Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HVER þorir að taka það að sér að vera kúasmalinn? SAA greiði bætur vegna ólöglegrar uppsagnar HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi á miðvikudag SÁÁ, Samtök áhugafólks um áfengis- og vímu- efnavandann til að greiða fyrrver- andi ráðgjafa SÁÁ 600 þúsund krón- ur í skaðabætur vegna ólöglegrar uppsagnar hans 27. febrúar 1998. Manninum var sagt upp á þeim forsendum að hann hefði brotið ákvæði siðareglna SÁÁ og jafn- framt ráðningarsamning sinn, þar sem segir m.a. að starfsmaður eigi að hætta störfum þegar í stað hafi hann óleyfileg samskipti við sjúk- ling í meðferð eða innan árs frá lok- um meðferðar. Greindi SÁÁ og manninn á um hvort umrædd samskipti við konuna hefðu falið í sér umrætt brot og bar maðurinn það fyrir sig að konan hefði lokið meðferð í mars 1996 og að hann hefði kynnst henni í janúar 1998. , SÁÁ studdi sýknukröfu sína m.a. þeim rökum, að að lokinni meðferð á sjúkrastofnun hefði konan verið á göngudeild, sem teljist hluti með- ferðar og hefði hún síðar verið lögð inn til frekari meðferðar. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að orðalag í kjara- samningi hefði ekki náð til sam- skipta mannsins og konunnar í byrjun árs 1998 og ennfremur því, að manninum hefði ekki verið gef- AÐALFUNDUR Okkar manna, fé- lags fréttaritara Morgunblaðsins, verður haldinn í Morgunblaðshús- inu á morgun, laugardag, og hefst klukkan 13. Að fundi loknum verða afhent verðlaun í ljósmyndasam- keppni fréttaritara. I Okkar mönnum eru hátt í 100 fréttaritarar Morgunblaðsins á landsbyggðinni. Félagið heldur að- alfund annað hvert ár. Auk skýrslu stjórnar og venjulegra aðalfundar- starfa ávarpar ritstjóri Morgun- blaðsins fundinn og Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, opnar um- inn kostur á því að tjá sig um ástæður uppsagnarinnar eða honum veitt áminning eins og telja yrði skylt að gera samkvæmt 44. gr. og 21. gr. laga nr. 70/1996. Tekin hefur verið ákvörðun um að áfrýja málinu til Hæstaréttar, að sögn lögmanns SÁÁ. ræður um fréttir af landsbyggð- inni. Okkar menn og Morgunblaðið standa að samkeppni meðal frétta- ritaranna um bestu ljósmyndir frá árunum 1997 og 1998. Þátttaka er góð og að loknum aðalfundi verða afhent verðlaun fyrir bestu mynd- irnar í alls níu efnisílokkum. Sýning með verðlaunamyndunum verður sett upp í anddyri Morgun- blaðshússins. Sýningin verður opin frá mánudeginum 19. apríl til fimmtudagsins 6. maí næstkomandi, á afgreiðslutíma. Aðalfundur Okkar manna Rauð fjöður á Norðurlöndum Söfnun í þágu aldraöra Fjarsofnun Rauðu fjaðrarinnar á vegum Lions- hreyfingarinnar stendur nú sem hæst á Norður- löndum. Hér á landi nær söfnunin hámarki í dag. Með þeim peningum sem nú er safnað stendur til að styðja rannsóknir á öldrunarsjúkdómum, einkum Alzheimer, að sögn Daníels Þórarins- sonar sem er formaður landsnefndar söfnunar Rauðu fjaðrarinnar á Is- landi. Hvers vegna urðu öldranarsjúkdómar fyrir valinu núna? „Það er vegna þess að þjóðin er að eldast og sá hópur sem fær þessa sjúkdóma stækkar óðum. Við Islendingar verðum má segja karla og kerlinga elst í heimin- um, en með auknum meðalaldri koma þessir sjúkdómar meira í ljós. Við leggjum höfuðáherslu á að styðja rannsóknir á Alzheimer en auk þess munum við styðja við rannsóknir á beinþynningu og vinna að bættum neysluvenjum sem minnka líkur á beinþynn- ingu. Við munum styðja framfar- ir í umönnun aldraðra og bæta aðstæður aldraðra til almennrar líkamsþjálfunar. Þeir sem unnið hafa mikið en gerast svo kyrr- setumenn þurfa ekki síst á lík- amsþjálfun að halda en þannig er því háttað um margt eldra fólk í dag.“ - Er stutt við sömu málefni í þessari söfnun hjá hinum Norð- urlandaþjóðunum? „Það er þannig að 20% af söfn- unarfé hvers lands er ráðstafað í sameiginlegan vísindarannsókn- arsjóð en 80% er ráðstafað í hverju landi fyrir sig. Það er svo- lítið mismunandi eftir aðstæðum í hverju landi hvað lögð er áhersla á. En alls staðar er söfn- unarfénu ráðstafað í þágu aldr- aðra. Þessi söfnun er búin að vera í undirbúníngi í fjöldamörg ár og ákvörðun um að söfnunar- fénu skyldi varið í þágu aldraðra var tekin fyrir fjórum árum, það hittist hins vegar svo skemmti- lega á að nú er einmitt ár aldr- aði-a.“ - Er venjulegt að svona söfnun fari fram hjá öllum Norðurlanda- þjóðunum? ,Nei, þetta er í fyrsta skipti sem það er gert og ástæðan er sú að nú eru 50 ár liðin síðan Lions- hreyfingin hóf störf á Norður- löndunum. Við eigum að vísu hér ekki 50 ára starfsafmæli fyiT en árið 2001. Starf Lions á Norður- löndum byrjaði hins vegar í Svi- þjóð 1948 og breiddist svo út um Norðurlönd og nam hér land síð- ast, eða árið 1951. - Hvaða aðferðir eru notaðar við söfnunina? -------- „Við höfum í fyrri söfnunum selt fjöðr- ina með því að ganga í hús og standa á götu- hornum, núna er _____________ fjöðrin hins vegar gef- “' in ásamt kynningarbæklingi inn á öll heimili á landinu. Að þessu sinni notum við nýjustu tækni, við erum með opinn söfnunar- síma, númerið er 7505050, þar er tekið á móti framlögum. Auk þess nýtum við okkur Internetið í samvinnu við Islandsbanka. Vef- ur bankans er http://www.is- bank.is. Allir sem hafa aðgang að Internetinu geta farið inn á vef bankans og skráð þar framlög Daníel Þórarinsson ►Daníel Þórarinsson er fæddur í Reykjavík 1947. Hann tók stúdentspróf árið 1968 frá Menntaskólanum í Reykjavík og lauk prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla íslands 1973. Hann hefur starfað lengst af frá námslokum hjá Netasölunni og er aðaleigandi hennar. Daniel er kvæntur Ingu Norðdahl flugfreyju og eiga þau þijú börn. sín. Fólk getur einnig farið inn á heimasíðu bankans og skráð framlög sín þar, þeir sem eru með Heimabanka hjá íslands- banka geta auk þess lagt beint inn á söfnunarreikninginn. Það má einnig gera í öllum bönkum. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 515-26-505050.“ - Ottist þið ekkert að framlög fólks verði minni með þessum hætti en með gömlu aðferðinni? ,Nei, málstaðurinn nýtur mik- ils velvilja meðal fólks. Við njót- um einnig mjög góðs stuðnings Sjónvarpsins og Landssímans. Það verður rúmlega tveggja tíma söfnunarþáttur í Sjónvarpinu í kvöld og við verðum með á annað hundrað síma í Markhúsinu og í Ásgarði, félagsheimili Félags eldri borgara í Reykjavík. - Safnið þið líka hjá fyrirtækj- um? „Já, fyrirtæki hafa tekið söfn- uninni mjög vel. Við höfum leitað til fyrirtækja með gjafabréf og óskað eftir framlögum sem fyrir- tækin senda staðfest á faxi til Lionsskrifstofunnar, viðtökur hafa verið mjög góðar. Við mun- um sýna þeim fyrirtækjum sem styrkja okkur myndarlega ofur- lítinn þakklætisvott með því að færa þeim að lokinni söfnun blómavasa með merki söfnunar- innar.“ - Er fleira nýtt í starfsháttum ykkar við söfnunina núna? „Já, í fyrrnefndum kynningar- bæklingi sem við dreifðum í öll hús er spurningaleik- ur frá Mjólkursam- sölunni, tengdur fjör- mjólk. Ástæða þess að Lionshreyfingin kaus að taka upp “ þetta samstarf er sú að í fjörmjólk er mikið kalk og vítamín, sem er nauðsynlegt til þess að líkaminn taki kalkið til sín. Aukin neysla á fjörmjólk er góð leið til þess að berjast gegn beinþynningu og hentar því mjög vel öldraðum. Rétt er að geta þess að fólk getur látið mæla í sér beinþéttni á mjög auðveldan og sársaukalausan hátt og hafa læknar milligöngu þar um.“ Alls staðar er söfnunarfénu ráðstafað í þágu aldraðra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.