Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ I FRÉTTIR Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins hélt sinn fyrsta kosningafund á Akranesi Kosningarnar snú- ast um verk ríkisstj órnarinnar Morgunblaðið/Golli DAVÍÐ Oddsson ræðir við Sturlu Böðvarsson en Guðjón Guðmunds- son og Hörður Júlíusson bera saman bækur sínar. UM eitt hundrað manns sótti kosningafund Davíðs Oddssonar í Vest- urlandskjördæmi á miðvikudag. Kosningabaráttan er formlega hafin fyrir komandi alþingiskosn- ingar og að sögn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra má búast við því að hún verði snörp héðan í frá. Fyrsti fundur hans í skipulagðri fundaherferð um öll kjördæmi landsins var haldinn í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á miðvikudagskvöld en þar sátu einnig fyrir svörum Sturla Böðvarsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Vesturlands- kjördæmi, Guðjón Guðmundsson, annar maður á listanum, og Helga Halldórsdóttir, sem skipar þriðja sætið. Hátt í eitt hundrað manns sótti fundinn og eftir framsöguræðu Da- víðs var spurt nánar út í skoðanir hans og þriggja efstu frambjóð- enda flokksins á Vesturlandi um ýmis mál, svo sem tekjutengingu barnabóta, hinn svokallaða fallskatt í framhaldsskólum og aukningu sóknardaga hjá dag- röðrabátum, svo fátt eitt sé nefnt. í upphafi gerði Davíð svolítið grín að því að athygli hefði vakið að lítið hefði sést til sín enn sem kom- ið væri í kosningabaráttunni. Hann tók hins vegar fram að það stæði ekki til að hann færi með hlutverk ósýnilega mannsins í baráttunni og sagði, við mikla kátínu fundar- gesta, að það væri heldur ekki rétt hjá Sigmundi í Morgunblaðinu að Kjartan Gunnarsson [fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins] hefði ekki leyft honum að „fara út að leika með hinum krökkunum." I ræðu sinni lagði Davíð einkum áherslu á árangur ríkisstjómarinn- ar á því kjörtímabili sem nú væri senn á enda og benti m.a. á í því sambandi að með síðustu kjara- samningum hefði tekist að skapa vinnufrið, þann lengsta samfellda sem Islendingar hefðu búið við til þessa. Sá vinnufriður þýddi margt, m.a. aukið öryggi fyrir atvinnufyr- irtæki og launþega þeirra. Ríkis- stjórnin þakkaði sér þó ekki ein- göngu þann vinnufrið en forsenda þess að hægt hefði verið að gera kjarasamninga, sem launþegar og atvinnufyrirtæki höfðu trú á, var sú að það hafði verið búið í haginn fyrir fyrirtækin í landinu. Davíð fjallaði einnig um baráttu- aðferðir annama flokka í þessari kosningabaráttu og taldi þær ekki til fyrirmyndar. Nefndi hann m.a. Rúmar þrjár vikur eru til alþingiskosninganna 8. maí nk. og óhætt að segja að kosningabar- átta flokkanna sé kom- in vel á skrið. Arna Schram fylgdist með fyrsta kosningafundi Davíðs Oddssonar for- manns Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi á miðvikudagskvöld. auglýsingu Samfylkingarinnar í þessu sambandi þar sem því væri haldið fram að núverandi ríkis- stjórn hefði haft hundrað milljörð- um króna meira til ráðstöfunar en sú síðasta. „En sú tala er algjör- lega úr draumaheimi komin,“ sagði hann. Um hvað er kosið? Davíð velti því fyrir sér um hvað yrði kosið í komandi alþingiskosn- ingum og taldi mikilvægt í því sam- bandi að kjósendur litu til verka ríkisstjórnarinnar og létu stað- reyndir tala en ekki það sem hann kallaði upphrópanir og fagurgala. „Tökum málefni öryrkja og aldr- aðra sem dæmi,“ sagði hann. „Það er enginn stjórnmálaflokkur í þessu landi sem vill ekki það sem þeim hópum ber. Það vilja þeir all- ir. Það fullyrði ég þótt aðrir vilji láta líta svo út sem við viljum það ekki.“ Davíð fjallaði einnig um sjávar- útvegsmál sem kosningamál og sagði m.a. eftirfarandi: „Það var talað um það að þessar kosningar sem nú fara í hönd yrðu kosningar um sjávarátvegsmálin [...]. Það voru stofnaðir heilir flokkar um þessi atriði og á tímabili voi-u það einir þrír í stöðugum samningavið- ræðum um sín mál. Það hafði þann árangur að þeir voni komnir upp í eitt og hálft prósent á tímabili, en eru reyndar eitthvað farnir að lækka það lágflug núna enda hafa þeir breyst í einn eða tvo flokka en ekki þrjá eða fjóra.“ Davíð kvaðst ekki vera að halda því fram að sjávarútvegsmál væru ómerkileg. „Það er kosið um þessi mál, en það er kosið um þessi mál á grundvelli veruleikans, ekki á grundvelli upphrópana, ekki á grundvelli þeirra sem reyndu að skapa óánægju og ólund út af mál- inu,“ sagði hann og gagnrýndi stefnu annarra flokka í sjávarút- vegsmálum, m.a. þá stefnu að selja hluta kvótans á uppboði á kjör- tímabilinu. „Og hverjir skyldu nú hafa bestu aðstöðu til þess að kaupa kvóta á slíku uppboði?“ spurði hann og fullyrti að það væru vart þeir sem væni nýliðai' í at- vinnugreininni. „Að sjálfsögðu hefðu þeir ekki bolmagn til þess. Allt myndi safnast á ennþá færri hendur en nokkru sinni fyrr.“ í umræðunum á eftir voru Davíð og frambjóðendur flokksins á Vest- urlandi spurðir um ýmis álitamál, m.a. hvort það hefðu verið mistök, eins og Finnur Ingólfsson ráðhen’a Framsóknarflokks orðaði það, að tekjutengja barnabætur á kjör- tímabilinu. Davíð sagði að deila mætti um það hvort sú ákvörðun hefði verið mistök en minnti á aðdraganda þeirrar ákvörðunar og að með henni hefði jafnframt verið ákveðið að lækka skatta. Þá var Davíð spurður um hinn svokallaða fallskatt og sagðist hann telja að skólarnir hefðu frjálst val um það hvernig staðið skyldi að slíkum sköttum. Þá sagði hann aðspurður að ríkið væri að fá meiri skatt af fyrirtækjum en nokkru sinni áður og Sturla Böðvarsson tók einnig fram aðspurður í lokin að ekki væri hægt að fjölga sóknardögum dag- róðrabáta nema með því að hækka heildaraflamarkið. Sauðárkrókur Fundur með Davíð fell niður KOSNINGAFUNDUR Davíðs Oddssonar formanns Sjálfstæð- isflokksins sem halda átti á Sauðárkróki í gærkvöld féll nið- ur vegna veðurs. Samkvæmt upplýsingum frá Sjálfstæðis- flokknum í gær lá ekki fyrir hvenær hægt yrði að halda ann- an fund í staðinn. Norðurlands kjördæmi eystra Framboðs- listi Húman- ista birtur FRAMBOÐSLISTI Húman- istaflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra fyrir alþingis- kosningarnar í vor er sem hér segir: 1. Jón Eyjólfsson tré- smiður. 2. Ragnheiður Sigurð- ardóttir tölvunarfræðingur. 3. Guðrún Róbertsdóttir húsmóð- ir. 4. Anna Egilsdóttir húsmóð- ir. 5. Guðlaugur Agnar Pálma- son verkamaður. 6. Jón Kjart- ansson frá Pálmholti. Samfylkingin Austurlandi Kosninga- miðstöðvar opnaðar SAMFYLKINGIN á Austur- landi opnar kosningamiðstöðv- ar sem hér segir: Á Egilsstöðum að Miðvangi 2-4 fimmtudaginn 15. apríl kl. 17, í Neskaupstað að Egilsbraut 11, fimmtudaginn 15. apríl kl. 20.30 og á Hornafirði í Hlöð- unni föstudaginn 16. apríl kl. 17.30. Frambjóðendur mæta. Heitt á könnunni. Allir hjartanlega velkomnir. Framsóknarflokkurinn í Reykjaneskjördæmi Frambjóðendur komu ríðandi til síns fyrsta vinnustaðafundar FRAMBJ ÓÐENDUR Framsókn- arflokksins í Reykjaneskjör- dæmi hófu vinnustaðaheim- sóknir sínar í kjördæminu á miðvikudag með táknrænum hætti. Þeir komu ríðandi niður að Smáratorgi í Kópavogi og buðu börnum á hestbak og for- eldrum þeirra upp á framsókn- arkaffi. Tilgangurinn var ekki síst sá að minna á mikið hestalíf í nágrenni Smárans. Á myndinni eru þau galvösk, Páll Magnússon, sem skipar þriðja sæti framboðslista fram- sóknarmanna í lyördæminu, Siv Friðleifsdóttirj efsti maður list- ans, Hjálmar Árnason, sem skipar annað sæti, og Halldór Ásgrímsson, formaður Fram- sóknarflokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.