Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 30
30 . SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
FLAGA TEKUR FLUGIÐ
VIÐSHPriAIVINNULÍF
ÁSUNMUDEGI
► Helgi Kristbjarnarson fæddist 25. júní 1947 í Reykjavík.
Hann lauk læknaprófí frá Háskóla íslands 1975, doktorsprófí í
taugalífeðlisfræði frá Karolínsku stofnuninni í Stokkhólmi
1983 og varð sérfræðingur í geðlækningum árið 1985. Allt
fram í ársbyrjun 1997 vann Helgi við svefnrannsóknir á Geð-
deild Landspítalans en þá sneri hann sér alfarið að fyrirtæki
sínu, Flögu hf., sem var stofnað 1992. Eiginleg starfsemi hófst
1994 en þá flutti fyrirtækið í eigið húsnæði og ráðnir voru
fyrstu starfsmennirnir. Eiginkona Helga er Sigríður Sigurðar-
dóttir, frarnkvæmdastjóri Flögu, og eiga þau íjögur börn.
HJÁ Flögu hf. hefur verið lögð áhersla á fjölskylduvænt andrúms-
loft, þar sem vinnutími er frjáls og ekki er hvatt til yfirvinnu, en
fastráðnir starfsmenn eru allir hluthafar í fyrirtækinu.
eftir Hildi Friðriksdóttur
LAGA hf. hefur á tæpri
viku hlotið tvær viður-
kenningar fyrir verkefni
sín á sviði svefnrann-
sókna. Annars vegar úr Verðlauna-
sjóði iðnaðarins hinn 26. febrúar sl.
fyrir frumkvöðulsstarf á sviði iðn-
aðar, en sjóðurinn var stofnaður af
Kristjáni Friðrikssyni forstjóra Ul-
tímu, sem fannst aldrei nógsam-
lega vakin athygli á hinum fjöl-
mörgu íslensku uppfínningamönn-
um sem til eru. Hins vegar hlaut
Flaga 3. mars sl. Nýsköpunarverð-
laun Rannsóknarráðs Islands og
Utflutningsráðs Islands fyrir
glæsilegt framlag til nýsköpunar á
sviði hátækniiðnaðar og heilbrigð-
ismála. Eru verðlaunin veitt til að
vekja athygli á þeim mikilvægu
tengslum sem eru á milli verð-
mætasköpunar og vísinda- og
rannsóknastarfsemi.
Flaga er um margt merkilegt
fyrirtæki, ekki einungis vegna hins
framúrskarandi sýnilega árangurs,
heldur er það ekki síður athyglis-
vert fyrir uppbyggingu sína og
þann stjórnunarstíl og einhug sem
þar ríkir. Þegar gengið er um fyr-
irtækið fínnur maður í bland heim-
ilislegt andrúmsloft en einnig eftir-
væntingarfullan samkeppnisanda,
sem oft einkennir nýsköpunarfyr-
irtæki.
I hádeginu má sjá starfsmenn í
eldhúsinu að smyrja sér brauð með
fjölbreyttu áleggi, sem iyrirtækið
leggur til, og narta í ávexti. Helgi
Kristbjamarson segir að meðvitað
sé reynt að byggja upp heimilis-
brag og þetta fyrirkomulag sé hluti
af því.
Einyrki sem hittir
naglann á höfuðið
Upphaf fyrirtækisins má rekja
til þess að samhliða svefnrann-
sóknum, sem Helgi hefur stundað
í tæpa tvo áratugi, fór hann að
velta fyrir sér sjálfum rannsókn-
artækjunum. Segja má að hann sé
skólabókardæmi um einyrkja, sem
grúskar í áhugamálum sínum,
hittir naglann á höfuðið, býr til
svefnrannsóknartækið Emblu og
tekst að gera viðfangsefnið svo vel
úr garði, að á fímm árum hefur
fímm manna fyrirtæki sjöfaldað
sig.
„Já, þetta er að breytast frá því
að vera hálfgerð heimasmíði yfir í
að verða fyrirtæki. Við það breytist
margt í hugsunarháttum og vinnu-
brögðum. Til dæmis vorum við í
upphafí ekki með neitt gæðakerfi,
en nú hefur Evrópusambandið sett
strangar reglur í því sambandi. Eg
sá fyrirtækið alltaf fyrir mér sem
nokkurra manna, sem framleiddi
nokkur tæki, en nú stefnum við á
mikla framleiðslu. Arið 1997 seld-
um við um tíu tæki, en nú er pönt-
un upp á 25 tæki aðeins frá einu
fyrirtæki,“ segir hann og bætir við,
að ekki sé alltaf auðvelt að stækka
svona hratt.
Allir „handvaldir"
og engin yfírvinna
Þrátt fyrir að starfsmenn séu nú
orðnir um 35 hefur fyrirtækið
aldrei auglýst eftir starfsfólki held-
ur eru allir „handvaldir“ eins og
Helgi lýsir því. „Allir sem vinna hér
hafa verið ráðnir vegna þess að þeir
eru vinir, makar eða skyldir öðrum
innan fyrirtækisins. Þetta byrjaði
með því að ég stofnaði fyrirtækið
með tengdasyni mínum, Rögnvaldi
Sæmundssyni verkfræðingi, síðan
fengum við til liðs við okkur vin
hans, Sigurjón Kristjánsson yfír-
verkfræðing og þannig hefur þetta
undið upp á sig. Með þessu tryggj-
um við að við séum að ráða rétta
fólkið, enda er það ekki í anda fyrir-
tækisins að reka fólk sem á annað
borð er komið hingað inn.
Einkenni margra nýsköpunar-
fyrirtækja er, að þar vinnur starfs-
fólkið myrkanna á milli. Hér höfum
við aftur á móti tekið upp fjöl-
skylduvæna afstöðu, enda eru
langflestir um eða yfír þrítugt og
margir með ung börn. Þess vegna
ætlumst við ekki til að unnin sé yf-
irvinna. Sumir eru hér að vísu um
helgar, en þeir fá ekkert borgað
fyrir það og það er ekki hvatt til
þess. Hér er líka frjáls vinnutími,
sem gerir kröfu um að fólk sýni
mikla ábyrgð, skili vinnutíma sín-
um og góðri vinnu, en á því byggj-
um við. Þess vegna ráðum við ekki
nema afburðafólk og þá sem við
vitum nægilega mikið um og
treystum."
Áralangur undirbúningur
Það að fyrirtækið hafi náð veru-
legum árangri nú er engin tilviljun
heldur eru menn að uppskera eftir
þrotlausa undirbúningsvinnu und-
anfarinna ára. „Það er samspil
ákaflega margra hluta sem skapar
þennan árangur en ekkert eitt.
Fyrst og fremst skiptir máli að
varan sé algjörlega pottþétt að öllu
leyti en einnig er mikilvægt að
vinna vel og gera allt rétt,“ segir
Helgi og tekur fram, að allt unga
fólkið sem vinni hjá Flögu sé vand-
virkara og duglegra en hans kyn-
slóð hafí verið. „Við vorum göslara-
kynslóð. Vinna sem þessi hentar
ekki göslurum heldur verður fólk
að vera vandvirkt," bætir hann við.
Hann segir að ekki sé hægt að
tala um að orðið hafí kúvending á
rekstrinum, nema hægt sé að tala
um frá degi til dags. „Við ætluðum
okkur í rauninni að fara þessa leið.
Samt hafði ég ekki mikinn skilning
á markaðssetningu, gæðakerfum
eða fjármálum þegar ég byrjaði, en
ég hef lært það á ferlinum.
Einnig er mikilvægt að skapa
traust, þannig að fyrirtækið verði
nægilega trúverðugt til þess að
fólk vilji kaupa vörurnar og eins til
að bankar og fjárfestar treysti okk-
ur. Oneitanlega er ákveðinn línu-
dans að gera alla hluti rétt, en eitt
af því, sem ég held að við höfum
gert mjög rétt, er að vera með öll
fjármál alveg á hreinu frá upphafi.
Við lögðum okkur fram um að velja
gott endurskoðunarfyrirtæki og
höfum gætt þess að ekkert orkaði
tvímælis."
ResMed ætlar sér stóra hluti
Bandaríska fyi'irtækið ResMed,
sem framleiðir öndunarvélar fyrir
hrotusjúklinga og er metið á um
500 milljónir dollara, keypti 10%
hlut í Flögu fyrr á þessu ári. Helgi
segir ResMed hafa mikla trú á fyr-
irtækinu, sem endurspeglist í því
að þeir senda út tilkynningar um
að þeir styðji vörur þess og kynna
hana fyrir sölumönnum sínum.
„Þeir myndu ekki gera það, nema
þeir ætluðu sér stóra hluti með
okkur. Þetta samstarf heftir okkur
þó ekki í því að eiga viðskipti við
aðra. Til dæmis framleiðum við
tæki fyrir bandaríska fyrirtækið
Nicolate Biomedical undir þeirra
vörumerki. Nicolate, sem er virt í
heilarannsóknum, framleiddi með-
al annars eigin tæki til heilaritun-
ar, sem þeir voru þó ekki fyllilega
ánægðir með. Hins vegar hafa þeir
lýst yfir mikilli ánægju með okkar
tæki,“ segir Helgi.
Sú stefna hefur verið hjá Flögu,
að fastráðnum starfsmönnum gefst
kostur á að kaupa hlut í fyrirtæk-
inu og hafa allir nýtt sér það.
Meirihluti fyrirtækisins eða 60% er
í eigu þeirra sem vinna í fyrirtæk-
inu, ResMed á 10%, íslenskir og er-
lendir fjárfestar 30%.
Flaga rekur einnig dótturfyrir-
tæki í Bandaríkjunum, Embla
Medical Inc., sem mun á næstunni
ganga inn í ResMed og munu
starfsmennirnir þrír flytjast þang-
að yfir. Einnig mun ResMed taka
að sér að sjá um söluna í Frakk-
landi, þannig að starfsmenn útibús-
ins þar, Flaga France, verða
starfsmenn ResMed.
Tæki til að mæla
öndun nýbura
Eins og fyrr segir má rekja upp-
haf fyrirtækisins til tækisins
Emblu, sem notað er við svefn-
rannsóknir. Ut frá sömu hugmynd
hafa önnur tæki verið að þróast,
svo sem tæki til að mæla heilarit,
hjartarit og aðrar læknisfræðilegar
rannsóknir. Yfirleitt eru samsvar-
andi tæki til á markaðnum, en
starfsmenn Flögu leggja sig fram
um að gera sín tæki fullkomnari og
fýrirferðarminni. „Nú erum við til
dæmis að velta fyrir okkur tækjum
vegna þvagfæravandamála og öðr-
um til að mæla astma hjá börnum
og öndun hjá nýburum til að koma
í veg fyrir ungbarnadauða," segir
Helgi.
- Ert þú hugsuðurinn á bak við
vörvrnar?
„Nei, þetta er ekki á færi eins
manns. Svona starf getur ekki orð-
ið nema ákveðin gerjun eigi sér
stað í stærri hópi. Einn maður ger-
ir alltof mikið af vitleysum, hann
getur komið með eina uppfínningu
eða eitt lítið fýrirtæki, en hann
þarf líka að fá hugmyndir frá öðr-
um. Einnig þarf að vera ákveðið
lýðræði á vinnustaðnum og mikil-
vægt er að treysta öðrum mönnum
til að gera hlutina. Þess vegna þarf
maður að hafa afburðafólk í vinnu
og hvert rúm þarf að vera mjög vel
skipað.
Hann tekur ennft’emur fram, að
geysileg þróun sé í hugbúnaðar-
gerðinni enda sé flottur hugbúnað-
ur það sem selji tækin. „Við erum
með grunnforrit þar sem rásirnar
eru skoðaðar, hvort sem um er að
ræða heila- eða hjartarit. Hægt er
að sjá 10 sekúndur í einu og skoða
alls kyns upplausnir. Við þetta er
síðan tengt greiningarforrit, sem
getur flokkað svefninn niður í
svefnstig, og eins er hægt að sjá
hvort um hrotur er að ræða eða
venjulegan svefn. Síðan skrifar
tækið út nákvæma skýrslu um
hversu oft viðkomandi hætti að
anda, hvemig súrefnið féll og svo