Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kristilegi lýðræðisflokkurinn
Kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Vilja banna fóstur-
eyðingar og sambúð
samkynhneigðra
Ögmundur Jónasson gagnrýnir sölu Áburðarverksmiðjunnar
I reynd verið að greiða tæpan
hálfan milljarð fyrir fyrirtækið
VINSTRIHREYFINGIN - grænt
framboð gagnrýnir harðlega hvemig
staðið var að sölu Áburðarverksmiðju
i'íkisins fyrr á þessu ári og sagði Ög-
mundur Jónasson alþingismaður í
umræðum í sjónvarpi á sunnudag að í
reynd væri verið að selja fyrirtækið á
tæplega hálfan milljarð króna þótt
Guðmundur Bjamason, umhverfís-
og landbúnaðarráðherra, hefði sagt á
þingi að söluverðið hefði verið 1.257
milljónir króna. Finnur Ingólfsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem
var til andsvara í þættinum, sagði í
gær að hann teldi að mjög viðunandi
og gott verð hefði fengist fyrir Áburð-
arverksmiðjuna.
Ögmundur sagði í gær að komið
hefði fram að með kaupunum á
Áburðarverksmiðjunni hefðu fylgt
birgðir, sem að verðmæti næmu 750
Finnur Ingólfsson segir söluna hafa
verið ábatasama fyrir ríkið
milljónum króna, og þar á ofan hefði
sjóðbært fé fyrirtækisins verið 19
milljónir króna. Samtals næmi verð-
mæti birgðanna og sjóðbæra fjárins
769 milljónum og í reynd væri því
verið að greiða 448 milljónir fyrir
verksmiðjuna.
„Þetta er langt undir fasteigna-
mati,“ sagði Ögmundur. „Fasteigna-
mat lóða, húss og tækja var 630
milljónir og brunabótamatið á tæpa
tvo milljarða. Bókfært verð fasteigna
er hins vegar 414 milljónir. Þegar
þetta dæmi er gert upp kemur í ljós
að í stað þess að verið sé að selja
þessa eign á 1.257 milljónir er þessi
upphæð í reynd miklu minni, eða
tæpur hálfur milljarður, og langt
undir fasteignamati.“
Þarf að taka tillit til allra hluta
í fyrirtækinu og utan þess
Finnur Ingólfsson sagði að þegar
fyrirtæki væri metið væri tekið tillit
til allra þeirra hluta, sem í fyrirtæk-
inu væru og fyrir utan það. „Ef ekk-
ert væri innan dyi’a í fyrirtækinu,
hvorki búnaður né starfsfólk, væri
fyrirtækið einskis virði,“ sagði Finn-
ur. „Þegar lagt er mat á verðmæti
fyrirtækja tekur það verðmæti til
fyrirtækisins eins og það er í rekstri
á hverjum tíma fyrir sig.“
Hann kvaðst ekki nákvæmlega vita
Framsóknarflokkurinn opnar kosningaskrifstofu í Reykjavík
Um 400
manns á opn-
unardaginn
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
opnaði kosningaskrifstofu í
Reykjavík á laugardag. Hún er á
Hverfisgötu 33. Anna Kristinsdótt-
ir, starfsmaður skrifstofunnar,
segir opnunina hafa verið fjöl-
menna og vel heppnaða.
„Við teljum að um 400 manns
hafi komið. Það var fólk hér á báð-
um hæðum og jafnvel uppi á lofti.
Hér var mjög gaman og allir mjög
ánægðir.“ Auk skemmtiatriða, þar
sem fram komu m.a. Öm Árnason
og Magnús Scheving, fluttu ávörp
Halldor Ásgnmsson, formaður Morgunblaðíð/Þorkell
Framsóknarflokksins, Finnur Ing- KARL Friðrik Schiöth í fangi Halldórs Ásgrímssonar, formanns Fram-
ólfsson og Jónína Bjartmarz. sóknarflokksins, við opnun kosningaskrifstofu í Reykjavík á laugardag.
hvernig fyrirtækið hefði verið metið í
ríkisreikningi, en mismunurinn á því
hvemig ríkið hefði metið fyriitækið
sem sína eign og söluverðinu hlyti að
vera hinn beini ábati ríkisins og selt
hefði verið yfir bókfærðu verði.
„Eg held að það hafi fengist mjög
viðunandi og gott verð fyi’h’ Áburð-
arverksmiðjuna,“ sagði Finnur. „Því
má bæta við að verðið hækkaði mikið
vegna þess að ákveðið var að bíða.
Nokkrum mánuðum áður en verk-
smiðjan var seld var gerð tilraun til
að selja hana, en menn felldu sig
ekki við það verð, sem þá var boðið.
Hækkunin, sem varð frá því verði,
var allvenileg og það segir allt um
það hversu gott verðið var.“
Ekki spuming um hvort rétt
eða rangt var að selja
Ögmundur sagði að salan á Áburð-
arverksmiðjunni væri gagnrýni verð
burtséð frá því hvort menn væra
hlynntir einkavæðingu verksmiðj-
unnar eða andvígir og líkti henni við
sölu fyrirtækisins SR-mjöls árið
1993. Salan á þessum tveimur fyrir-
tækjum hefði gert það að verkum að
menn hefðu leyft sér að segja að
þessar ríkisstjómir hefðu fært eignir
almennings einkaaðilum á silfurfati.
„Læt ég þar alveg liggja á milli
hluta hvort það hafí verið rétt eða
rangt að selja þessi tilteknu fyrh’-
tæki,“ sagði hann. „Það er allt önnur
spurning. En menn ætlast til þess að
þetta sé selt á réttmætu verði og það
hefur ekki verið gert. Því miður hef-
ur þá engu skipt hvort það er Fram-
sóknarflokkurinn eða Alþýðuflokk-
urinn, sem hefur setið við kjötkatl-
ana með Sjálfstæðisflokknum, og
það er þess vegna sem við í Vinstri
hreyfingunni - grænu framboði segj-
um að til þess að standa vaktina á
þessu sviði sem öðrum þurfi afl á
borð við okkar að vera til staðar inni
á Alþingi."
KRISTILEGI lýðræðisflokkurinn
birti stefnuskrá sína í Ki’istilega
dagblaðinu, sem kom út í gær, en
þar kemur m.a. fram að flokkurinn
vilji afnema lög sem leyfi fóstureyð-
ingar og lög um staðfesta sambúð
fólks af sama kyni,
Að sögn Guðmundar Arnar Ragn-
arssonar, sem skipar fyrsta sæti list-
ans í Reykjavík, lítur flokkurinn á
fóstureyðingar sem manndráp og
sambúð fólks af sama kyni sem kyn-
villu. I stefnuskránni leggur flokkur-
inn áherslu á að kristinfræði og bibl-
íusögur verði kenndar í öllum bekkj-
um gnmnskólans og að þar verði
nemendur upplýstir um óeðli kynvill-
unnar.
„Flokkurinn vill alfarið banna
læknisaðgerðir í því skyni að skipta
um kyn á fólki enda eru þær til þess
eins fallnar að gera fólk örkumla,"
segir í stefnuskrá flokksins.
„Trúin á að stýra okkar lífi, ekkert
síður stjómmálum en hinu daglega
lífi og mikilvægt er að kristilejgur
andi berist inn á Alþingi," sagði Arni
Björn Guðjónsson, sem skipar annað
sæti listans í Reykjavík.
Að sögn Árna leggur flokkurinn
mikla áherslu á fjölskylduna og sið-
ferðileg efni, en í stefnuskrá flokks-
ins er einnig að finna hugmyndir um
sjávarútvegsmál, sveitarstjómarmál,
umhverfismál, skattamál, mennta-
mál, atvinnumál, landbúnaðaiinál og
utanríkismál.
Sjávarútvegsstefna flokksins
snýst um það að kvótakerfið verði
Morgunblaðið/Sverrir
ÁRNI Björn Guðjónsson og
Guðmundur Örn Ragnarsson.
afnumið og settur verði á sérstakur
landskvóti. Landskvótanum á að
skipta eftir landshlutum í átta svæði
og úthluta á aflaheimildum í hvem
landshluta. Óheimilt verður að fram-
selja aflaheimildir. Flokkurinn vill
leggja mikla áherslu á landbúnaðar-
mál og m.a. tryggja landbúnaðinum
raforku á því verði sem stóriðjan
borgar fyrir hana.
Að sögn Guðmundar var Kristi-
lega dagblaðinu dreift í 5.000 eintök-
um í Reykjavík og á Reykjanesi, en
flokkurinn býður íram í þessum
kjördæmum. Hann sagði að þó birt
hefði verið sérstök stefnuskrá í blað-
inu, sé Biblían í raun hin eina sanna
stefnuskrá flokksins.
Morgunblaðið/Þorkell
DAVÍÐ Oddsson ávarpar gesti við opnun kosningamiðstöðvar Sjálfstæðisflokksins í Skipholti 19 á laugardag.
Fjölsótt opnunar-
samkoma
TALIÐ er að um fimm hundruð
manns hafi komið á opnun kosn-
ingamiðstöðvar Sjálfstæðis-
fiokksins í Reykjavík í Skipholti
19, að sögn Ágústs Ragnarsson-
ar, starfsmanns Sjálfstæðis-
fiokksins.
„Það var stappað út úr dyrum
allan daginn. Þarna voru ýmis
skemmtiatriði og formaður
fiokksins, Davíð Oddsson, ávarp-
aði gesti. Hann fiutti m.a. frum-
samda smásögu. Svo voru veit-
ingar og tónlistarflutningur. Það
var mál manna að þetta hefði
tekist vel,“ sagði Agiíst.
Reykjanes-
kjördæmi
Fram-
boðslisti
Húmanista
Húmanistaflokkurinn hefur
gengið frá framboðslista sínum
í Reykjaneskjördæmi vegna
komandi alþingiskosninga:
Listinn er þannig skipaður: 1.
Júlíus Valdimarsson verkefnis-
stjóri. 2. Melkorka Freysteins-
dóttir sölufulltrúi. 3. Sigurður
M. Grétarsson fulltrúi. 4.
Jaquiline Cardoso da Silva
húsmóðir. 5. Helga Óskars-
dóttir tónlistarkona. 6. Vil-
mundur Kristjánsson sjúkra-
liði. 7. Ásvaldur Ki’istjánsson
rafeindavirki. 8. Sigurjón A.
Pálmason tónlistarmaður. 9.
Gunnar Sveinsson verkamað-
ur. 10. Dagrún Ólafsdóttir
sjúkraþjálfari. 11. Arilíus Arilí-
usson listamaður. 12. Svanfríð-
ur Sverrisdóttir framkvæmda-
stjóri.
Framboð
K-listans
KRISTILEGI lýðræðisflokk-
urinn hefur gengið frá fram-
boðslista í Reykjaneskjördæmi
fyrir komandi alþingiskosning-
ar. Listinn er sem hér segir: 1.
Guðlaugur Laufdal kristniboði.
2. Kolbrún Björg Jónsdóttir
naglasnyrtifræðingur. 3. Skúli
Bruce Barker verkfræðingur.
4. Loftur Guðnason verkamað-
ur. 5. Hafliði Helgason bygg-
ingarmaður. 6. Páll Rósin-
krans tónlistarmaður. 7.
Sverrir Júlíusson, dagskrár-
gerðarstjóri Hljóðnemans. 8.
Sigurður Björgvin Halldórs-
son sölumaður. 9. Bragi Hjört-
ur Ólafsson leiðbeinandi. 10.
Rakel Sveinsdóttir öryrki. 11.
Gils Guðmundsson hermaður.
12. Kristbjörg Guðmundsdótt-
ir húsmóðir.