjánnálamönn- um eða öðrum þeim áhrifa- og valdamönnum þjóðfélagsins sem ábyrgir eru fyrir þessu ástandi. Það er lítill metnaður fólginn í því að setja skefjalausa neyslustefnu og gróðahyggju í forgang fram yfir manneskjulegt og tillitssamt þjóðfé- lag. En er ekki meiri metnaður fólg- inn í því að gera vel við alla, einnig unga fólkið, þótt það sé ekki ennþá komið inn í framleiðsluferlið og gamla fólkið, sem hefur lokið sínum þætti svo og aðra, eins og öryrkja, sem ekki geta tekið þátt af öðrum ástæðum? Við þurfum að tala saman Við getum vel breytt þessu en við þurfum að hafa vilja og metnað til þess að þjóðfélagið verði mann- eskjulegt. Við þurfum að tala sam- an, ræða um hvað okkur fínnst innst inni um þróun mála, hvernig okkur líður og leita að öðruvísi leiðum. Við erum öll búin gífurlegum hæfíleik- um og jákvæðum krafti og ef við leggjum saman krafta okkar getum við flutt fjöll. Til er hreyfing fólks sem heitir Húmanistahreyfingin. Þessi hreyfing hefur það að mark- miði að byggja net fólks sem vill gera samfélagið að jákvæðu um- hverfí fyrir persónulega þróun hvers og eins og vinnur að þjóðfé- lagsbreytingum, meðal annars mpð starfsemi Húmanistaflokksins. Ég hvet alla sem hafa trú á möguleika okkar til að breytast og breyta þjóð- félaginu í kringum okkur að hafa samband við undirritaðan. Ennþá erum við of fá sem leggjum hönd á plóginn og við þurfum þess vegna hjálp þína, lesandi góður, og margra þinna líka til þess að hugsjónir okk- ar verði að veruleika. Höfum metn- að, gerum þjóðfélagið að stað sem skilur engan eftir í vosbúð og skorti en skapar öllum jöfn tækifæri fyrir sig og sína. Byggjum saman upp mennska framtíð í stað þess vígvall- ar sem verið er að koma á af tillits- lausum bröskurum og metnaðar- lausum pólitíkusum. Þetta er vel hægt! JÚLÍUS VALDIMARSSON, í stjórn Húmanistaflokksins. Það rofar til Frá Eggerti E. Laxdal: Það er hríð á fjallvegum og fennir í byggð. Bflamir brjótast um í sköflunum. Sumir eru utan vega. Lögreglan og björgunarsveitarmenn vinna af kappi. Ýtur ryðja vegina. Loks rofar til. EGGERT E. LAXDAL, Hveragerði. Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma551 1012. Orator, félag laganema Tekur 5 kg. 60 mín. tíma 2 hitastitJingí Snýr í báöar: Notar barka o.fl. I 17187E 1200sn. þvottavél. ■ Tekur 5 kg. og er öllu því besta sem prýöir góöa þvottavél. M.a. innb.vigt sem stýrir vatnsmagni eftir þvottamagni, ullarvöggu, Tekur 5 kg. \ 120 mín. tímarofi 2 hitastillingar, barki fylgir o.fl. Tekur 3 kg. 120 mín. timarofi 2 hitastillingar, barki o.fl. Verð áðurftr. 44.900. - AN IMO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 Ath. Öll verð eru staðgreiðsluverð fcrhf Ueið nu ki. 32.900 Þú sparar kr. Þuottauél 1200 sn BUerð nú hr. 19.900 Þú sparar kr. Þú sparar kr. 1 )
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.