Morgunblaðið - 07.03.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 51
í DAG
BRIPS
(Jmsjón Giióniiniilur
l’áll Arnarsnn
ÍTALINN Attanasio spil-
aði fjóra spaða í suður og
fékk út hjarta frá þrílitn-
um:
Vestur
AÁ103
V864
♦ D1095
*1065
Norður
* 864
¥ KDIO
* ÁKG4
* K32
Austur
* 72
¥ ÁG72
* 732
* G974
Suður
* KDG95
¥ 953
♦ 86
*ÁD8
Hann stakk upp kóngum
og austur gróf sig undir
feld í drjúga stund áður en
hann ákvað að kalla í litn-
um. Austur hafði komið
auga á fallega vörn. Hann
var að vona að makker
sinn ætti öruggan
trompslag og kannski tí-
una með - til dæmis ÁlOx
eða KlOx. Austur sá þá
fyrir sér að makker myndi
spila aftur hjarta í gegnum
gaffalinn. Þá væri bókin
mætt og síðan gæti austur
spilað hjarta út í þrefalda
eyðu og uppfært slag á
tromptíuna.
Austur sá sannarlega
langt, en það gerði Att-
anasio einnig. í staðinn
fyrir að spila strax trompi,
eins og flestir hefðu gert,
fór hann í tígulinn. Hann
tók ÁK og trompaði tígul.
Hann fór svo inn í borð á
lauf til að spila tígulgosa
og henda hjarta heima!
Með þessum hætti sleit
hann á samband varnar-
innar og eyðilagði þannig
trompuppfærsluna.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Árnað heilla
^/AÁRA afmæli. Á morg-
I V/un, mánudaginn 8.
mars, verður sjötug Ástríð-
ur Þ. Þórðardóttir, Eini-
grund 6, Akranesi. Eigin-
maður hennar er Guðmund-
ur Magnússon bygginga-
meistari. Þau verða að heim-
an á afmælisdaginn.
r?/AÁRA afmæli. í dag,
I v/sunnudaginn 7. mars,
verður sjötugur Björn Ás-
geir Guðjónsson, tónlistar-
maður, Grandavegi 47,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Ingibjörg Jónasdóttir.
Þau dvelja á heimih dóttur
sinnar að Eiðistorgi 3 á af-
mælisdaginn.
SKAK
Vnisjón Alargeir
l'étursson
STAÐAN kom upp
á minningarmótinu
um Efim Geller í
Moskvu í febrúar.
A. Gorbatov
(2.415) hafði hvítt
og átti leik gegn A.
Afonin (2.285).
Svartur lék síðast
19. - Bc5-f8??, en
rétt var 19. - Be7!
sem áður hefur
verið leikið í tefldri
20. Rf6+! - gxf6
21. Dg4+ - Kh7
22. Be4+ - f5 23. Bxf5+ -
exf5 24. Dxf5+ - Kg8 25.
Df6 - Kh7 26. g4 - Re7 27.
Dxf7+ og svartur gafst
upp.
HVITUR Ieikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
... að láta ástina sitja
í fyrin-úmi.
TM Rofl. U.S. P«. OH. — all right* reswved
(c) 1999 Los Artgeles Tvnes Syridicate
HANN heldur að hann
sé sálfræðingur.
HANN veiðir
bara mold-
vörpur.
ORÐABÓKIN
Fjórfættur _ ferfættur
FYRIR stuttu rakst ég
á viðtal í mánaðarriti, þar
sem m.a. kom fram, að sá,
sem talað var við, hafði um
eitt skeið stundað fjár-
gæzlu. Til þess að taka af
allan vafa, við hvað hann
ætti, tók hann þetta fram:
„en þetta fé sem um ræðir
var fjórfættKom þá í
ljós, að gæzlumaður hafði
verið að fylgjast með ferð-
um sauðfjár í landi
Reykjavíkur. Hér var það
lo. fjórfættur, sem ég
staldraði aðeins við, enda
ekki vanur þessari orð-
mynd, heldur ferfættur.
Vissulega eru til margar
samsetningar með fjór-,
svo sem sjá má í orðabók-
um: fjórfaldur, fjórraddað-
ur o.s.frv. í OM (1983) eru
einnig orðin fjórfætlingur,
fjórheilagur (fjórheilög há-
tíð), fjórhyrndur, fjórsund
og nokkur fleiri. Ekkert
mælir vitaskuld gegn því
að tala ýmist um fjór- eða
fer- í samsetningum og þá
einnig um fjórfætt dýr.
Engu að síður hygg ég, að
menn tali almennt um
[ská] ferfætt dýr og fer-
fætlinga og eins, að kindin
sé ferhymd, en tæplega,
að hún sé fjórhyrnd. Þá er
alltaf talað um ferhyming i
stærðfi-æði, ekki fjórhyrn-
ing. Þannig getur þess
vegna farið svo, að ákveðin
orðmynd verði alveg fóst í
máli flestra, jafnvel eftir
landshlutum, þótt aðrar
orðmyndir séu hvorki
beinlínis rangar né óæski-
legar.
- J.A.J.
STJORNUSPA
eftir l’rance.v llrake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert verklaginn og vina-
fastur og átt auðvelt með
að setja þig í spor annarra.
En þérhættir til þess
að láta velgengni stíga
þér til höfuðs.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Það eru ýmis verkefni sem
kalla á athygli þína núna svo
þú þarft að fresta öðru um
sinn. Það er hægt að sýna
vandamálum annarra skilning
án þess að skilja þau.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að fara yfir á svið þar
sem þér finnst þú vanmáttug-
ur. Það hjálpar þó að vita hvað
maður vill og svo má alltaf fá
hjálp fyrir afganginn.
Tvíburar _
(21. maí-20. júní) nA
Einhver vandamál skjóta upp
kollinum og valda þér stund-
arerfiðleikum. Haltu ótrauður
þínu striki og þá leysast þessi
vandamál af sjálfu sér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur reynst nauðsynlegt
að endurmeta afstöðu sína til
manna og málefna. En slík
endurskoðun þarf samt ekk-
ert endilega að leiða til ein-
hvers uppgjörs.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Þér finnst eins og einhver sé
að leggja stein í götu þína.
Vertu því á varðbergi en
varastu að líta á alla sem óvini
þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (BS.
Þér finnast vinnufélagarnir
taka full dræmt í tillögur þín-
ar en haltu ró þinni og gefðu
þeim tíma til þess að kynna
sér þær til fulls.
V°g XTX
(23. sept. - 22. október)
Varastu að ganga of hart fram
í þvi að þröngva þínum aðferð-
um upp á aðra þótt þú hafir
höndlað stóra sannleikann
eiga aðrir það eftir.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Reyndu að brjóta upp daginn
því nú er tilvalið að taka sér
tíma til þess að slaka á og
njóta dagsins í faðmi fjöl-
skyldunnar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) X- f
Þér kann að líða einhvernveg-
inn eins og þig langi hvorki til
að hreyfa hönd né fót. Það er
því full ástæða til þess að
hressa upp á heilsufarið.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) æIÍ
Þú ert að gUma við eitthvert
vandamál sem veldur þér
miklum heilabrotum. Lausnin
gæti falist í að leita ráða hjá
öðrum.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) CísR
Þú getur þurft að teygja þig
ansi Iangt til þess að tryggja
friðinn við aðra. Það er líka í
lagi ef þú gengur ekki fram af
sjálfstæði þínu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) >¥«*•
Það er sjálfsagt að gleðjast yf-
ir góðu verki og njóta ávaxta
erfiðis síns. En leyfðu öðrum
að deila ánægjunni með þér
þeir hafa líka lagt sitt af
mörkum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Laugavegi 36
SKIPTILINSUR
6IPAKKA
FRÁ KR. 3.000
Ertu með rafbylgjuóþægindi s.s. höfuðverk,
svefntruflanir eða önnur Ifkamleg vandamál eða ryk og ló
í íbúðinni? Leitaðu upplýsinga. Einnig heilun og fyrirbænir.
Hreiðar Jónsson læknamiðill
símar 5811008 eða 8988808
Símaviðtal kl. 10.00-12.00 f.h. og 20.30-22.30 á kvöldin alla virka daga.
B a i, i. | Ógleymanleg paradís
Hópferö 3/5-19/5
Möguleiki á aö stoppa í
Bangkok á leiöinni heim.
Mjög gott verö. Upplýsingar í síma 557 8600
Yfirbreiðslur á sófa
Nýkomin sending
af glæsilegum yfirbreiðslum
S ó
Glæsibæ, sími 568 7133
TILGANGURINN I LIFI ÞINU
NAMSKEIÐ HELGINA 20.-21. MARS
Ferðalag inn á við, með það að markmiðið að kanna hver
er tilgangur þinn í lífinu og stóri draumurinn, svo þú getur
skapað þér líf sem veitir þér fyllingu, hlaðið af þeirri lífs-
gleði sem nærir sálina.
Gitte Lassen, sími 551 1573.
Sérmerkt bók fyrir fermingarbamið.
Allt í sömu bókinni,
gestalisti, myndaalbúm,
vasi fyrir skeyti og kort.
Sérmerktur penni
fylgir hverri bók.
Fæst í ýmsum litum.
Handunnar bækur,
engin eins.
Verð kr. 3.200
r -»
.. . i I
•; m
* ’m
Pantið tímanlega,
takmarkað magn.
Sendingariíostnaöur bætisWÍÖ PÖNTUNARSÍMI
Athendingartimi virka daga kl 16-19
557 1960
Eitthvað fyrir þig?
• Ertu einmana?
• Vantar þig félagsskap?
< Langar þig að gera
eitthvað skemmtilegt?
Sjálfboðamiðstöð Reykjavíkurdeildar Rauða kross Islands býður þér
að taka þátt í skemmtilegu félagsstarfi með menningarlegu ívafi. \/ið
hittumst annað hvert mánudagskvöld kl. 20 á Hverfisgötu 105.
Næst munum við hittast 8. mars.
Bókakynningar, leikhúsferðir, kaffihús, fræðsla,
spilakvöld, bíóferðir, föndur, grín og gaman.
Einnig er hafinn undirbúningur að verkstæðishóp sem aðra hverja
viku kl. 15-18 mun vinna með efni af ýmsu tagi í þágu góðra málefna.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 551 8800