Morgunblaðið - 04.03.1999, Síða 63

Morgunblaðið - 04.03.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 63 FÓLK í FRÉTTUM Tónlistarnýjung á Rex í kvöld SKÖPUNARGLEÐIN mun ríkja hjá Árna Einari, Óskari og Margeiri á staðnum Rex næstu þrjú fimmtudagskvöld. Morgunblaðlð/,RAX Hljómsveit er úrelt fyrirbæri Saxófónleikari mun kljást við plötusnúða á Rex næstu þrjú fímmtudagskvöld. Hildur Loftsdóttir spurði tónlistarmennina út í formið og ný gildi í tónlistinni. PLÖTUSNÚÐARNIR Ái-ni Einar, Margeir og Alfred More ætla að leika tónlist sína með og á móti Óskari Guðjóns- syni næstu þrjú fimmtudagskvöld á veitingastaðnum Rex undir yfir- skriftinni Improve Groove, og hefj- ast tónleikarnir alltaf kl. 22. Auðveldlega úr tóntegund Óskar: Þetta er einsog mjög lítil hljómsveit, þar sem plötusnúður- inn sér um bassalínuna og taktinn, og ég spila yfir það með saxófónin- um. - Eruð þið þá að svara hvor öðr- um? Óskar: Já, og svo er plötusnúðurinn með tvo plötuspilara, hann skiptir á milli, og í skiptingum get ég verið að spila. Þannig að við getum flakk- að á milli á marga vegu. Margeir: Ég get tekið tónlistina niður og látið Oskar spila einan og skellt henni svo aftur inn. Það verð- ur í hita leiksins sem hlutirnir fara almennilega að gerast. - Er þetta í fyrsta skipti sem þið spilið saman á þennan hátt? Margeir: Nei, við Óskar spiluðum einu sinni saman fyrir nokkrum ár- um. Óskar: Já, skrítið að við vorum að gera sömu hluti fyrir mörgum ár- um. Þá mætti ég í útvarpsþátt hjá Robba plötusnúði og spilaði ofan í hans tónlist. Síðan spilaði ég með Þossa og Margeiri, en svo datt þetta upp fyrir og ég held að enginn hafi gert þetta síðan. Árni: Erlendis er mjög algengt að bæði bassaleikari og slagverksleik- ari spili með plötusnúðum, en það hefur lítið verið gert hér. - En sjá ekki plötusnúðamir um bassalínuna og taktinn? Óskar: Jú, en þegar plötusnúðar eru að snúa plötunum geta þeir auðveldlega skipt um tóntegund og það getur orðið býsna vanda- samt fyrir saxófónleikara að spila yfir það. Það er því miklu auðveld- ara að spila takt yfir sem er bara spurning um hraða. Ég þarf því að „heyra“ bassalínuna til að geta spilað eitthvað almennilegt yfir þá. Mörk að deyja -En er plötuspilarinn efns og hljóðfæri fyrir ykkur? Margeir: Já, í rauninni. Flestar hljómsveitir sem flokkast til dans- geirans í dag hafa plötusnúð sem spila með þeim, og þá er hann einn af hljóðfæraleikurunum. Óskar: Eiginlega eni þeir hljóm- sveitarstjórar, því þeir spila ekki bara á eitt hljóðfæri, heldur eru með alla tónlistina í einu formi og blanda henni saman við eitthvað annað. Árni: Ég lít ekki á mig sem hljóm- sveitarstjóra. Margeir: Það er hægt að kalla þetta hljóðfæraleik, og kalla plötusnúða listamenn, einsog hægt er að kalla margt list. Þetta er bara spurning um flutning og að vera skapandi á staðnum hvaða nafni sem maður kýs að nefna það. Óskar: Maður hefur heyrt á lærðum tónlistarmönnum að þeir furða sig á að hljómsveit geti gengið þar sem enginn spilar á hljóðfæri. Öll þessi mörk eru bara að deyja í dag, þau skipta ekki máli. Margeir: Margir halda að plötu- snúðar spili bara eitt lag í einu. Það á reyndar við um suma, en maður getur líka skapað með tónlistinni. Úthugsað uppbygginguna og reynt að ná einhvem heild í flutninginn. Þá er maður að skapa og ég fæ mjög mikið út íyrir því. - Er þetta þá ekki orðið nýtt list- form sem ætti að vera hægt að læra ískóla? Ámi: Jú, eiginlega. Það er t.d. langt síðan plötuspilarar eins og við not- um byrjuðu að seljast meira en raf- magnsgítarar. Það era bara flestir sem fai-a variega í það að kalla þetta list, og það er langt í það að ég fari að gera það. Óskar: Það var örugglega kominn einhver skóli. Margeir: Já, ég vai- með hann; Plötusnúðaskóla Islands. Þannig að ég hef h'ka látið til mín taka í menntamálum! Það var gífurleg eft- irspum og ég hafði ekki undan, en ég hef ekki tíma fyrir það í dag. - Það hlýtur að vera rosalega mikið mál að þjálfa sig upp í það að vera góður plötusnúður. Margeir: Ég er búinn að vera í þessu í átta eða níu ár. Tíminn stoppar ekki Margeir: Mér finnst þetta mjög áhugaverð hugmynd að fá okkur þrjá plötusnúðana og svo Óskar til að kljást við okkur eða með, því við erum allir svo ólíkir. Mér finnst leiðilegt að skilgreina tónlistina mína en ég myndi segja að hún hefði sterkan iatínkeim. Ég spila mikið af alls konar ryþmum og áslætti og skelli svo kannski geim- hljóðum yfir það. Ámi: Ég spila frekar fónkað hipphopp út í „drum’n’bass". Alfred More er svipaður mér en kannski minna fönkaður. Óskar: Þótt þessir þrír plötusnúðar séu mjög ólíkir þá er hipphoppið þessi undirliggjandi rót sem þeir eru allir sprottnir af. En samt þrjár mismunandi tegundir af því. - Er þá ekki áskorun fyiir þig að koma þér inn í nýjan stíl hvert fimm tudagskvöld ? Óskar: Það er bara eins og í djass- inum, maður er sífellt að spila nýja tóntegund; sömbu, fönk, „swing“, „bebop“ og fleira. Maður er hefur hlustað á alla þessa tónlist - suður- ameríska, breskt hipphopp, banda- rískt rapp - og bregst við hverri tegund á sinn eigin hátt. Hipphopp er mjög tengt fónkinu og bræðingn- um sem eru djasstónlist. Árni: Fyrir mér er tónlistin hans Miles Davis hipphopp. Óskar: Það var ótrúlegur maður sem var alltaf með ungt fólk í kring- um sig, þróaði tónlistina sífellt áfram og gerði sér grein fyrir því að tíminn stoppar ekki. Smá ögrun - Er þetta það ferskasta í tónlist í dag? Margeir: Ég get a.m.k. sagt að þetta er mjög ferskt. Óskar: Þetta er ekki að gerast neins staðar annars staðar. Svo er bara að sjá hvert þetta fer. -Hveijir munu hafa gaman af þessum tónleikum? Árai: Allir sem hafa gaman af Ósk- ari, allir sem hafa gaman af okkur. Eiginlega allir sem hafa gaman af tónlist. Margeir: Allir sem hlusta á tónlist, ekki bara heyra hana. Óskar: Allir sem vilja aðeins láta ögra sér og skemmta sér. -Er þetta hljómsveit sem þið eruð búnir að stofna og heldur áfram eða verður ekkert áfram- hald? Árni: Hljómsveit er úrelt fyrirbæri. Góugleði K kvöld Hálft í hvoru 5. mars .......... [Sixties 6. mars í hvoru 7.mars Rut Reginalds og Maggi Kjartans Hljóms veitin 8 villt forfallast um helgina Tilboð á mat og drykk Nyr matseðill? Þemadagur Æskulýðs- UNGMENNIN voru dugleg að safna dósum fyrir hjáipar- starf kirkjunn- ar. Afrískir dansar og brauð ÞEMADAGUR Æskulýðssambands kirkj- unnar í Reykjavíkurprófastsdæmum var haldinn laugardaginn 20. febrúar. Að þessu sinni var fjallað um lijálparstarf og kristniboð á nijög fjölbreyttan hátt. Leiðbeinendur úr Kramhúsinu kenndu afríska dansa, eldað var afrískt brauð, auk þess sem dósum var safnað fyrir hjálpar- starf kirkjunnar. f lok dagsins borðuðu all- ir saman og haldin var guðsþjónusta. Loks var farið á skauta á skautasvellinu í Laug- ardal. Þátttakendur voru á aldrinum 13 til 16 ára og voru frá sjö kirkjum í Reykjavík og nágrenni. Snyrtilegur klæðnaður /AFFI REY K)AVlK HEITASTI STAÐURINN í BÆNUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.