Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 29

Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 29 Erik Ásbrink, fjármálaráðherra, Svía segir af sér Afall fyrir Persson Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. „EG furða mig á því, að Erik skuli ekki hafa séð, að betra hefði verið að bíða fram á mið- vikudag,“ sagði Göran Persson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, meðal annars á blaðamanna- fundi í gær er hann kynnti nýjan fjármálaráð- herra, Bossen Ringholm, eftir að Erik Ás- brink sagði af sér sem fjármálaráðherra. Persson nefndi miðvikudag, því þann dag verða kynntar nýjar efnahagsráðstafanir, sem stjórn Jafnaðarmannaflokksins leggur fram í samvinnu við Vinstriflokkinn og Umhverfis- flokkinn. Afsögnin, sem Ásbrink skýrir með því að hann eigi ekki lengur stuðning Pers- sons vísan, þykir áfall fyrir Persson, þar sem hún sé meðal annars sprottin af skorti hans á leiðtogahæfileikum. Ásbrink er þriðji ráðherr- ann, sem hættir á hálfu ári. Viðbrögðin á sænskum fjármálamarkaði voru vaxtahækk- anir og lækkandi gengi hlutabréfa í kauphöll- inni. Carl Bildt, formaður Hægi’iflokksins, kallaði afsögnina „stórbrotið skipbrot" stefnu stjórnarinnar, sem í reynd ræki enga stefnu. „Einstakur atburður" og „merki um stjórnarkreppu" voru nokkur þeirra ummæli, sem sænskir stjórnmálaskýrendur notuðu um atburði gærdagsins eftir að Ásbrink til- kynnti á blaðamannafundi um hádegið í gær að hann segði af sér. Ástæðan sem hann gaf upp var að Persson tryði ekki á hagspár fjár- málaráðuneytisins og viki frá þeirri stefnu, sem þar væri lögð. Tilefnið var að kvöldið áð- ur hafði Persson sagt i sjónvarpsviðtali að uppi væru hagspár, sem bentu til að hugsan- lega yrði svigrúm til skattalækkana á næsta ári. Komu þær spár þó ekki frá fjármálaráðu- neytinu. Þrátt fyrir að Persson slægi ýmsa varnagla urðu ummælin dropinn, sem fyllti mælinn. I gærmorgun kl. 11 lét Ásbrink Persson vita af ákvörðun sinni, sem hann tilkynnti síðan á blaðamannafundi klukkustundu síðar. Þar sagði hann orð Perssons hafa komið sér al- gjörlega á óvart. Með þeim viki Persson frá þeirri stefnu, sem kæmi fram í væntanlegum efnahagsráðstöfunum. Ásbrink lagði áherslu á að ákvörðunin stafaði ekki af þessum eina at- burði, heldur hefðu fleiri ágreiningsefni farið á undan. Ásbrink minnti á að hann væri ekki andstæðingur skattalækkana, þó ágreiningur þar að lútandi væri honum tilefni til að láta af störfum. Gagnrýni á forystu- hæfileika Perssons „Þetta eru sterk viðbrögð," sagði Persson, sem var þó ekki lengi að fínna mann í ráð- herrastólinn, því þegar hann hélt blaðamanna- fund kl. 15 sat nýr maður við hlið hans, Bosse Ringholm, gamalreyndur jafnaðarmaður, sem þó hefur ekki setið í ríkisstjórn áður. Persson sagðist ekki skilja afsögn Ásbrinks, þar sem hann hefði aðeins talað um hugsanlega mögu- leika í stöðunni. Reiði hans leyndi sér þó tæp- ast og hann upplýsti meðal annars að Ásbrink hefði áður hótað að segja af sér. Því væri held- ur ekki að leyna að Ásbrink hefði oft fengið Reuters Erik Ásbrink eftir afsögnina í gær. sitt í gegn, þó hinir átján ráðherrarnir hefðu verið á móti. Ringholm er gamalreyndur í flokksstarfinu, en hefur ekki verið í sviðsljósinu. Persson undirstrikaði hve reyndur Ringholm væri, en hann þykir dæmigerður „grákrati", jafnaðar- maður, sem fylgir hefðbundnum leiðum líkt og Persson, en er ekki neinn nýjungamaður eins og Ásbrink þykir vera. Enginn vafi er á að afsögn Ásbrinks mun mjög magna upp gagnrýni á Persson en það hefur annars ekki tíðkast í sænska Jafnaðar- mannaflokknum að forystuhæfileikar for- manns flokksins væru í efa dregnir. Renndu við hjá okkur í dag og reynsluaktu Suzuki Baleno. Hann kemur þér þægilega á óvart. TEGUND: 1.3 GL3d 1.3 GL 4d 1,6 GLX 4d, ABS 1,6 GLX 4x4, 4d, ABS 1,6 GLX WAGON, ABS 1,6 GLX WAGON 4x4, ABS VERÐ: 1.195.000 KR. 1.295.000 KR. 1.445.000 KR. 1.575.000 KR. 1.495.000 KR. 1.675.000 KR. Sjálfskipting kostar 100.000 KR. BALENO -00- Skeifunni 17. Sími 568 51 00 Heimasíða: www.suzukibilar.is Málaferl- um gegn Jeltsín frestað Moskvu. Reuters. LEIÐTOGAR helztu þingflokka í dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, ákváðu í gær að fresta því um óákveðinn tíma að taka á dag- skrá málflutning til embættissvipt- ingar Borís Jeltsíns forseta, sem til hafði staðið að gera á fimmtudag- inn. Þingflokkaformennirnir, sem komust sín í milli að samkomulagi um frestunina á fundi í gær, mynda meirihluta í forsætisnefnd dúmunn- ar, en hún átti enn eftir að taka formlega ákvörðun um frestunina. Jeltsín hafði sjálfur fyrr í gær hvatt þingmenn til að fresta málinu ekki, greinilega fullviss um að til- lagan um málflutning til embættis- sviptingar myndi ekki hljóta nauð- synlegan lágmarksstuðning. „í símasamtali við forseta dúmunnar, Gennadí Seleznjov, ít- rekaði forsetinn þá afstöðu sína, að annaðhvort yrði málið tekið fyrir núna eða það látið niður falla með öllu,“ sagði einn talsmanna Jeltsíns. Aðeins eitt ákæruatriði talið líklegt til að hljóta stuðning Kommúnistar, sem hafa tögl og hagldir í dúmunni, vilja málsókn til embættissviptingar Jeltsíns á grundvelli mai'gþættrar ákæru. Meðal ákæruatriða er að hann hafi gerzt sekur um að grafa undan Sov- étríkjunum, að hafa árið 1993 fyrir- skipað upplausn þingsins sem þá sat enn frá því á Sovéttímanum, og að hafa komið af stað stríði í rúss- neska sjálfstjómarhéraðinu Tsjet- sjníu árið 1994. Fáist stuðningur 300 eða fleiri af hinum 450 þingmönnum dúmunnar við eittvert ákæruatriðanna verða stjórnlagadómstóllinn og hæstirétt- ur að taka málið til umfjöllunar. Úr- slitaákvörðun um embættissvipt- ingu yrði í höndum Sambandsráðs- ins, efri deildar þingsins. Frétta- skýrendur telja að eingöngu Tsjet- sjníu-ákæran eigi sér örlitla von um að fá stuðning 300 þingmanna. Nokkrir forystumanna dúmunn- ar, þar á meðal Seleznjov, höfðu lagt til að því yrði frestað að taka embættissviptingannál á dagskrá vegna þess að þjóðarleiðtoginn sé nú í broddi fylkingar Rússa í andófi þeirra gegn árásum NATO á Jú- góslavíu. Árásirnar hafa eflt einhug meðal ólíkra stjórnmálaafla Rúss- lands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.