Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
r
Utboð hlutabréfa
Handsals hf.
viðskipti
Sala hlutabréfa FBA og Kaupþings í Baugi að hefjast
Sala á hlutabréfum í Handsali hf.
hefst mánudaginn I 9. apríl næstkomandi
og stendur yfir til I 5. maí I 999.
Starfssvið: Tilgangur félagsins er verðbréfamiðlun gegn
þóknun, veiting sölutrygginga á markaðsverðbréfum og
að öðru leyti að annast verðbréfaviðskipti eins og þau
eru skilgreind í lögum á hverjum tima, fjárvarsla fyrir
einstaklinga og lögaðila og skyld starfsemi.
Tilgangur útboðsins: Til að styrkja eiginfjárstöðu félagsins.
A aðalfundi félagsins þann 12. mars 1999 var samþykkt
heimild til að auka hlutafé Handsals um allt að 89.930.948
krónur að nafnverði.
Heildarnafnverð hlutabréfa: Allt að kr. 89.930.948 að
nafnverði af nýju hlutafé.
Sölugengi í forkaupsrétti: 1,0 til forkaupsréttarhafa til
5. maí 1999.
Sölugengi í almennu útboði: Gengi ákveðið með hliðsjón
af markaðsaðstæðum á fyrsta söludegi. Gengi á almennum
markaði getur breyst eftir að forkaupsréttartímabili lýkur
og tekur mið af markaðsaðstæðum þar til því lýkur.
Upplýsingar um gengi má finna hjá söluaðila.
Söiutímabil: Forkaupsréttartímabil 19. aprfl - 5. maí 1999.
Almennt útboð 6. maí -15. maí 1999.
Upplýsingar: Útboðslýsing liggjur frammi á skrifstofu
Handsals hf.
Umsjón með útboði og milliganga við skráningu:
HANDSALX
BlVSaNVH
HANDSAL HF
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI
sími 510 1600, fax 588 0058
kt. 550191-1729
Engjateigi 9, 105 Reykjavík.
Auglýsing um starfsleyfístillögur
Dagana 16. apríl til 11. júní nk. munu starfsleyfistillögur
neðangreindra fyrirtækja í Reykjavík, skv. gr. 70 í
mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994, með síðari breytingum liggja
frammi hjá Upplýsingaþjónustunni í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Fyrirtæki/gildistími starfsleyfis í árum
Allrahanda, bifreiðaverkstæði/5
Alþrif, bón- og bílaþvottastöð/10
Bensínorkan ehf., bensínstöð/5
Dýralæknastofa Dagfinns, dýralæknastofa/5
Efnalaugin Björg, efnalaug/5
Höfðabón, bón- og bílaþvottastöð/10
Kar ehf., bifreiðaréttingar og -sprautun/5
Kópsson Bílaþrif, bón- og bflaþvottastöð/10
Mólar ehf., tannlækningar og -réttingar/8
Oktan ehf., bensínstöð/5
Heimilisfang
Gylfaflöt 9, 112 Rvk.
Dugguvogur 2, 104 Rvk.
Kringlan 8-12, 103 Rvk.
Skólavörðustígur 35, 101 Rvk.
Háaleitisbraut 58-60
Borgartún 19, 105 Rvk.
Bæjarflöt 10, 112 Rvk.
Bfldshöfði 6, 112 Rvk.
Snorrabraut 29, 105 Rvk.
Ægisíða 102, 107 Rvk.
Olíufélagið hf., smurstöð, bifreiðaverkst. og þvottastöð/8 Geirsgata 19, 101 Rvk.
Ryðvamarskálinn, bón- og bflaþvottastöð/10
Ýris ehf., ljósmyndastofa/10
Tannlæknadeild Háskóla íslands/10
Tannlæknastofa Birgis J. Dagfinnssonar/10
Tannlæknastofa Björgvins Jónssonar/10
Tannlæknastofa Guðmundar Amasonar/5
Tannlæknastofa Gunillu/8
Tannlæknastofa Gylfa Felixsonar/10
Tannlæknastofa Hauks Steinssonar/5
Tannlæknastofa Ir.gunnar Mai Friðleifsdóttur/10
Tannlæknastofa Karls Guðlaugssonar/10
Tannlæknastofa Karls Amar Karlssonar/5
Tannlæknastofa Kjartans Arnar Gylfasonar/8
Tannlæknastofa Kjartans Þorbergssonar/8
Tannlæknastofa Kristínar Sigurðardóttur/10
Tannlæknastofa Matthíasar Sigurðssonar/8
Tannlæknastofa Oddgeirs Gylfasonar/10
Tannlæknastofa Rolfs Hanssonar/10
Tannlæknastofa Sveinbjöms Jakobssonar/10
Tannlæknastofa Sæbjöms Guðmundssonar/5
Tannlæknastofa Tómasar Á. Einarssonar/5
Tannréttingastofa Ólafar Helgu S. Brekkan/5
Tiba sf., tannlækningar/8
Sóltún 5, 105 Rvk.
Þararbakki 3, 109 Rvk.
Vatnsmýrarvegur 16, 101 Rvk.
Síðumúli 25, 108 Rvk.
Síðumúli 25, 108 Rvk.
Þingholtsstræti 11
Snorrabraut 29,105 Rvk.
Síðumúli 28, 108 Rvk.
Þingholtsstræti 23, 101 Rvk.
Síðumúli 28, 108 Rvk.
Stórhöfði 17, 112 Rvk.
Þingholtsstræti II, 101 Rvk.
Hverafold 1-3, 112 Rvk.
Háaleitisbraut 58-60, 108 Rvk.
Stórhöfði 17, 112 Rvk.
Suðurgata 7, 101 Rvk.
Síðumúli 28, 108 Rvk.
Mörkin 6, 108 Rvk.
Stórhöfði 17, 112 Rvk.
Þingholtsstræti 11, 101 Rvk.
Þangbakki 8, 109 Rvk.
Miðstræti 12, 101 Rvk.
Hátún 2a, 105 Rvk.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða
nálægrar starfsemi.
2. íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir skulu vera skrifiegar og sendast Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur,
Drápuhlíð 14, 105 Reykjavík, fyrir 11. júní nk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Utrás í atliugiin
BAUGUR og Reitangruppen eru með í athugun samstarf félaganna í
rekstri lyfjaverslana í Noregi. Félögin hyggjast einnig kanna hvort grund-
völlur sé fyrir samstarfi í rekstri sjálfsafgreiðslubensínsstöðva.
Reitangi-uppen rekur sjálfsafgreiðslubensínstöðvar í Noregi, áþekkar
Bensínorkunni sem er hlutdeildarfélag Baugs. Jafnframt hefur verið rætt
um að félögin tvö eigi með sér samstarf í uppsetningu Bónusverslana utan
Islands, að því er fram kemur í útboðs- og skráningarlýsingu Baugs sem
gefin var út í gær vegna sölu hlutabréfa í eigu Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins, Kaupþings og Eignarhaldsfélagsins Hofs, sem hefst á mánudag.
Morgunblaðið/Þorltell
Sigurður Einarsson, stjómarformaður: Sfðasta ár var eitt hið viðburðarík-
asta í sögu fyrirtækisins. Þá var það m.a. skráð Aðallista Verðbréfaþings.
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Breytingar á
skaðabótalögum
hækka greiðslur
ÞRÁTT fyrir methagnað Trygg-
ingamiðstöðvarinnar sem skilaði
rúmlega 300 milljóna króna hagnaði
á síðasta ári varð 272 milljóna tap á
rekstri lögboðinna ökutrygginga en
einnig varð tap á þeim rekstri árið
1997. í ræðu sinni á aðalfundinum
vék Gunnar Felixson forstjóri að
þessu og sagði að tapið mætti meðal
annars rekja til þeirrar iðgjalda-
lækkunar sem varð í kjölfar þess að
erlend vátryggingafélög hófu starf-
semi hér á landi.
„Rétt er þó að benda á að hluta af
hinu mikla tapi ársins 1998 má
rekja til túlkunar dómstóla á skaða-
bótalögunum sem hafði þau áhrif að
hækka þurfti áætlaðar ógreiddar
slysabætur um 80-90 milljónir
króna frá fyrri árum,“ sagði Gunnar
og bætti við að . nýsamþykktar
breytingar á skaðabótalögum
myndu hafa í för með sér hækkaðar
tjónagreiðslur. ,Augljóst er að leið-
rétta þarf iðgjaldataxta þessarar
greinar hið fyrsta. Það getur ekki
gengið til lengdar að markaðurinn
reki stærstu grein vátrygginganna
með verulegu tapi.“
Aukin samkeppni í greininni
I ræðu sinni vék Gunnar að þeim
gríðarlegu breytingum sem orðið
hafa á vátryggingamarkaði hérlend-
is að undanförnu og þeim samruna
sem átt hefur sér stað meðal fyrir-
tækja á markaðnum síðastliðinn
áratug.
Gunnar sagði ljóst að samfara
fækkun innlendra félaga 'og tilkomu
erlendra vátryggingafélaga á hér-
&
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartáni 33
£jaæða flísar
^rfaparke.
£yóð verð
þjónusta
lendum markaði hafi samkeppni
aukist svo um munar. „Þetta gerist
á sama tíma og mikill uppgangur er
í íslensku efnahagslífi. Að öðru
jöfnu ættu miklar fjárfestingar í at-
vinnulífinu svo og aukinn bflafjöldi
landsmanna að þýða verulega aukn-
ar iðgjaldatekjur en vegna óvæg-
innar samkeppni bera íslensku vá-
tryggingafélögin nú miklu meii’i
áhættur fyrir minni iðgjöld."
Hann sagði þó að skýr merki
væru nú um að ástandið færi að
breytast þar sem erlendu sam-
keppnisaðilarnir væru greinilega að
tapa á starfseminni hér og hefðu
þegar tilkynnt um 10 prósenta
hækkun á sínum iðgjöldum.
Samruni TM og Tryggingar hf.
Á þessu ári er stefnt að samein-
ingu Tryggingamiðstöðvarinnar við
Ti-yggingu hf. og hefur af því tilefni
verið ákveðið að kaupa Aðalstræti 6
(gamla Morgunblaðshúsið) af
Reykjavíkurborg undir starfsem-
ina. Gunnar nefndi að ekki væri enn
búið að tímasetja sameininguna en
augljóst væri að hagkvæmast væri
að það gæti orðið sem fyrst. „Góður
samstarfsandi er meðal starfsfólks
félaganna í allri undirbúningsvinnu
sameiningarinnar og finnst mér það
lofa góðu um framhaldið. Með sam-
einingu starfskrafta mun Trygg-
ingamiðstöðin verða enn hæfari til
að þjöna nýjum sem gömlum við-
skiptavinum beggja félaganna,"
sagði Gunnar.
Á árinu var TM skráð á Aðallista
Verðbréfaþings íslands og er nú
eina vátryggingafélagið hérlendis
sem skráð er á VÞI. Áður hafði
hluthöfum fjölgað verulega og eru
þeir nú tæplega 900.
Aðalfundur samþykkti ýmsar til-
lögur stjórnar um breytingar á
samþykktum félagsins, meðal ann-
ars um rafræna skráningu hluta-
bréfa og að fjölga í stjórninni úr 5 í
7. í stjórn félagsins voru kjörnir
Ágúst Karlsson, Geir Zoéga, Har-
aldur Sturlaugsson, Jón Ingvars-
son, Magnús Bjarnason, Sigurður
Einarsson og Svavar B. Magnús-
son. Einnig var samþykkt að greiða
hluthöfum út 20 prósenta arð.
Gaumur ehf, sem á 25% hlut í
Baugi, er eignarhaldsfélag að mestu
í eigu stofnenda Bónuss, þeirra Jó-
hannesai’ Jónssonar og Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, forstjóra Baugs.
Gaumur á jafnframt eignarhluta í
ýmsum öðrum félögum, sem eru í
viðskiptum eða viðskiptatengslum
við Baug, svo sem Ferskar kjötvörur
ehf., Pönnu Pizzur hf. (Pizza Hut),
og Lyfjabúðir hf.
Þann 28. október 1998 gerðu FBA
og Kaupþing samning við Reitan-
gruppen um sölu á samtals 20%
eignarhlut í Baugi. Gerður var fram-
virkur samningur um þau kaup sem
gerður vai’ þann 15. mars sl. Samn-
ingurinn felur jafnframt í sér heim-
ild Reitangruppen til að selja FBA
og Kaupþingi samtals helming þess
hlutafjái- sem keypt var, eða sem
nemur 10% af hlutafé í Baugi, verði
um verulegar neikvæðar breytingar
að ræða í rekstri Baugs fram til 8.
desember 1999.
Þá hafa Gaumur og Reitan-
gruppen gert með sér samkomulag
sem felur í sér að Gaumur skuldbindi
sig til að selja ekki eignarhlut sinn í
Baugi meðan Reitangruppen á veru-
legan eignarhlut í Baugi.
STUTT ERLENT
Deutsche
þenst út
Frankfurt. Reuters.
• Deutsche Bank AG hefur flýtt þeirri
stefnu sinni að færa út kvíarnar með
því að kaupa 9,9% hlut í BIG bankan-
um í Pðllandi fyrir ótilgreinda upphæð.
BIG bankinn er einn hinna tíu
stærstu í Póllandi og sérfræðingar
telja að Deutsche hafi greitt 85 millj-
ónir dollara fyrir hlut sinn.
Sérfræöingar segja að BIG kaupin
séu hornsteinn fyrirætlana Deutsche
um að auka starfsemi sína í Póllandi
og muni líklega leiöa til þess að þýzki
bankinn kaupi hlut 1 fleiri pólskum
bönkum eða taki við rekstri BIG BG.
Sérfræðingar segia að útlendingar
hafi mikinn áhuga á að eignast
pólska banka til að fá aðgang að
markaði 40 milljóna manna í landi,
þar sem uppgangur sé mikill.
H&M færir út
kvíarnar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
• Það er sama hvort farið er um
Stokkhólm, París, Berlín eða Kaup-
mannahöfn: Alls staðar blasa við
veggauglýsingar sænsku fatakeðjunn-
ar Hennes & Mauritz, þar sem augna-
yndið þessar vikurnar er meðal ann-
ars leikarinn Johnny Depp. Ef fýrirætl-
un keðjunnar tekst verður brátt það
sama uppi á teningnum í New York
og síöan kannski t fleiri stórborgum
vestra. í New York er veriö að leita
búða á besta stað í borginni og með-
al annars beinist athyglin að fimmtíu
þúsund fermetra verslunarhúsnæði á
mörgum hæöum á horni 5. traöar og
51. strætis. Framgangur keðjunnar í
Evrópu er mikill. Um áramót voru 516
H&M búðir í tólf löndum og árlega eru
seldar 300 milljón H&M-spjarir.
Bætt afkoma
GM og Ford
New York. Reuters.
• General Motors og Ford bílafýrir-
tækin hafa skýrt frá bættri afkomu á
fýrsta ársfjóröungi og vó aukin sala í
Norður-Ameríku upp á móti veikleika í
Asíu og Rómönsku Ameríku.
GM jók hagnað sinn um 31% f 2,1
milljarö dollara, sem er met, eða
3,04 dollara á bréf- miðað við 1,6
milljaröa dollara, eða 2,27 dollara á
bréf, á sama tíma í fyrra. Sérfræðing-
ar höfðu spáð 2,89 dollurum á bréf.
Mikil sala Ford í Noröur-Ameríku vó
upp á móti veikleika í Evrópu og Suð-
ur-Ameríku. Rekstrarhagnaður fyrirtæk-
isins jókst í 1,8 milljarða dollara, eða
1,46 dollara á bréf, úr einum og hálf-
um milljarði, eða 1,29 dollurum á bréf.
Sérfræöingar höfðu spáð 1,39 dollur-
um á bréf fyrstu þrjá mánuði ársins.