Morgunblaðið - 07.03.1999, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 07.03.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 27 FRÉTTIR tók ekkert mark á ákærða um að tilgangur ferðarinnar hefði verið sá að leggja að henni að mæta fyrir dóminn, enda var ákærða ljóst að ráðstafanir höfðu verið gerðar af hálfu dómara, lögreglu í Kaup- mannahöfn og á Islandi til að fá vitnið fyrir dóminn og var aðalmeð- ferð frestað í eina viku eingöngu í því skyni að yfirheyra Patriciu. Um framburð eins aðalvitnis ákærða í málinu, íslendings sem býr í Kaupmannahöfn, segir dóm- urinn m.a. að hafi verið með ólík- indum og frásögn hans lítt trúverð- ug, svo ekki sé fastara að orði kveð- ið. Framburður mannsins að engu hafandi Dómarar tóku það fram í dómi sínum að framburður eins íslensks vitnis vegna myndarinnar væri að engu hafandi, en vitnið sagðist hafa séð umrædda mynd í júlímánuði 1994 í Gallerí Borg. Þótti dómurum vitnisburðurinn skrýtinn þar sem vitnið kvaðst ekki hafa vitað um hvaða spurningar yrðu lagðar fyrir hann í yfirheyrslunni, en gat samt um það borið á örfáum andartökum að einmitt umrætt verk hefði hann séð í júlímánuði rúmum fjórum ár- um áður. Vitnið, sem kom fram af hálfu ákærða, upplýsti ekki fyrr en dómarar gengu hart að honum, að hann og ákærði hefðu staðið saman að uppboðum á Akureyri, m.a. að uppboðinu 21. maí 1995. Starfsmaður Bruun Rasmussen upplýsti í lögregluskýrslu að ákærði hefði verið á uppboðinu 18. ágúst 1994, boðið í tvö umræddra verka og keypt þau. Einn eða tveir kaupendur? Dýrasta verkið, „Páskaliljur" (Nature morte med frugter og Nat- ure morte med blomster), sem selt var á 473 þúsund krónur, var metið af sérfræðingum á líkan hátt og hinai’ myndirnar. Verkið var hins vegar keypt á rúmar 40 þúsund krónur á uppboði í Kaupmannahöfn og þótti dómurum framburður ákærða um kaup myndarinnar óstöðugur og ótrúverðugur og að hann hefði borið úr og í um það hvort hann eða viðskiptafélagi hans, búsettur í Danmörku, hefði keypt myndina. Viðskiptafélaginn staðfesti það að hann hefði boðið símleiðis í myndina ásamt annarri mynd og var reikningurinn settur á ákærða til að ákærði fengi endur- greiddan söluskatt vegna útflutn- ings myndanna, en einstaklingar búsettir í Danmörku þurfa hins vegar að greiða hann. I dóminum sagði að ekki yi’ði fullyrt um hvor þeirra hefði keypt „Páskaliljur", en þegar litið væri til ótrúverðugs framburðar þein’a og tengsla þeirra, sem væru meiri en þeir vildu vera láta, þótti sannað að ákærði hefði tekið þátt í kaupum myndarinnar og að hann hefði tekið fullan þátt í sölu hennar í blekking- arskyni sem og hinna myndanna tveggja. Akærði áfrýjaði dómi héraðs- dóms og bíður niðurstöðu Hæsta- réttar. Málskostnaður og skaða- bótakrafa nema samtals tæpum 2,4 milljónum króna að svo komnu máli, sem ákærði þarf að greiða. Eldur í eld- húsinn- réttingu SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað út vegna bruna á Karlagötu á föstudagskvöld. Kviknað hafði í út frá feitispotti og hafði eldurinn læst sig í eldhúsinn- réttingu. Ibúar höfðu náð að slökkva eldinn þegar slökkviliðið kom á vett- vang en þurftu að flýja út vegna mik- ils reyks. Slökkviliðsmenn reykræstu íbúðina. ÍUm klukkan 7 að morgni laugar- dags var slökkvilið á ný kallað út til að reykræsta íbúð við Laugaveg. Þar hafði pottur gleymst á eldavél og mikill reykur myndast. MARANTZ SR39 Útvarpsmagnari MARANTZ CD 38 Geislaspilari 2 frábærir Títan hátalarar frá Paradigm Pottþétt hijómgæði! HLJOMSYN HLJÚUTÆKIr H E I U A B I ÓY G £ I S L A D I S K A fí Ármúla 38 - Sími 588-5010 Faxafeni 5 » 108 Rvk » Simi:588-8477 TILGANGURINN í LÍFI ÞÍNU NÁMSKEIÐ HELGINA 20.-21. MARS Ferðalag inn á við, með það að markmiðið að kanna hver er tilgangur þinn í lífinu og stóri draumurinn, svo þú getur skapað þér líf sem veitir þér fyllingu, hlaðið af þeirri lífs- gleði sem nærir sálina. Gitte Lassen, sími 551 1573. í miklu úrvali Suöurlandsbraut 10 sími 568 6499 www.poulsen.is Morgunverðarfundur á Hótel Sögu Miðvikudaginn 10. mars 1999, kl. 8:00 - 9:30 í Sunnusal Hótels Sögu ER SAMKEPPNIFRAMUNDAN í ORKUMÁLUM? • Hafa stjórnvöld markað framtíðarstefnu í orkumálum? • Hvenær verður komið á samkeppni í vinnslu, dreifingu og sölu orku? • Er nauðsynlegt að breyta rekstrarformi orkufyrirtækja? • Verður eignarhaldi orkufyrirtækja breytt á næstu árum? • Munu breytingar skila betra verði og þjónustu til neytenda? FRAMSÖGUMENN: ___________________________________________________ ' " N Finnur Ingólfsson, iönaöar- og viðskiptaráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðumesja V________________________________________________ Að loknum framsöguerindum geta íúndarmenn komið á ftamfæri fyrirspumum eða komið með athugasemdir. Fundargjald (morgunveröur innifalinn) kr. 1.500,- Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að tilkynna þátttöku fyrirftam í síma 510 7100 eöa bréfasíma 568 6564 eða meö tölvupósti mottaka@chamber.is. VERSLUNARRAÐ ISLANDS 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.