Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 6

Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Helmingur landsmanna fær endurmenntun eða hliðstæða fræðslu Kostnaður áætlaður 3 milljarðar á ári UM HELMINGUR landsmanna fékk endurmenntun eða hliðstæða fræðslu á tólf mánaða tímabili, samkvæmt könnun sem Jón Torfí Jónasson prófessor kynnti á stefnuþingi Mennta. Áætlað er að um þremur milljörðum sé varið til starfstengdra námskeiða og tóma- stundanámskeiða á ári hverju. Á stefnuþingi Menntar sem er samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla kynnti Jón Torfí drög að yfir- litsskýrslu sem hann og Jóhanna Rósa Amardóttir vinna að um stöðu endurmenntunar á Islandi. Skýrslan byggir á könnun sem gerð var fyrir tæpu ári á endur- menntun Islendinga á aldrinum 18 til 75 ára. í úrtaki voru 1.800 manns og fengust svör frá 1.350 eða 75%. 30% fá enga endurmenntun Þegar öll endurmenntun og hlið- stæð fræðsla er tekin saman kem- ur í ljós að um helmingur svarenda fékk slíka fræðslu á 12 mánaða tímabili. Því til viðbótar er nefnt að Veruleg aukning á síðustu árum miðað við eldri kannanir samtals sóttu 46% svarenda starfstengd námskeið eða tóm- stundanámskeið. Þegar litið er á lengra tímabil kemur í ljós að 69-72% svarenda höfðu tekið þátt í endurmenntun á síðastliðnum þremur árum og því aðeins um 28-31% svarenda sem höfðu ekki tekið þátt í endur- menntun á því tímabili. Fram kemur í samanburði við eldri kannanir að þátttaka fólks í end- urmenntun og hliðstæðri fræðslu hefur aukist verulega á síðustu ár- urn. Áhugi, löngun til að afla sér auk- innar þekkingar og ásetningur að auka færni sína í núverandi starfi hefur afgerandi áhrif á ákvörðun fólks að sækja námskeið. Vakin er athygli á því að þættir eins og launahækkun og afþreying virðast ekki hafa haft mikil áhrif á það að fólk fór á námskeið. Atvinnurekendur borga Skýrsluhöfundar áætla að þrem- ur milljörðum sé varið til starfstengdra námskeiða og tóma- stundanámskeiða á ári hverju. Þá er tekið tillit til þátttökugjalda, fjölda námskeiða á mann og launa- kostnað við þann tíma sem búast má við að fólk sé frá vinnu meðan á námskeiðinu stendur. Áætlaður kostnaður við námskeiðin byggir á svörum þeirra sem sóttu námskeið og vissu hvað síðasta námskeiðið sem þeir fóru kostaði. Kostnaðurinn skiptist þannig að námskeiðsgjöld starfstengdra námskeiða eru áætluð liðlega 1800 milljónir og launakostnaður þátt- takenda tæpur milljarður til við- bótar. Námskeiðsgjöld á tóma- stundanámskeið eru áætluð liðlega 400 milljónir kr. Fram kom að algengast er að at- vinnurekendur greiði þann kostnað sem hlýst af starfstengdum nám- skeiðum. Morgunblaðið/Golli Rauða fjöðrin til forsetans LIONSHREYFINGIN á Norður- löndum tók til starfa árið 1949 og er því að verða 50 ára gömul. Af þessari ástæðu ákváðu nor- rænir Lionsklúbbar að efna til sameiginlegs söfnunarátaks und- ir merki Rauðu fjaðrarinnar og verður söfnunarfénu varið til þess að bæta líf eldri borgara. Söfnunarátakið hófst formlega 10. apríl sl. og nær hámarki föstudaginn 16. aprfl með út- varps- og sjónvarpssöfnun. 6. apríl sl. hélt fjölumdæinisráö Lionshreyfingarinnar á Islandi hátíð í Grafarvogskirkju þar sem söfnuninni var ýtt úr vör. Við það tækifæri aflienti Halldór Kristjánsson, fjölumdæmisstjóri Lionshreyfingarinnar, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta ís- lands, Rauða fjöður. Andlát JON SIGURÐSSON í SKOLLAGRÓF JÓN Sigurðsson, bóndi í Skollagróf í Hrunamannahreppi, lést á heimili sínu að morgni sunnudagsins 11. apríl sl. eftir nokk- urra mánaða veikindi. Hann var á 78. ald- ursári. Jón var lands- kunnur hrossaræktar- maður. Jón var fæddur að Stekk við Hafnarfjörð 6. september 1921, næst yngstur fimmtán systkina. Foreldrar hans voru Helga Ei- ríksdóttir húsfreyja og Sigurður Magnússon bóndi. Ólst hann upp í Stekk við hefðbundin landbúnaðar- störf. Tvítugur að aldri festi Jón kaup á jörðinni Skollagróf og bjó þar til dauðadags. Bjó alla tíð alhliða bú- skap með kýr, kindur og hross. Þekktastur var hann fyrir árangur sinn í hrossarækt. Jón ritaði fjölda greina og rit- gerða í dagblöð, tímarit og bækur um stjóm- mál, ættfræði, landbún- að, hrossarækt og fleira. Hann var hag- mæltur og margar stökur hans urðu lands- frægar. Félagsmála- störf Jóns voru mest á sviði hestamennsku og hrossaræktar en einnig var hann formaður skólanefndar Flúða- skóla um árabil og tók þátt í starfi Sjálfstæðis- flokksins. Jón var um- boðsmaður Morgun- blaðsins í Hrunamannahreppi í fjölda ára. Árið 1957 kvæntist hann Emu Sigurjónsdóttur frá Leifshúsum á Svalbarðsströnd en leiðir þeirra skildu árið 1973. Ema lést í janúar 1998. Börn þeirra em þijú, Aðal- heiður húsmóðir á Flúðum, Sigur- jón Valdimar kaupmaður búsettur á Selfossi og Sigurður Haukur bóndi í Skollagróf. ANDLEGURaUÐUR I Ching, Veraldarviska, List friðarins og Leið pílagrímsins. Fjögur klassísk rit um andleg málefni, áhugaverðar handbækur um leiðir að farsæld I lífi og starfi. Bækur sem vekja til umhugsunar. 0 FORLAGIÐ Danskur styrkur til ís- lensks dýralæknanema Morgunblaðið/Sigrún BENEDIKTA prinsessa aflrendir Þórunni Þórarinsdóttur viðurkenn- ingu fyrir rannsóknir á hrossasótt. Þær ræddu meðal annars um fyrri samskipti fjölskyldnanna. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÞÓRUNN Þórarinsdóttir nemi í dýralækningum hlaut á laugar- daginn styrk danska Hesta- verndunarfélagsins, „Hestens værn“, úr hendi Benediktu prinsessu, verndara félagsins. Þórunn hlaut viðurkenninguna fyrir lokaritgerð sína, sem fjall- ar um orsök hrossasóttar. Þegar Benedikta prinsessa heimsótti ísland 1994 kom hún að Laxnesi, þar sem faðir Þór- unnar rekur hrossabú, og í samtali við Morgunblaðið minntist prinsessan heimsókn- arinnar með ánægju. Fjölskylda Þórunnar hefur átt önnur sam- skipti við konungsfjölskylduna dönsku, því Júh'us Hafstein, sýslumaður á Húsavík og langafi Þórunnar, tók föður Þórunnar með sér í heimsókn til Friðriks IX. Þá sögu hafði Benedikta gaman af að heyra er Þórunn sagði henni hana við styrkveitinguna, sem fór fram í tengslum við 90 ára afmæli Hestaverndunarfélagsins. íslenski hesturinn of IítiII „Ég hef aðallega áhuga á stóium hestum,“ sagði Bene- dikta í samtali við Morgunblað- ið, er hún var innt eftir því hvort hún hefði áhuga á ís- lenskum hestum. Prinsessan er annáluð hestakona og hefur sjálf fengist við hrossarækt og tamningar. „íslenski hesturinn er eiginlega of lítill fyrir mig,“ segir hún brosandi, því hún er með hávaxnari konum. „En ég man eftir að þegar ég var barn áttum við íslenskan hest, sem var notaður til að spenna fyrir lítinn tvíhjóla vagn, sem við krakkarnir fengum að keyra í,“ riQar hún upp. Prinsessan segist tvisvar hafa komið til Islands. „Það er ótrú- lega áhugavert,“ rifjar hún upp með ánægju. „ísland er eyja, sem með þessu hrjóstruga landslagi líkist engum öðrum stað. Og svo er auðvitað heill- andi að sjá hestana út um allt,“ bætir hún við. Þegar Þórunn spjallaði við prinsessuna eftir at.höfnina sagði hún henni frá því þegar faðir hennar fór með afa sínum Júliusi Hafstein í heimsókn til Friðriks IX. Drengnum varð starsýnt á lífverðina með háu bjamarskinnshúfurnar og spurði konunginn af hverju verðirnir væru með svona háar húfur. Kóngurinn hugsaði sig um augnablik, en svaraði svo að það væri til að þeim yrði ekki kalt. Lokaverkefni um hrossasótt Verkefnið, sem Þómnn vinn- ur að ásamt Marianne Kaiser, felur í sér faraldsfræðilega rannsókn á hrossasótt í Dan- mörku, en hestar eru helsta áhugasvið hennar. Að sögn Þór- unnar figgja niðurstöður enn ekki endanlega fyrir, en þó megi sjá að kynbótahestum og hestum, sem ekki em stöðugt brúkaðir, sé hættara við að fá sóttina en ella. Líklega skipti fóður einnig máli og eins eigi hestar, sem hafí veikst af hrossasótt, á hættu að slá niður. Þómnn segir einnig að ís- lenskir hestar í Danmörku komi ekki vel út í rannsókninni, en skýringin á því sé líklega sú að þeir era álitnir svo harðgerðir að ekki þurfi að sinna þeim mikið og þeir iðulega látnir standa úti. Vísast sé heldur ekki hugsað eins mikið um þá og stóm dým hlaupahestana. Þómnn leggur þó áherslu á að rannsókninni sé ekki lokið og því of snemmt að fullyrða nokk- uð um endanlegar niðurstöður. Eftir að Þómnn lýkur námi í vor hefur hún áhuga á að starfa í Danmörku í 2-3 ár og afla sér starfsreynslu áður en hún hverfur til starfa heima.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.