Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 48
46 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
í pADEe Z/S/)STÓ£ )
\ J&ea (SjówfiRW! I
I ES þOL/EkXl XoSN/N<sWr\
U=^T
H'b
Grettir
Farðu aftur að sofa „það er bylur úti
og allir skólar eru lokaðir.
Ljóð!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Opið bréf til borgar-
stjórans í Reykjavík
Frá Oddi Bjömssyni:
VIRÐULEGI borgarstjóri, frú
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
I Morgunblaðinu miðvikudaginn
17. feb. sl. birtist örlítið bréfkorn
frá mér til blaðsins. Tilefnið var
umfjöllun Morgunblaðsins 31. jan.
og 3. feb. sl. um veitingu vinveit-
ingaleyfís til bráðabirgða til handa
svonefndum Erotic Club Clinton
(hér eftir ECC) í Aðalstræti 4B.
Það sem vakti athygli mína þá var
ósamræmi í málflutningi tveggja
aðilja er blaðið hafði leitað tU af
þessu tilefni. Formaður íbúasam-
taka Grjótaþorps vísaði til ára-
langrar óánægju íbúa með rekstur
vínveitingahúss í Aðalstræti 4B og
taldi veitingu bráðabirgðavínveit-
ingaleyfís nú til handa ECC þvert
á stefnu borgaryfirvalda í Reykja-
vík er hefðu í apríl s.l. komist að
þeirri niðurstöðu að rekstur í hús-
inu í sátt við íbúa næsta nágrennis
væri fullreyndur. Skrifstofustjóri
borgarstjóra kannaðist ekki við
neina slíka stefnubreytingu síðan í
apríl s.l. og hefur því efalaust þótt
veiting vínveitingaleyfís til handa
ECC í fullkomnu samræmi við
stefnu borgarinnar í þeim efnum.
Hér stönguðust á fullyrðingar
herranna tveggja og því fletti ég í
gegnum nokkur eintök Morgun-
blaðsins frá því í vor, n.t. fáeinum
vikum fyrir borgar- og sveitar:
stjórnarkosningamar 1998. I
Morgunblaðinu 31. mars 1998 er lít-
il frétt um mikið ónæði íbúa í nánd
við Aðalstræti 4B og fyrirsögnin
svohljóðandi: Borgarstjóri telur
rekstur fullreyndan. Sá ég hér
ástæðu til að óska eftir að blaðið
birti frá mér fáeinar línur til árétt-
ingar, en hér var komin fram
stefnubreyting af hálfu borgaryfir-
valda (altént borgarstjóra) þó
segja mætti að hún væri frá í mars
s.l. en ekki apríl. Ekki tókst betur
til en svo við frágang bréfstúfsins
að millifyrirsögn (Borgarstjóri tel-
ur rekstur fullreyndan) var felld
frá og því ekkert samhengi milli
fyrirsagnar og upphafs bréfsins.
Fór ég samdægurs fram á það við
ritstjóm blaðsins að bréfíð yrði
endurbirt óstytt en án árangurs.
Vil ég því biðja borgarstjóra vel-
virðingar á þessu ósamræmi fyrst
Morgunblaðið sá ekki sóma sinn í
að koma þessum fátæklegu orðum
mínum frá sér skammlaust. Eitt er
áskilinn réttur til styttingar að-
sends efnis vegna plássleysis, ann-
að að fella þannig úr að óskiljan-
legt verði. Borgarstjóra til glöggv-
unar hefi ég þegar sent bréfið
óstytt á netfang hans.
Þá skal að lokum ítrekuð sú
skoðun að með eindæmum sé sú
stefna borgaryfirvalda að troða um
95% veitingastaða í borginni á jafn
lítið landsvæði og raun ber vitni
hér í Kvosinni, allt í nafni „lífs í
miðbæinn" eins og fráfarandi for-
maður borgarsjórnar, Guðrún
Agústsdóttir kallar það gjaman.
Það er mín skoðun að íbúar gamla
bæjarins séu seinþreyttir til vand-
ræða og ekki mikið fyrir að bera
umkvörtunarefni sín á torg, en
þegar borgaryfirvöld þráast við að
tryggja íbúum frið til nætursvefns
þrátt fyrir átak á borð við „íbúð á
efri hæð“ og jafnvel styrki frá hús-
verndunarsjóðum til endurbygg-
inga og viðhalds gamalla húsa, er
þörf á stefnubreytingu í vínveit-
ingamálum af hálfu borgarinnar.
Fyrsta skrefíð steig borgarstjórinn
í Reykjavík með yfirlýsingu sinni í
Morgunblaðinu hinn 31. mars 1998.
Vonandi var ekki um innantómt
kosningaloforð að ræða.
Með vinsemd og virðingu,
ODDUR BJÖRNSSON,
hljómlistarmaður,
Mjóstræti 2B, Rvk.
Aths.
„Bréfritari hefur fengið þessa
skýringu á netinu og er hún endur-
tekin hér að gefnu tilefni: „Morgun-
blaðið styttir iðulega fyrirsagnir ef
þær þykja of langar. I þessu tilfelli
var um að ræða tvöfalda fyrirsögn,
en það samræmist ekki uppsetn-
ingu á lesendabréfum. Hefði það
ekki verið gert hefðu fyrirsagnir
tekið álíka mikið pláss og textinn
sjálfur. Þar sem neðri fyrirsögnin
kom orðrétt fyrir fljótlega í textan-
um þótti eðlilegra að velja efri fyrir-
sögnina."
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.