Morgunblaðið - 16.04.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913
85. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Maðurinn sem fékk
grædda á sig hönd
Kominn
með til-
fínningu
í lófann
London. Reuters.
LÆKNAR sögðu í gær að
manninum, sem fyrir sex mán-
uðum varð íyrstur til að hljóta
handarágræðslu, heilsaðist vel
og hann hefði nú tilfinningu í
lófanum.
Það þóttu mikil tíðindi í fram-
þróun læknavísinda þegar lækn-
ar græddu hönd manns, sem úr-
skurðaður hafði verið heiladauð-
ur, á hægri handlegg Astralans
Clints Hallams í þriggja og hálfs
tíma langri aðgerð á Edouard
Herriot-sjúkrahúsinu í Lyon í
Frakklandi. Hallam, sem er
fjörutíu og átta ára gamall, hafði
misst höndina í slysi fyTÍr meira
en fjórtán árum.
Læknar Hallams segja góða
heilsu hans í dag sanna að út-
limaágræðslur geti heppnast.
Segja jafnvel nokkrh’ sérfræð-
ingar að þessi aðgerð marki
mestu tímamót í skm’ðlækning-
um frá því fyrst tókst að græða
nýtt hjarta í lifandi manneskju.
Hún gefi þeim nýja von sem
misst hafa útlimi, eða fæðst
vanskapaðir.
Brugðist við erfiðleikum
með lyfjagjöf
Smávægileg vandkvæði
komu upp tveimur mánuðum
eftir handarágræðsluna þegar
líkami Hallams virtist ætla að
hafna húð látna mannsins en
læknum tókst að bregðast við
þeim erfiðleikum með lyfjagjöf-
um. Lyfin sem Hallam þarf
að taka hafa áhrif á ónæmis-
kerfi og óhjákvæmileg auka-
verkun er að hann er veikari en
ella fyrir ýmsum sýkingum og
krabbameini. Gagmýnisraddir
hafa einmitt heyrst um að vafa-
samt sé að stunda slíkar
ágræðslur útlima, sem fólk geti
vel verið án, fyrst útlimaþeg-
arnir þurfi þaðan í frá að taka
inn lyf sem jafnvel eru lífs-
hættuleg.
Hörðustu loftárásir NATO á Belgrad frá upphafí stríðsins í Júgóslavíu
Talsmenn NATO harma
árás á flóttafólk í Kosovo
Reuters
KONA af albönsku bergi brotin þerrar tár sín eftir að hún kom til Kukes í Norður-Albaníu. Hún hafði flúið
heimili sitt í Kosovo og haldið fótgangandi af stað tii Albaníu með kornabarn sitt í fanginu.
Brussel, Washington. Reuters.
FULLTRÚAR Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) viðurkenndu í gær að
herþotur NATO hefðu fyrir mistök
varpað sprengjum á bílalest alb-
anskra flóttamanna í Kosovo í fyrra-
dag. Bill Clinton Bandaríkjaforseti
harmaði mannfallið i ávarpi sem hann
flutti í San Francisco í gærkvöld en
sagði slík slys „óumflýjanleg" í átök-
um eins og þeim sem nú eiga sér stað
í Júgóslavíu. Fulltrúar NATO sögðu
Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta
að fullu ábyrgan fyrir harmleiknum
og William Cohen, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hét því að
herða enn loftárásir á serbnesk skot-
mörk. Sakaði Cohen Milosevic um að
reyna á ófyrirleitinn hátt að gera sér
mat úr slysinu, en Serbar segja sextíu
og fjóra flóttamenn hafa farist í
árásinni. Jafnframt segja Serbar að
alls hafi fímm hundruð fallið og um
fjögur þúsund manns særst í árásum
NATO, sem nú hafa staðið yfir í þrjár
vikur.
Þrátt fyrir harmleikinn í fyrradag
hélt NATO áfram árásum á Júgó-
slavíu og heyra mátti loftvarnarbyss-
ur gelta í Belgrad alla fyrrinótt á
meðan sprengingar skóku höfuð-
borgina. Ibúar hennar sögðu loft-
árásirnar þær hörðustu á borgina
síðan NATO hóf árásir á Júgóslavíu
fyrir þremur vikum. I gær héldu
árásir áfram og var þá m.a. varpað
sprengjum á skotmörk í nágrenni
Podgorica, höfuðborgar Svartfjalla-
lands, í fyrsta skipti frá því fyrir um
viku. A sama tíma hélt flóttafólk frá
Kosovo áfram að streyma til Mak-
edóníu í þúsundatali.
Serbar sakaðir um að
gráta „krókódílatárum"
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, ítrekaði í gær að Júgó-
slavía yrði að samþykkja alla skil-
mála vesturveldanna áðui’ en NATO
hætti loftárásum á Júgóslavíu.
Schröder, sem fer með formennsku í
ESB, kvaðst reiðubúinn til að hitta
Viktor Tsjernómýrdin, sem Borís
Jeltsín Rússlandsforseti skipaði sér-
stakan sendifulltrúa í Júgóslavíu á
miðvikudag, en Tsjernómýrdin, sem
er fyrrverandi forsætisráðheira
Rússlands, er sagður hafa umboð til
að leita „óvenjulegra“ lausna á
Kosovo-deilunni.
Nebojsa Vujovic, talsmaður
júgóslavneska utanríkisráðuneytis-
ins, útilokaði hins vegar enn og aftur
að erlent herlið fengi að koma inn í
Kosovo til að standa vörð um frið í
héraðinu. „Lesið af vörum mínum,“
sagði Vujovic á fundi í Belgrad, „við
munum ekki sætta okkur við erlent
herlið, hvorki á vegum Sameinuðu
þjóðanna, né á vegum ÖSE [Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu],
hvað þá á vegum NATO.“
Jamie Shea, talsmaður NATO í
Brussel, sagði bandalaginu mjög
umhugað um að valda ekki mann-
falli í röðum almennra borgara en
sagði að „eitt hræðilegt slys“, í lík-
ingu við það sem átti sér stað í
fyrradag, myndi ekki veikja þann
ásetning þess að fá Serba til að gefa
eftir. Fréttamenn fengu að heyra
frásögn flugmannsins, sem vai-paði
sprengjum á flóttamannalestina, en
hann mun hafa talið sig vera að
sprengja herflutningafarartæki
serbneskra öryggissveita. Engu að
síður virtust skýringar talsmanna
NATO nokkuð misvísandi og ljóst
að bandalagið hefur beðið hnekki
við þennan atburð.
Serbar reyndu í gær að gera sér
mat úr mistökunum og Milan
Milutinovic, forseti Serbíu, sagði
árásina „vísvitandi fjöldamorð" í
ávai-pi sem hann flutti í júgóslav-
neska sjónvarpinu. William Cohen
sagði slíkar yfirlýsingar hins vegar
„viðurstyggilegar" enda væru það
hersveitir Serba sem hefðu hrakið
meira en milljón manna frá heimilum
sínum og héldu áfram óhæfuverkum
gegn Kosovo-Albönum.
Robin Cook, utam-íkisráðherra
Bretlands, tók í sama streng og kall-
aði Slobodan Milosevic hræsnara.
„Eg get ekki sætt mig við þá gagn-
rýni sem nú berst frá Belgrad,“
sagði Cook. „Hvernig voga þeir sér
að gráta krókódílatárum vegna fólks
sem lést í átökum sem þeir bera
ábyrgð á!“
■ Sjá uinfjöllun á bls. 26-27
Féll tuttugu
metra
til jarðar
VITNI horfa niður af sjö-
undu hæð bflageymslu-
byggingar í borginni Pitts-
burgh í Bandaríkjunum á
bifreið sem ekið var fram af
brún hússins á miðviku-
dagskvöld með þeim afleið-
ingum að hún féll rúmlega
tuttugu metra til jarðar.
Bílstjórinn, Amy Lynn
Johnson, var flutt á slysa-
deild en slapp ótrúlega vel.
Ilún reyndist þó handar-
brotin og einnig hafði hún
skorist nokkuð í andliti.
Virðist sem hemlar bflsins
hafi gefið sig í þann mund
er hún beygði inn í bfla-
stæði með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Reuters
Straw leyfír framsals-
málaferli gegn Pinochet
Madríd, Santiagfo, London. Reuters.
BALTASAR Garzon, spánski dómar-
inn, sem berst fyrir því að fá Augusto
Pinochet, fyrrverandi einræðisherra
Chile, framseldan frá Bretlandi, sagð-
ist í gær „sæmilega ánægður" með að
Jack Straw, innanríkisráðherra Bret-
lands, skyldi hafa ákveðið á ný að
brezkum dómstólum sé heimilt að
taka framsalsbeiðni Spánar fyrir.
Jose Miguel Insulza, utanríkisráð-
herra Chile, fordæmdi ákvörðun
Straws harðlega en stjómvöld í
Santiago hyggjast þó ekki grípa til
neinna ráðstafana vegna málsins.
Samkvæmt ákvörðun Straws hafa
dómstólarnir aðeins leyfi til að taka
fyrir þau ákæruatriði framsalsbeiðn-
innar, sem ná til síðustu stjórnarára
Pinoehets, en hann lét af völdum í
janúar 1990 eftir 17 ár við stjómvöl-
inn. Garzon sagðist í gær mundu
senda til Bretlands frekari gögn um
meint óhæfuverk framin á ábyrgð
Pinochets á tímabOinu 1988-1990, til
að renna frekari stoðum undir fram-
salsbeiðnina.
Straw hafði þá þegar í desember
sl. komizt að sömu niðurstöðu, eftir
að lávarðadeild brezka þingsins, sem
er æðsti áfrýjunardómstóll Bret-
lands, úrskurðaði hið fyrra sinni að
Pinochet skyldi ekki njóta friðhelgi
fyrir ákæru í Bretlandi.
Dómarar lávarðadeildarinnar úr-
skurðuðu á ný í málinu í síðasta
mánuði, þar sem fyrri úrskurðurinn
var felldur úr gildi á þeirri forsendu
að einn dómaranna hefði verið van-
hæfur vegna tengsla hans við mann-
réttindasamtökin Amnesty Inter-
national, sem hafa skipt sér af máli
Pinochets.
Lögmaður sem að málinu kemur,
Manuel Murillo, fagnaði ákvörðun-
inni, sem hann sagði marka upphaf
nýs stigs alþjóðlegrar samvinnu í
vernd mannréttinda. „Nú mun
hvergi í heiminum vera skjól fyrir
fjöldamorðingja og pyntara," sagði
hann, að sögn Europa Press-frétta-
stofunnar. „Hvert það siðmenntaða
land sem slíkir menn stíga fæti á eða
reyna að heimsækja mun vera
skyldugt til að dæma þá.“