Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 674IT
________BRÉF TIL BLAÐSINS__
Lausn á Kosovo-deilunni
Frá Guðmundi Rafni Geii'dal:
MÉR ER sagt af aðilum sem ég
þekki innan Bandaríkjanna að
ástæðan fyrir að Bill Clinton vilji
halda áfram loftárásum á hernað-
armannvirki Serba sé að hann sé
að vonast eftir sigiá í einu utanrík-
ismáli til að fá rós í hnappagatið
eftir Móníku-slysið. Einnig er
talið að Bretar tefli sér fram með
virkum hætti í þessu máli til að
korria fram sem stórveldi innan
Evrópu. En aðrar þjóðir sem eiga
aðild að NATÓ eru ekki eins
hressar með þetta. Þannig hafa
Grikkir mótmælt loftárásunum,
Italir hafa hvatt til samningavið-
ræðna og Frakkar fara sínar leið-
ir.
Viðkvæmasta atriðið í þessu er
það sem Geir Waage benti á í ný-
legri Morgunblaðsgrein, að vera
kunni að NATÓ sé að brjóta lög
um sjálft sig með því að ráðast á
fullvalda ríki, og það innan Evr-
ópu, og hlutast til um snúið inn-
anríkismál, og persónugera
vandamálið í kringum Milosevics,
þegar stjórnarandstaðan og
meira að segja hluti stjórnmála-
manna Kosovo-Albana er á móti
loftárásum. Að vísu hefur verið
reynt að fara samningaleiðina í
gegnum bandamenn Serba,
Rússa, en það gengur hægt, eins
og sjá mátti af niðurstöðu fundar
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
og Rússa á dögunum. Eðlilegast
væri að gefa Sameinuðu þjóðun-
um aukið rými til að hlutast til
um þetta mál og að þeir séu stýr-
andi aðili, líkt og í Persaflóastríð-
inu.
Önnur lausn er að móta alþjóð-
lega samstöðu um að alþjóðalög og
reglur séu virtar og sú leið sé
styrkt með fjölda samþykkta
margs kyns samtaka og félaga.
Þessa leið hefur hið lúterska
heimssamband farið og fleiri
kirkjuráð eins og sr. Þorbjörn
Hlynur Arnason, prófastur, hefur
bent á.
Ég átti þess kost að hlusta á
fyrirlestur í Vermont háskólanum
sem heyrir undir Noi-wich háskól-
ann (sem er herskóli) í Bandaríkj-
unum síðastliðið haust. Sá sem
flutti fyrirlesturinn var flugliðs-
foringi og hafði starfað í friðar-
gæslusveitum Sameinuðu þjóð-
anna undanfarin tvö ár í Bosníu.
Hann sagði að sagan væri rótgró-
in í minni fólksins á þessu svæði
og jafnvel þótt sumt sem fólk hefði
gripið í sig um forfeður sína væri
sannanlega rangt að mati fræði-
manna, þá héldi sama sagan
áfram. Þannig teldu Kosovo-Alb-
anir að þeir væru komnir af Alex-
ander mikla þó það væri rangt og
Serbar ríghéldu í að þeir vildu
hefna sín á Kosovo-Albönum fyrir
að hafa tapað í stríði við Tyrkja-
sóldán á svonefndum Ki-ákuvöll-
um (sem eru staðsettir í Kosovo)
árið 1389 þrátt fyrir að veldi
Tyrkja væri löngu liðið undir lok.
Hans mat var að til að skilja þær
flóknu deilur sem ættu sér stað á
þessu svæði þyrfti að komast inn í
hvernig fólk væri innrætt frá
blautu barnsbeini.
Hann sagði jafnfi-amt að Banda-
ríkjastjórn vissi hve mikil púður-
tunna Balkanskaginn í heild sinni
væri. Hann rétti fram tvær skýrsl-
ur því til vitnis og önnur var sér-
stök forsetaskýrsla frá í fyrra. Þar
var minnt á að fyrri heimsstyrj-
öldin hefði hafist á þessu svæði og
að hættulegasta svæðið varðandi
alþjóðadeilur sem gætu magnast
væri í Kosovo, Makedóníu og þar í
grennd.
Þegar fyrirspurnir hófust
spurðu Bandaríkjamenn í salnum
hvort ekki mætti leysa málið með
því að senda leyniskyttu á Milos-
evics eða þá sérsveit og bana hon-
um. Flugliðsforinginn tók ekki
undir slíka lausn þó hann tæki
undir að Milosevics væri vissu-
lega grimmur. Þá spurði ég hann
hvort samræður milli manna
hefðu verið reyndar, en slíkt væri
talin góð lausn meðal lútersku
kirkjunnar þegar um flókin mál
væri að ræða sem tengdust ólík-
um skoðunum fólks. Hann tók
undir þetta og sagði að hann og
flugliðsforingjar Serba og Króata
hefðu hist eftir Bosníustríðið. Til
að byrja með hefðu þeir hnakkrif-
ist enda svarnir óvinir en
smámsaman skyldu þeir sjónar-
mið hver annars og enduðu sem
bestu vinir.
Mín tillaga er því að við íslend-
ingar reynum að setja okkur inn í
allar hliðar málsins, og fá til dæm-
is Serba og Kosovo-Albana sem
hér búa til að fræða okkur meira
um deilurnar í sínum heimalönd-
um. I framhaldi af því mætti at-
huga hvort koma mætti á samræð-
um við Serba í Serbíu og reyna að
fá þá til að gera sér grein fyrir að
hið alþjóðlega samfélag sættir sig
ekki við ofbeldi þeirra gegn
Kosovo-Albönum og að þeh- verði
að finna ásættanlegar leiðir til að
eiga samskipti við þá síðarnefndu.
Með því mætti leysa málið innan-
lands.
GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL,
skólastjóri.
iilAGER
OQ bMCPOK»«’
NÝTT KORTATIMABIL
í dag og föstud. kl.
Opid
9-18
HREYSTI.
SportVÖRUÍlUS
Fosshálsi 1 - Sími 577-5858
FYRIR HEIMILIEDA SUMARBÚSTAÐINN
ÚR GEGIMHEILU MAHOGNY
Dekor
Stóll
Verð kr. 6.900
Dekor
Borð
140x80 -Verð kr. 19.000
80x80 - Verð kr. 12.900
Handskorinn bekkur
Verð kr. 19.900
Mikið úrval af gjafavöru
Opið laugardag kl. 10.00-18.00,
Sendum í póstkröfu
Freemannshúsinu, Bæjarhrauni 14, Hf.
Sími 565 3710.
1