Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Meðfer ðarþj ónusta
við Bláa lónið
MEÐFERÐARÞJÓNUSTA fyr-
ir húðsjúklinga hefur verið rekin
við Bláa lónið frá árinu 1994. Hefur
þessi þjónusta verið
veitt í sérstakri með-
ferðarstöð, þar sem
búnings- og baðklefar,
Bláalónsmeðferðar-
laug, notkun Bláa-
lónskrema og aðstaða
til ljósabaða eru til af-
nota eingöngu fyrir
meðferðargesti. Með-
ferðarstöðin er til húsa
£ bráðabirgðahúsnæði
nærri orkuveri Hita-
veitu Suðurnesja.
Starfsemin hófst í
kjölfar viðurkenningar
íslenskra heilbrigðisyf-
irvalda á lækninga-
mætti Bláa lónsins við
psoriasis, en niðurstöður vísinda-
rannsókna, sem framkvæmdar
voru á árunum 1992-93, staðfestu,
svo ekki varð um villst, lækningaá-
.hrif böðunar í Bláa lóninu á psori-
asissjúkdóminn. Var hér því kom-
inn nýr náttúrulegur meðferðarval-
kostur í baráttunni við þennan erf-
iða, langvinna sjúkdóm, sem engin
varanleg lækning hefur fundist við.
Hefur starfsemi meðferðarstöðv-
arinnar verið á formi göngudeildar-
þjónustu, en frá hausti 1997 hafa
heilbrigðisyfirvöld einnig greitt fyr-
ir dvöl psoriasissjúklinga á Hótel
Bláa lóninu, til að auðvelda sjúk-
lingum af landsbyggðinni og þeim
^ með mjög erfíðan sjúkdóm að
stunda meðferð við Bláa lónið.
Óhætt er að fullyrða að reynsla
af þessari starfsemi hafi verið mjög
góð, og hafa fjölmargir psoriasis-
sjúklingar fengið bata af sjúkdómi
sínum eftir meðferð við Bláa lónið,
og eru mörg dæmi um, að batinn
hafi verið betri en þeir
hafa áður kynnst.
Frá upphafi hefur
verið reynt að vekja
áhuga erlendra psori-
asissjúklinga á þessum
nýja meðferðarvalkosti
og hefur m.a. tekist að
stofna til samstarfs við
færeysk heilbrigðisyf-
irvöld um, að senda
hópa færeyskra psori-
asissjúklinga til Is-
lands. Stóð þetta sam-
starf til reynslu undan-
farin tvö ár en hefur
nú verið framlengt
ótímabundið. Hefur
verið ánægja með
þetta samstarf bæði af hálfu fær-
eyskra sjúklinga og yfirvalda og
telja þessir aðilai- meðferð við Bláa
lónið bæði árangursríkari og ódýr-
ari en aðra meðferðarkosti, sem
standa til boða.
Einnig hafa einstakir sjúklingar
komið á eigin vegum frá eftirtöldum
löndum: Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð, Þýskalandi, Austurríki, Sviss,
Hollandi, Belgíu, Bretlandi, Spáni,
Portúgal, Ítalíu og Bandaríkjunum,
m.a. frá hinni sólríku Kalifomiu.
Hér er um fjölbreytt þjóðerni að
ræða, sem er um leið staðfesting á
því, að orðstír Bláa lónsins og lækn-
ingamáttar þess hefur farið víða.
Eins og sjá má af framanskráðu er
gjaldeyrisskapandi heilbrigðisþjón-
usta við Bláa lónið því hafin.
Starfsemi meðferðarstöðvarinn-
ar við Bláa lónið hefur vaxið fiskur
Psoriasis
Það er ómetanlegt fyrir
frekari uppbyggingu
meðferðarþj ónustu
við Bláa lónið, segir
Grímur Sæmundsen,
að íslenskir psoriasis-
sjúklingar nýti áfram
þennan valkost.
um hrygg eins og meðfylgjandi
stöplarit sýnir.
Heilsulindarhótel
Eins og kunnugt er verður nýr
baðstaður fyrir almenna gesti við
Bláa lónið opnaður á næstu vikum.
Ætla má, að sumir hafi haldið, að
þá sé uppbyggingarstarfi við Bláa
lónið lokið. Því fer fjarri, því hér er
aðeins um fyrsta áfanga uppbygg-
ingar við heOsulindina Bláa lónið að
ræða. Næsti áfangi, sem þegar er
hafinn undirbúningur að, er upp-
bygging heilsulindarhótels auk sér-
stakrar meðferðarstöðvar fyrir
húðsjúklinga, sem byggir á þeiiri
reynslu, sem menn hafa aflað sér
við rekstur núverandi meðferðar-
stöðvar. Verða þessi uppbyggingar-
áform kynnt nánar á næstunni.
Deilur um meðferðar-
valkosti
Tryggingayfirlæknir fyrir hönd
Tryggingastofnunar og formaður
samtaka psoriasis- og exemsjúk-
linga (SPÓEX) deildu í fjölmiðlum
fyrir nokkru vegna ákvörðunar um
að samræma reglur í almanna-
tryggingalögunum um lækninga-
ferðir erlendis, þannig að allar
beiðnir um slíkar ferðir færu í
gegnum s.k. siglinganefnd Trygg-
ingastofnunar.
Áður höfðu gilt sérstök ákvæði
um lækningaferðir psoriasissjúk-
linga til útlanda, sem sköpuðu þeim
sérréttindi, er ekki giltu um aðra
sjúklingahópa.
Starfsemi meðferðarstöðvarinn-
ar við Bláa lónið hefur verið dregin
inn í þessar deilur og hún gerð að
hálfgerðu bitbeini deiluaðila. Það er
ljóst að til eru margir meðferðar-
kostir við psoriasis og sú meðferð
sem hentar einum sjúklingi hentar
öðrum ekki eins vel. Þess vegna er
ekki hægt að halda fram, að með-
ferð við Bláa lónið komi alfarið í
staðinn fyrir annars konar ólík
meðferðarfonm við psoriasis. En
meðferð við Bláa lónið er innlendur
meðferðarvalkostur, og spyrja má,
hvort ekki sé eðlilegt, að heilbrigð-
isyfirvöld fari fram á, að hann sé
reyndur, áður en sótt er til útlanda
eftir bata.
Til samanburðar má nefna, að
ósennilegt verður að telja, að
norsk heilbrigðisyfirvöld hefðu
staðið fyrir uppbyggingu og
rekstri meðferðarstöðvar á
Kanaríeyjum fyrir norska psorias-
issjúklinga og aðra, eins og raun
hefur orðið á, ef til staðar væri
heilsulind eins og Bláa lónið í Nor-
egi. Ætla má, að þeim fjármunum
hefði fyrst og fremst verið varið í
uppbyggingu og greiðslu meðferð-
ar heima fyrir.
Fallið hafa óviðeigandi ummæli,
sem af mætti ráða, að engar vís-
indalegar rannsóknir stæðu að baki
meðferð við Bláa lónið. Slíkum um-
mælum er alfarið vísað á bug, enda
verið vandlega skýrt frá staðreynd-
um í því efni.
íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa
stutt við þróun meðferðarþjónustu
gegn psoriasis við Bláa lónið. Það
er ómetanlegt fyrir frekari upp-
byggingu meðferðarþjónustu við
Bláa lónið, að íslenskir psoriasis-
sjúklingar nýti áfram þennan með-
ferðarvalkost til fulls og stjóm og
félagsmenn SPOEX styðji kynn-
ingu starfseminnar fyrir erlendum
heilbrigðisyfirvöldum, sjúklinga-
samtökum, læknum og sjúklingum.
Það er einlæg ósk starfsmanna
meðferðarstöðvarinnar við Bláa
lónið að eiga áfram, eins og hingað
til, gott samstarf við íslenska psori-
asissjúklinga og að stjórn SPOEX
styðji frekari þróun og uppbygg-
ingu meðferðarþjónustu við Bláa
lónið með sama krafti og hún hefur
sett í bai'áttu fyrir óbreyttu fyrir-
komulagi á lækningaferðum til út-
landa.
Höfundur er læknir og
framkvæmdastjóri Bláa lónsins hf.
Grímur
Sæmundsen
WHITE
SWAN
Dreífing: Engey ehf. Hverfisgata 103
s: 552 8877 fax: 552 0060
■/elina
Fegurðin kemur inncn frá
Laugavegi 4, sími 551 4473
Hafa skal það sem sannara reynist
HVERNIG er með
það sem við í daglegu
tali nefnum lýðræði?
Við höfum verið vitni
að nokkrum skondnum
prófkjörum hin síðari
ár. Þau ár hafa einnig
verið sérstök hvað
varðar það „nýja
vinstri" sem margir
skipbrotsmenn sovét-
skipulagsins hamast
við að boða. Prófkjörs-
reglur hins „nýja
vinstri“ til uppstillingar
á framboðslista, eru
eitt sérlegt tilfelli, sem
ekki hefur verið krufið
til mergjar af hauk-
fránu augum rannsóknarblaða-
manna okkar eða fréttamanna. Nú
á Þorra og Góu hafa aðstandendur
Samfylkingarinnar staðið fyrir
kostulegum prófkjörum, þar sem
niðurstöður eru annaðhvort lagaðar
áður en gengið er til kjörs eða
stuttu eftir. Allt auðvitað í sérstakri
samheldni og sérlegu bræðralagi
því menn vilja ekki skemma fyrir
„ferlinu" og líta á sína persónu sem
aukaatriði £ heildarmyndinni.
Hugsunarleti
Til hvers voru menn þá að bjóða
sig fram til forystu, ef þeir töldu sig
ekki þess verða að leiða lista eða
vera £ það minnsta ofarlega? Allt fer
þetta fyrir ofan garð og neðan hjá
fréttamönnum okkar, ekki vilja þeir
bijála ferlið og eru þeir auðvitað
menn að meiri. Sighvatur var inntur
eftir þv£ hvort hann hefði nokkuð
haft áhrif á ákvörðun flokksbróður
síns á Norðurlandi eystra. Hvati
svaraði að bragði, að hann hefði ekk-
ert talað við sigurvegara prófkjörs-
ins - og var þar látið við sitja í
spumingum. Gott og vel en £ blaði
nokkru - Degi Tímanum - var stutt
klausa, svona eins og ekkert væri
sjálfsagðara, að Sighvatur hefði átt
fund með Sigurbimi en
ekkert talað um efni
fundarins. Auðvitað var
Sighvatur búinn að
steingleyma þvf að
hann hefði rassakastast
norður á Akureyri, það
liggur svo sem ekkert
mikið fyrir i hans eigin
kjördæmi og samgöng-
ur milli Vestfjarða og
Norðurlands eystra svo
sérlega góðar og örar,
að hann hefur vart tek-
ið eftir þvi að hann
hefði skundað norður.
Heiðarlegh fréttamenn
hefðu nú tekið upp sim-
ann og spurt Sighvat
hvort hann væri virkilega þeirrar
skoðunar, að allur almenningur sé
alger fífl, að sjá ekki i gegnum
svoddan ósannindi.
Ef eitthvað þessu líkt hefði komið
fyrir í Sjálfstæðisflokknum, hefðu
líklega margir fréttatímar verið
undirlagðir af rannsóknum og
fréttaskýringum.
Fagurgali
Samfylking og aðrir „til vinstri"
bjóða nú fram stefnuskrár, þar sem
öllum er boðið til veislu, sumir eru
þó, eins og ætíð, jafnari en aðrir.
Aukinn stuðningur við þá sem
minna mega sín er ætið líklegur til
vinsælda. Koma á pínu úlfúð og öf-
und hefur einnig verið nokkuð
drjúgt til atkvæðaveiða. Sérlega er
þægilegt að hafa í för menn sem
ekkert muna og einskis spyrja, þeg-
ar fram eru sett stefnumið. I þann
hóp er hentugast að setja Frétta-
menn sem kokgleypa, sem sannleik,
allt það sem fram er sett. Dæmi:
Þegar Sighvatur var inntur eftir því
í hverju stefna þeirra í fjármálum
ríkisins væri fólgin, sagði hann pent
eitthvað i þessa veru. Samfylkingin
mun starfa eftir varkárri og skyn-
samri stefnu í ríkisfjármálum.
Stjórnmál
Til hvers voru menn
að bjóða sig fram til
forystu, spyr Bjarni
Kjartansson, ef þeir
töldu sig ekki þess
verða að leiða lista?
Fréttamenn spurðu hann ekki
einusinni af hverju hann og Jó-
hanna hefðu ekki farið að þeim leik-
reglum þegar þau bundu sveitarfé-
lögum á Vestfjörðum þær
drápsklyfjar, sem þau gerðu, með
þvi að hvetja til fjárfestinga í „fé-
lagslegu húsnæði" og leggja í
ótímabærar fjárfestingar til þess
eins að rústa fasteignamarkaðinn
og koma þeim illa sem létu blekkj-
ast til kaupa í því kerfi. Heimamenn
vita að þeir margir hafa ekki enn
náð sér að fullu eftir stuðið.
Auðlindin
Nokkuð þykir mér týra þegar
menn á borð við Ágúst Einarsson
klifa á því, að nú sé kominn tími til
að menn fari að leggja á auðlinda-
skatt, með því að bjóða upp afla-
heimildir og leggja þeim einum til
sem aura hafa til að borga fyrir
greiðann. Þessi sami maður belgdi
sig upp í hverri þingræðunni eftir
aðra um, að tonn fyrir tonn reglan
kæmi ekki niður á neinum nema
hans sérlegu vinum - sjómönnun-
um. Gústi virðist vera búinn að
gleyma þessum ræðum sínum því
að með sömu rökum og hann notaði
um að sjómenn greiddu fyrir kvóta-
braskið hlýtur að liggja í augum
uppi, að enginn nema þeir sem
vinna í greininni mun greiða fyrir
auðlindaskattinn. Það þýðir ein-
vörðungu, að þeir sem vinna við
vinnslu og veiðar lækka í kaupi.
Þetta vilja þessir heilögu menn ekki
tala um, heldur þyrla þeir upp sínu
þekkta moldviðri um að þeir muni
skattleggja helvítis Gróðapungana.
Undir þetta tekur herra Sighvatur
Björgvinsson, þingmaður úr því
kjördæmi, sem menn búa einna
helst við kjörin af sjónum.
„Jaðarskattar“
Lygamerðir munu ætíð geta villt
fyrir fólki um einhvern tiltekinn
tíma en þegar nánar er skoðað
liggja verkin fyrir. Þegar tekju-
tenging var upp tekin, var það eitt
það besta sem núverandi Samfylk-
ingarmenn töldu til síns ágætis.
Þeir ætluðu nú ekki að fara að
borga einhverjum „hátekjumönn-
um“ bætur. Gamlingjar sem ættu
helling af peningum ættu ekki að fá
neinar bætur úr sameiginlegum
sjóðum, einnig ættu ríkar kerlingar
og breiðvaxnir milljónerar ekki að
fá neitt úr ríkissjóði. Ef ég man
þetta rétt, var „sanngirniskrafa"
um, að flest skyldi tekjutengt. Fé-
lagshyggjumenn töluðu sig ráma
um réttlæti og sanngimi (löngum
talið sig eiga bæði hugtökin) þess,
að tengja bætur tekjum. Nú væla
sömu menn um, að ,jaðarskattar“
séu allt að drepa og að það verði
eitt aðalverkefni þeirra, ef þeir
komist til valda, að koma þessari
skottu fyrir kattarnef. Skerðingar-
áhrif laganna frá Jóhönnu og henn-
ar meðreiðarsveinum hafa svínvirk-
að, breiðu bökin eru fundin. Hugs-
un fréttamanna virðist ekki ná
svona langt aftur, þannig að þögn
ríkir í þeirra herbúðum um þessi
efni. Fréttamenn voru skarpari að
grafa upp ummæli Matthíasar
Bjamasonar og Sverris Hermanns-
sonar hvors um annan hér á ámm
áður, þá þeir vora að kýta. - Af
hverju?
Höfundur er verkefnisstjóri.
Bjarni
Kjartansson