Morgunblaðið - 24.04.1999, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
LANDBÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Gott kvöld!
Meö skemmtilegri
kvöldstund á Restaurant
Óöinsvé má gera gott
kvöld betra!
Glæsilegur veitingastaður með
spennandi rétti við allra hæfi.
RESTAURANT
Ó Ð I N S V É
Þórsgata 1 • Sími: 552 5090
...gerdu gott kvöld betraí
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Skoðunarstofa á
Hvammstanga
Hvammstanga - Vélaverkstæði
Hjartar Eiríkssonar á Hvamms-
tanga og Frumherji hf., skoðun-
arstofa í Reykjavík, hafa gert
með sér samkomulag um rekstur
á skoðunarstofu á Hvammstanga.
Stöðin verður í húsnæði véla-
verkstæðisins. Bjarki Sigurðsson,
starfsmaður Frumherja á Sauð-
árkróki, segir að skoðunarstof-
unni verði þjónað frá Sauðár-
króki og verði hún opin annan
hvern miðvikudag kl. 8-17.
Lyfta stöðvarinnar tekur allt
Fjallkonan
Drangsnesi - Fréttaritari Morg-
unblaðsins á Drangsnesi hitti
Fjaltkonu íslands á ferð sinni til
fjalla í blíðskaparveðri á dögun-
um. Þarna stóð hún hnarreist og
stolt og bar með sér svipmót
óblíðra náttúruafla hinna vest-
firsku fjalla. Aðspurð um ætt og
uppruna sagðist hún vera Vest-
firðingxir og ekkert annað.
Hvorki vildi hún tjá sig um kosn-
ingarnar eða kjördæmamálið.
Ekki kvaðst hún vera á leið að
flytja suður. Hún tæki frelsið og
fjöllin fram yfir það að standa
við búðarkassa í Smáranum.
Sendi hún landsmönnum öllum
bestu óskir um gott sumar.
að fjórum tonnum, þar með alla
fólksbíla og jeppa. Stærri bifreið-
ir verða skoðaðar utanhúss. Stöð-
in verður tölvutengd og verður
þar hægt að greiða bifreiðagjöld.
Hilmar Hjailarson, fram-
kvæmdastjóri og einn eigandi
VHE, sagði samninga um skoðun-
arstöð hafa staðið yfir í nokkurn
tíma. Nú geta Vestur-Húnvetn-
ingar komið í skoðunarstöð í
heimahéraði. Viðbrögð eru mjög
góð og á fyrsta degi voru um tutt-
ugu bifreiðar skoðaðar í stöðinni.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
Heilbrigðisstofnunin Húsavík tekur
sjúkraskrárkerfíð Sögu í notkun
Engar sjúkra-
skrár á
pappír lengur
niðm-stöður rannsókna eru einnig
PAPPÍR er nánast að hverfa úr
meðhöndlun og vinnslu með sjúkra-
skrár á sjúkrahúsinu og heilsu-
gæslustöðinni á Húsavík. Heilbrigð-
isstofnunin Húsavík, eins og hún
heitir nú, hefur samið við hugbúnað-
arfyrirtækið Gagnalind um að taka
upp sjúkraskrárkerfið Sögu og segir
Friðfinnur HermannSson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar-
innar, að tölvuvæðingin hafi gengið
hratt og vel fyrir sig en fram undir
þetta hafa tölvur lítið sem ekkert
verið notaðai- þar.
Aðeins er rúmt ár frá því farið var
að huga að aukinni tölvuvinnslu á
heilsustofnuninni en nýja kerfið var
tekið í notkun á heilsugæslunni
fyrsta nóvember og um áramótin
fyrir alla stofnunina. Friðfinnur seg-
ir aðalkost nýja kerfisins vera þann
að hægt sé að nota það á öllum deild-
um stofnunarinnar, þ.e. sjúkrahúsi
sem heilsugæslustöð og þar með úti-
búunum við Mývatn og Laugum í
Reykjadal. Hann segir að kerfið sé
einnig notað til að skrifa reikninga
fyrir læknisverk.
Sigurður Guðjónsson, yfírlæknir
Heilbrigðisstofnunarinnar Húsavík,
segir slíka tölvuvæðingu og pappírs-
laus samskipti það sem koma skuli í
heilbrigðisþjónustunni. Þegar einu
sinni sé búið að skrá sjúkling og til-
heyrandi upplýsingar inn í kerfið
geti læknir ávallt gengið að þeim
burtséð frá því á hvaða deild stofn-
unarinnar hann er að vinna. Segir
hann þetta mikinn kost enda eru
læknar stofnunarinnar bæði að
störfum á heilsugæslunni og deildum
sjúkrahússins svo og á fyrrgreindum
útibúum. Þá er kerfið notað til að
senda beiðnir um röntgenmyndir og
sendar um kerfið.
Yfírlæknirinn segir að ákveðið
hafi verið eftir talsverða skoðun að
taka upp sjúkraskrárkerfið Sögu
sem Gagnalind hefur þróað. Segir
hann það betra en önnur kerfi sem
forráðamenn stofnunarinnar kynntu
sér, það sé auðvelt í notkun og ör-
uggt í rekstri. Það sé ekki veiga-
minnsta atriðið því útilokað sé fyrir
heilbrigðisstofnun að notast við kerfi
sem hætti til að bila. Sigurður segir
kerfið þó ekki gallalaust og kerfi sem
þetta þurfi ákveðna aðlögun á hverj-
um stað og sífellt sé leitað leiða til að
gera það enn betra úr garði og sé
það ekki síst með góðu samstarfi við
starfsmenn Gagnalindar.
Heilbrigðisstofnunin Húsavík leig-
ir tölvubúnað en heilbrigðisráðu-
neytið leggur til Sögu-kerfið. Greiðir
stofnunin einungis fyrir uppsetningu
og aðlögun kerfisins en vélbúnaður-
inn er tekinn á leigu hjá Opnum
kerfum. Ekki gátu forráðamenn
stofnunarinnar tilgreint hvort um
beinan peningalegan sparnað væri
að ræða með þessum nýju vinnu-
brögðum en sáu ýmsa aðra kosti:
„011 vinnubrögð verða betri, það
er auðveldara að meðhöndla upplýs-
ingar, þær verða á allan hátt að-
gengilegri og kei-fið auðveldar lækn-
um, hjúkrunarfræðingum og öðru
heilbrigðisstarfsfólki að stunda
rannsóknir og vísindavinnu eftir því
sem leyfilegt er að nota upplýsingar
þaðan. Þá hefur kerfið í fór með sér
betri skráningu á tekjum og verður
því hluti af þeim stjórntækjum sem
stjórn sjúkrahússins getur notfært
sér í starfi sínu,“ segja þeir Sigurður
og Friðfinnur.
Árshátíð Grunnskóla
Fáskrúðsfj arðar
Kántrýbær fær-
ir út kvíarnar
Skagaströnd - Rekstraraðilar Kán-
trýbæjar á Skagaströnd gerðu ný-
lega samning við Olís hf. um að
taka að sér veitingarekstur í
Blönduskálanum á Blönduósi.
Verður veitingasalan þar rekin
undir nafninu Kántrýgrillið í fram-
tíðinni.
Að undanförnu hefur rekstur
Blönduskálans legið niðri vegna
fjárhagsörðugleika fyrri rekstrar-
aðila. Olís hf. er eigandi húsnæðis-
ins sem veitingasalan hefur verið í
og nú hafa náðst samningar milli
félagsins og Kántiýbæjar um
rekstur veitingasölu á staðnum.
Stefnt er að því að opna Kántrý-
grillið um næstu mánaðamót.
Að sögn Gunnars Halldórssonar
hjá Kántrýbæ er stefnt að sam-
vinnu og samnýtingu á milli Kán-
trýbæjar og hins nýja Kántrýgrills.
„Auðvitað er og verður bara til einn
Kántrýbær en kántrýandinn mun
svííá yfír vötnum á þessum nýja
stað. Þar ætlum við að þjóna þeim
sem ekki hafa tíma til að bregða sér
út á Skagaströnd í það skiptið til að
koma í hinn eina sanna Kántrýbæ,"
sagði Gunnar sem er bjartsýnn á að
reksturinn muni ganga vel.
Fáskrúðsfirði - Árshátíð Grunn-
skóla Fáskrúðsíjarðar var haldin
í Félagsheimilinu Skrúð þar sem
krakkarnir vonj með ýmsar upp-
ákomur, m.a. leikritið Karnival
dýranna sem myndin er af. í lok-
in söng nýstofnaður kór skólans.
Áhugakonur í bænum afhentu
skólanum peningagjöf að upp-
hæð 320.000 kr. sem söfnuðust á
konukvöldi sem haldið var og
Rósa Ingólfsdóttir slj'órnaði. Fjöl-
menni var á árshátíðinni sem
þótti takast vel.
Morgunblaðið/Albert Kemp
KOMATSU ZEIMOAH fyrir garðyrkjumanninn
V
RS5B Eiturdæla
HT2300A
Limgerðisklippur
G415AVS
Keðjusög
VETRARSÓL
Hamraborg 1-3,
norðanmegin
Sími 564 1864
etí