Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 13
FRETTIR
Alþingismenn um ummæli formanns Tryggingaráðs um almannatryggingakerfíð
Vilji almennt til
að einfalda kerfið
INGIBJORG Pálmadóttir,
heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, segir að þó gerð verði
grundvallarbreyting á al-
mannatryggingunum, verði auknir
fjánnunir ekki til við það eitt. Það
sé hins vegar forgangsmál að bæta
enn kjör þeirra sem verst séu sett-
ir, en Bolli Héðinsson, formaður
Tryggingaráðs, sagði í viðtali í
Morgunblaðinu að nauðsynlegt
væri að fram færi heildarendur-
skoðun á almannati-yggingakerf-
inu, sem fæli meðal annars í sér
fækkun bótaflokka. Einnig kom
fram að hann teldi að auka þyrfti
sjálfstæði Tryggingastofnunar og
að breyta fjármögnun á þjónustu
sjúkrahúsa. Morgunblaðið ræddi
við heilbrigðisráðherra og fulltrúa
stjórnmálaflokkanna í heilbrigðis-
og trygginganefnd Alþingis um
þessi sjónai-mið.
Þjóðarsátt um grundvallar-
atriði fyrst nauðsynleg
„Vegna vangaveltna formanns
Tryggingaráðs um gjörbyltingu al-
mannatryggingakerfisins er nauð-
synlegt að fyrst náist þjóðarsátt
um grundvallaratriði velferðar-
kerfisins. Þess vegna mun ég beita
mér fyrir að þjóðarsátt náist um
velferðarsáttmála sem verður
grundvöllurinn og leiðarljósið að
endurskoðun og breytingum á al-
mannatryggingakerfinu," sagði
Ingibjörg.
Hún sagði á þessu kjörtímabili
hefðu náðst fram mikilvægar rétt-
arbætur fyrir aldraða og öryrkja.
Þar vildi hún helst nefna aukið
réttaröryggi með skipun sérstakr-
ar úrskurðarnefndar almanna-
trygginga, aukið svigrúm til eigin
tekjuöflunar, dregið hefði verið úr
jaðaráhrifum, örorka væri nú skil-
gi'eind eftir læknisfræðilegum
stöðlum og á kjörtímabilinu hefðu
bætur hækkað umfram launavísi-
tölu og almennar launahækkanir í
landinu.
„Formaður Tryggingaráðs veltir
líka vöngum um kaup og sölu á
heilbrigðisþjónustu. Til þess að
hægt sé að kaupa eða selja þarf að
vita nákvæmlega hvað hluturinn, í
þessu tilviki þjónustan, kostar. Á
síðustu 3-4 árum hefur verið unnin
mjög mikil vinna inni á sjúkrahús-
um og sjúkrastofnunum í kostnað-
argreiningu þeirra verka sem þar
eru unnin. Sú kostnaðargreining er
undirstaða þess að unnt verði að
breyta fjánnögnunaraðferðum í
heilbrigðisþjónustunni þannig að
a.m.k. hluti fjármagnsins komi fyr-
ir unnin verk og afköst. Það er ekki
raunhæft að taka ákvarðanir um
framhaldið fyrr en þessi grundvöll-
ur liggur fyrir. Ekki má gleyma því
að þótt greiðsluforminu væri
breytt, verða ekki til nýir peningar
við það eitt,“ sagði Ingibjörg.
Hún sagði að fylgst hefði verið
mjög vel með þeirri þróun sem átt
hefði sér stað í nágrannalöndum
okkar, t.d. á Norðuriöndunum og
annars staðar í Evrópu þar sem
rekstur sjúkrahúsa hefði verið
færður meira í horf þjónustusamn-
inga. Það hefði gengið misjafnlega
og margir hnökrai- komið upp, enda
væri mjög flókið að skilgreina til
hlítar starfsemi hátæknisjúkrahúsa.
Fulltrúar stjórnmála-
flokkanna í heilbrigðis-
og trygginganefnd Al-
þingis eru almennt
sammála um nauðsyn
endurskoðunar al-
mannatryggingakerfls-
ins. Hins vegar eru
skiptar skoðanir um
breytingar á fjármögn-
un sjúkrahúsa.
Ingibjörg
Pálniadóttir
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
„Þess vegna höfum við farið þá
leið að byrja á gerð þjónustusamn-
inga við þá aðila sem hafa með
höndum einfaldari rekstur og hafa
þegar verið gerðir slíkir samningar
við hjúkrunarheimili og eitt sjúkra-
hús á landsbyggðinni; Sjúkrahús
Skagfirðinga. A næstu dögum
verður síðan undirritaður samning-
ur við Sjúkrahúsið í Stykkishólmi
og fleiri samningar era á lokastigi.
Á þessu kjörtímabili hefur heil-
brigðisráðuneytið farið þessa leið í
ríkari mæli en önnur ráðuneyti,"
sagði Ingibjörg einnig.
Verður að gera kerfíð
einfaldara og réttlátara
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ur alþingismaður, sem situr í heil-
brigðis- og trygginganefnd fyrir
hönd Samfylkingarinnar, segist
vera alveg sammála Bolla hvað
varðar það að einfalda almanna-
tryggingakerfið. Það verði að gera
það einfaldara og réttlátara, því
kerfið sé óskapnaður eins og það sé
í dag. Það geri það að verkum að
fólk sem þurfi að treysta á þetta
kerfi geti í rauninni ekki gert það.
Hún sagði að það væri líka ann-
að sem þyrfti að gera. „Það þarf að
tryggja lágmarkaframfærslu fyrir
þá sem era algjörlega upp á al-
mannatryggingarnar komnir, þ.e.
að bæturnar séu ekki undir fram-
færslumörkum," sagði Ásta Ragn-
heiður.
Hún sagðist einnig vera alveg
sammála því að skoða þyrfti sam-
skipti Tryggingastofnunar og
sjúkrahúsanna. Sjúkrahúsin væra
bæði rekin fyi-ir framlög á fjárlög-
um og hluti færi í gegnum Ti-ygg-
ingastofnun. Kerfið þyrfti að vera
einfaldara og skýrara.
Hún sagði að eftir að hafa starf-
að í Tryggingastofnun og unnið að
þessum málum yi-ði henni alltaf
ljósari og ljósari þörfin á einföldun
kerfisins og að gera það skil-
virkara. Það væri mjög brýnt að
endurskoða kerfið og aðlaga það
breyttum þjóðfélagsháttum, enda
Sólveig
Pótursdóttir
Ögmundur
Jónasson
sé það eitt af mörgum stefnumál-
um Samfylkingarinnar í velferðar-
þjónustunni að taka á þessum
þætti.
Fólk viti almennt
um rétt sinn
„Ég er sammála formanni
Tryggingaráðs um að þörf sé á
endurskoðun almannatrygginga-
kerfisins og tel hugmyndir hans at-
hyglisverðar. Ég þekki sjálf vanda-
málin, þar sem ég sat í Trygginga-
ráði um árabil," sagði Sólveig Pét-
ursdóttir alþingismaður, sem situr
í heilbrigðis- og trygginganefnd
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.
Hún sagði að þessi mál hefðu
mikið verið rædd innan Sjálfstæð-
isflokksins og væri til dæmis víða
komið inn á þau í landsfundará-
lyktunum flokksins. „Þannig er
lögð áhersla á það í ályktun um
ti-yggingamái að allt almanna-
tryggingakerfið verði einfaldað og
að skoðað verði hvernig megi
breyta sjúkrati'yggingakerfinu
þannig að það sýni glöggt að um
raunverulegt tryggingakerfi sé að
ræða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
um árabil lagt það til að sjúkra-
tryggingakerfið verði endurvakið.
Þannig er nú ítrekað í landsfundar-
ályktunum um heilbrigðismál að
komið verði á kerfi sjúkratrygg-
inga sem greiði fyrir þjónustu við
sjúklinga í samræmi við kostnað.
Eldri borgarar í Sjálfstæðisflokkn-
um hafa ennfremur lagt mikla
áherslu á endurskoðun og einföld-
un almannatryggingakerfisins. Það
er auðvitað staðreynd að hér er um
afskaplega flókið kerfi að ræða
sem þarf að taka til gagngerrar
endurskoðunar. Það er auðvitað
ljóst að við þurfum að skoða vel
stöðu þeirra sem njóta bóta úr al-
mannatryggingakerfinu og lagfæra
til dæmis með því að draga úr
tekjutengingu bóta. En það er þó
ekki síst mikilvægt að kerfið sé
þannig úr garði gert að fólk viti al-
mennt um rétt sinn ásamt því að
njóta betri þjónustu,“ sagði Sólveig
ennfremur.
Endurskoðun löngu
tímabær
Ögmundur Jónasson alþingis-
maður, sem er áheyrnarfulltrúi í
heilbrigðis- og trygginganefnd,
Vinstri hreyfingunni - grænu
framboði, segist sammála því að
löngu sé orðið tímabært að endur-
skoða almannatryggingakerfið,
einfalda það og bæta. „Þessa end-
urskoðun þarf að framkvæma með
hliðsjón af skatta- og lífeyriskerfi.
Öll þesssi kerfi þarf að samhæfa.
Að öðrum kosti sitjum við uppi
með niðurstöður sem era allt aðr-
ar en þær sem vöktu fyrir mönn-
um þegar þeir krukkuðu í kerfin
hvert um sig. Dæmi um þetta eru
jaðarskattar á aldraða, sem ég
held að fæstir mæli bót, enda hef-
ur þar keyrt úr hófi,“ sagði Ög-
mundur.
Hann sagði að þó menn væra
sammála um það í orði væri svo
ekki í reynd. „Ég vil vekja athygli
á því að sú ríkisstjóm sem nú er að
ljúka kjörtímabili sínu sveik fyrir-
heit um heildarendurskoðun á
þessum málum. Nefnd var að vísu
sett á laggirnar í byrjun kjörtíma-
bilsins en eftir að hún hafði komið
saman einu sinni eða tvisvar var
hún látin sofna svefninum langa.
Þessa vinnu þarf að hefja að nýju
og fylgja henni síðan markvisst eft-
ir í framkvæmd," sagði Ögmundur
ennfremur.
Hann sagði að þótt hann væri
sammála Bolla Héðinssyni um
þetta atriði gæti hann ekki tekið
undir það sjónarmið hans að ráð-
herra skipi einn í nefndir, að það
heyri sögunni til að leita eftir til-
nefningum í vinnunefndir sem
víðast að og úr mismunandi póli-
tískum áttum. Þann ósið hafi
stjórnvöld að vísu verið að taka
upp í sífellt ríkari mæli á undan-
förnum áram og það sé mjög í
anda Margrétar Thatcher á sínum
tíma en hún hefði skipað íhalds-
menn í allar nefndir og öll ráð á
vegum hins opinbera í sinni
stjórnartíð. „Fyrir bragðið urðu
til lausnir sem ekki byggðu á yfir-
sýn og um þær lausnir skapaðist
aldrei sátt í þjóðfélaginu. Nefndir
sem eru skipaðar af einum ráð-
herra era ekki lausnarorð í lýð-
ræðisþjóðfélagi," sagði Ögmund-
ur.
Hann sagði varðandi kerfis-
breytingar að öðru leyti, sem vik-
ið væri að í viðtalinu við Bolla
Héðinsson og þá einkum hvað
varðaði kaup Tryggingastofnunar
ríkisins á þjónustu sjúkrahúsa,
kynni það að hafa ýmsa kosti í för
með sér en einnig ókosti. „Ég tel
að menn vanmeti ábyrgðarkennd
sjúkrastofnana í fjárfestingum.
Þær þurfa á meira fjármagni að
halda, ekki meiri markaðsteng-
ingu. Ég held að þær kerfisbreyt-
ingar sem þarna er talað fyrir búi
ekki til peninga og ég á erfitt með
að sjá að þetta leiði til hagkvæm-
ari nýtingar fjármagns. Hitt gæti
gerst að sjúkrastofnanir for-
gangsröðuðu aðgerðum og sjúk-
lingum eftir því hvað þeir gefa í
aðra hönd. Slíkt væri ávísun á
mismunun,“ sagði Ögmundur
einnig.
Glæsilegur
undirfatnaður
í skólasíærðum AA-A-B-C-D-DD-E-F
>é
INTIMU IIALIANU
WARNERIS
QD
VALENTINO
INTIMO
Aubade
LINGERIE DE FEMME
BODYSLIMMERS
NANCY GANZ
o
^ \M/
U
__________________UNDIRFATAVERSLUN,
1. hæð Kringlunni,
v— 7 sími 553 7355