Morgunblaðið - 07.03.1999, Page 2

Morgunblaðið - 07.03.1999, Page 2
2 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Jón Ingvarsson hýður sig fram til áframhaldandi formennsku í SH Stefnan einróma sam- þykkt fyrir 22 mánuðum JÓN Ingvarsson segist staðráðinn í því að bjóða sig fram til áfram- haldandi formennsku í Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna en eins og fram kom í blaðinu í gær hefur Ró- bert Guðfinnsson, stjórnarformað- ur Þormóðs ramma-Sæbergs hf., ákveðið að bjóða sig fram til for- mennsku á aðalfundi SH sem hald- inn verður næstkomandi þriðju- dag. Vegna gagnrýni á stefnu fé- lagsins vekur Jón athygli á því að Róbert hafi sem stjórnarmaður tekið fullan þátt í mótun og sam- þykkt stefnu félagsins fyrir aðeins 22 mánuðum. „Eg hef gegnt formennsku í þessu félagi á tímum mestu breyt- inga sem á því hafa verið gerðar og þær hafa orðið félaginu til farsæld- ar. Framtíð félagsins verður reist á þeim grunni og ég vonast til þess að njóta stuðnings til að halda því verki áfram. Eg er þess fullviss að sú stjórn sem kosin verður á þess- um fundi og fær mikil verkefni í hendur muni ganga til þess verks af fullum heilindum og af þeim krafti sem lengst af hefur tryggt þessu félagi farsæld í starfi,“ segir Jón þegar leitað er viðbragða hans við mótframboði Róberts. „Enn sem fyrr verður stærsta eign fé- Tillaga stjórnar VR Foreldrar fái 80% launa í fæð- ingarorlofí STJÓRN Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur mun leggja tillögu fyrir aðalfund félagsins á morgun sem felur í sér að allir foreldrar í fæðingarorlofi fái 80% af mánaðarlaunum sínum. Gunnar Páll Pálsson, hag- fræðingur VR, segir að gert sé ráð fyrir að Sjúkrasjóður fé- lagsins greiði mismuninn á þeim styrk sem greiddur er af Tryggingastofnun í fæðingar- orlofi og 80% af meðallaunum viðkomandi félagsmanna. Verði tillagan samþykkt er áætlað að um 300 félagsmenn muni njóta þessa á þessu ári og að greiddar verði um 40 milljónir kr. úr Sjúkrasjóði VR til að tryggja að foreldri fái 80% mánaðarlauna sinna í fæðingarorlofi. Gunnar Páll bendir á að í dag fái allir greiddar um 71 þúsund kr. í fæðingarstyrk og fæðingardagpeninga á mán- uði. Sú greiðsla myndi tryggja þeim sem er með 87.500 kr. á mánuði 80% af launum en verði tillagan sam- þykkt fá þeir sem hafa hærri laun viðbótargreiðslur úr sjúkrasjóðnum sem eiga að tryggja að þeir haldi um- ræddu hlutfalli launa sinna í fæðingarorlofi. Allir sitji við sama borð Stjómendur VR benda á að í dag njóti einungis hluti laun- þega á Islandi þessa réttar þar sem opinberir starfsmenn haldi sínum launum í fæðing- arorlofi. Allir eigi að sitja við sama borð í þessum efnum. I VR eru um 15.000 félagsmenn og 70% þeirra eru konur. lagsins sá mikli samtakastyrkur sem felst í trú framleiðenda á því að mæta viðskiptavinum sem stór og öflug heild, sem skapað hefur sér nafn fyrir gæði og áreiðanleika í viðskiptum um áratugaskeið," segir hann einnig. Róbert staðið að stefnumótun Róbert segist óánægður með stefnu SH og segir nauðsynlegt að breyta áherslum í rekstri. „Róbert Guðfinnsson heldur því fram að fé- lagið hafi ekki trúverðuga stefnu og meðal annars þess vegna bjóði hann sig fram til formennsku í fé- laginu. Mér er spurn, hvar hefur stjórnarmaðurinn Róbert alið manninn?" segir Jón. Bendir hann á að stjórn félagsins hafi síðast unnið að stefnumótun fyrir félagið um nokkuiTa mánaða skeið á árinu 1997, hún hafi verið samþykkt ein- róma af stjórn í apríl 1997 og Ró- bert tekið fullan þátt í mótun og samþykkt stefnunnar. I stjórn hafi þá setið fulltrúar fyrir meira en 70% hlutafjárins. „Eftir þeirri stefnu ber félaginu að starfa þar til stjórnin breytir henni. Eg hef talið það eitt mitt meginverkefni sem stjórnarfoi-maður í þessu félagi að tryggja að stefna félagsins sé löguð HÉRLENDIS er staddur 60 manna hópur Breta í boði nokk- urra alþjóðlegra fyrirtækja sem Bretarnir starfa hjá og með í för er kvikmyndatökulið sem festa mun á fiimu ævintýri þeirra á ís- Iandi. Bretarnir komu hingað til lands á fimmtudag og meðal þess sem þeir gera sér til dægrastytt- ingar er akstur á vélsleðum, akstur á torfærujeppum, rallý- kross, brun á dekkjaslöngum nið- ur brekkur og svo kallað vírsig, sem felst í að hundrað metra langur vír er tengdur á milli jeppa yfir gil og menn renna sér þar á milli. Óiöf Einarsdóttir, starfsmaður innanlandsdeildar Úrvals-Útsýn- ar og leiðsögumaður, segir að auk þessarar dægradvalar Bret- anna sæki þeir heim veitingahús- in Þrjá Frakka, Viðeyjarstofu og Perluna, skemmti sér á Kaffi Reykjavík og baði sig í Bláa lón- inu. Fyrirmynd ferðarinnar sé að miklu Ieyti sótt til bresks sjón- varpsþáttar sem gerður var hér- lendis og sýndur ytra fyrir um fjórum árum. Víðtæk skipulagning að baki „I þessum þætti var fjallað um jeppa, vélsleða, rallý-kross og tor- færubfla, svo eitthvað sé nefnt, og þeir sem skipulögðu ferðina ytra höfðu séð þáttinn og ákváðu í framhaldinu að hafa samband við Félag íslenski-a akstursíþrótta- manna,“ segir Ólöf. „Félagið ræddi við Úrval-Út- sýn í kjölfarið og við hófum und- irbúning hér á Iandi. Við erum að reyna að bjóða útlendingum upp á eitthvað nýtt hérlendis, á þeim árstima sem þeir sækja landið sjaldnast heim. Undirbúningur- inn hefur því verið gríðarlegur og höfum við átt mikið samstarf við meðal annarra Félag ís- að aðstæðum hvers tíma. Nú síðast í september síðastliðnum hélt stjórnin sérstakan fund um stöðu félagsins og stefnu í framtíðinni og í framhaldi af því voru ráðnir rekstrarráðgjafar til að huga að endurskipulagningu félagsins og skila tillögum á vormánuðum," seg- ir Jón. Hann minnir á að þau ár sem hann hafi gegnt formennsku hafi SH tekið stakkaskiptum. Félagið hafi breyst úr því að vera sölusam- lag, þar sem hver framleiðandi hafi aðeins haft eitt atkvæði án tillits til eignarhluta og framleiðslustærðar. Breytingar á því hafi verið háðar samþykki hvers einasta félags- manns. Segir Jón að með mikilli vinnu hafi tekist að fá algera sam- stöðu um breytinguna sem hafi ver- ið alger forsenda þeirra breytinga sem síðan hafí verið gerðar. Félag- inu hafi verið breytt í lokað hlutafé- lag, síðan opnað og loks skráð á Verðbréfaþingi íslands. „Ég get upplýst það nú að hefði ég reynt að knýja fram breytinguna í hlutafé- lag ári áður en það var gert, hefði félagið klofnað vegna andstöðu stóira eigenda," segir Jón. Róbert telur að SH hafi alla möguleika til að verða í fararbroddi lenskra akstursíþróttamanna, fyrirtækin Fjallamenn og Lang- jökul, auk fjölmargra annarra. Mörg fyrirtæki eiga fulltrúa í ferðinni en hún er alfarið farin undir nafni eins þeirra, banda- ríska fyrirtækisins Lucent Technologies sem selur m.a. sím- tæki um allan heiin. „Um svokall- aða hvataferð er að ræða og fyr- irtækin sem eiga í hlut greiða ali- an kostnað samfara ferðinni, meira að segja kostnað hópsins á barnurn," segir ÓJöf. Þá er að sögn Ólafar væntan- legur 23 manna hópur frá fyrir- tækinu BMW í Belgíu, 120 manna hópur frá fyrirtækinu Daiken í Belgíu, ríflega þrjátíu manna hópur frá hollensku tryggingafé- lagi og fleiri slíkir, sem boðið verður upp á svipaða dagskrá og Bretarnir liafa notið. Einnig standi til að reyna að auka íjöl- breytnina með því að leita fleiri inöguleika á afþreyingu fyrir þessa ferðamenn hérlendis að vetrarlagi. fyrirtækja í markaðssetningu sjáv- arfangs á alþjóðlegum mörkuðum. Vegna þessara ummæla segir Jón að SH sé í dag viðurkennt af keppi- nautum sínum sem eitt öflugasta félag á þessu sviði í heiminum. „Fé- lagið nýtur mikillar virðingar og af- ar mikils trausts og margir líta til þess með öfundaraugum, hve vel ís- lenskum fiskframleiðendum hefur tekist að koma fyrir markaðsmál- um sínum. Bestu dæmin um þetta er áhugi erlendra fiskframleiðenda að komast í viðskipti við SH. Vissu- lega höfum við nálgast þá flesta og boðið þeim að komast í viðskipti við okkur en sumir hafa líka leitað okk- ur uppi og óskað eftir þjónustu okkar vegna góðs orðspors fyrir- tækisins," segir stjórnarfoi-maður SH. Tölurnar tala sínu máli Hann segir að á þessum áratug hafi velta félagsins aukist á fóstu verðlagi úr 20 milljörðum kr. á ári í yfir 30 milljarða, eða um 50% og þar af nemi aukningin síðustu fjög- ur árin um 30%. A sama tímabili hafi félagið skilað yfir þrem millj- örðum í hagnað á fóstu verðlagi. „Þessar tölur tala sínu máli,“ segir Jón. ----------------- Formúla-1 á mbl.is NÝJUM vef um formúlu-1 kapp- aksturinn verður hleypt af stokk- unum á Fréttavef Morgunblaðs- ins, mbl.is, en í dag fer fyrsti kappakstur ársins fram í Melbourne í Ástralíu. Á vefnum er að finna ýmsan fróðleik um formúlu-1. Ásamt fréttum af mótum og æfingum og öðru fréttnæmu milli móta, er þar að finna ítarlegar upplýsingar um ökuþóra, keppnisliðin, kappakst- ursbrautirnar, úrslit og árangur fyrri ára svo og upplýsingar um bílana og umgjörð keppninnar. Hægt er að komast á formúluvef mbl.is með því að smella á hnapp á forsíðu Fréttavefjar Morgunblaðs- ins, en vefinn er annars að finna á slóðinni: http://www.mbl.is/sport/formula ► l-64 Vilja vernd en deila um leiðir ► Umdeild frumvörp um stækkun þjóðgarðsins á Þingvöllum og verndun vatnasvæðis Þingvallavatns. /10 Meta forsetann meira en sjálfstæðið ► Hvit-Rússar hafa ekki tilfinningu fyi-ir því að þeir séu sérstök þjóð á tímamótum. /12 Guð launar fyrir hrafninn ► Flatt kom upp á marga að krummi skuli vera talinn í útrýmingarhættu. /20 Engin lægð svo djúp... ► Kristinn Björnsson í viðtali um vetur vonbrigðanna. /22 Flaga tekur flugið ► í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Helga Kristbjarnason í Flögu. /30 ► 1-16 Færandi hendi ► Með Rauða krossinum í Rúss- landi./i&8-ll Hálffullt vatnsglas eða hálftómt ► Rætt við Jón Hlöðver Áskels- son tónskáld á Akureyri. /4 Úr heimi harmonikunar ► Hannonikan hefur skipað veg- legan sess í skemmtanalífi Islend- inga. /6 C#FERÐ4LÖG ► l-4 Quito ► Lítil heimsborg á miðbaug. /2 Hafnarsvæðið eftir- sóknarverðast ►Viðhorfskönnun meðal erlendra ferðamanna í Hafnarfirði. /4 D BILAR ► l-4 Rover 75 hefur útlitið með sér ► Rover kynnti nýjan lúxusbíl í Sevilla í síðustu viku. /2 Reynsluakstur ►Frísklegur Ford Focus og snöggur. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► l-24 Ársreikningar fyrir- tækja á Netinu ► Átján þúsund reikningar á skrá. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 50 Leiðari 32 Brids 50 Helgispjall 32 Stjömuspá 50 Reykjavíkurbréf 32 Skák 50 Skoðun 34 Fólk í frétturn 54 Viðhorf 36 Útv/sjónv. 52,62 Minningar 36 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 12b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 14b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 60 Bretar í ævintýraferð á íslandi Fyrirmynd sótt í bresk- an sjónvarpsþátt Mogunblaðið/Golli BRETARNIR í torfæruakstri í Jósefsdal í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.