Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 72

Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 72
ORUGG AVOXTUN / TVtMÆLALAUST « ÞARFASTI^ \m, m h.c tþjónninn / WVVW.NYH KRJI.IS ISM Netfínity | Q^^NÝHERJI MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLANI, 103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Loðnukvótinn aukinn um 250 þúsund lestir _ Óvíst að allur kvótinn veiðist LOÐNUVEIÐI verður að vera góð næstu vikumar til að náist að veiða upp í útgefinn loðnukvóta á yfir- standandi vertíð, að mati Hjálmars Vilhjálmssonar, fiskifræðings. Tæplega 270.000 tonn eru óveidd af loðnukvótanum eftir að sjávarút- ' '■^vegsráðuneytið ákvað í samráði við stjómvöld í Noregi og Grænlandi í gær að leyfilegt heildarmagn á yfirstandandi loðnuvertíð verði 1.200.000 lestir. Aukningin er 250 þús. lestir og kemur hún öll í hlut ís- lenskra loðnuskipa. Auk þess fá ís- lensku skipin til viðbótar rétt um 56 þús. lestir sem ónýttar vora úr kvóta Noregs og Grænlands. Is- lensku skipunum hafði verið úthlut- að 688.200 lestum í upphafi vertíðar og verður því heildarkvóti þeirra eftir þessa aukningu 994.700 lestir. Ein ganga enn væntanleg Hjálmar sagði að trúlega ætti enn eftir að koma loðnuganga fyrir austan og því væri möguleiki að ná upp í kvótann. „Þegar við vorum þarna fyrir tveimur vikum var tölu- vert af loðnu úti í kanti. Hún var að vísu smávaxin en hrognafyllingin í henni var innan við 10%. Sú loðna er varla komin upp að ennþá en hins vegar stendur í járnum hvort þetta næst. Það er ansi mikið eftir af kvótanum en veðurfar og vinnsla hafa mikið að segja um hvernig veiðin gengur.“ ■ Heildarloðnukvóti/20 ^ ------------------- Fimur með flugdrekann GOTT færi var til flugdrekaflugs í höfuðborginni í gær í strekk- ingsvindi. Það kunni Elías vel að meta og mátti sjá hann æfa tökin á dreka sínum á Suðurgötunni. Morgunblaðið/Ásdís Búnaðarlagasamningur í burðarliðnum sem felur í sér grundvallarbreytingar '' Auknu fé varið í lífræna ræktun og umhverfísvernd NÝR búnaðarlagasamningur við ríkið er til umræðu á Búnaðarþingi, sem stendur nú yfir. Með honum er í fyrsta sinn samið um fyrirkomulag og framlög til þjónustu sem hefur ^verið starfrækt, svo sem leiðbein- ingarþjónustu, búfjárræktarstarf- semi og jarðabótaframlög. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins felur samningurinn í sér grundvall- arbreytingar á fyrirkomulagi þess- ara þátta. Stefnt er að því að samningurinn ^erði borinn undir atkvæði í dag eða í morgun. Heildarapphæð samn- ingsins hljóðar upp á 470 milljónir króna á ári. Inni í þeirri upphæð era framlög til framleiðnisjóðs landbún- aðarins. Jarðabótaframlög hafa fram til þessa verið í formi styrkja til fjár- festinga og framkvæmda í hefð- bundnum búskap. Megnið af því fjármagni sem ætlað er til jarða- bóta, samkvæmt samningnum sem nú er til umræðu, fer til nýrra verk- efna sem eiga að breyta ásýnd land- búnaðarins og tengjast lífrænni ræktun, umhverfisvernd, merkingu gönguleiða undir liðnum framlög til bænda til að auka aðgengi að landi sínu og dýraverndarmála. Þarna er því um stefnubreytingu að ræða. I leiðbeiningarþjónustunni verð- ur einnig áherslubreyting. Höfuð- áhersla verður lögð á almenna rekstraiTáðgjöf í þeim tilgangi að gera bændur enn betur meðvitaða um að starf þeirra er í raun rekstur fyrirtækis. Einnig er sjálfbær nýt- ing og bætt landnýting sett á odd- inn. Allir bændur eiga kost á úthlutun Allir bændur eiga kost á úthlutun samkvæmt samningnum en verða þá að leggja framlögin í tiltekin verkefni. 165 milljónir króna fara í framleiðnisjóðinn á hverju ári og hann veitir styrki m.a. til rannsókna og ýmissa annarra verkefna. Ráð- gert er að 150 milljónir króna fari árlega til ráðunautastarfsemi, þar af 98 milljónir króna til starfsemi Bændasamtakanna á sviði ráðgjaf- ar. Þá verða samkvæmt samningn- um veittir aðlögunarstyrkir til líf- rænnar ræktunar, umhverfis- og hagræðingarverkefna í garðyrkju og landnýtingaráætlana. Gert er ráð fyrir því að samning- urinn verði til fímm ára og verði endurskoðaður annað hvert ár. Sjálfstæðisflokkurinn Vilhjálmur gaf eftir 9. sætið Asta Möller skipar sætið í hans stað ÁSTA Möller, formaður Félags ís- lenskra hjúkranarfræðinga, mun skipa 9. sæti lista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík við alþingiskosning- arnar í vor. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son borgarfulltrúi, sem valinn hafði verið í 9. sætið, tekur 10. sætið að eigin ósk. Þetta varð niðurstaða kjömefndar flokksins í gærkvöldi, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Samkvæmt heimildum blaðsins hafði Vilhjálmur samband við Brynjólf Bjarnason, formann kjör- nefndar, í gær og bauðst til að taka 10. sætið. „Eg skil vel sjónarmið kvenna í þessu máli og vil allt gera til að Sjálfstæðisflokkurinn vinni góðan sigur í kosningunum í vor. Mikilvægt er að einhugur og sam- staða riki í okkar hópi. Það vil ég að allir sjálfstæðismenn og -konur og stuðningsmenn okkar hafi að leiðar- ljósi,“ sagði Vilhjálmur í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Vilhjálmur sagði að sér þætti vænt um þann stuðning sem hann hefði fengið í kjöfrnefndinni og frá stóram hópi flokksmanna. „Eg hef alltaf talið 10. sætið baráttusætið í Reykjavík og minni á að í borgar- stjómarkosningunum 1990 unnum við tíu fulltrúa. Við getum endurtek- ið leikinn nú. Staða flokksins er sterk og við verðum að gera hana enn sterkari, m.a. með öflugu átaki í þágu aldraðra og öryrkja." --------------- Ávísanasvikin Annar Níger- íumaður í gæsluvarðhald HÆSTIRÉTTUR úrskurðaði Níg- eríumann, sem ríkislögreglustjóri krafðist gæsluvarðhalds yfir í kjöl- far handtöku Nígeríumannsins, sem innleysti falsaðar ávísanir í Islands- banka í síðustu viku, í gæsluvarð- hald til 10. mars í gær. Héraðsdómur hafði áður hafnað kröfu ríkislögreglustjóra um gæslu- varðhaldið og var synjunin því kærð til Hæstaréttar. Gæsluvarðhald yfir hinum Níger- íumanninum rennur út í dag klukk- an 16, en að sögn Jóns H. Snorra- sonar, saksóknara hjá embætti rík- issaksóknara, verður gerð krafa í dag um hálfsmánaðar framlengingu á gæsluvarðhaldi hans. ------♦-♦-♦---- Ýsuflök hafa hækkað um 20% á einu ári VERÐ á ýsuflökum hefur hækkað um 20% frá sama tíma í íyrra og verð á nætursöltuðum ýsuflökum um 19%. Alls munaði 123% á hæsta og lægsta verði á hrognum og verð- munurinn nam 92% á hæsta og lægsta verði karfaflaka með roði. Þetta kemur fram í verðkönnun á fiski sem Samkeppnisstofnun lét gera íyrir skömmu. ■ Ýsuflök hafa/18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.