Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 49
FRÉTTIR
Ný fjórð-
ungskort
af Islandi
MÁL og menning hefur gefið út þrjú
ný fjórðungskort af Islandi í mæli-
kvarða 1:300.000. Kortin ná yfir
Norðvesturland, Norðausturland og
Suðausturland. Aður útkomið kort af
Suðvesturlandi hefur nú verið end-
urskoðað og leiðrétt.
Eitt aðaleinkenni kortanna er
hæðarlíkan í náttúrulegum litum þar
sem sérstök áhersla er lögð á gróð-
urlendur landsins og myndræna
skyggingu hálendisins. Öll fjórð-
ungskortin skarast þannig að Snæ-
fellsnes er t.d. bæði á kortinu yfir
suðvesturfjórðung og norðvestur-
fjórðung.
A kortunum eru nýjustu upplýs-
ingar um vegakei'fi landsins, tjald-
stæði, sundlaugar, söfn og annað það
sem gagnast ferðamönnum. A bak-
hlið þeii'ra eru lýsingar og litmyndir
af helstu náttúruperlum fjórðung-
anna, þar sem bent er á ýmis ein-
kenni viðkomandi staða og er allur
texti á fjórum tungumálum, íslensku,
ensku, þýsku og frönsku. Þar er
einnig að fmna ítarlega vegalengda-
töflu.
Hægt er að skeyta fjórðungunum
saman í stórt veggkort (180x130
cm) sem meðal annars hentar vel
fyrir skrifstofur og skóla. Fjórð-
ungskortin, ásamt ferðakorti Máls
og menningar, verða einnig fáanleg í
vatnsheldri möppu sem er sérstak-
lega hentug til notkunar á ferðlög-
um.
---------------
Gestir frá
Færeyjum
HER á landi eru staddir fjórir
Færeyingar í tengslum við aðalfund
færeyska sjómannaheimilisins.
Þeirra á meðal er Jóhann Olsen, en
hann og kona hans veittu gömlu sjó-
mannastofunni við Skúlagötu for-
stöðu um árabil.
Havsteinn Ellingsgaard frá Runa-
vík í Færeyjum er einnig hér nú, en
hann mun dvelja hér á landi í þrjár
vikur við störf í tengslum við sjó-
mannaheimilið. Gestimir frá
Færeyjum munu halda almenna
samkomu í færeyska sjómannaheim-
ilinu á sunnudag kl. 14 og eru allir
velkomnir.
BAKSKOLI -
BAKLEIKFIMI
Sjúkraþjálfunin Törn,
Sjúlcraþjálfun Péturs,
World Class
Kennd verður rétt Iíkamsbeiting,
líkamsstaða og styrktaræfingar
íyrir bak og kvið. Einnig verður
boðið upp á ýmsa fræðslu.
Hvert námskeið
stendur yfir í sex vikur.
Tímarnir eru á þriðjudögum og
fimmtudögum frákl. 11 - 12.
Nánari upplýsingar fást í síma
553 0070 eða 568 9606.
Alþingismenn og borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hafa verið með
viðtalstíma í hverfúm
borgarinnar á mánudögum
Á morgun verða
Inga Jóna Þórðardóttir
borgarfulltrúi
°g
Guðmundur Hallvarðsson
alþingismaður
í Valhöll, kl. 17-19.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga til að
ræða málin og skiptast á skoðunum við fulltrúa
S j álfstæðisflokksins.
Hafðu áhrif og láttu þínar skoðanir heyrast, og
þetta er síðasti mánudagsspjallfundur að sinni.
VÖRÐUR - FULLTRÚARÁÐ
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK
Vilt þú gerg<
skiPtinemi í
1 ár eða
4-6 vikur?
Sumardvöl í ensku
l °S ..
I frönskumaelandi
Kanada
Umsóknarfrestur
fyrir ársdvöl
1999-2000
rennur út í mars
É
Ingólfsstræti 3, 2. hæð
sími 552 5450
www.itn.is/afs
AFS a Islandi
Námstefna um
nytsamlegar
ábendingar
fyrir alla
stjórnendur
ÁRANGURSRÍK
STJÓRNUN
ENN BETRIYFIRSÝN
Miðvikudagur. 17. mars
Kl. 09:00-13:00
Staður: Hótel Loftleiðir,
Þingsalur 1
Samkeppnishæfni fyrirtækja byggist að miklu leyti á þekkingu
stjórnenda, viðhorfi þeirra til starfsfólks, yfirsýn og viðbragðs-
flýti. Á þessari námstefnu fá stofnar árangursríkrar stjórnunar
nýja nálgun, sem ber með sér mikilvæga stjórnunarreynslu
verkfræöings og markaðsmanns. Úr verður „5x5“ stjórnun,
sem þarf að vera Ijós hverjum yfirstjórnanda og millistjórnanda.
Yfirsýnin verður skýrari. Hugmyndir að lausnum verða fleiri.
Á 4 klst. verður fjallað um 5 atriði sem eru:
1. Framtíðin - og hvernig fyrirtækið er búið undir
breytingarnar sem eru framundan.
2. Ferlar - í öllum fyrirtækjum skipta vinnuferlarnir miklu
máli - en allt of fáir gera sér grein fyrir því að ferlarnir eru
samkeþpnistæki sem verða að vera í lagi, skráð á blað og
undir eftirliti.
3. Frammistaða - Árangursstjórnun er mest umtalaða
stjórnunaraðferð nútímans...Mæling frammistöðu er
lykilatriðið.
4. Fyrirtækið - Dagleg stjórnun þarf að vera jafnvægi milli
agaðra vinnubragða og uppörvandi samskipta. Aðaleign
tyrirtækisins þegar öilu er á botninn hvolft er fólgin í
þekkingu, ímynd og stjórnunar“kúltur“.
5. Fólk - er það sem allt snýst um. Þekkir starfsmaðurinn
markmið fyrirtækisins, forgangsraðar hann sínum verkefnum
rétt, skipuleggur hann tíma sinn þannig að hámarksárangur
næst.
Þessi námstefna er fyrir stjórnendur sem vilja ná enn betri
árangri, vilja fá betri yfirsýn yfir stefnur og strauma í stjórnun
eða vilja endurhæfa þætti í stjórnun sinni! Markmiðið er að
þátttakendur fái staðfestingu á því sem vel er gert og tugi
hugmynda til að breyta stjórnun og starfsháttum í
fyrirtækjum/stofnunum sínum.
Um 2000 manns hafa hlýtt á stjórnunarefni Thomasar Möller,
sem hann hefur stöðugt unnið við að þróa og er hér í fyrsta
sinn tekið saman í heildstæða nálgun um aðalatriði í umhverfi
stjórnandans. Enginn stjórnandi lætur þessar fjórar stundir
fram hjá sér fara.
Höfundur og leiðbeinandi er
Thomas Möller, hagverkfræðingur.
Hann hefur 17 ára stjórnunarreynslu.
Thomas er framkvæmdastjóri
markaðssviðs Olís hf. og var áður
í stjórnunarstörfum hjá Eimskip hf.
Hann er höfundur metsölubókar um
stjórnun og hefur verið eftirsóttur
fyrirlesari í fyrirtækjaumhverfi.
Thomas er stjórnarformaður
Stjórnunarfélags íslands.
Skráning og nánari uplýsingar
í síma: 533 4567 og
www.stjornun.is
Stjórpunarfélag
Islands