Morgunblaðið - 07.03.1999, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 07.03.1999, Qupperneq 48
46 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens í pADEe Z/S/)STÓ£ ) \ J&ea (SjówfiRW! I I ES þOL/EkXl XoSN/N<sWr\ U=^T H'b Grettir Farðu aftur að sofa „það er bylur úti og allir skólar eru lokaðir. Ljóð! BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Opið bréf til borgar- stjórans í Reykjavík Frá Oddi Bjömssyni: VIRÐULEGI borgarstjóri, frú Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. I Morgunblaðinu miðvikudaginn 17. feb. sl. birtist örlítið bréfkorn frá mér til blaðsins. Tilefnið var umfjöllun Morgunblaðsins 31. jan. og 3. feb. sl. um veitingu vinveit- ingaleyfís til bráðabirgða til handa svonefndum Erotic Club Clinton (hér eftir ECC) í Aðalstræti 4B. Það sem vakti athygli mína þá var ósamræmi í málflutningi tveggja aðilja er blaðið hafði leitað tU af þessu tilefni. Formaður íbúasam- taka Grjótaþorps vísaði til ára- langrar óánægju íbúa með rekstur vínveitingahúss í Aðalstræti 4B og taldi veitingu bráðabirgðavínveit- ingaleyfís nú til handa ECC þvert á stefnu borgaryfirvalda í Reykja- vík er hefðu í apríl s.l. komist að þeirri niðurstöðu að rekstur í hús- inu í sátt við íbúa næsta nágrennis væri fullreyndur. Skrifstofustjóri borgarstjóra kannaðist ekki við neina slíka stefnubreytingu síðan í apríl s.l. og hefur því efalaust þótt veiting vínveitingaleyfís til handa ECC í fullkomnu samræmi við stefnu borgarinnar í þeim efnum. Hér stönguðust á fullyrðingar herranna tveggja og því fletti ég í gegnum nokkur eintök Morgun- blaðsins frá því í vor, n.t. fáeinum vikum fyrir borgar- og sveitar: stjórnarkosningamar 1998. I Morgunblaðinu 31. mars 1998 er lít- il frétt um mikið ónæði íbúa í nánd við Aðalstræti 4B og fyrirsögnin svohljóðandi: Borgarstjóri telur rekstur fullreyndan. Sá ég hér ástæðu til að óska eftir að blaðið birti frá mér fáeinar línur til árétt- ingar, en hér var komin fram stefnubreyting af hálfu borgaryfir- valda (altént borgarstjóra) þó segja mætti að hún væri frá í mars s.l. en ekki apríl. Ekki tókst betur til en svo við frágang bréfstúfsins að millifyrirsögn (Borgarstjóri tel- ur rekstur fullreyndan) var felld frá og því ekkert samhengi milli fyrirsagnar og upphafs bréfsins. Fór ég samdægurs fram á það við ritstjóm blaðsins að bréfíð yrði endurbirt óstytt en án árangurs. Vil ég því biðja borgarstjóra vel- virðingar á þessu ósamræmi fyrst Morgunblaðið sá ekki sóma sinn í að koma þessum fátæklegu orðum mínum frá sér skammlaust. Eitt er áskilinn réttur til styttingar að- sends efnis vegna plássleysis, ann- að að fella þannig úr að óskiljan- legt verði. Borgarstjóra til glöggv- unar hefi ég þegar sent bréfið óstytt á netfang hans. Þá skal að lokum ítrekuð sú skoðun að með eindæmum sé sú stefna borgaryfirvalda að troða um 95% veitingastaða í borginni á jafn lítið landsvæði og raun ber vitni hér í Kvosinni, allt í nafni „lífs í miðbæinn" eins og fráfarandi for- maður borgarsjórnar, Guðrún Agústsdóttir kallar það gjaman. Það er mín skoðun að íbúar gamla bæjarins séu seinþreyttir til vand- ræða og ekki mikið fyrir að bera umkvörtunarefni sín á torg, en þegar borgaryfirvöld þráast við að tryggja íbúum frið til nætursvefns þrátt fyrir átak á borð við „íbúð á efri hæð“ og jafnvel styrki frá hús- verndunarsjóðum til endurbygg- inga og viðhalds gamalla húsa, er þörf á stefnubreytingu í vínveit- ingamálum af hálfu borgarinnar. Fyrsta skrefíð steig borgarstjórinn í Reykjavík með yfirlýsingu sinni í Morgunblaðinu hinn 31. mars 1998. Vonandi var ekki um innantómt kosningaloforð að ræða. Með vinsemd og virðingu, ODDUR BJÖRNSSON, hljómlistarmaður, Mjóstræti 2B, Rvk. Aths. „Bréfritari hefur fengið þessa skýringu á netinu og er hún endur- tekin hér að gefnu tilefni: „Morgun- blaðið styttir iðulega fyrirsagnir ef þær þykja of langar. I þessu tilfelli var um að ræða tvöfalda fyrirsögn, en það samræmist ekki uppsetn- ingu á lesendabréfum. Hefði það ekki verið gert hefðu fyrirsagnir tekið álíka mikið pláss og textinn sjálfur. Þar sem neðri fyrirsögnin kom orðrétt fyrir fljótlega í textan- um þótti eðlilegra að velja efri fyrir- sögnina." Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.