Morgunblaðið - 07.03.1999, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 07.03.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 43 FINNUR KARI SIGURÐSSON + Finnur Kári Sig- urðsson var fæddur 15. júní 1937 í Súðavík í Norður- Isafjarðarsýslu. Hann lést á Land- spítalanum þann 24. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólöf Halldórsdóttir, f. 9. mars 1896, d. 1. mars 1985, og Sig- urður Hallvarðsson, f. 14. febrúar 1892, d. 24. febrúar 1977. Finnur Kári var yngstur sex systkina, þau eru: 1) Halldóra, f. 6. desem- ber 1920, maki hennar er Baldur Sigurjónsson, f. 14. júlí 1922. 2) Júlíana, f. 9. október 1922. 3) Þorsteina Guðrún, f. 22. febrúar Kæri bróðir, okkur langar til að minnast þín með nokkrum orðum. Hugur okkar reikar vestur til Súðavíkur. Við vorum orðin fimm systkinin, og nú áttum við von á einu systkini í viðbót. Við óskuðum þess að við fengjum bróður og helst átti hann að vera ljóshærður með brún augu. Okkur varð að ósk okkar, við eignuðumst fallegan lítinn bróður og vorum öll afar hrifm af honum. En því miður kom fljótt í ljós að eitthvað var að honum bróður okkar. Sjónin var lítil og líkaminn ekki nógu sterk- ur. Kári var hins vegar skýrt barn. Hann varð fljótt altalandi og lærði allt sem hann heyrði og fljótlega var hann farin að syngja og læra alla texta. Hann átti strax erfitt um gang og varð að sætta sig við að sitja eftir þegar aðrir hlupu. Þegai- Kári var fímm ára gamall var farið með hann til Reykjavíkur í fyrstu augnaðgerð- ina. Kristján Sveinsson gerði þessa fyrstu aðgerð. Það kom fljótlega í ljós að hann þyrfti í aðra aðgerð, Ulf- ar Þórðarson framkvæmdi hana. Þær urðu fleiri aðgerðirnar því Úlfar vildi reyna allt til að bæta sjón Kára, en Úlfar gerðist heimilislæknir Kára og reyndist honum traustur og góð- ur vinur sem hann mat mikils og gat alltaf leitað til. Kári ólst upp í foreldrahúsum við mikinn kærleika. Hann var svo heppinn að eiga góða foreldra, sem önnuðust hann af ástríki og um- hyggju. Árið 1944 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur því þar var Kári bet- ur settur í nálægð við lækna, en til þein-a þurfti oft að leita. Kári gat ekki stundað venjubundna skóla- göngu, en foreldrar okkar fengu handa honum sérkennslu. Honum tókst með þein-i litlu sjón sem hafð- ist með aðgerðunum að læra að lesa. Lestur veitti honum mikla ánægju. Hann las mikið meðan hann gat, helst fræðibækur og ævisögur og alla tíð hlustaði hann mikið á útvarp. Kári var því fróður um margt og stálminnugur og oft leituðum við til hans þegar okkur rak í vörðurnai- og vissi hann þá jafnan svarið. Kári gat ekki fylgt sínum jafnöldr- um eftir, en það hjálpaði honum að hann hafði létta lund á þeim tímum og kímnigáfu hafði hann líka. Honum Kára hlotnaðist sú gæfa að sonur Júlíönu systm- hans, Ólafur Freyi', ólst upp á heimilinu. Með þeim frændum vora miklir kærleikai'. Kári fylgdist með Óla frá fyrstu tíð og þeg- ar Óli æfði fótbolta með félögum sín- um á Vfíöngsvellinum var Kári þar með honum og vinum hans. Þeir voru hans vinir líka. Með Óla lærði hann, las í bókunum hans og hlustaði á tón- list með honum og spjallaði, en vinátt- an var gagnkvæm. En það kemur fyr- ir marga að missa sína og þeir sem eiga mikið missa mest. Það var mikið áfall fyrh' Kára, eins og okkur öll, þegar Óli lést snögglega aðeins 18 ára gamall úr illvígum sjúkdómi, en með Guðs hjálp studdum við hvert annað. Frá þeim árum sem Kári var í for- eldrahúsum í Steinagerði 14 er mai-gs að minnast, systkini hans komu oft með fjölskyldur sínar í heimsókn og naut Kári þess að vera með litlu systkinabörnunum og kynnast þeim. Með árunum versnaði heilsa hans og 1924, maki hennar Stefán Jónsson, f. 15. ágúst 1920, d. 27. ágúst 1969. 4) Ing- unn, f. 31. júlí 1926, maki hennar Tryggvi Svein- björnsson, f. 4. sept- ember 1921, d. 15. febrúar 1993. 5) Þor- steinn, f. 24. febrúar 1930, maki hans er Sigríður Margeirs- dóttir, f. 12. júní 1934. Finnur Kári var ókvæntur og barnlaus, en átti góða og trygga vinkonu, Erlu Hafliðadóttur. Útfór Finns fer fram frá Bú- staðakirkju mánudaginn 8. mars klukkan 13.30. var hann oft illa haldinn og var fyrir- sjáanlegt að hann gæti ekki verið heima hjá foreldram sínum, sem vora orðin aldraðir. í nóvember 1973 vistaðist hann í hús Sjálfsbjargar í Hátúni og var með þeim fyrstu sem fluttu þar inn. Hann var sjálfur sáttur við flutning- inn og óskaði eftir honum. í Hátúni kunni hann vel við sig og kynntist nwrgu góðu fólki þar í gegnum árin. Ai-ið 1988 kom ný vistmanneskja í Hátún, Eria Hafliðadóttii', og tókust fljótlega góð kynni með þeim Kái'a. Það var honum mikil gæfa að kynnast Erlu og má segja að þau hafí verið óaðskiljanleg síðan. Erla var honum afar góð og kærleiksn'k og hjálpaði honum eins og hún gat, t.d. las hún fyi-ir hann úr Morgunbiaðinu. Hún var honum sem smyrsli á hans erfiðu stundum, en þær voru margar. Nú viljum við þakka þér, kæra Erla okk- ar, kærleika þinn og ástúð í garð Kára, við vitum að honum þótti mikið vænt um þig og við vottum þér okkar innilegustu samúð við fráfall hans. í Hátúni leið Kára eins vel og hægt var, en oft var hann þjáður af sínum sjúkdómi, sem ágerðist með árunum, og þurfti hann þá mikinn skilning og nærgætni. Viljum við nú þakka öllu starfsfólki og heimilisfólki sem var honum samferða, fyrir um- önnun, hjálp, vinsemd og allt sem þið voruð honum. Við getum ekki minnst Kára öðra- vísi en minnast þess með kæra þakk- læti hvað Baldur mágur okkar var Kára mikill vinur og hjálparhella frá fyrstu kynnum. Kári var aðeins 7 ára þegar Baldur kom inn í fjölskyldu okkar og það var ómetanlegt sem hann gerði fyrir hann, ekkert var of gott fyrir Kára. Það vora ófáar öku- ferðimar og sunnudagsboðin, og alltaf hafði Baldur tíma. Við systkinin kunnum að meta það og biðjum Guð að launa honum allt. Við vitum að væntumþykja þeirra var gagnkvæm. Þegar komið er að kveðjustund þökkum við Kára bróður samfylgdina öll árin, en við þökkum líka fyrir hans hvfld frá þrautum. Þú skilur eftir mikið tóm og eigum við eftfl- að sakna þín, nú hringh’ enginn Kári lengur. Við biðjum Guð að blessa þig. Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesú í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (H.P.) Hvfl í friði. Systkinin. Kári frændi var partur af tilvera minni frá því ég man eftir mér, sér- staklega þó bemskunni. Þegar ég var stelpa var ég svo lánsöm að í móður- fjölskyldu minni var „ættaróðal" - heimili ömmu minnaa' og afa, Ólafar Halldórsdóttur og Sigurðar Hall- varðssonar, í Steinagerði í Smáíbúða- hverfinu í Reykjavík - eða Steinó eins og það var alltaf kallað. Systkini móð- ur minnar hafa alla tíð verið samheld- in og meðan ég var að alst upp var farið „inní Steinó“ á hverju fimmtu- dagskvöldi og nánast alla sunnudaga. Alltaf vai' gaman að fara þangað enda bjó þar gott, gestrisið og skemmtilegt fólk. Það era ekki síst samvistimar við Kára, sem þá bjó í foreldrahúsum, sem lifa í minningunni þegar litið er til baka til þessara heimsókna. Fyrir þær vfl ég nú þakka. Kári var afar góður og natinn við okkur systkinabörn sín og fann uppá ýmsu til að stytta okkur stundir. Hann átti herbergi uppi á lofti í hús- inu - agnarlítið og þar sátum við, eitt eða fleiri, og hlustuðum á hann lesa þjóðsögur og ævintýri úr stórri bók, eða segja sögur. Sérstaklega man ég eftir því hvemig hann sagði „trölla- sögur“ af innlifun með dimmri röddu og tflheyrandi hlátri, en fáir hlógu innilegar en Kári þegar eitthvað var til að gleðjast yfii'! Hann kunni líka ýmsa skemmtilega leiki á borð við frúna í Hamborg og var einkar lag- inn við að víkja sér undan óþægileg- um spurningum og greip þá gjarnan til svarsins „víst er nú svo“ eða „svo er nú víst ekki“ og hló dátt þegar hann sneri á okkur krakkana. Auk þess var farið í spurningaleiki og stjórnaði Kári þeim af skörungs- skap, enda fróður um margt og víð- lesinn á þessum tíma. Hann var hins vegar alla tíð ákaflega sjóndapur svo hin síðari ár gat hann ekki lesið sér til ánægju. Hann hlustaði hins vegar alla tíð mikið á útvarp og fylgdist með atburðum líðandi stundar efth’ mætti. Kári hafði yndi af tónlist og gaman af söng. Hann hafði brenn- andi áhuga á knattspyrnu og hélt ótrauður með sínu liði - Víkingi, alla tíð. Honum fannst knattspymuáhugi og ástundun aðall „alvöru“ stráka og átti erfltt með að skilja að unga frændur hans skorti hvorttveggja! Kári hafði ríka kímnigáfu og sá oft spaugilegar hliðar hlutanna. Sá eig- inleiki hefur eflaust oft hjálpað hon- um á eifiðum stundum, sem voru margai' í lífi hans, ekki síst eftir því sem árin liðu og heilsu hans hrakaði. Hin síðari ár hitti ég Kára sjaldan, en fylgdist þó alltaf með högum hans í gegnum móður mína. Við leiðarlok vil ég þakka Kára liðnar stundir og allt gott í garð minn og minna. Eg og fjölskylda mín sendum systkinum hans og tengda- systkinum samúðarkveðjur, en sér- staklega samhryggjumst við Erlu Hafliðadóttur, heitkonu og besta vini Kára, og biðjum Guð og engla hans að hjálpa henni á erfiðum tímum. Við trúum að Kári sé nú alheilbrigður hjá Guði og vonum að hann njóti þar samvista við ástvini sem fóra á und- an honum úr þessu lífí. Guðrún Tryggvadóttir. Sem drengm- var ég í sveit í Fagradal í Vopnafirði og undi mér vel. Fagridalui' er mjög afskektur og jafnan vora það einu mannaferðimar þegar pósturinn kom ríðandi á hálfs- mánaðarfresti með Tímann, nokkur sendibréf og ýmislegt smálegt í tösku sinni sem hann hafði til sölu. I einni ferðinni var sendibréf til mín með þeim tíðindum að foreldrar mínir hefðu keypt hús í Smáíbúðahverfinu. Mér leist nú ekki á blikuna að flytja þangað af Öldugötunni því þetta var eitt nýjasta hverfi borgarinnar og það orð fór af því að þarna ættu heima uppivöðslusamir unglingar og hrekkjusvín. Sem betur fer reyndist þessi ótti ástæðulaus. Þegar ég kom úr sveitinni þekkti ég auðvitað engan í nýja hverfinu. Því var það mikill léttir þegar brosmildur drengur ávarpaði mig og bauð mig velkominn í hverfið. Þama var kom- inn Ólafur Freyr Hjaltason jafnaldri minn, sem átti eftir að verða minn bezti vinur. Fljótlega bauð hann mér heim tfl sín í Steinagerðið. í því litla húsi var mannmargt. Amman og af- inn Ólöf og Sigurður, Júlla mamma hans Óla og bræður hennar Steini og Kári, sem kvaddur er í dag. Og svo auðvitað Óli. Fjölskyldan hafði flutzt frá Súðavík á fimmta áratugnum til borgarinnar. Hún reisti sér hús við Steinagerði fljótlega eftir að Smáí- búðahverfið byrjaði að byggjast. Þar lifði fjölskyldan í sátt og samlyndi, ekta íslenzk fjölskylda þess tíma. Þau tóku mér strax ákaflega vel og buðu mig velkominn í sitt hús. Eg tel mig gæfumann að hafa átt vináttu þessa góða fólks. Kári vakti strax athygli mína. Sjúkdómar höfðu sett á hann mark allt frá æsku og sjónin var döpur. En hann fylgdist ákaflega vel með og mér fannst hann vera inní öllum hlutum. Kára lá hátt rómur og hann lá ekki á skoðunum sínum þegar því var að skipta. Þótt ekki gæti hann stundað íþróttir vegna veikinda sinna studdi hann Víking af lífi og sál enda æfði Óli með því félagi. Það var einmitt fyrfl' orð Óla að ég gekk í Víking og hef verið þar félagi allar götur síðan. Svo dundi reiðarslagið yfir þessa samhentu fjölskyldu. Oli veiktist af illkynja sjúkdómi sem lagði þennan hrausta dreng að velli á skömmum tíma. Ég man enn glögglega hvað mér fannst lífið óréttlátt. Oli var ein- ‘ staklega vel gerður ungur maður, kurteis, heiðarlegur og hjálpsamur. Hann var svo sannarlega stoð og stytta sinnar fjölskyldu. Honum gekk vel í námi í Verzlunarskólanum og hafði verið valinn til æfinga hjá unglingalandsliðinu í knattspyrnu. Hvemig mátti það vera að einmitt hann, einkasonur móður sinnar og haldreipi móðurforeldra sinna og Kára, væri hrifinn brott svona ung- ur? Þetta fannst mér gjörsamlega óskiljanlegt. En fjölskyldan var sterk í hinni miklu sorg og hún leit- aði huggunar í trúnni á Guð almátt- ugan. Alla tíð síðan hef ég haldið sam- bandi við fjölskylduna í Steinagerði. Ólöf og Sigurður eru látin fyrir all- nokki-u og nú er Kári búinn að yfir- gefa okkur. Eftii’ lifir Júlla. Ég hitti ■ Kára nokkrum sinnum á vellinum, einkanlega á leikjum Víkings. Gengi Víkings var honum ætíð efst í huga í okkar samtölum. Síðast hitti ég hann á Náttúrulækningahælinu í Hvera- gerði þegar hann dvaldi þar með Erlu vinkonu sinni. Það var ánægju- leg stund sem ég mun ekki gleyma. Ég hygg að þeir sem kynntust Kára Sigurðssyni muni geyma minn- ingu hans í hjarta sínu. Veri vinur r' minn Kári kært kvaddur. Sigtr. Sigtryggsson. + Sigurður Helga- son fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1954. Hann Iést 25. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans: Helgi Kristinn Jéns- son prentari, f. 27. maí 1932, d. 3. apríl 1993 og Þóra Guð- mundsdéttir, aðstoð- arstúlka hjá Styrkt- arfélagi lamaðra og fatlaðra, f. 16. febrú- ar 1932. Systkini: 1) Guðmundur, prent- ari, offsetskeytinga- maður og nemi í húsasmíði, f. 22. september 1950. Fyrrverandi kona hans er Bryndís Birnir Björnsdéttir, f. 11. júní 1951. Börn þeirra eru. a) Helgi Bjöm, f. 1974, b) Margrét Þéra, f. 1976, c) Davíð Órn, f. 1980 og d) Brynjar Óli, f. 1985. Unnusta Guðmundar er Álflieiður Agnes Jénsdéttir, prentari, f. 24. aprfl 1959. 2) Þór- dís, fulltrúi, f. 12. júní 1952. Fyrr- verandi maður hennar er Jón Ágúst Eggertsson, f. 20. ágúst 1953, hann býr í Noregi. Þeirra börn eru: a) Eggert Þér, f. 1972 Á morgun verður til moldar borinn mágur minn Sigurður Helgason. Siggi, eins og hann var alltaf kallað- ur, greindist með illkynja sjúkdóm seint á haustdögum. Þá var strax séð að engri lækningu yrði við kom- ið. Hann lést á heimili móður sinnar aðfaranótt 25. febrúar sl. Siggi fæddist og ólst upp fyrstu árin í Reykjavík en flutti 6 ára gam- all í Kópavoginn þar sem hann gekk í barna- og unglingaskóla. Fyrst eftir að grunnskóla lauk vann hann í nokkur ár hjá Bókaverslun Snæ- bjarnar en sneri sér að námi í off- setskeytingu árið 1978. Hann starf- aði við fag sitt allt fram á haustdaga er banastríð hans hófst, síðustu árin og b) Margrét Jéna, f. 1976. 3) Berglind, sjúkraþjálfari, f. 22. september 1956. Hennar maður er Björn Hermannsson, framkvæmdastjéri Landsbjargar, f. 2. október 1955. Þeirra böm eru: a) Birna, f. 1980, b) Anna Regína, f. 1982 og, c) Helgi Iíristinn, f. 1989. 4) Kristín, prentsmiður, f. 26. júnf 1963. Hennar maður er Jakob Við- ar Guðmundsson, prentsmiður, f. 7. janúar 1956. Sonur þeirra er Sturla Viðar, f. 1986. Sigurður ték sveinspréf í off- setskeytingu 19. júní 1982. Hann starfaði í prentsmiðjunni Grafík hf. 1976-1988, ísafoldarprent- smiðju hf. 1988-1991, prent- smiðju Árna Valdemarssonar 1991-1994 og í prentsmiðjunni Odda frá 1995 til dauðadags. Útför Sigurðar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 8. mars og hefst athöfnin klukkan 13.30. í Prentsmiðjunni Odda. Þeirri prentsmiðju hafði Siggi verið tengd- ur frá fæðingu því faðir hans var prentari þar í 25 ár og fyrstu æviár Sigga bjó fjölskyldan uppi á lofti prentsmiðjunnar við Grettisgötu í Reykjavík. Sem barn og unglingur var Siggi tápmikill og fjöragur ung- ur maður en um tvítugt gerðist hann meiri einfari og leið honum þá best heima hjá sér. Hann las mikið og átti mikið safn af góðri hljómlist sem hann naut þess að hlusta á. Siggi hafði vindinn oftar í fangið en við hin og oftast var vindurinn kröftugur. Þegar lægði á milli átti hann sína góðu daga. Nú þegai’ helstríðinu er lokið vilj- um við sem næst honum stóðu færa þeim sem komu honum til hjálpar við umönnun og linun þjáninga, okk- ar bestu þakkir. Þai- ber helst að nefna starfsfólk handlækningadeild- ar Landspítalans og heimahlynning- ar Ki’abbameinsfélags íslands. Fjölskyldan í Daltúni sendir bróður, mági og frænda hinstu kveðjur. Blessuð sé minning Sigurðar Helgasonar. Björn Hermannssson. Fótmál dauðans fljótt er stigið fram að myrkum grafarreit, mitt er hold til moldar hnigið máskefyiTenafégveit. Heilsa, máttur, fegurð, fjör flýgur burt sem elding snör. Hvað er lífið? Logi veikur, lítil bóla hverfull reykur. (B.Halld.) Okkur vinnufélögum Sigurðar Helgasonar var illa brugðið þegar við fréttum hversu alvarleg veik- indi hans voru. Og minnir það óneitanlega á hversu lífið er hverf- ult, að maður í blóma lífsins skuli einn dag fara til rannsóknar og síð- an fá þann úrskurð að ekkert sé r hægt að gera og örstutt sé til enda- loka. Siggi hafði að vísu kennt sér meins um tíma en fæstir vissu neitt um það því hann var ekki maður sem ræddi mikið um eigin hagi. Hann stundaði sína vinnu var iðju- samur og duglegur og mikið snyrti- menni. Hann vildi hafa reglu á hlut- unum og fengum við að heyra það, ef ekki var gengið vel frá hlutunum kringum borðið hans á vaktaskipt- um. Það er sárt að sjá á eftir félaga sínum hverfa á braut svo fljótt ogi langt um aldur fram. Við munum minnast Sigga með söknuði og hlýhug og óska honum Guðs friðar og blessunar. Hann var góður vinnufélagi. Við sendum móð- ur hans, systkinum og öðram vinum og vandamönnum innilegustu sam- úðarkveðjur. ^ Vinnufélagar í filmudeild prentsmiðjunnar Odda. SIGURÐUR HELGASON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.