Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 12

Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forvitnast um lífíð í Reykjavík KOSOVO-ALBANARNIR sem komu hingað til lands í síðustu viku fóru í skoðunarferð um Reykjavík um helgina. Að sögn Hólmfríðar Gísladóttur starfs- manns Rauða krossins gekk ferð- in vel og var hópurínn mjög áhugasamur um Reykjavík. Voi-u þau frædd um sögu borgarinnar og sýndir helstu einkennisstaðir hennar. Meðal annars var farið með hópinn í Perluna og Arbæj- arlaug, en einnig var ekið með hann um borgina, honum sýnd höfnin, Viðey, Laugardalurinn og miðbærinn. Að sögn Hólmfríðar verður farið að kenna hópnum íslensku eins fljótt og hægt er. Einnig verður farið með hann í göngu- ferð um miðbæinn, sund og margt fleira þegar betur viðrar, en nokkuð kalt var í veðri á sunnudaginn. I gær fóru öll börnin í hópnum í Barnaríki, og léku sér í boltalandi og fleiri ævintýralegum leiktæhj- um. Þessir þrír virtust skemmta sér vel í boltalandinu. Matarsöfnun fyrir flóttamenn á Balkanskaga RKI vonast til að geta sent 3 tonn af mat til Albaníu þegar söfnun lýkur RAUÐI kross íslands hefur mat- arsöfnun til handa flóttafólki á Balkanskaga á fímmtudag. Söfnun- in er gerð í samstarfi við Hagkaup, útvarpsstöðina Létt 96,7, Samskip og Islandspóst. Seldir verða matar- pakkar í Hagkaup í Skeifunni og vonast RKÍ til þess að eigi færri en 5.000 pakkar seljist á nokkrum dögum. 100.000 manns enn í flótta- mannabúðum í Albaníu Hver pakki inniheldur 20.000 kaloríur og á að fæða einn einstak- ling í allt að tvær vikur. I pakkan- um eru sex kíló af mat: olía, hrís- grjón, salt, sykur, bakaðar baunir og pasta og vonast RKI til að geta sent 3 tonn af matarpökkum til Al- baníu strax og söfnuninnni lýkur. Söfnunin gengur fvrir sig á þann hátt að fólk kaupir matarpakka á 600 krónur í Hagkaup og fer með hann í gám sem stendur fyi-ir utan verslunina. Svipaðar aðgerðh- eiga sér stað í öðrum löndum á vegum landsfélaga Rauða krossins en Sigrún Araa- dóttir framkvæmdastjóri RKI er nýlega komin frá Albaníu þar sem hún kynnti sér framkvæmd verk- efnisins og aðstæður flóttamanna. Að hennar sögn verða matar- pakkarnir sendir sjóleiðina til hafnarborgarinnar Durres í Alban- íu og verða væntanlega komnir þangað viku eftir brottför. Þaðan verða þeir fluttir til flóttamanna- búða víða í Albaníu þar sem yfír 300.000 manns halda enn til. Kapp lagt á að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma Að sögn Sigrúnar er brýn þörf fyrir mat og eru matvæli, hreinlæt- Morgunblaðið/Mikkel 0stergaard SIGRÚN Árnadóttir framkvæmdastjóri Rauða kross íslands skoðaði aðstæður (lóttamanna í Albaníu í síðustu viku. Morgunblaðið/J6n Svavarsson isvörur og lyf fremst á forgangs- listanum um hjálpargögn. Fatnað- ur er nægur og ekki jafnmikil þörf á honum nú og áður. Sigrún segir að hún hafí fyrst áttað sig á hversu gífurlega stórt verkefni það væri að aðstoða allan þennan fjölda, sem hefur verið hrakinn frá heimilum sínum, þegar hún skoðaði aðstæður á svæðinu. Segh- hún að í Albaníu sé nú lagt kapp á að flytja alla flóttamenn sem fyrst frá flóttamannabúðum við landamæri Kosovo og Albaníu. 200.000 flóttamönnum hefur verið komið fyrir á opinberum stöðum eins og barnaheimilum, íþróttahús- um og skólum auk þess sem al- banskai' fjölskyldur hýsa fjölskyld- ur á heimilum sínum. „Það var vægast sagt mjög dap- urlegt og eiginlega alveg ömur- legt að horfa upp á ástandið þarna. Mikilvægustu verkefnin núna eru að reyna að koma fólki í öruggt skjól eins fljótt og auðið er. Einnig er lagt kapp á að koma í veg fyrir að sjúkdómar breiðist út. Mannúðarsamtök standa frammi fyrir gífurlega stórum verkefnum og sinna því eftir fremsta megni, en það sem þarf eru pólitískar lausnir og það fljótt,“ sagði Sigrún í samtali við Morgunblaðið í gær. Að sögn Sigrúnar hefur Alþjóða Rauði krossinn sent út neyðar- beiðni fyrir næstu 6 mánuði og er reiknað með að skipulagt hjálpar- starf í Albaníu einni muni kosta um 3 milljarða. Kveðjum frá týndu fólki útvarpað Sigríður Guðmundsdóttir, skrif- stofustjóri alþjóðadeildar Rauða kross Islands fór til Genfar í gær á fund Alþjóða Rauða krossins um stöðu mála í Kosovo. Tilgangur fundarins er að ræða um ástandið á Balkanskaga og samhæfa aðgerðir um hjálparstarf. Verður þar farið yfir hvað búið er að gera og hvað verður gert á næstunni. Rauði krossinn vekur athygli á því að útvarpsstöðvarnar Radio Tirana, Voice of America og Deutsche Welle eru með útsend- ingar sem eiga að nást hérlendis þar sem fólk sendir kveðjur til skyldmenna og aðrir láta vita um hvar það er statt. Hægt er að nálg- ast bylgjulengdir stöðvanna hjá Rauða krossi Islands auk þess sem tekið er við beiðnum um leit að skyldfólki. Fagnaðarfundir þegar síðustu flóttamennirnir komu til landsins um helgina Morgunblaðið/RAX OSMAN Haziri, Zejnie kona hans og elstu börnin þeirra þrjú, Lindita, Artan og Valjbone, eru þakklát fyrir að vera komin saman á ný. Yngsta meðlim fjölskyldunnar, Gezim, vantar á myndina. Langaði að faðma hana en menning- in leyfði það ekki HAZIRI-fjölskyldan er samein- uð á ný eftir aðskilnað sem þau héldu að myndi vara að eilífu. Allir flóttamennirnir 23 frá Kosovo eru því komnir til landsins. Sameinuð í nýju landi horfa þau björtum augum til framtíðarinnar eftir erfiðan að- skilnað. „Þegar við fórum frá Grikk- landi hélt ég að ég myndi skilja þær eftir að eilífu. Ekki bara af því að við vorum að fara sitt í hvort landið heldur vegna þess að ég var hræddur við ferðalag- ið, bjóst alveg eins við því að flugvélin færi niður á leiðinni yfir hafið,“ sagði fjölskyldufað- irinn Osman Haziri í gær. Stundin sem hann sá konu sína og dóttur á flugvellinum var engu lík. Að hans sögn hefur hann aldrei verið svo nálægt því að brjótast út úr albanskri menningu, og láta tilfinningar ráða. Venjan er að láta tilfinn- ingar ekki brjótast út í marg- menni. „Þegar ég sá hana langaði mig að hlaupa að henni og faðma hana að mér. Þetta var í fyrsta skipti í okkar 25 ára hjónabandi sem ég var næstum búinn að gleyma menningunni og láta tilfinningarnar ráða inn- an um annað fólk. Á síðustu stundu áttaði ég mig, og við tók- umst í hendur,“ sagði Osman. Skildi hjartað eftir í Kosovo Valjbone, elsta dóttir hjón- anna varð eftir með móður sinni á Korfú. Hún sagði að þungu fargi hefði verið af sér létt þegar þær mæðgur komust í faðm fjölskyldunnar. Þær fóru í læknisskoðun í gær og var móðirin Zejnie óðum að ná sér. Hún var ekki lengur með verk fyrir brjósti og hafði náð að hvfla sig svolítið þótt hún þarfn- aðist meiri hvfldar. Starfsmenn Rauða krossins sem verið hafa með hópnum segja að Haziri- fjölskyldan hafi tekið stakka- skiptum eftir að þær mæðgur komu til landsins og móðirin hafl ekki síst verið ánægð með að vera komin heil á húfl í faðm fjölskyklunnar. „Við höfum gengið í gegnum svo ómennskar aðstæður að það var ekki réttlátt þegar við loks vorum á leið til friðarins að móðir okkar skyldi þurfa að verða eftir. Mér finnst það vera kraftaverk að við skulum vera sameinuð á ný,“ sagði Artan, 17 ára sonur hjónanna. Fjölskyldan lítur framtíðina hér á landi björtum augum þrátt fyrir að hér sé allt nýtt fyrir þeim: „Ég lít framtíðina björtum augum, en ber hana ekki saman við fortíðina. Ég er snortinn af þeim móttökum sem við höfum fengið hér en hjartað skildi ég eftir í Kosovo. Það er landið mitt,“ sagði Osman að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.