Morgunblaðið - 04.03.1999, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 04.03.1999, Qupperneq 66
66 FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Þorkell STELPURNAR stóðu sig vel á tískusýningunni á árshátíð Breiðholtsskóla. Foreldrar unglinga með námskeið í Breiðholti Foreldrar eiga að sýna frumkvæði MARÍA Jónsdóttir er móðir í Breið- holtinu sem á að baki tíu ára feril í sýningarstörfum. Nýverið stóð hún fýrir námskeiði í samstarfl við Breið- holtsskóla og félagsmiðstöðina í Fellahverfi um sýningarstörf. „Það var haldinn fundur með for- eldrum í félagsmiðstöðinni í Fellun- um í Breiðholti í haust og þá var tal- að um að foreldrar kvörtuðu sáran undan því að unglingarnir hefðu ekki nóg fyrir stafni, væru bara úti að hanga. Foreldrar voru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að breyta þessu,“ segir María. Hvað get ég gert? „Hvað get ég gert? hugsaði ég með sér eftir fundinn." María hefur mikla reynslu af sýningarstörf- um og henni datt í hug að bjóðast til að halda námskeið um starf fyr- irsætunnar. „Stelpur á þessum aldri hafa mik- inn áhuga á svona hlut- um og þessu var strax mjög vel tekið. En ann- ars er ég örugglega búin að skemmta mér manna best,“ segir María sem gaf alla vinnu sína. „Þær eru orðnar eins og ofurfyrirsætur," segir María um stelpumar sem voru á námskeiðinu. „Núna gengur ekki allt út á að vera rosalega sætur, heldur að vera sérstök týpa. Eg vildi koma því áleiðis að ekki eru allir skapaðir eins, og persónuleikinn sé það sem skipti aðalmáli." Hún seg- ir að starfsmenn félagsmiðstöðvar- innar hafi talað um að mun betri andi sé á milli stelpnanna eftir námskeiðið og meira jafnræði og samheldni ríki í félagsmiðstöðinni. Fleiri námskeið á döfinni Þegar fréttist af námskeiðinu komu fleiri foreldrar fram með hug- myndir og í bígerð er að kynna fleiri störf fyrir krökkunum og munu for- eldrar sjá um námskeiðin. „A nám- skeiðinu um fyrirsætustörf var ekki bara verið að kenna hvernig eigi að ganga á tískusýningum, heldur spjölluðum við um allt milli himins og jarðar. Eg vildi leggja á það áherslu að krakkar þurfa að byrja að vinna að því strax ef þau ætla að gera eitthvað merkilegt þegar þau eru orðin fullorðin. En við erum líka á jákvæðu nótunum. Við ræddum líka um hvað hrós er miklu upp- byggilegra en gagnrýni. Þegar fólki er hrósað blómstrar það, og það á ekki síst við um unglingana sem eru oft með mjög brothætta sjálfsmynd." Akveðið var að halda tískusýningu á árshátíð skólans og þá komu fleiri for- eldrar inn í og hjálp- uðu til með förðun, hár- greiðslu og ann- að og versl- unin Spút- nik lán- aði fatnað. „Krakkarnir lögðu sig mikið fram fyrir árshátíðina, gerðu alla hluti sjálf og skreyttu skólann hátt og lágt,“ segir María sem segir árshátíðina og námskeiðið hafa heppnast vonum framar. María segir að námskeiðið hafí sýnt sér og sannað hversu miklu hægt er að fá áorkað ef foreldrar taka svolítið frumkvæði. „Félagsmið- stöðvarnar eru stöðugt að reyna að galdra fram hugmyndir, en við for- eldrarnir getum líka lagt okkar af mörkum. Það skiptir kannski meira máli en margir gera sér grein fyrir,“ segir María að lokum. - - . L £31* sawi Góugleðin í fullum gangi. Tilboð á mat og drykk alla vikuna. Lifandi tónlist öll kvöld, alla vikuna. í kvöld: Guðmundur Símonarson og Guðlaugur Sigurðsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.