Morgunblaðið - 04.03.1999, Síða 60
60 FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
IJinsjóii Arnnr G.
Ilagiiarsson
Undanúrslit Islands-
mótsins í sveitakeppni
spiluð um heigina
40 sveitir spila í undankeppni Is-
landsmótsins í sveitakeppni um helg-
ina. Ragnar Önundarson, fram-
kvæmdastjóri MasterCard á íslandi,
setur mótið kl. 15.
Dagskrá:
Föstudagur 5. mars:
Fyrirliðafundur kl. 14.00
1. umf. kl. 15.00-16.30 kl. 16.50-18.20
2. umf. kl. 19.30-21.00 kl. 21.20-22.50
Laugardagur 6. mars:
3. umf. kl. 11.00-12.30 kl. 12.50-14.20
4. umf. kl. 14.50-16.20 kl. 16.40-18.10
5. umf. kl. 19.30-21.00 kl. 21.20-22.50
Sunnudagur 7. mars:
6. umf. kl. 10.30-12.00 kl. 12.20-13.50
7. umf. kl. 14.15-15.45 kl. 16.05-17.35
Urslit leikja verða sett inn jafnóð-
um á heimasíðu BSÍ: islandia.is/~is-
bridge en þai' er einnig að fínna allar
upplýsingar um mótið, t.d. lista yfír
alla þátttakendur.
Urslitin í MasterCard-mótinu
verða spiluð 31.mars-3.apríl nk.
Bridsfélag Suðurnesja
Feðgamir Kjartan Ólason og óli
Þór Kjartansson sigruðu í minningar-
mótinu um Guðmund Ingólfsson, sem
lauk sl. mánudagskvöld. Með þeim í
pari spilaði Jón Steinar Ingólfsson.
Staða efstu pai'a varð annars þessi:
Kjartan-ÓliPór-JónSteinar 168
Gunnar Guðbjömsson - Garðar Garðarsson 159
Karl G. Karlsson - Gunnlaugur Sævarss. 153
Heiðar Sigurjónss. - Vignir Sigursveinss. 144
Bjöm Dúason - Karl Einarsson 140
Næsta keppni verður hraðsveita-
keppni. Spilað er á mánudagskvöld-
um í félagsheimilinu við Sandgerðis-
veg.
Bridsfélag Hafnaríjarðar
Fyrri umferð af tveimur í ein-
menningi félagsins var spiluð mánu-
daginn 1. mars. Spilað var í tveimur
riðlum. Þessir einstaklingar urðu
efstir:
A-riðill: Pórarinn Sófusson 80
Erla Sigurjónsdóttir 77
Edda Jónasdóttir 72
Leifúr Aðalsteinsson 69
B-riðill: Sigurjón Harðarson 76
Guðmundur Magnússon 74
Páll Valdimarsson 72
Guðni Ingvarsson 68
Keppninni verður fram haldið
mánudaginn 8. mars. Ef þú ert orð-
inn leiður á makker, þá er tilvalið að
koma og spila einmenning hjá Brids-
félagi Hafnarfjai'ðar eitt kvöld.
Bridsfélag Húsavíkur
Staða fimm efstu sveita fyrir síð-
ustu umferð í aðalsveitakeppni Brds-
félags Húsavíkur er eftirfarandi:
Sveinn Aðalgeirsson 176
Gunnlaugur Stefánsson 164
Björgvin R. Leifsson 162
Frissi kemur 147
Heimir wBessason 119
í lokaumferðinni eigast við sveit-
imar í 2. og 2. sæti en Frissi á leik
við Heimi, þannig að baráttan um 2.
- 3. sætið gæti orðið hörð.
Estu pör í fjölsveitaútreikningi
efth' 16 hálfleikí eru:
Pórólfur Jónass. - Einar Svanss. 19,52
Gaukur Hjartars. - Friðgeir Guðmundss. 19,52
Magnús Andréss. - Þóra Sigurmundsd. 17,77
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Eftir 28 umferðir í barómetir-tví-
menningnum er staða efstu para eft-
irfarandi:
Sigurður Amundas. - Jón Þór Karlss. 249
PÉ Agúst Jónss. - Ari Már Aras. 181
Baldur Bjartmarss. - Halldór þorvaldss. 168
Hermann Friðrikss. - Jón St Ingólfss. 156
Jónas Elíass. - Jón Guðmar Jónss. 143
Guðrún Jörgensen - Gauðlaugur Sveinss. 132
Hæsta skor 1. mars:
Stefanía Sigurbjönsd. - Inga J. Stefánsd. 67
Ámi Magnúss. - Eyjólfur Magnúss. 58
Sigurður Ámundas. - Jón Þór Karlss. 57
PállÁgúst Jónss.-AmiMárAmas. 52
15. mars hefst Aðalsveitakeppni
deildanna. Hægt er að skrá sig strax
hjá B.S.Í. Sími 5879360. Spilastjóri ísak
Öm aðstoðar með að mynda sveitir.
RÁÐSTEFNA UM
SKATTAMÁL
föstudaginn 5. mars kl. 10:15-17:00
á Hótel Loftleiðum, Bíósal.
10:15-10:30 Setning: Björn Grétar Sveinsson,
formaður Verkamannasambands íslands.
10:30-11:00 Ávarp Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra:
Stefna ríkistjórnarinnar í skattamálum.
11:00-11:20 Kaffihlé.
11:20-12:00 Goðsögn um skatta: Edda Rós Karlsdóttir,
hagfræðingur Alþýðusambands íslands.
12:00-13:00 Matarhlé.
13:00-13:30 Erindi frá Öryrkjabandalaginu og
Landssambandi aldraðra: Margrét Sigurðar-
dóttir, varaformaður Félags eldri borgara.
13:30-14:40 Þjóðarsátt um skatta og velferð:
Kristján Bragason, vinnumarkaðsfræðingur
VMSÍ og Garðar Vilhjálmsson, skrifstofu-
stjóri Iðju, félags verksmiðjufólks.
14:40-15:00 Kaffihlé.
15:00-17:00 Umræður og pallborð: Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ, Björn Grétar Sveinsson, for-
maður VMSÍ, Sjöfn Ingólfsdóttir, fulltrúi
BSRB, Ágúst Einarsson, alþingismaður og
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður.
Umræðum stjórnar Einar Kari Haraldsson.
Ráðstefnustjóri: Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Landssambands iðnverkafólks.
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Borgarstolt?
Á FLESTUM póstkortum
af Reykjavík má sjá
Tjörnina með fjölbreyttu
fuglalífi og ferðamenn sí-
fellt að mynda við Tjörn-
ina. Nú finnst mér lítill
sómi að sjá gæsir og end-
ur sársvangar og illa
haldnar, margir fuglar
bæklaðir og jafnvel brotn-
ir. Þarna standa tveir
bæjarstarfsmenn í 10
daga og vigta brauð frá
velviljuðum borgurum.
Það eru 5 vinnudagar í
viku svo þetta er hálfur
febrúarmánuður, senni-
lega á launum nálægt 100
þús. krónum.
Það er hægt að kaupa
brauðpoka af eldra brauði
í flestum bakaríum fyrir
50-100 kr. Hvað fengist af
brauði fyrir 100 þús. krón-
ur? Nóg til að fæða end-
urnar í langan tíma. Borg-
in þykist svo ekki hafa
efni á að fæða þessi grey
og lætur þau deyja á ráð-
húströppunum.
Ég hringdi til dýra-
verndunarnefndar út af
þessum vansælu fuglum.
Þar var mér sagt að í
gæsum sem dáið höfðu á
Tjarnarbakkanum hefðu
fundist steinar í magan-
um, sem sagt farnar að
borða steina vegna hung-
urs. Og einnig að borgin
hefur ekki hlustað á
kvartanir dýraverndunar-
nefndar sem var mér
sammála. Ekki aldeilis
„dýravinir“ þessi borgar-
stjórn.
Katrín.
Hækkanir R-listans
ÉG VAR að fá reikning
fyrir fasteignagjöldum
mínum fyrir árið 1999 eins
og allir aðrir íbúðareig-
endur í Reykjavík. Það
sem stingur strax í augu
er að nú hækka gjöldin
ennþá einu sinni hjá R-
listanum. Og nú er hækk-
unin á milli ára hjá mér
um 16,75% eða úr kr.
34.514 fyrir árið 1998 í kr.
40.296 fjTir árið 1999. Og
allir muna loforðin á Ing-
ólfstorgi fyrir kosningar:
„Við ætlum ekki að hækka
skatta."
Ég tók saman fast-
eignagjöld síðustu fjögur
árin sem D-listinn fór
með völd hér í Reykjavík
og hinsvegar síðustu
fjögur ár sem R-listinn
fór með völd, þ.e. fast-
eignagjald, lóðaleigu,
tunnuleigu og vatnsskatt.
Árin 1991-1994 greiddi
ég alls kr. 100.818 eða um
25.000 kr. á ári. En árin
1995-1998 bættist einn
skattur á seðilinn, hol-
ræsagjald. Þessi fjögur
ár greiddi ég ' alls kr.
132.022 í fasteignagjöld
eða kr. 33.000 á óri. Þetta
eru 31,46% hærri gjöld
en hjá D-listanum og enn
hækka þessi gjöld um
16,75% milli ára eins og
fyrr segir. Og nú er það
tunnuleigan sem fer í
6.000 kr. á tunnu. Gjaldið
hjá mér fer úr 942 kr. í
7.260 kr. á ári sem er
67,07% hækkun.
Ég hafði samband við
skrifstofu gatnamála-
stjóra og taldi tunnuleig-
una of háa hjá mér eða
réttara sagt okkur hér í
húsinu. Okkar stigagangi
eru reiknaðai' fimm tunn-
ur en öðrum stigagöngum
hér í blokkinni frá fjórum
og niður í tvær.
Því hagar þannig til hjá
okkur að hér eru sex
stigagangar eða 34 íbúðir
með aðgang að sömu
sorpílátum og það er 21
tunna íyrir allar þessar
íbúðir og hefur svo verið
frá því ég kom hingað árið
1959. Þetta ættu þeir sem
losa tunnurnar að geta
staðfest.
Eftir útreikningum
gatnamálastjóra erum við
hér í mínum stigagangi
með fimm tunnur, fjögur
stigahús með fjórar og
eitt stigahús með tvær
tunnur. Þetta reiknast
mér vera 23 tunnur. Þá er
spurningin, hvemig er
hægt að taka gjald fyrir
23 tunnur þar sem aðeins
er 21 tunna? Svarið sem
ég fékk hjá skrifstofu
gatnamálastjóra var: „Við
getum ekki gert að því
þótt tunnur hverfi.“ Ekki
var boðist til að athuga
málið nánar.
Hvaða skatti megum
við eiga von á að ári á
fasteignaseðlinum frá R-
listanum? Varla er hægt
að finna fleira í sambandi
við sorp, og þó.
Birkir Skarphéðinsson,
Hringbraut 109, Rvík.
Tapað/fundið
Gucci gleraugu
í óskilum
GUCCI gleraugu fundust
efst á Laugavegi við
gömlu Mjólkurstöðina.
Upplýsingar í Auganu,
gleraugnaverslun, sími
568-9111.
Kápa tekin
í misgripum
SVÖRT og þunn, og svart
hliðarveski með CK í einu
horninu, var tekið í mis-
gripum á árshátið MR
miðvikudaginn 24. febrúar
í Broadway. Sá sem tók
þetta í misgripum hafi
samband í síma 561 9435.
Gullkross tapaðist
KARLMANNS u.þ.b. 4
sm í keðju, týndist á leið-
inni Humarhúsið, Rex og
svo upp í Bankastræti, sl.
fimmtudagskvöld. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 565 6764. Fundar-
laun.
Ullarfrakki tekinn í
misgripum hjá GR
NÝR dökkgrár síður ull-
arfrakki var tekinn í mis-
gripum í Golfklúbbi
Reykjavíkur sl. föstudags-
kvöld og annar skilinn eft-
ir. Sá sem tók frakkann í
misgripum er beðinn að
hafa samband í síma
561 1258.
Skartgripir töpuðust
TVEIR gullhringir, ann-
ar giftingarhringur með
höfðaletri, silfurhringur
og eitt silfurarmband,
týndust föstudaginn 26.
febrúar eftir kl. 18 í
sundlauginni Hátúni 12,
Sjálfsbjargarhúsinu.
Skilvís finnandi hafi sam-
band við sundlaugarvörð-
inn í Hátúni 12.
GSM-sími tapaðist
BLÁR Panasonie GSM-
sími týndist í bíl hjá ung-
um manni á leiðinni frá
miðbæ Reykjavíkur í
Kópavog. Sá sem hefur
simann undir höndum
hafi samband í síma
552 2845.
Dýrahald
Rósa er týnd
ÞESSI þrílita læða,
(svört, hvít og gul) hvarf
frá Smyrlahrauni í Hafn-
arfirði þriðjudaginn 16.
febrúar sl. Hennar er sárt
saknað og eru þeir sem
hafa orðið hennar varir
beðnir að hafa samband
við Dagbjörtu í síma
565 5565.
Lúna er týnd
LÚNA týndist fyrir u.þ.b.
3 vikum frá Sveinsstöðum
við Úlfarsfell í Mosfells-
bæ. Hún er svört og hvít,
eyrnamerkt en ekki með
ól. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi sam-
band í síma 854 4111 eða
698 2822.
Fressköttur týndur
Grábröndóttur fresskött-
ur, geltur, týndist sunnu-
daginn 21. febrúar frá
Langholtsvegi. Hann er
eyrnamerktur. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 553 0076.
Víkverji skrifar...
ÓNLISTARUNNENDUR
fögnuðu mjög þegar Klassík
FM hóf útsendingar sínar og ekki
minnkaði ánægjan þegar skipt var
yfir á bylgjulengdina 100.7, því svo
mjög batnaði útsendingin. Enda er
það orðið svo, að fjölmargir tón-
listanmnendur hafa opið fyrir
stöðina meira og minna frá morgni
til kvölds og helzt ekki skipt yfir á
aðrar útvarpsstöðvar nema á
fréttatímum.
Þættir Halldórs Haukssonar
eru frábærir og verða seint full-
þakkaðir, en því miður eru þeir of
stuttir til að fullnægja þörfinni.
Þess í milli er flutt tónlist með
sjálfvirkum hætti, sem er allt í lagi
út af fyrir sig, en vandinn er sá, að
dag eftir dag og viku eftir viku er
leikin sama tónlistin. Oftast eru
þetta kaflar úr vinsælum verkum
eða sönglög. En svo oft má spila
slíka músík með stuttu millibili, að
hörðustu aðdáendur fá meira en
nóg. Mörg merk tónverk eru svo
viðkvæm, að þau þola ekki síbylju-
flutning. Meira að segja Tungl-
skinssónatan.
Víkverji hlustar mikið á Klassík
FM, en að undanförnu hefur hann
fengið sig fullsaddan af sífelldum
endurflutningi sömu verkbúta. Þá
er stutt í, að lokað sé fyrir stöðina.
Þess vegna er skorað á aðstand-
endur hennar að endurnýja verkin
á tónböndunum, t.d. með hljóm-
sveitarverkum í fullri lengd, og
gæta þess að hafa hæfilega langt á
milli útsendinga.
Á þetta er bent í fullri vinsemd
af þakklátum stuðningsmanni
stöðvarinnar að öðru leyti.
xxx
VÍKVERJI álpaðist inn í Skífuna
í Kringlunni á dögunum og fór
að skoða geisladiska. Víkverji hefur
gaman af jazzi og flettir stundum í
stæðunum, þar sem hann er geymd-
ui'. Þá rakst hann á uppáhaldsplötu
sína, sem hann hafði átt í áratugi og
var því orðin svolítið þreytt, þegar
hún var sett í plötuspilarann, heyrð-
ust orðið brak og brestir. En þama
var þessi dýrgripur útgefinn á
geisladiski, þótt tónlistin hafi verið
tekin upp á sjöunda áratugnum.
Víkveiji var því ekki lengi að kaupa
nýju útgáfuna og hefur nú gengið í
endumýjun lífdaga, hlustar á þessa
góðu tónlist truflanalaust, rétt eins
og fyrir 30 áram.
Það er þakkarvert, þegar góð
tónlist er endurátgefin og lagfærð
fyrir geisladiska. Þetta er oft frá-
bær tónlist, sem gaman er að eiga á
jafnvaranlegu efni og geisladiskar
era. Það er aldrei nóg af slíkum
endurátgáfum. Víkverji er t.d. bú-
inn að leita lengi að annarri plötu,
sem gefin var einnig út á sjöunda
áratugnum, en ekki fundið enn. Það
er plata með Dave Brabeck, sem
heitii' „Anything Goes“, þar sem
kvai'tettinn spilar lög eftir banda-
ríska tónskáldið Cole Porter. Frá-
bær plata og frábær jazz. Líklegast
þarf Víkverji enn að bíða þess að sú
plata verði endurútgefin. Vonandi
kemur að því fyrr en síðar.