Morgunblaðið - 07.03.1999, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hnífjöfn keppni í sjöþraut og
Norður-
landa-
metið
að falla
í Japan
EFTIR nokkuð misjafnan fyrri keppnisdag í sjöþrautarkeppni
heimsmeistaramótsins í Maebashi í Japan er Jón Arnar Magnús-
son í 4. sæti með 3.546 stig en efstur er Tékkinn Roman Sebrle,
hefur önglað saman 3.616 stigum. Annars er keppnin mjög jöfn
því Tékkinn Tomás Dvorák er í öðru sæti, fjórum stigum á undan
Jóni og Pólverjinn Sebastian Chmara er þriðji, tveimur stigum á
undan Jóni Arnari. Chris Huffins, Bandaríkjunum, er fimmti með
3.510 stig, Erki Nool, Eistlandi, sjötti, hefur hlotið 3.476 stig.
Rússinn Lev Lobodin og Ungverjinn Dezó Szabo eru í sjöunda og
áttunda sæti og blanda sér tæplega í baráttuna úr þessu.
Það er því ljóst að gríðarleg bar-
átta er framundan á síðari
keppnisdegi og segja má að Jón
Amar eigi alveg eins
ivar möguleika á gulli eins
Benediktsson og að hafna í fimmta
skrifar sæti. Munurinn á
fyrsta manni og þeim
fímmta gæti verið aðeins 50-70 stig
þegar upp verður staðið. Síðasta
grein þrautarinnar, 1.000 metra
hlaup, mun að öllum líkindum raða
keppendum í sæti, nema eitthvað
sérlega óvænt komi upp á.
Jón Amar hefur best náð 3.594
stigum á fyrri degi sjöþrautar. Það
gerðist á heimsmeistaramótinu inn-
anhúss í París fyrir tveimur árum,
þannig að hann er aðeins 48 stigum
frá sínu besta. Þegar Jón Arnar
setti Norðurlandamet sitt, 6.170
stig, á EM á sl. ári var hann með
103 stigum minna eftir fyrri dag en
nú, hafði 3.443 stig. A Evrópumeist-
aramótinu fyrir þremur ái’um var
Jón með 3.575 stig eftir fyrri dag.
Frá því á EM fyrir þremur árum og
HM í París hefur Jón Arnar bætt
sig verulega í stangarstökki og
1.000 metra hlaupi. Þess vegna er
ekki óvarlegt að draga þá ályktun
að Norðurlandametið sé í stórhættu
og gangi Jóni nokkuð þokkalega á
síðari degi má reikna með að hann
bæti metið um a.m.k. 100 stig, jafn-
vel 150 stig. Hvort það nægir til
verðlauna verður síðan að koma í
Ijós þar sem keppnin er afar spenn-
andi á milli fímm efstu manna og
eins gæti Nool blandað sér í þann
hóp á kostnað Huffins sem virkar
áhugalítill.
Jón byrjaði illa, var slakur í 60
metra hlaupi, og kom í mark á 6,99
sek., sem er 14/100 frá hans besta.
Huffíns varð fyrstur á 6,67 og fékk
1.003 stig, en Jón aðeins 886. Nool
varð annar á 6,82 og hlaut 944 stig.
Jón fór frá upphafi til enda hlaups-
ins hægt og var meðal öftustu
manna.
í langstökkinu bætti Jón fyrir
spretthlaupið. Hann stökk 7,69
metra og var aðeins 2 sm frá Is-
landsmeti sínu innanhúss og var
með þriðja lengsta stökk keppninn-
ar. Nool fór lengst, 7,80 metra, og
Sebrle 7,76. Auk þess átti Jón stökk
sem mældist 7,40 en annað stökkið
var ógilt. Jón fékk 982 stig fyrir
langstökkið og færðist upp í 4. sæti
Gangi Jóni nokkuð
þokkalega á síðari
degi má reikna með
að hann bæti
Norðurlandametið
um a.m.k. 100
stig, jafnvel 150
stig. Hvort það
nægir til verðlauna
verður síðan að
koma í Ijós.
með 1.868 stig. Efstur var Nool með
1.954 stig.
Kúluvarpið heppnaðist nokkuð
vel. Jón varð í öðru sæti með 16,08
metra en hann á best innahúss
16,37. Reyndar voru bæði gildu köst
Jóns 16,08, Dvorák varpaði lengst
16,70 og fékk 894 stig en Jón fékk
856 stig og var áfram í 4. sæti sam-
anlagt með 2.724 stig. Dvorák tók
forystuna eftir kúluvarpið, hafði
2.754 stig þannig að litlu munaði.
Huffíns var annar með 2.743 stig og
Nool var þriðji, 2.736 stig.
Sebrle og Chmara voru fremstir
allra í hástökki, lyftu sér yfir 2,11
metra og fengu 906 stig hvor. Jón
varð þriðji með 2,02 sem var heldur
lakara en vonir stóðu til, en hann á
best 2,06 m inni. Fyrir hástökkið
fékk Jón 822 stig. Hann stökk 1,90,
1,96 og 1,99 í fyrstu tilraun. Verr
gekk með 2,02 og þeir höfðust ekki
fyrr en í þriðja stökki. Loks felldi
Jón Arnar 2,05 í þrígang. I þessari
grein brást Nool og Huffíns boga-
listin. Nool stökk 1,93 og Huffíns
1,96.
Árangur dagsins var því æði mis-
jafn hjá öllum keppendum, en það
hefur ekki skemmt fyrir jafnri og
skemmtilegri keppni. Segja má að
eina greinin sem hafi brugðist hjá
Jóni hafi verið 60 metra hlaupið.
Hástökkið hefði mátt vera betra, en
það er ekki á vísan að róa.
ÍÞRÓTTIR________________________________
aðeins munar fjórum stigum á 2. og 4. sæti
ÍSLAND
Reuters
JÓN Arnar Magnússon er hér í langstökkskeppninni - stekkur 7,69 metra, sem er aðeins tveimur
sentímetrum frá íslandsmeti hans innanhúss.
Verður að vera tilbúinn
að gera það sem þarf
að gekk upp og ofan á fyrri
degi, 60 metra hlaupið og há-
stökkið var slakt en hins vegar
voru tvær greinarnar góðar, eink-
um þó langstökkið," sagði Gísli
Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnar
Magnússonar, að lokinni keppni á
fyrri degi. „Byrjunin var slæm,
sextíumetrar voru allt of hægir.
Viðbragðið var í lagi en síðan rétti
hann illa úr sér og ég veit ekki
hvað hann var hugsa og hlaupið
varð slakt. Þama hefði ég viljað fá
mun fleiri stig.“
Langstökkið var mun betra
enda talar árangurinn sínu máli,
7,69, aðeins 2 cm frá íslandsmet-
inu. „Jón hljóp atrennuna í lang-
stökkinu mjög vel enda skilaði
það sér vel.“ Gísli segir kúluvarp-
ið hafa verið í lagi, en miðað við
það sem Jón var að varpa í upp-
hitun hefði verið óskandi að ná
lengra kasti. „Ég er hins vegar
óánægður með hástökkið, það
kannski sleppur, en Jón á að geta
stokkið 2,05 til 2,10 og ég vonaðist
til þess að hann næði þeim ár-
angri enda um 30 stig gefin fyrir
hverja 3 cm hækkun. Annars var
Sebrle sá eini sem náði sér á strik
í hástökkinu, Chamra stökk
reyndar 2,11 en á að geta gert
betur.“
Gísli sagði að ekkert mætti bera
út af hjá Jóni á síðari keppnisdegi
ef hann ætlaði að ná verðlauna-
sæti. „Það er sama staða og við
höfðum reiknað með og í raun eru
fimm keppendur að berjast um
sætin þrjú, Jón hefði því mátt vera
heppnari á fyrri degi, á því leikur
enginn vafí.“
60 metra grindahlaup er fyrsta
grein síðari dag og þar segir Gísli
að Jón verði að hlaupa vel og helst
reyna að „hanga“ í Tomási
Dvorák, Tékklandi. Þá verði hann
einnig að vera 15 til 20 sekúndu-
brotum á undan Erki Nool, því sá
er sterkur í stangarstökki sem er
næsta keppnisgrein á eftir grinda-
hlaupinu.
„Jón var linur í hástökkinu en
það má hann alls ekki vera í
stangarstökkinu," segir Gísli og
leggur áherslu á orð sín. „Hann
má alls ekki stökkva lægra en 5,10
metra, helst 5,20.“
Annars sagði Gísli að eins og
vant væri þá myndi 1.000 metra
hlaupið skera úr um verðlaunahaf-
ana. „ Jón á að vera undir það bú-
inn að hlaupa á þeim tíma sem
þarf til. Þegar að hlaupinu kemur
verða Jón, Chmara, Sebrle, Nool
og hugsanlega Dvorák í barátt-
unni og hún mun kosta alla þá
krafta sem til eru. Ég reikna með
því að þessir fimm keppendur
verði með á bilinu 6.300 til 6.400
stig þegar upp verður staðið. Ég
er nokkuð bjartsýnn á síðari dag-
inn fyrir okkar hönd,“ sagði Gísli
Sigurðsson.