Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 55
I
!
I
í
:
I
(
FOLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin og Háskólabíó hafa tekið til sýniriga mynd-
ina Babe in the City, framhald myndarinnar um grísinn Babe, sem til-
nefnd var til 7 Oskarsverðlauna árið 1995.
Grísinn leggur
land undir fót
Frumsýning
MYNDIN um Babe í borg-
inni er framhald myndar-
innar um grísinn Babe, sem
vildi vera fjárhundur. Sem kunnugt
er var myndin sú tilnefnd til
Oskarsverðlauna fyrir nokkrum ár-
um. { framhaldsmyndinni leggur
Babe land undir fót, fer úr sveitinni
og í borgina til jjess að reyna að
hjálpa fólkinu. A leiðinni kynnist
hann ótrúlegu samansafni dýra og
kemst að því að góðgjarnt og ótta-
laust hjarta getur læknað mörg ver-
aldarmeinin.
I framhaldsmyndinni er grísinn
Babe á sínum stað, svo og bónda-
hjónin Esme (Magda Szubanski) og
Arthur Hoggett (James Cromwell).
Þarna koma líka syngjandi mýsnar
og fleiri söguhetjur úr fyrri mynd-
inni en það eru líka komnir nýliðar í
hópinn. Meðal þeirra eru Mary
Stein og gamla stjarnan Mickey
Rooney en þau leika íbúa á hóteli
sem Babe leggur leið sína tfl. Við
sögu koma líka fjölmörg ný dýr, t.d.
api og lamaður hundur, sem grísinn
eignast að vinum.
Maðurinn á bak við Babe-mynd-
irnar heitir George Miller. Hann
kynntist grísnum, sem vildi vera
fjárhundur, þegar hann var í flugvél
á milli London og Ástralíu og heyrði
í útvarpi þegar verið var að tala um
bók sem hét Sauðsvínið. Hún var
72. bókin með sögum sem rithöf-
undur að nafni Dick King-Smith
hafði skrifað um ýmiss konar dýr.
Miller varð fyrsti maðurinn til að
kaupa kvikmyndarétt af þessum rit-
höfundi, sem er bóndi að aðalstarfí,
og svo beið hann í tæpan áratug,
þangað til tölvutæknin var komin á
það stig að það var hægt að fara að
búa til trúverðuga kvikmynd um
söguhetjuna.
Hann segir að sagan hafí verið
ævintýri eins og þau gerast best.
„Hún fjallaði um virðingu, dauða,
örlög, hugrekki og fordóma. Þetta
var lítil saga sem tókst á við stórar
spurningar. Einhver sagði að Babe
höfðaði til barnsins í hinum full-
orðnu og til hins fullorðna í börnun-
um. Það er hárrétt."
Fyrri myndin gekk svo jafnvel og
allir vita og strax 1996 fór Miller að
leggja drög að framhaldsmynd.
Hann skrifar handrit og framleiðir
myndina ásamt öðrum og hann
lagði líka hönd á plóginn við að velja
aðalleikendur, ferfætta jafnt sem
tvífætta.
Ur fyrri myndinni koma aftur við
sögu Collie-hundarnir Jessie og
Ben og kýrin Whisky.
Babe: Pig in the City var fest á
filmu í Ástralíu, heimalandi Millers.
Victoria
orðin
léttari
KRYDDPÍAN Victoria Ad-
ams fæddi sveinbarn sfðast-
liðinn fimmtudag og hefur
snáðanum verið gefið nafnið
Brooklyn Joseph að sðgn
föðurins og fótboltahetjunn-
ar Davids Beckams.
„Við erum bæði í sjöunda
himni,“ sagði Beckham
fréttamönnum í gær fyrir ut-
an sjúkrahúsið í London.
Fyrra nafn drengsins mun
vera til komið vegna þess að
foreldrarnir voru í New
York þegar þau fengu vit-
Nti eru þau orðin mamma
og pabbi.
neslqu um að kryddpían
væri ófrísk. Seinna nafnið er
aftur millinafn Davids og
komið frá afa hans.
ADAM
FRUMSÝND 12. MARS í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA OG LAUGARÁSBÍÓI