Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 15
Gunnar Guðbrandsson segir boðið upp á kosningagötur á fjögurra ára fresti
Bæjaryfirvöld hafa staðið
sig illa í skipulagsmálum
Gallerí Svartfugl
Nemendur
VMA sýna
bútasaum
NEMENDUR á mynd- og
handmenntabraut Verkmennta-
skólans á Akureyri efna til sýn-
ingar á verkum sínum, sem unn-
in voru í skapandi bútasaumi í
Galleríi Svartfugli í Grófargili
laugardaginn 17. apríl kl. 16.
Sýningin er lokapunktur á
námi þeirra nemenda sem lagt
hafa stund á skapandi búta-
saum. Fléttað er saman alls
kyns tækni, en unnið að mestu
við einlit efni sem þrykkt var á
ef þurfa þykir. Mikil vinna er að
baki hvers teppis, en þar hafa
hugmyndaauðgi og þjálfuð hönd
lagst á eitt við að skapa nytja-
hluti höfundum sínum til sóma.
Sýningin verður formlega
opnuð kl. 16 á laugardag og eru
allir velkomnir. Sýningin verð-
ur opin frá þriðjudegi til fóstu-
dags frá kl. 15 til 18 og um helg-
ar er opið frá kl. 14 til 18. Sýn-
ingunni lýkur 2. maí næstkom-
andi. Nemendur verða að störf-
um í galleríinu meðan á sýning-
unni stendur.
Gengið á
Vindheima-
jökul
FERÐAFÉLAG Akureyrar
efnir til skíðagönguferðar á
Vindheimajökul á sunnudag, 18.
apríl, en fara átti í ferðina á
morgun, laugardag. Þar sem
veðurspá gerir ekki ráð fyrir
góðu skíðagönguveðri var ferð-
in færð til.
Lagt verður af stað frá skrif-
stofu félagsins við Strandgötu
kl. 9.30 á sunnudag en skráning
í ferðina er á skrifstofunni í
dag, föstudag frá kl. 17.30 til 19.
Vorhátíð í
Akureyrar-
kirkju
VORHÁTÍÐ sunnudagaskóla
Alíureyrarkirkju verður á
sunnudag og er öfum og ömm-
um barnanna sérstaklega boðið
að taka þátt. Sunnudagaskólinn
hefst að venju kl. 11 á sunnudag
þar sem boðið er upp á söng og
skemmtilegt efni fyrir alla ald-
urshópa. Sameiginleg máltíð
verður í Safnaðarheimili að
honum loknum og er fólk beðið
að hafa með sér létta rétti til að
leggja á hlaðborð, brauð, álegg,
kökur eða annað en drykkir eru
i boði á staðnum.
Samkór
Vopnafjarðar
á ferð um
Norðurland
SAMKÓR Vopnafjarðar heldur
tónleika í Glerárkirkju á morg-
un, laugardag, kl. 15 og í Dal-
víkurkirkju kl. 20.30. Sunnu-
daginn 18. apríl syngur kórinn í
Breiðumýri kl. 15.
Stjórnandi kórsins er Zbigni-
ew Zuchowicz. Undirleikari er
Teresa Zuchowicz sem einnig
mun flytja verk á pianó.
Kór frímúrara
KÓR frímúrara heldur tónleika
í Akureyrarkirkju á morgun,
laugardaginn 17. apríl kl. 17.
Auk félaga úr kór frímúrara í
Reykjavík munu félagar úr kór
frímúrara á Akureyri taka þátt
í tónleikunum. Efnisskráin er
vönduð, en einsöngvarar eru
Eiríkur Hreinn Helgason og
Friðbjörn G. Jónsson.
GUNNAR Guðbrandsson bygg-
ingameistari segir að Síðuhverfíð á
Akureyri hafí verið slys og allt of
langt frá miðbæjarsvæðinu. Hann
segir að í hverfinu sé jarðvegsdýpi
mikið og lóðir dýrar og því hafí
bærinn farið að taka þátt í kostnaði
vegna þessa.
„Þá var engin leið að hita upp
húsin þarna því vatnið var svo kalt
og það var stór ókostur. Að mínu
mati hafa bæjaryfírvöld staðið sig
illa í skipulagsmálum og á hverju
kosningaári hefur verið boðið upp á
kosningagötu á Brekkunni og þess
vegna hefur Þoi-pið setið eftir.“
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í síðustu viku eru enn 10 ein-
býlishúsalóðir lausar í Síðuhverfi,
þótt tæplega 20 ár séu liðin frá því
hafist var handa við að byggja í
hverfínu. Jón Geir Ágústsson
byggingafulltrúi sagði það vissu-
lega slæmt að ekki hefði tekist að
ljúka uppbyggingu hverfisins og þá
ekki síst gagnvart þeim sem þar nú
búa.
Sjávargata norður í Skjaldarvík
Sigurður Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri SS Byggis sagði að ef
enn væru lausar lóðir í Síðuhverfi
væri það vegna þess að hvorki
SÉRA Birgir Snæbjörnsson,
sóknarprestur í Akureyrar-
kirkju, gifti par í kirkju sinni sl.
miðvikudag, sem kannski þykir
ekki í frásögur færandi. Að þessu
sinni var þó komið danskt par
alla leið frá Danmörku til þess
eins að Iáta pússa sig saman og
kom aðeins til greina að gifta sig
í Akureyrarkirkju og að séra
Birgir framkvæmdi athöfnina.
Brúðhjónin heita Torben Ole
Vogter og Tina Stoltenberg
Vogter og á brúðkaupsduginn
voru sex ár frá því þau kynntust.
Torben starfar erlendis fyrir Ut-
flutningsráð íslands, hann hefur
margoft koinið til landsins og
sagðist hafa sérstakar taugar til
Islands. Tina hefur einu sinni áð-
ur komið til íslands en aldrei áð-
ur til Akureyrar.
Torben átti fund með fulltrú-
um Akva á Akureyri fyrir réttu
ári og hitti þá m.a. séra Birgi.
Hann hreifst rnjög af prestinum,
svæðið né lóðirnar væru nógu gimi-
leg, auk þess sem það væri of hátt
yfír sjávarmáli.
„Það sem bærinn á að gera er að
byggja sjávargötu með ströndinni
norður í Skjaldarvík og byggja þar
sem grasið er grænna mánuði leng-
ur en á Brekkunni vegna hæðarmis-
munar. Við höfum verið að fara í
þveröfuga átt með byggðina."
Sveinn Heiðar Jónsson fram-
kvæmdastjóri Trésmíðaverkstæðis
Sveins Heiðars sagði að lóðir í Síðu-
hverfi hefðu verið óhentugar. „Á
undanförnum árum hafa bygginga-
verkatakar verið að byggja þessi
hús en það hefur ekki verið nægur
áhugi fyrir þeim. Og á meðan ekki
er meiri þensla í bænum er ekki
áhugi fyrir einbýlishúsum eða rað-
húsum nema á einni hæð.“
Borgarbrautin breytir öllu
Sveinn Heiðar fékk úthlutað
byggingakjarna á Eyrarlandsholti
og hann hyggst byggja þar 27 rað-
og parhúsaíbúðir. Hann sagði að á
meðan til væru íbúðir á Eyrarlands-
holtinu þýddi ekki fyrir sig að
byggja hús í Síðuhverfi til að selja.
„Ég veit þó að Borgarbrautin á eftir
að breyta öllu og Giljahverfi og
Síðuhverfi eiga eftir að verða vin-
kirkju hans og bænum og til-
kynnti sinni heittelskuðu að hann
hefði fundið rétta staðinn fyrir
brúðkaup þeirra. Brúðhjónin
halda til síns heima frá Reykja-
vík á mánudag.
Þetta ættu fleiri að gera
Séra Birgir sagði þetta liafa
verið mjög ánægjulegan viðburð
og bætti við að þetta ættu fleiri
að gera. Hann sagði að einu sinni
áður hefði komið upp svipuð
staða en þá óskaði par frá Sví-
þjóð eftir því við Biskupsstofu að
fá að gifta sig á Islandi og þá að-
eins í Akureyrarkirkju og sá séra
Birgir einnig um þá athöfn.
--------------
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL: KyTrð-
arstund í Svalbarðskirkju sunnu-
dagskvöldið 18. apríl kl. 21.
sælustu hverfi bæjarins," sagði
Sveinn Heiðar, sem sjálfur býr í
Síðuhverfi.
Sigurður sóttist eftir bygginga-
kjarna á Eyrarlandsholti en fékk
ekki. Hann hefur síðan fengið þar
10 einbýlishúsalóðir sem ekki gengu
út og hyggst byggja einbýlishús á
einni hæð, þar sem í skipulagi er
gert ráð fyrir tveggja hæða húsum.
„Það sem byggingaraðila vantar í
dag eru stórir byggingakjarnar, þar
sem verktakar geta hannað hús og
byggt sjálfir og haft að lágmarki
verkefni til 6-10 ára,“ sagði Sigurð-
ur.
Auglýsa þarf lóðirnar aftur
Gunnar sagði að ef ætti að fara að
breyta skipulagi á Eyrarlandsholti
og leyfa byggingar á einbýlishúsum
á einni hæð í stað tveggja hæða,
væru skipulagsmálin endanlega
komin í upplausn og þá þyrfti að
hreinlega að auglýsa lóðimar upp á
nýtt. „I Giljahverfi eru auglýstar 40
einbýlishúsalóðir og þar af 9 undir
hús á einni hæð. Það segir okkur að
enn er skipulagið ekki með og þar á
bæ virðast menn ekki átta sig á því
sem er að gerast í bænum. Þessir
aðilar sem stjórna þurfa að ræða við
þá sem að byggingarmálum koma
og reyna þannig að átta sig á hver
þörf markaðarins er. Það væri gam-
an að fá að vita það af hverju alltaf
þarf að vera að breyta skipulaginu
t.d. i Giljahverfi, hvemig á því
standi að þessi vinna þeirra er alltaf
ónýt.“
Gunnar fékk ekki úthlutað bygg-
ingareit á Eyrarlandsholti og hann
er því farinn til Reykjavíkur og
vinnur þar innan um stóran hóp
Akureyringa. Gunnar á nýtt og
glæsilegt einbýlishús við Hörpu-
lund á Akureyri, sem hann auglýsti
nýlega til leigu en fékk lítil við-
brögð.
Vantar iðnaðarhúsnæði
Sveinn Heiðar sagði að bygginga-
iðnaðurinn hefði verið nokkuð lífleg-
ur á undanfómum árum og mikið
byggt miðað við markaðinn og þá
fjölgun sem á sér stað í bænum.
„Það er alveg eins gott að eiga til
eitthvað af lóðum því ef hér mynd-
ast einhver þensla tvöfaldast bygg-
ingaframkvæmdir á svipstundu.“
Sveinn Heiðar sagði að nú færi að
vanta minna iðnaðarhúsnæði og því
væri kominn tími til að einhverjir
tækju sig til og byggðu ódýr hús
undir alls kyns iðnaðarstarfsemi í
bænum.
Ný mynd-
verk í Sam-
laginu
NÝ myndverk hafa verið sett upp
í Samlaginu í Grófargili, en með
hækkandi sól er meiri áhersla
lögð á stærri verk. í tilefni þessa
verður boðið upp á hressingu í
listhúsinu á sumardaginn fyrsta.
Samlagið er opið alla daga
nema mánudaga og þriðjudaga
frá kl. 14 til 18 en þar er að finna
mikið úrval vandaðra listaverka
eftir norðlenska listamenn; ker-
amik, muni, vefnað og textílverk,
málverk og vatnslitamyndir,
teikningar og gi'afík.
Vélsleða-
ferð um
Tröllaskaga
FÉLAG vélsleðamanna í Eyja-
firði gengst fyrir ferð um Trölla-
skaga á sunnudag, 18. apríl. Far-
ið verður fra hótelinu í Olafsfirði
kl. 12 á hádegi og fjallasalir
Tröllaskagans kannaðir undir
leiðsögn kunnugra. Leiðarval
verður við allra hæfi, en ekki
væri verra að hafa 10 til 20 lítra
af aukabensíni með í för.
Opið hús
ÍVMA
OPIÐ hús verður í Verkmennta-
skólanum á Akureyri á sunnu-
dag, 18. apríl, þar sem hið fjöl-
breytta námsframboð skólans
verður kynnt og húsnæðið verð-
ur til sýnis frá kl. 13 til 16.
I gamla húsi Húsmæðraskóla
Akureyrar við Þórunnarstræti
verður kynning á hússtjórnar-
sviði og einnig sumu af því list-
og handverksnámi sem boðið er í
VMA. Nmendur og kennarar
bjóða gestum upp á veitingar.
Á Eyrarlandsholti verður
kynning á iðnnámi því sem skól-
inn býður upp á og verða nem-
endur við vinnu sína á verknáms-
stofum, s.s. á málmsmíðaverk-
stæði, á verkstæði í raf- og raf-
eindavirkjun og vélstjórnarálmu.
Til sýnis og prufu verða marg-
slungin kennslugögn þessara
deilda. Bóklegt nám verður
einnig kynnt á Eyrarlandsholti.
Utvegssvið VMA á Dalvík held-
ur opið hús á Heimavist, en svo er
húsnæði skólans nefnt. Þar verð-
ur m.a. kynning á siglinga- og
fiskveiðihermi, fjarskiptahermi
og tölvustofu útvegssviðs. Á Eyr-
arlandsholti munu nemendur
kynna starfsemi nemendafélags-
ins Þórdunu í Gryfjunni og bóka-
safn skólans verður opið. Veiting-
ar verða í boði.
Morgunblaðið/Kristján
NEMENDUR í grunndeild rafiðna við mælingar í keunslu-
stund í Verkinenntaskólanum á Akureyri en starfsemi skólans
verður kynnt á opnu húsi á sunnudag.
T! f
Morgunblaðið/Kristján
DONSKU brúðhjónin Torben Ole Vogter og Tina Stoltenberg Vogter,
ásaint séra Birgi Snæbjörnssyni, sóknarpresti í Akureyrarkirkju.
Danskt brúðkaup í
Akur eyr arkirkj u