Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 70

Morgunblaðið - 13.04.1999, Side 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Vagninn á Flateyri Bleyjurnar, drag- drottningin, prestur- inn og glysgaurinn ALLSERSTÆÐIR út- gáfutónleikar á óút- kominni plötu Lýðs Ara- arsonar, læknis, Olafs Ragnarssonar POPP og Jóns Rósmann Mýrdal ásamt hljómsveitinni COR voru haldnir á Vagninum eftir mið- nætti föstudagsins langa. Það fór kliður um salinn þegar drengimir í COR komu þrammandi í bleyjum einum fata upp á svið og gerðu sig klára til að spila. Stuttu seinna komu Óli POPP, Lýður og Jón uppá- klæddir sem prestur, dragdrottn- ing og glysgaur. þeir félagar eru orðnir ansi þekktir fyrir að > halda allsérstæða tónleika og það sannaðist best enn einu sinni að þar eru engir aukvisar á ferð hvað varðar textagerð og spila- mennsku. Eftir útgáfutón- leikana var tekið til við hefðbundna ball- spilamennsku og stóð gleðin fram undir ~ ’ morgun við mikið fjör. 84 i, ó8l ».»»“• Tötvunámskdð i^:<m:cHþI4aþAqu Windows, Word og Excel, frábært byrjendanámskeið...................15 klukkust. Windows 95/98, stýrikerfið og tölvan................................6 klukkust. Word ritvinnslan, ítarlegt námskeið, jafnvel fyrir vana............12 klukkust. Excel töflureiknirinn, margt sem kemur á óvart.....................15 klukkust. PowerPoint, glærugerð og notkun.....................................9 klukkust. Outlook, dagbók, verkefnayfirlit, tölvupóstur og tengiliðir......6 klukkust. Intemetið, upplýsingahraðbrautin................................6 klukkust. Heimasíðugerð með FrontPage, grannur............................15 klukkust. Access, frábært hönnunamámskeið fyrir byrjendur........15 klukkust. FileMaker, gagnagrannsgerð og forritun (framhald)......24 klukkust. Access framhaldsnámskeið..............................15 klukkust. Visual Basic for Access, forritun.....................24 klukkust. Windows NT netstjómun I (grannur)......................21 klukkust. Windows NT netstjómun II (framhald)....................21 klukkust. Novell NetWare námskeið I (grannur)....................21 klukkust. Excel framhaldsnámskeið fyrir þá kröfuhörðu............12 klukkust. Word framhaldsnámskeið fyrir lengra komna..............12 klukkust. NetumsjónmeðWindowsNT Mjög ítarlegt vikulangt námskeið...............30 klukkust./45 kennslust. (Microsoft Certifíed Professional viðurkennd námsgögn) GOÐMASTÆÐURFYRIRÞVIAD KOMAÁ NÁMSKEffllN OKKAR: • Þátttakendur fá aukinn afslátt eftir því sem þeir sækja fleiri námskeið. • Innifalin er símaaðstoð í heilan mánuð eftir að námskeiði lýku r. • Góð staðsetning, næg bflastæði. 1 íslensk námsgögn og veitingar innifalið í þátttökugjaldi. Tölvu- og verkfræöiþjónustan Grensásvegi 16 • Reykjavík Ifo-vnl— »109000 IsImaHIHIM sem auðvelt er að muna [EURO« Raðgreiðslur • VISAj Morgunblaðið/Ásdís DANÍEL Bjarnason og Margrét Lára Jónsdóttir tónlistarnemendur, Ingibjörg Böðvarsdóttir og Hanna Christel Sigurkarlsdóttir eru myndlistarnemar og Hlynur Pálsson og Olafur Egilsson eru leikarar. A mynd- ina vantar dansarana Alfrúnu Ornólfsdóttur og Gunnlaug Egilsson. Listin er lykillinn að betri heimi Eldur og ís snertast „HVAÐ er betra en listin og skapandi starf til að sameina fólk?“ spyr Ása Hauksdóttir, verkefnastjóri menningarsveitar Hins hússins. En fyrir skömmu lagði hún af stað með átta íslensk ungmenni til Marokkó til að taka þátt í samvinnuverkefninu Saga Eldur/ís á vegum áætlunarinnar „Ungt fólk í Evrópu“. Áætlunin er á vegum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins og er landsskrifstofan í Hinu hús- inu. Hún veitir styrki til hópa ungs fólks sem hefur áhuga á að vinna verkefni með erlendum jafnöldrum sem tengjast menn- ingu, listum, umhverfisvernd, fjölmiðlum eða atvinnumálum, svo eitthvað sé nefnt.. Skapandi kraftur „Það eru þrjátíu og tvö ung- menni á aldrinum 18-22 ára frá íslandi, Finnlandi, Marokkó og Túnis sem taka þátt í þessu verk- efni sem á að stuðla að menning- arlegum samskiptum milli ung- menna frá ólfkum löndum,“ út- skýrir Ása. „Við höfum áhuga á að sameina fjögur listform í eina sýningu; leiklist, myndlist, dans og tónlist, og út frá því valdi hvert land tvö ungmenni úr hverri listgrein til að taka þátt í verkefninu. Islensku þátttakend- urnir eru allir komnir býsna langt í sinni listgrein og sumir Eitt g-shock meðöllu hverjir hafa stundað hana allt frá blautu barnsbeini, og urðu þess vegna fyrir valinu.“ Ungmennin hittast fyrst í Marokkó og dvelja bæði í höfuð- borginni Rabat og svo í Marakesh þar sem þau vinna í listsmiðjum undir leiðsögn innlendra lista- manna. Allir fjórir hóparnir hafa undanfarið unnið stutt atriði þar sem þemað eldur/ís og snerting eru megininntakið, og munu kynna atriðin sín fyrir hinum hópunum. „Skapandi kraftur krakkanna og listsköpun endur- speglar auðvitað menningarlegan bakgrunn þeirra meðvitandi og ómeðvitandi og það verður gam- an að sjá hvernig heildarútkoman verður. Við munum setja upp sýningu áður en við höldum til Túnis til að vinna þar í eina viku. Sýningin vonandi stækkar svo og verður betri. f lok ágúst hittumst við öll aftur á íslandi og síðan í Finnlandi þar sem Iokasýningin verður haldin.“ Að uppræta fordóma „Eins og ég sagði áðan þá koma þátttakendurnir frá mjög óifkum menningarheimum og búa þar með við mjög ólík kjör að öllu leyti, s.s félagsleg, þjóðfélagsleg og trúarleg. Áætlunin Ungt fólk í Evrópu er að vissu leyti hugsuð sem fyrirbyggjandi starf. Þegar ungd; fólk vinnur saman þá eykur það skilning þess á bakgrunni hinna og verður vonandi til að uppræta fordóma, aihæfingu ímynda og auka umburðarlyndi og minnka hræðsluna við hið óþekkta. Flestir segjast fordómalausir en þegar á reynir búum við flest yfir einhverjum fordómum og ekki síst í garð múhameðstrúar- manna, og erum þá fljót að grípa til alhæfinganna.“ - Hvað eiga ungmennin sjálf að fá tít tír þessu? , & GOLFEFNABUÐIN Borgartúni 33 æða flísar ^daparke. ^jyóð verð í%óð þjónusta „Það er vonandi að þau komi á einhverjum tengslum og vinni meira út frá þeim. Eg efast ekki um að það sé ómetanlegt fyrir þau sem eru að hefja sinn feril á Iistbrautinni að fá tækifæri til að kynnast iistamönnum frá öðr- um menningarheimi og viðhorf- um þeirra til Iistarinnar og lífs- ins.“ Mest spennandi að kynnast menningu Afríkubúa Píanóleikarinn Daníel segir sig og Margréti Láru fiðluleikara hafa verið að vinna með mjög ís- lenska tónlist; Jón Leifs, Vísur Vatnsenda-Rósu „og svo er ég að semja smá verk. Við erum að blauda þessu öllu saman f eina heilsteypta sýningu þar sem er dansað og leikið við okkar undir- leik og myndlistarnemar sjá um bakgrunninn. Svo verður vægast sagt mjög spennandi að blandast hinum hópunum því við vitum ekkert hvað þeir eru að gera. Sýningin okkar er ennþá mjög opin, allt getur breyst ennþá og það er líka forsendan fyrir því að heildin geti virkað.“ - Hvað finnst þér mest spenn- andi við þetta verkefni? „Mér finnst mjög spennandi að blanda þessum listgreinum sam- an, en kannski mest að kynnast tónlistarhefð og menningu Af- ríkubúa. Við förum vonandi á list- sýningar og svo fæ ég innlendan tónlistarkennara. Vonandi kem ég með nýjar hugmyndir með mér heim. A.m.k. nokkra arab- íska hljóma.“ - Hvernig heldurðu að þessi ferð eigi eft.ir að nýtast þér? „Það er alltaf gott að fá tæki- færi til að víkka sjóndeildar- hringinn. Að kynnast ólíkri tón- list og menningu á án efa eftir að nýtast mér. Svo er aldrei að vita nema það verði eitthvert fram- hald á samstarfi innan fslenska hópsins í framtíðinni, ég skal ekki segja um það. Við erum orð- in þokkalegir félagar.11 Stjörnuspá á Netinu ýj> mbl.is _ALLTAf= £ITTH\SAÐ NÝTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.