Morgunblaðið - 07.03.1999, Page 50
50 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
í DAG
Merkasta löggjöf
Islands sögu
STERKAR líkur
standa til þess að
„Guð vors lands“
hafi verið lofsung-
inn hér frá fyrstu
mannvist í landinu.
Elztu frásögn
um búsetu hér er
að finna í ritinu
„De mensura orbis
terrae“ (um stærð
jarðar), sem skráð
var af írskum
munki og sagnarit-
ara, Dicuil að nafni,
árið 825, að því
talið er. Höfundur
greinir þar frá
viðræðum við
kristna menn árið
795 er dvalizt höfðu
á eyjunni Thule; en
það nafn höfðu Irar
um Island, segir í
íslandssögu Einars
Laxness. I Islend-
ingabók Ara fróða
segir og að þegar
landnám norrænna
manna hófst hér,
um eða skömmu
SIGLUFJARÐARKIRKJA, teikning Arnfinna
Björnsdóttir, Abbý.
fyrir 870, hafi verið fyrir í landinu
„menn kristnir, þeir er Norðmenn
kaila Papa“ (úr latínu papa: faðir).
Þetta vóru kristnir, írskir einsetu-
menn, sem talið er að hafi siglt
hir.gað á skinnbátum (curach) á 7.
eða 8. öld.
Flestir norrænna landnáms-
manna (landnámsöld: tímabilið frá
þvi um 870 til um 930) vóru
Asatrúar. í hópi þeirra var engu
að síður kristið fólk. Jón Jónsson
Aðils sagnfræðingur segir m.a. í
bók sinni Gullöld Islendinga:
„Höfðu sumir af þessum land-
námsmönnum dvalið árum saman í
Irlandi, Skotlandi og Vesturhafs-
eylum áður en þeir fluttust til Is-
lar.ds, og er þess getið um nokkra
þeirra að þeir hafi verið kristnir.
Vóru þeir flestir af ættlegg Ketils
flatnefs, 0g era þessir taldir helztir:
Helgi bjóla, sonur Ketils, og Örlyg-
ur Hrappsson, bróðursonur Ketils,
er báðir settust að á Kjalamesi;
Auður djúpúðga, dóttir hans, nam
land í Dölum vestra; Helgi magri,
tengdasonur hans, nam Eyjafjörð,
og Ketill fíflski, dóttursonur hans,
nam land á Rangárvöllum. Enn-
fremur telja heimildaritin Jörund
hinn kristna og Asólf alskik, er báð-
ur bjuggu á Akranesi. Fleiri land-
námsmenn hafa eflaust verið
kristnir, þótt eigi sé þess getið, og
eins man það (þrælar) er landnáms-
menn höfðu með sér og mestmegn-
is var af keltneskum uppruna."
I Islandssögu Einars Laxness
segir um sama efni: „Flestir land-
námsmanna vóru ásatrúar, en
nokkrir þó kristnir: Ásólfur alskik,
Auður djúpúðga, Ketill fíflski í
Kirkjubæ, Órlygur gamli á Esju-
bergi o.fl., og tveir síðastnefndu
eiga að hafa reist kirkjur á bæjum
sínum. Hinir írsku þrælar, er
hingað fluttust, vóru vafalaust
kristnir."
Það orkar því ekki tvímælis að
kristin trú átti ítök hér frá fyrstu
mannvistardögum í landinu, þótt
hún yrði ekki „sameign" þjóðar-
innar fyrr en árið 1000 þegar
kristni var lögtekin á Þingvöllum
við Öxará. Þorgeir Ljósvetninga-
Kristnitakan árið eitt
þúsund er, að mati
Stefáns Friðbjarnar-
sonar, merkasta
löggjöf Islands sögu.
óskírðir á landi hér...“.
Kristnitakan er að mati höfundar
þessa pistils merkasta löggjöf ís-
lands sögu.
Ki-istinn dómur hefur ríkulega
mótað samfélag okkar í aldanna
rás, löggjöf þess, menningu, siði
og viðhorf. Menningarleg arfleifð
okkar, ljóð, sögur og tónverk, er
barmafull af kristnum áhrifum.
Almannatryggingar, félagsleg
þjónusta og heilbrigðiskeríi bera
þessum áhrifum og vottinn, þótt
alltaf megi betur gera. Allt það
bezta, sem einkennir þjóðfélag
okkar, má rekja til þessarar rótar.
Alþingi og kirkja eiu elztu
stofnanir íslenzks samfélags - og í
raun og sann hornsteinar þess,
sem okkur er skylt að standa
traustan vörð um. Það er og engin
tilviljun að tæp 90% landsmanna
heyra til þjóðkirkjunni við upphaf
nýbyrjaðs árs, tæpum þúsund ár-
um eftir að kristinn siður var lög-
tekinn á Alþingi við Öxará. Orð
Þorgeirs Ljósvetningagoða á
þessum löngu liðna tíma, „höfum
öll ein lög og einn sið“, bergmála
enn í eyrum þjóðarinnar.
Þegar þess er gætt hve mjög
kristinn dómur hefur mótað
menningu, samfélag, siði og
viðhorf landsmanna fer vel á því
að upphafsorð lofsöngs Matthías-
ar Jochumssonar, þjóðsöngs okk-
ar, séu þessi:
„0, Guð vors lands! 0 lands vors Guð,
vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn.“
Og með hliðsjón af nýrri öld, sem
er í hlaðvarpa, fer vel á því að
þjóðkórinn syngi bænarorðin, sem
lokastef þjóðsöngsins geyma:
„Verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskast á Guðs-ríkis braut.“
menn skyldu kristnir vera og skím taka, þeir er áður vóru Höfundur er fyrrverandi hlaðnmað ur við Morgunblaðið.
íþróttir á Netinu mbl.is
/\LLTAf= £!TTH\SA£) A/ÝT7
VELVAKAJVÐI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um Sundabraut
NU virðist vera að skýr-
ast, hvar fyrirhuguð
„Sundabraut" mun liggja,
en hún verður mikilvæg
tengibraut milli þéttbýlis-
hluta á „norður-Reykja-
víkur“-svæðinu og auk
þess og aðalbrautin til og
frá Reykjavík vestur og
norður um land.
Ekki er að efa að braut-
in er löngu tímabær og
víst er að frá upphafl verð-
ur mikil umferð á henni
þar sem hún tengist
Kleppsmýrarvegi við
Gelgjutanga. Kleppsmýr-
arvegur verður vafalítið
a.m.k. tvær akreinar í
hvora átt, þar sem hann
tengist Sæbrautinni og sú
tenging hlýtur að verða
talsvert mikið umferðar-
mannvirki.
Núverandi framhald
Kleppsmýrarvegar hand-
an Sæbrautarinnar er
Skeiðarvogurinn og þá er
komið að kjarna málsins.
Skeiðarvogurinn er ein-
fóld gata í gegnum íbúða-
hverfi Voga og Heima.
íbúðarhús standa við
gangstéttarbrúnir og við
götuna eru skólar hverfls-
ins. Skeiðarvogurinn getur
ekki tekið við umferð
gegnum Vogahverfið, allra
sfst hraðaumferð í beinu
framhaldi af Kleppsmýr-
arvegi og Sundabraut.
Umferð milli borgarhverfa
á heldur ekki erindi þarna
í gegn. Eitt dauðaslys á
barni á Skeiðarvogi var
einu dauðaslysi of mikið og
þau mega ekki verða fleiri.
Borgai-yfirvöld skilja þetta
og þrengdu götuna í fyrra.
Hún er nú ein akrein í
hvora átt með þrengingum
og hraðahindrunum. Þetta
þökkum við fyrir sem bú-
um þarna og teljum það
vera skref í rétta átt.
Heppilegast væri að
Skeiðarvogurinn næði að-
eins að Njörvasundi og
tengingunni við Sæbraut
verði endanlega lokað.
Ég skora á íbúasamtök
og foreldrafélög hverfisins
að fylgjast vel með áform-
um veghönnuðanna og sjá
til þess að Skeiðarvogur-
inn verði aldrei aftur gerð-
ur að hraðbraut í- gegnum
íbúðahverfl okkar.
Skúli.
Alli sem ekur
Subaru og býr
á Seltjarnarnesi
ÞU varst svo vinalegur að
keyra okkur vinkonumar
heim úr kuldanum aðfara-
nótt sunnudagsins 14.
febrúar. Ég hélt á litlum
poka fyrir þig á meðan,
sem ég tók svo óvart með
mér. Við viljum koma pok-
anum til þín. Hafðu sam-
band í síma 481 1178 eftir
kl. 19.
Anægðir
viðskiptavinir
Til íþróttafréttamanna
AF hverju skrifa íþróttaf-
réttamenn aldrei neitt um
sund. KR-mótið var um
síðustu helgi, helgina þar á
undan Reykjavíkui-mótið
og ekkert hefur birst um
þessi mót í fjölmiðlum. Á
þessum mótum eni krakk-
ar sem leggja hart að sér
til að taka þátt í þessum
mótum og ættu fjölmiðlar
að fjalla meira um svona
mót. Eru fréttamenn
kannski vatnshræddir? Vil
ég gjarnan fá svar við
þessari fyrirspurn.
Guðlaug.
Snæfellsjökull hulinn
mengunarskýjum
Ég bý í Hólahverfi og hef
mjög gott útsýni yfir borg-
ina og Snæfellsjökul. Einn
bjartan dag í vikunni tek
ég eftir að jökullinn er að
mestu hulinn gulbrúnu
mengunarskýi. Eg hafði
samband við Hollustu-
vemd ríkisins og þar var
mér sagt að mengunin
stafaði að mestu frá bílum.
Á góðviðrisdögum er helst
ekki hægt að ganga um
miðborgina vegna meng-
unar. Er ekki kominn tími
fyrir umhverfisráðhema
að gera eitthvað til að
minnka mengun?
Lára.
Þakkir til Europay
ÞANNIG er mál með vexti
að við hjónin höfum verið
með kreditkort í tæp 5 ár
hjá Europay og alltaf stað-
ið í skilum þai' til nú að við
lentum í peningalegum
hremmingum. Allt starfs-
fólk Europay hefur verið
mjög almennilegt við okk-
ur og ber þar að nefna eina
sem okkur finnst bera af í
hjálpsemi og greiðasemi
og er það Margrét Lárus-
dóttir. Við mælum með
viðskiptum við Europay.
Tapað/fundið
Gullnæla týndist
GULLNÆLA týndist fyr-
ir í'úmum mánuði, líklega í
Kringlunni. Skilvís fmn-
andi hafi samband í síma
552 7468.
Lyklar í óskilum
LYKLAR fundust síðdegis
sl. fimmtudag á Einimel.
Þetta eru húslyklar. Upp-
lýsingar í síma 551 4801.
Lyklakippa týndist í
Síðumúla
LYKLAKIPPA (skart-
gripur eftir Jens) týndist
sl. miðvikudag, líklega í
Síðumúla. Skilvís finnandi
hafi samband i síma
896 2322 eða 567 0709.
Fundarlaun.
Hvað er í rauða
kassanum?
FYRIR nokkrum vikum
fannst rauður kassi með
gömlum munum í Vestur-
bænum. Upplýsingar í
síma 551 2206, Sigrún.
Svört flíshúfa
„Extremities"
SVÖRT flíshúfa týndist á
Café Milano eða á Skeifu-
svæðinu um miðjan febr-
úar. Skilvís fínnandi hafi
samband í síma 562 5407.
Fundarlaun.
Víkverji skrifar...
EFTIRFARANDI bréf barst í
vikunni:
,;Til ritstjómar Morgunblaðsins.
I pistli Víkverja í Morgunblaðinu
28. febrúar s.l. eru tvö atriði, sem
ekki eru Morgunblaðinu sæmandi
sem vönduðum fjölmiðli. Þar sem
skrif Víkverja eru nafnlaus á
ábyrgð blaðsins, verður að krefjast
vandaðra vinnubragða, svo sem að
leitað sé þekkingar á málum áður
en skrifað er um þau.
í fyrsta lagi er Happdrætti Há-
skóla Islands vænt um glæpsamlegt
athæfi út frá vinningasögu eins
happdrættismiða. Sjálfsagt hefði
verið að kynna sér fyrst hjá Dóms-
málaráðuneytinu, sem annast eftir-
lit með öllum happdrættum, hvaða
öryggisráðstafanir eru gerðar til
þess að útiloka afbrot af þessu tagi.
í öðru lagi er gerður fáránlegur
samanburður á sambandi milli með-
aleinkunna skóla og menntunar for-
eldra annarsvegar og milli krabba-
meins í lungum og reykinga hins-
vegar. Hér hefði upplýsingaleit hjá
tölfræðingi verið sjálfsögð. Eins og
fram kemur í Morgunblaðinu 26.
febrúar s.l. er mjög marktækt sam-
band milli meðaleinkunnar skóla í
samræmdum prófum og menntunar
foreldra. Útskýrt er 65% af breyti-
leika milli skóla. Líkindi á að svo
sterkt eða sterkara samband stafi
af hreinni tilviljun eru um einn á
móti tvö hunduð þúsund. í gi'ein,
sem birtist í nóvember 1997 í tíma-
ritinu Cancer epimiology, biomar-
kers and prevention, eru niðurstöð-
ur fengnar með samnýtingu gagna
Hjartavemdar og Krabbameins-
skrár. Reykingar útskýrðu þar 85%
af lungnakraþbameini hjá körlum
og 88% hjá konum. Líkindi fyrir
slíku sambandi, væri um tilviljanir
einar að ræða, eru minni en nokkur
tala, sem Víkverji gæti nefnt t.d.
einn á móti miljón miljörðum.
Vonandi verða þessum höfundi
Víkverja kennd betri vinnubrögð,
haldi hann áfram að skrifa í Morg-
unblaðið.
Með ósk um birtingu.
Helgi Sigvaldason,
Logafold 134.“
xxx
VÍKVERJI þakkar Helga fróð-
legar upplýsingar og verður að
játa sig og kunningja sinn sigraða
varðandi samanburð á sambandi
milli meðaleinkunna skóla og
menntunar foreldra annarsvegar og
milli krabbameins í lungum og
reykinga hinsvegar.
En Víkverji vonar innilega að
aðrir lesendur, jafnvel þó Háskóla-
menn séu, hafi ekki tekið vanga-
velturnar síðasta sunnudag um
Happdrætti Háskóla íslands jafn
óstinnt upp og Helgi. Ekki var ætl-
unin að væna HHI um glæpsamlegt
athæfi heldur var spurningin varð-
andi happdrættið ósköp einföld og
sárasaklaus að mati Víkverja,
vegna hugleiðinga kunningja hans.
Sá taldi einmitt að lög og reglur
væru ef til vill þannig að miðar í
eigu happdrættisins ættu meiri
möguleika á útdrætti en aðrir en
var alls ekki með það í huga að af-
brotamenn væru við stjórnvölinn í
HHÍ, eins og Helgi túlkar orð Vík-
verja.
X X X
GETUR verið að kosningar séu í
nánd, sagðist kunningi Vík-
verja hafa hugsað á dögunum þegar
hann horfði á kvöldfréttir Stöðvar 2.
Þar var greint frá því að Halldór
Blöndal samgönguráðherra hefði á
fundi á Siglufirði fyrr um kvöldið
lýst þeirri skoðun sinni að hann ætti
þá ósk að jarðgöng yrðu gerð milli
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar á
næsta kjörtímabili. Ráðherra gat
þess einnig að hann teldi raunhæft
að af gerð ganganna yrði.
Halldór Blöndal er sem kunnugt
er þingmaður Norðurlands eystra.
Páll Pétursson, samráðherra hans,
er þingmaður Norðurlands vestra
og hefur lýst yfir stuðningi við mál-
flutning Halldórs. Að næstu _göng
sem ráðist verði í komi milli Olafs-
fjarðar og Siglufjarðar. Valgerður
Sverrisdóttir, þingmaður Norður-
lands eystra, hefur hins vegar
minnt á að þegar farið var út í jarð-
gangnagerð á Vestfjörðum hafi
ráðamenn jafnan sagt að næstu
göng þar á eftir yrðu á Austurlandi.
Og þau orð skuli standa. Víkverji
getur ekki annað en tekið ofan fyrir
Valgerði að tala á þessum nótum - í
raun gegn eigin kjördæmi - svo
skömmu fyrir kosningar.
xxx
GUÐMUNDUR Bjarnason,
Húsvíkingur og landbúnaðai'-
ráðherra, hafði uppi áform um að
flytja Lánasjóð landbúnaðarins til
Húsavíkur fyrir skemmstu, þegar
ljóst var að hann yrði fluttur út á
land. Niðurstaðan varð hins vegar
sú að Selfoss varð fyrir valinu.
Stjórn sjóðsins taldi það betri kost
en Húsavík. Faglegt mat hefur án
efa ráðið þeirri ákvörðun, en eins og
fyrir algjöra tilviljun er formaður
stjórnarinnar Guðni Ágústsson,
þingmaðui' Sunnlendinga.
XXX
AÐ var einnig fyrir einskæra
tilviljun að innheimtudeild
íbúðalánasjóðs var flutt á Sauðár-
krók, í kjördæmi Páls Péturssonar
félagsmálaráðherra, en sjóðurinn
heyrir undir hann. Víkverji tekur
undir orð eins vinar síns í vikunni:
Kjördæmi mega ekki líða fyrir það
að eiga ráðherra eða aðra forystu-
menn flokkanna!