Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttui- hádegis-
verður. Samverustund foreldra
ungra bama kl. 14-16. Fundur í
æskulýðsfélaginu kl. 20.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl.
20.30.
Dómkirkjan. Barnastarf fyrir 6-9
ára börn kl. 10.15 og kl. 14.15 í
safnaðarheimilinu.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Æskulýðsfélagið Örk (yngri
deild) kl. 20.
Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára
böm kl. 17.
Laugarneskirkja. „Þriðjudagur
með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðar-
stund.
Seltjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12.
Hjúkrunarfræðingar frá heilsu-
gæslustöðinni koma í heimsókn.
Breiðlioltskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
@texti:Digraneskirkja. Starf
aldraðra kl. 11.15 í umsjá Önnu
Sigurkarlsdóttur. Leikfími, léttur
málsverður, helgistund og sam-
vera. Æskulýðsstarf, unglingastarf
13 ára og eldri á vegum KFUM og
K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
9- 10 ára stúlkur kl. 17.30. Æsku-
lýðsstarf fyrir 8. bekk kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar,
opið hús kl. 13.30-15.30. Helgi-
stund, söngur, handavinna, létt
spjall og kaffiveitingar. Æskulýðs-
starf fyrir 8. bekk kl. 20-22.
KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl.
17.30-18.30. „Kirkjukrakkarar" í
Rimaskóla fyrir böm 7-9 ára kl.
17-18.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur
presta í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra er á þriðjudögum kl.
9.15-10.30. Umsjón dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson. Bæna- og kyrrð-
arstund þriðjudag kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10- 12.
Seljakirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 7-9 ára böm frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
HÁTEIGSKIRKJA í Reykjavík.
Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Von-
arhöfn Strandbergs. Kristin íhug-
un í Stafni, Kapellu Strandbergs,
kl. 21.30-22. Heimsborgin - Róm-
verjabréfíð, lestur í Vonarhöfn kl.
18.30-20.
Keflavíkurkirkja. Helgistund í
Hvammi, félagsmiðstöð eldri borg-
ara, kl. 14-16. Upplestur, söngur
og hugvekja. Umsjón hefur Lilja
G. Hallgrímsdóttir, djákni. Einar
Öm Einarsson annast undirleik.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. Mömmumorg-
unn í safnaðarheimilinu milli kl. 10
og 12. Helgistund í kirkjunni sömu
daga kl. 18.30.
Hvammstangakirkja. F or-
eldramorgunn kl. 10-12 á prests-
setrinu.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 16-17 kirkjuprakkarar (7-9
ára) í safnaðarheimilinu. Undir-
búningur undir uppskerahátíð fyr-
ir foreldra. Leikrit og föndur.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Samvera á vegum systrafélagsins
kl. 20. Herdís Hallvarðsdóttir flyt-
ur hugleiðingu. Allar konur hjart-
anlega velkomnar.
Lágafellskirkja. Æskulýðsstarf
fermingarbama á miðvikudögum
kl. 20. Umsjón Sigurður Rúnar
Ragnarsson.
Háaleitisbraut 58. Kl. 20.30. Eng-
inn afsláttur, - ókeypis! Kjartan
Jónsson talar. Heiðinginn og siðir
hans. Birna Jónsdóttir og Guðlaug-
ur Gíslason skyggnast inn í málið.
Carina Holmvik vitnar.
Selfosskirkja. Hádegisbænir
þriðjudag til fóstudags kl. 12.10.
-^INNLENT
Löggild próf hjá
Alliance Frangaise
DELF og DALF-próf verða haldin
í apríl og maí hjá Álliance Frangaise
í Reykjavík, Austurstræti 3, fimmta
árið í röð.
Þetta era alþjóðleg próf í frönsku
sem franska menntamálaráðuneytið
hefur yfirumsjón með. Þeir nero-
endur sem Ijúka DALF-prófi öðlast
rétt til inngöngu í franska háskóla.
Þessi skírteini DELF og DALF era
alþjóðlega viðurkennd sem vitnis-
burður um frönskukunnáttu. Alli-
ance Frangaise sér um að skipu-
leggja, undirbúa og veita allar upp-
lýsingar sem fólk óskar eftir í sam-
bandi við þessi próf.
Prófín era þannig uppbyggð að
þau skiptast í nokkur mismunandi
stig (4 í DELF, 2 í DELF og 4 í
DALF). Fólki skal bent á að taka öll
stigin í einu og að prófin fymast
ekki heldur geta nemendur geymt
hvert stig sem þeir taka. Síðar geta
þeir tekið þau stig sem upp á vantar
hvort sem er hér á landi eða erlend-
is. I dag bjóða u.þ.b. eitt hundrað
lönd upp á að taka þessi próf. Þeir
nemendur sem komið hafa í prófin
eru einstaklingar, nemendur frá
Háskóla Islands og nemendur frá
Alliance Frangaise en fyrstu stigin
ættu góðir menntaskólanemendur
að ráða við. Síðustu stig DALF-
prófsins era hins vegar nokkuð erf-
ið, segir í fréttatilkynningu.
DELF 1 mun fara fram í Alliance
Frangaise helgina 24.-25. apríl,
DELF 2 verður haldið dagana 8. og
9. maí (til kl. 12) og DALF 9. maí
(frá kl. 13) og 15. maí. Innritun er
virka daga frá kl. 15-18. Verðið er
4.000 kr. fyrir DELF 1 og DALF,
2.000 kr. fyrir DELF 2 og 1.000 kr.
fyrir 1. stig.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hvað er að ger-
ast hjá SAA?
ÉG er ein af þeim sem
hef nokkrum sinnum
leitað mér hjálpar hjá
SÁA á Vogi og göngu-
deild SÁA í Síðumúla.
Nýlega hafði ég sam-
band við Vog og svarar
mér þá kona sem gat
ekkert hjálpað mér og
hafði ekkert vit á sjúk-
dómnum alkóhólisma og
fékk ég enga leiðbein-
ingu á þeim bæ.
Það er af sem áður var
þegar Elín svaraði í sím-
ann á Vogi (hún hætti
fyrir jól, en nokkrum
sinnum hefur verið skrif-
að til hennar í Velvak-
anda af okkur alkóhólist-
um). Alltaf svaraði hún
glaðlega og innilega og
ævinlega tilbúin að gefa
góð ráð og minna mann
á ráðgjafana í Síðumúla.
Alltaf leið mér betur eft-
ir samtal við hana Elínu,
hún peppaði mann alltaf
upp.
Jæja, ég þakkaði kon-
unni fyrir þessa litlu
hjálp og hringdi á
göngudeildina í Síðu-
múla og viti menn, tveir
bestu ráðgjafar SÁÁ
hættir störfum; Valdís
og Fríða.
Ég spyr; hvað er að
gerast hjá SÁÁ? Allt
besta fólkið hættir störf-
um (að hinum ólöstuð-
um). Ég held að yfir-
menn SAA ættu að huga
betur að starfsfólki sínu.
Ein óvirk.
Tapað/fundið
GPS-tæki tapaðist
GPS-tæki af gerðinni
Garmin GPS 12XL tap-
aðist um páskana við
Bláfell á Kili. Finnandi
vinsamlegast hafi sam-
band í síma 557 4714 eða
899 8803.
Gæludýr
Artemis er týnd
HUN Artemis er 4 mán-
aða gömul læða, grá-
bröndótt. Hún fór frá
heimili sínu að Kúrlandi
í Fossvogi 6. apríl sl. Ef
einhver hefur séð til
hennar þá vinsamlegast
hringið í síma 553 9484
eða 862 4713. Hennar er
sárlega saknað.
30. Dxf6+ - exf6 31. He8+
- Kg7 32. Hg3+ - Kh6 33.
Heg8 og svartur gafst upp
því það er orðið mjög stutt
í mátið.
STAÐAN kom
upp á opna
Metalis-mótinu
í Belisce í Króa-
tíu í mars í
viðureign
tveggja heima-
manna. M.
Palac (2.585)
hafði hvítt og
átti leik gegn B.
Kutuzovic
(2.465) 27.
Bxh7! - Hxh7
28. Hee3! - Dg6
29. Dc3+ - Df6
SKÁK
IJnisjóii Margeir
Péturssiin
HVÍTUR leikur og vinnur.
COSPER
CosPER.
NÆSTI!
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Við Tjörnina í Reykjavík
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkverja varð fyrir
þeirri óskemmtilegu lífs-
reynslu að standa uppi peningalaus
alla páskana þar sem debetkortið
hans rann út í lok mars. I góða
veðrinu á skírdag, þann 1. apríl,
ákvað hann að gæða fjölskyldunni á
góðgæti úr bakaríi í morgunmat.
Þegar kom að því að greiða í bak-
aríinu kom í ljós að posavél bak-
arísins hafnaði kortinu þar sem það
var útrunnið.
Kunningi Víkverja komst að því
sér til skelfingar eftir mikla leit að
ekki vora til neinir seðlar á heimil-
inu og neyddist hann því til þess að
nota kreditkortið í öllum viðskipt-
um um páskana þrátt fyrir að eiga
næga innistæðu á tékkareikningn-
um. Sama hvort um kaup á lyftu-
korti á skíðasvæðum í nágrenni
höfuðborgarinnar var að ræða eða
leigð var myndbandsspóla.
Á þriðjudeginum eftir páska
hugsaði hann sér gott til glóðarinn-
ar og fór í sitt útibú hjá Búnaðar-
bankanum til þess að sækja debet-
kortið sem hann taldi fullvíst að
biði sín þrátt fyrir að ekkert bréf
hafi borist heim til hans um það líkt
og venjan er. Eftir talsverða leit í
bankanum kom í ljós að ekkert
debetkort beið viðkomandi. Af-
greiðslustúlkan í bankanum baðst
innilegrar afsökunar á þessum mis-
tökum og pantaði nýtt kort fyrir
hann.
Enn hefur ekkert bólað á nýju
debetkorti og er kunningi Víkverja
orðinn ansi kvíðinn niðurstöðu
þessa kreditkortatímabils. Fullvíst
er að reikningurinn verður ansi
umfangsmikill og hár að sama
skapi.
Það sem hefur bjargað kunningj-
anum er að hann hefur getað greitt
reikninga á Netinu undanfarna
daga og gat tekið út peninga í af-
greiðslu Búnaðarbankans á mið-
vikudag í síðustu viku. Að vísu
reyndi hann að taka út pening í
Kringluútibúi Búnaðarbankans á
þriðjudag en hafði ekki erindi sem
erfiði þar sem tölvukerfi bankans lá
niðri á þeim tíma sem hann heim-
sótti útibúið.
Að sjálfsögðu hefði hann getað
fengið ávísanahefti en í hvert skipti
sem greitt er með ávísun greiðir
reikningseigandi 19 krónur í kostn-
að. Þess fyrir utan er fólk með ávís-
anir víða litið hornauga þar sem
margir telja fullvíst að þeir sem
greiða með ávísunum eigi ekki inni-
stæðu á reikningnum.
SÍÐASTLIÐINN föstudag var
stofnað Félag kvenna í atvinnu-
rekstri. Meðal framsögumanna á
fundinum var Finnur Ingólfssonj
iðnaðar- og viðskiptaráðherra. I
ræðu ráðherra kom fram að konur
væru betri stjórnendur en karlar.
Víkverji getur nú ekki að því gert
að fínnast kosningaþefur af orðum
Finns. Ætli hann hefði látið þessi
orð falla á stofnfundi karla í at-
vinnurekstri?