Morgunblaðið - 16.04.1999, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framsóknarmenn í Borgarbyggð slíta bæjarstjórnarsamstarfí
Bæjarstj óranum
sagt upp störfum
ÞRÍR bæjarfulltrúai- Framsóknar-
flokksins í bæjarstjóm Borgar-
byggðar, sem myndað hafa meiri-
hluta með tveimur fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, slitu samstarfinu í
bæjarstjóminni í gær. Jafnframt
var samþykkt tillaga þeirra um að
segja upp Ola Jóni Gunnarssyni
bæjai'stjóra, sem er annar bæjar-
fulltmi sjálfstæðismanna. Lætur
hann af störfum í dag.
Guðmundur Guðmarsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins og
forseti bæjarstjórnar, segir að sam-
starfsslitin eigi sér langan aðdrag-
anda og að samstarfsörðugleikar
hafi verið sívaxandi. Hann vildi ekki
nefna einn málaflokk öðmm fremur
í þeim efnum en sagði þó að brotið
hefði endanlega á sorphirðumálum.
A bæjarstjómarfundinum í gær
lá fyrh- tillaga fulltrúa sjálfstæðis-
manna um að bjóða út sorphirðu,
sem fulltrúar framsóknarmanna
vora andvígir, og vildu fela ákveðn-
um aðila verkefnið. Tillaga sjálf-
stæðismannanna var samþykkt með
stuðningi fjögurra bæjarfulltrúa
Borgarbyggðarlistans. I framhaldi
af því lagði Guðmundur fram tillögu
um að bæjarstjóranum yrði sagt
upp. Var hún samþykkt með at-
kvæðum þriggja framsóknarmanna
gegn atkvæðum sjálfstæðismann-
anna. Fulltrúar Borgarbyggðarlist-
ans sátu hjá.
Óli Jón Gunnarsson, sem verið
hefur bæjarstjóri frá árslokum
1987, sagði að illa hefði gengið að
mynda meirihluta eftir síðustu
kosningar og segja mætti að það
hefði ekki tekist almennilega.
Hnöki-ar hefðu verið lengstum í
samstarfinu og ýmis önnur mál en
sorphirðan hefðu verið ágreinings-
efni.
Fulltrúai- Borgarbyggðarlistans
hafa þegar ritað fulltrúum beggja
flokkanna og farið fram á viðræður
um hugsanlegt samstarf. Óformleg-
ir fundir era ráðgerðir í dag og
næstu daga en hvorki Guðmundur
né Óli Jón vildu spá nokkru um
frekari framvindu.
Morgunblaðið/Sverrir
Reykjavík-
urflugvöll-
ur í Engey?
Á FUNDI borgarstjórnar í
gærkvöld lagði Júlíus Vífill
Ingvai-sson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, fram til-
lögu um að kanna hvort unnt
væri að flytja Reykjavíkurflug-
völl út í Engey. Vildi hann að
þetta yrði kannað í samhengi
við þá athugun sem stendur nú
yfir á uppbyggingu á fyllingum
á strandlengjunni á nokkrum
stöðum í borginni.
Júlíus Vífill sagði í samtali
við Morgunblaðið að vegteng-
ing gæti verið við Laugarnes, á
mótum Sæbrautar og Kringlu-
mýrarbrautar. Hann kvaðst
hafa fengið álit verkfræðinga á
því að þetta væri raunhæf til-
laga. Flugvöllur á þessum stað
myndi ekki rýra verðgildi fast-
eigna og ekki væri hætta á
truflun af völdum flugumferðar
enda væri aðflug að vellinum
að mestu yfir sjó.
Borgarfulltrúinn kvaðst sjálf-
ur engan veginn sannfærður
um að tillagan væri góð en hon-
um fyndist rétt að fá fagmenn
til að kanna hana enda væri
Ijóst að flugvöllur í Skerjafirði
væri ekki góður kostur.
Þriggja bíla
árekstur í
Hafnarfírði
TVEIR menn voru fluttir á
slysadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur á ellefta tímanum í gær-
kvöldi þegar þrír bílar skullu
saman á gatnamótum Flata-
hrauns og Fjarðarhrauns í
Hafnarfirði.
Slysið varð með þeim hætti
að bfl var beygt af Flatahrauni
norður Fjarðarhraun í veg fyr-
ir bíl sem ekið var vestur Flata-
hraun. Ekki er ljóst með aðild
þriðja bílsins. Bflamir voru all-
ir óökufærir og varð að flytja
þá alla brott með dráttarbfl.
Heildarkröfur í þrotabú Foldu nema 156 milljónum
Ekkert fæst upp í
almennar kröfur
HEILDARKRÖFUR sem lýst var
í þrotabú ullariðnaðarfyrirtækisins
Foldu námu 156 milljónum króna.
Þar af vora forgangskröfur 7 millj-
ónir króna, almennar kröfur námu
48 milljónum króna og veðkröfur
101 milljón króna. Alls var 73 kröf-
um lýst í búið.
Skiptafundur I þrotabúinu verður
í dag, föstudag, og gerir Ólafur
Birgir Árnason skiptastjóri ráð fyrir
að skiptum verði lokið á þeim fundi.
Folda var lýst gjaldþrota um miðjan
desember síðastliðinn, en þrátt fýrir
tilraunir tókst ekki að endurreisa
ullariðnaðinn á Gleráreyram. Búið
er að selja tæki til ullarvinnslunnar
til Hvammstanga og pijónalínan var
seld til Skagastrandar, en Sjóklæða-
gerðin hóf fyrr á árinu starfsemi í
húsnæði Foldu og er þar unnið að
saumaskap. Fimmtán fyrrverandi
starfsmenn Foldu af ríflega 30
fengu vinnu hjá Sjóklæðagerðinni.
Engar eignir fundust í búinu að
heitið gæti að sögn skiptastjóra
þannig að ekkert fæst upp í al-
mennar kröfur. Landsbanki Is-
lands lýsti stærstu kröfunni í búið,
105 milljónum króna, og dótturfé-
lag hans, Hömlur, lýsti 15 milljóna
króna kröfu í búið. Landsbankinn
átti fasteign þá sem Folda var í,
vélar og tæki. Þá átti bankinn veð
í birgðum og útistandandi skuld-
um.
Fram-
kvæmdir
hafnar við
Kirkjutorg
FRAMKVÆMDIR eru hafnar
við Kirkjutorg í Reykjavík sem
Hggur við Dómkirkjuna og Al-
þingishúsið. Torgið verður
hellulagt, þ.e. gatan og hluti
Templarasunds, og er kostnað-
aráætlun fyrir verkið 90 millj-
ónir kr. Verkið verður unnið
jafnhliða viðgerð á Dómkirkj-
unni í nokkrum áföngpim og
ráðgert að því verði lokið í
október nk.
Dómar fyrir
brot á lög-
um um virð-
isaukaskatt
ÞRÍTUGUR Kópavogsbúi var
í gær dæmdur í tveggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi og
500 þúsund króna sekt fyrir
brot gegn lögum um virðis-
aukaskatt og brot gegn lögum
um bókhald og lögum um árs-
reikninga. Rúmlega sextug
kona, sem var meðákærð í mál-
inu, var dæmd í þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi og
einnar milljónar króna sekt
fyrir sömu brot.
Þeim var gefið að sök að
hafa ekki staðið Sýslumannin-
um í Kópavogi skil á virðis-
aukaskatti sem innheimtur
hafði verið í nafni hlutafélags
þeiiTa á árunum 1993 og 1994
samtals að fjárhæð 2,6 milljón-
ir króna á þeim tíma sem
hlutafélagið stóð að rekstri
veitingastaðar á Laugavegi í
Reykjavík.
Ákærðu var einnig gefið að
sök og sakfelld fyrir að hafa
látið undir höfuð leggjast að
halda lögboðið bókhald og gera
ársreikninga vegna rekstrar
hlutafélagsins á umræddu
tímabili.
Hæstiréttur
Kópavogslög-
reglan ekki
utan starfs-
svæðis síns
HÆSTIRÉTTUR hefur með
dómi sínrnn skipað Héraðsdómi
Reykjaness að taka til efnis-
meðferðar mál, sem héraðsdóm-
ur vísaði frá dómi hinn 31. mars
með úrskurði sínum og varðar
hraðakstursákæru á hendur
ökumanni á grandvelli radar-
mælingar Kópavogslögi’eglunn-
ar hinn 19. ágúst á síðasta ári.
Héraðsdómur hafði tekið
frávísunarkröfu ökumannsins
gilda á þeim forsendum að lög-
regluþjónarnir hefðu verið ut-
an starfssvæðis síns þegar
mælingin fór fram, samkvæmt
ákvæðum í 7. gr. lögreglulaga
nr. 90/1996, sbr. lög nr. 29/1998
og því hefði þeim verið óheimilt
að gera þá hraðamælingu með
ratsjá, sem lögð var til grund-
vallar ákæru. Hæstiréttur
féllst hinsvegar ekki á að lög-
regluþjónarnir hefðu farið út
fyrir starfssvæði sitt.
I dómi Hæstaréttar segir að
samkvæmt meginreglu 1. mgr.
7. gr. lögreglulaga nr. 90/1996
hafi lögreglumenn lögregluvald
hvar sem er á landinu. Ekki yrði
á það fallist að það að lögreglu-
menn hefðu farið í umrætt sinn
út fyrir starfssvæði sitt, sbr. 2.
mgr. sömu greinar laganna,
leiddi til þess að á verkum
þeirra og rannsóknargögnum
yrði ekki byggt.
Sérblöð í dag
SSÍPJR
Á FÖSTUDÖGUM
líf
Keflvíkingar fögnuðu sigri í
Njarðvík / C5
•••••••••••••••••••••••••••••«
KR-ingar sækja um leyfi til
útvarpsreksturs / C4
Fyigstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbi.is