Morgunblaðið - 24.04.1999, Side 24
24 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
VSÍ telur brýnt að
bæta lír ágöllum virð
isaukaskattkerfísins
mest seldu fólksbíla-
tegundirnarí
jan.- mars 1999 ^4ári
Fjöldi % %
1. Toyota 576 15,2 +26,6
2. Volkswagen 430 11,4 +87,0
3. Nissan______ 357___9,4 +62,3
4. Mitsubishi 253 6,7 +16,1
5. Subarn_______243 6,4 -12,9
6. Opel_________193 5,1 +24,5
7. Daewoo_______163 4,3_____:
8. Renault______162 4,3 +60,4
9 Suzuki 154 4,1 +0,7
10. Isuzu_______142 3,8 +1929
ILHonda 132 3,5 +6,5
12. Ford . 132 3.5 +34,7
13. Hvundai_____126 3,3 -5,3
14. Peugeot 109 2,9 +51,4
15. Daihatsu_____95 2,5 +43,9
Aðrarteg. 515 13,6 +84,6
Samtals 3.782 100,0 +46,0
Isuzu selst vel
Sala á fólksbifreiðum af gerðinni Isuzu hefur veríð gríðarleg fyrstu þrjá mánuði
þessa árs. Selst hafa 142 bílar af þeirri gerð sem er 1.929% aukning frá mars
1998. Isuzu bifreiðar eru 10. mest seldu bílar á íslandi í dag.
Toyota er sem fyrr mest seldi bíllinn á íslandi. Alls seldust 576 fólksbifreiðar af
Toyota gerð fyrstu þrjá mánuði þessa árs og er það 26,6% meiri sala en á sama
tfma í fyrra. Á hæla Toyota á lista yfir mest seldu bílategundimar er Volkswagen
með 430 selda bíla og Nissan með 357 selda bíla. Sala á þeim
bifreiðategundum hefur aukist mikið frá sama tíma í fyrra, 87% fleiri Volkswgen
bílar hafa selst, miðað við mars 1998, en 62,3% fleiri bílar af Nissan gerð.
Vísitölur launa og
byggingakostnaðar
VINNUVEITENDASAMBAND
Islands og aðildarsamtök þess hafa
komið á framfæri til nefndar fjár-
málaráðuneytisins um endurskoð-
un á framkvæmd virðisaukaskatts
ýmsum ábendingum um nokkra
helstu ágalla skattkerfísins sem
brýnt sé að bæta úr. Að sögn Þór-
arins V. Þórarinssonar, fram-
kvæmdastjóra VSI, er um að ræða
ýmis framkvæmdamál sem valda
fyrirtækjum í landinu óþægindum
þótt þessi mál séu kannski ekki
stór hvert fyrir sig.
„Eitt er það sem klárlega veld-
ur miklum leiðindum, framkvæmd
reglna um virðisaukaskattsbílana,
en þar virðist okkur að sé enda-
laus uppspretta ósættis milli fyrir-
tækjanna og skattyfirvalda. Það
Algeng
tölvuveira
á ferðinni
MÁNUDAGINN 26. apríl
næstkomandi verður ein út-
breiddasta tölvuveira hérlend-
is, W32/CIH.1003, virk, en
hún verður virk þennan dag á
hverju ári.
Veiran getur gert sumar
einkatölvugerðir óstarfhæfar
og er viðbúið að einhverjir
tugir tölvunotenda muni verða
fyrir óþægindum af þessum
sökum.
Þeim sem vantar upplýsing-
ar um veiruna er bent á að
snúa sér til viðgerðardeilda
tölvusölufyrirtækja strax eftir
helgina.
er haldið úti hópi manna með ljós-
myndavélar til að leita uppi virðis-
aukaskattsbíla og kanna hvort
þeir séu staðsettir á einhverjum
dularfullum stöðum að mati emb-
ættismanna, sem gefi til kynna að
um einhverja einkaneyslu sé að
tefla. Okkur finnst að þetta sé
ástæðulaust og það sé augljóst að í
svo mörgum tilfellum sé það miklu
haganlegra að geyma bílana
heima við hús hjá þeim sem þurfa
að hafa slíkar bifreiðar heldur en
að skila þeim á einhverjar starfs-
stöðvar fyrirtækjanna," sagði Þór-
arinn.
Meðal annars sem bent er á í
bréfi VSÍ til nefndar fjármálaráðu-
neytisins er að komið verði á einu
kerfi neysluskatta og álagning
vörugjalda verði afnumin í áföng-
um, og hægt verði að skila með raf-
rænum hætti skilagreinum og
skatti. Lagt er til að íslenskum
fiskiskipum sem halda til veiða á
fjarlæg mið utan landhelginnar
verði heimilt að telja virðisauka-
skatt af fæðiskaupum til frádrátt-
arbærs innskatts líkt og gerist með
flutningaskip í miililandaflutning-
um.
Hvatt er til þess að öll matar-
og drykkjarvara fari í eitt virðis-
aukaskattsþrep og neyslustýring
skattsins á þessu sviði verði af-
numin. Þá er lagt til að leitað verði
leiða til að einfalda skattalegt um-
hverfi veitingareksturs og mörk
milli skattstofna lægra og hærra
skattþreps verði skýrð. Loks er
lagt til að skattayfirvöld taki af
skarið og tryggi jafna samkeppn-
isstöðu hugbúnaðarfyrirtækja
með því að Reiknistofnun bank-
anna greiði virðisaukaskatt af
þeirri hugbúnaðarþjónustu sem
hún veitir.
LAUNAVÍSITALA miðað við
með- allaun í mars 1999 er 181,2
stig, og hækkar um 0,2% frá fyrra
mánuði. Samsvarandi launavísitala
sem gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána, er 3963
stig í maí 1999.
Vísitala byggingakostnaðar
Vísitala byggingakostnaðar eft-
ir verðlagi um miðjan apríl 1999
er 235,5 stig (júní 1987=100).
Hún gildir fyrir maí 1999.
Samsvarandi vísitala miðað við
eldri grunn (desember 1982=100)
er 753 stig.
Síðastliðna þrjá mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar hækk-
að um 0,2%, sem samsvarar 0,7%
hækkun á ári. Síðastliðna tólf mán-
uði hækkaði vísitala byggingar-
kostnaðar um 2,0%
VIS með
ráðstefnu
um ábyrgð á
umhverfinu
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands
gengst næstkomandi þriðjudag
fyrir ráðstefnu um ábyrgð á um-
hverfinu og verður dr. Júrg
Spúhler, sem er svissneskur sér-
fræðingur í umhverfismálum og
umhverfisábyrgð, aðalræðumaður
á ráðstefnunni. Mun hann fjalla
um umhverfismál m.a. í ljósi sam-
starfs aðila sem tengjast um-
hverfismálum, skaðabótaábyrgð
vegna umhverfistjóna og dreif-
ingu áhættu, m.a. með vátrygg-
ingum.
Ráðstefnan verður haldin undir
heitinu „Hvernig verður þitt fyrir-
tæki ábyrgt fyrir umhveríinu?“, og
á ráðstefnunni mun Guðmundur
Bjamason umhverfisráðherra
fjalla um samskipti stjómvalda og
atvinnulífs í umhverfismálum.
í fréttatilkynningu frá VÍS segir
að kröfur um verndun umhverfis-
ins muni stóraukast á komandi ár-
um og þær kröfur muni hafa veru-
leg áhrif á rekstraramhverfi fyrir-
tækja. Það séu því hagsmunir ís-
lenskra fyrirtækja að taka fullan
þátt í umhverfisstefnu til framtíð-
ar. Sú ábyrgð sem lögð verði á at-
vinnulífið þurfi að vera vel skil-
greind svo áhættan sé öllum ljós.
Fyrirtæki, stór og smá, þurfi að
geta varast þessa áhættu með
ýmsum forvamaraðgerðum, en
þeim sé ekki síður nauðsynlegt að
geta keypt vátryggingar gegn
þeirri ábyrgð sem þau bera á um-
hverfinu. Lagaumhverfinu verði
því að haga þannig að þessi ábyrgð
verði vátryggingarhæf, ella sé
hætt við að hún geti orðið atvinnu-
lífinu ofviða.
Ráðstefna VÍS verður haldin á
Grand Hótel í Reykjavík og hefst
hún kl. 14.
Almennt útboð
hlutabréfa Handsals hf.
Sala á hlutabréfum í Handsali hf.
hófst mánudaginn 19. apríl og stendur
yfir til 15. maí 1999.
Starfssvið: Tílgangur félagsins er verðbréfamiðlun gegn
þóknun, veiting sölutrygginga á markaðsverðbréfum og
að öðru leyti að annast verðbréfaviðskipti eins og þau
eru skilgreind í lögum á hverjum tima, fjárvarsla fyrir
einstaklinga og lögaðila og skyld starfsemi.
Tilgangur útboðsins: Til að styrkja eiginfjárstöðu félagsins.
Á aðalfundi félagsins þann 12. mars 1999 var samþykkt
heimild til að auka hlutafé Handsals um allt að 89.930.948
krónur að nafnverði.
Heildarnafnverð hlutabréfa: Allt að kr. 89.930.948 að
nafnverði af nýju hlutafé.
Sölugengi í forkaupsrétti: 1,0 til forkaupsréttarhafa til
5. maí 1999.
Sölugengi í almennu útboði: Gengi ákveðið með hliðsjón
af markaðsaðstæðum á fyrsta söludegi. Gengi á almennum
markaði getur breyst eftir að forkaupsréttartímabili lýkur
og tekur mið af markaðsaðstæðum þar til þvf lýkur.
Upplýsingar um gengi má finna hjá söluaðila.
Sölutímabil: Forkaupsréttartímabil 19. april - 5. maí 1999.
Almennt útboð 6. maí -15. maí 1999.
Upplýsingar: Útboðslýsing liggur frammi á skrifstofu
Handsals hf.
Ath. Ranglega kemur fram í auglýsingu félagsins þann 16. apríl
s.l. að Handsal hf. hafi umsjón með milligöngu um skráningu.
Ekki stendur til að skrá bréf Handsals hf. á Verðbréfaþingi íslands.
HANDSALX
<l"gjr
XIVSQNVH
HANDSAL HF
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI
sími 510 1600, fax 588 0058
kt. 550191-1729
Engjateigi 9, 105 Reykjavík.
Urskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála
Tilboð Landssímans hafði
skaðleg áhrif á samkeppni
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur staðfest úrskurð Sam-
keppnisráðs í þá veru að Landssím-
inn hafi haft skaðleg áhrif á sam-
keppni á markaði með því að bjóða
10.000 manns endurgjaldslausa
Netáskrift. Engu að síður eru felld-
ir úr gildi tveir töluliðir af þremur í
úrskurði Samkeppnisráðs.
I ákvörðun Samkeppnisráðs, sem
Landssíminn kærði 12. febrúar síð-
astliðinn, fólst bann við að Lands-
síminn byði endurgjaldslausa Netá-
skrift gegn framvísun svonefnds
Bíódisks. I öðru lagi var staðhæft
að með tilboðinu misnotuðu fyrir-
tækin aðstöðu sína og það hefði
skaðleg áhrif á samkeppni. I þriðja
lagi var tekið fram að bann Sam-
keppnisráðs nr. 41/1997 við mis-
notkun markaðsráðandi stöðu
Landssíma Islands hf. tæki líka til
Skímu ehf.
í úrskurði staðfestir áfrýjunar-
nefnd að boð um endurgjaldslausa
þriggja mánaða áskrift að Netinu
hafi haft skaðleg áhrif á samkeppni á
markaði. Afrýjunamefndin sam-
þykkir einnig það mat samkeppnis-
ráðs að Skíma og Landssíminn hafi
markaðsráðandi stöðu á Netmark-
aðnum, með 37% samanlagða hlut-
deild og Landssíminn yfirburðastöðu
á fjarskiptamarkaðnum. Jafnframt
var tekið undir það mat að Skíma
gæti ekki notið raunverulegs sjálf-
stæðis í markaðsstarfi gagnvart eig-
anda sínum.
Áfrýjunamefnd fellir hins vegar
úr gildi tvo þætti í ákvörðunum
Samkeppnisráðs. Orðalag 2. töluliðs
ákvörðunarorða Samkeppnisráðs, í
þá vera að „það hafi skaðleg áhrif á
samkeppni skv. 17. gr. samkeppn-
islaga“ að fyrirtækin misnoti mark-
aðsráðandi stöðu sína, þykir al-
mennt og er liðurinn felldur úr gildi.
3. töluliður í úrskurði Samkeppn-
isráðs er einnig felldur úr gildi.
Bann Samkeppnisráðs frá 1997 sem
nær til Skímu er ekki talið gilt,
vegna þess að formsatriða hafi ekki
verið gætt. Áfrýjunarnefndin bygg-
ir niðurstöðu sína á að Skímu hafi
aldrei verið gefinn kostur á and-
mælum við ákvörðun nr. 41/1997 á
sama hátt og Landssímanum á sín-
um tíma. Sú niðurstaða er þó ekki
talin hafa efnislega þýðingu þar sem
Landssíminn og Skíma myndi sam-
an fyrirtækjasamstæðu í skilningi 4.
gr. samkeppnislaga.
Túlkun Landssímans
á aðra lund
í fréttatilkynningu frá Landssím-
anum er úrskurðinum fagnað:
„Landssíminn fagnar þessari niður-
stöðu og ítrekar það sjónarmið að áð-
umefhd íhlutun Samkeppnisráðs hafi
gengið gegn hagsmunum neytenda
og þjónað þeim tilgangi einum að
hækka verð á Intemetmarkaðnum
og fækka þeim, sem hafa tækifæri til
að kynnast Intemetinu af eigin raun.
Fyrirtækið mun halda áíram að veita
Intemetþjónustu á lágu verði og
taka þannig þátt í virkri samkeppni,
neytendum til hagsbóta," segir í yfir-
lýsingu Landssímans.
Utboð hlutafjár Nýherja
Starfsmenn keyptu
fyrir 7 milljónir
ÚTBOÐI á nýju hlutafé í Ný-
herja lauk nýlega, en boðið var út
hlutafé að nafnvirði 24
milljónir króna. Starfs-
menn Nýherja skráðu
sig fyrir 7,07 milljóna
króna hlutafé að nafn-
verði, en hefðu getað skráð sig
fyrir rúmum 20 milljónum.
NÝHERJI
Hluthafar Nýherja sem höfðu
forkaupsrétt á afgangnum keyptu
fyrir 16,93 milljónir
króna, eða það sem uppá
vantaði. Engin óseld bréf
voru að því loknu, en þau
hefðu að öðram kosti ver-
ið keypt af FBA til dreifðrar end-
ursölu á markaði.