Morgunblaðið - 24.04.1999, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 45
um 8.000 kr., og Nintendo 64 fylgi í
kjölfarið. Að sögn Sony-manna
l mun PSX2 kosta í kringum 400
■ dali, um 30.000 kr., en hér á landi
B væri verðið vel yfir 40.000 kr. að
V teknu tilliti til flutningskostnað-
■ ar og skatta.
Stóra spumingin er svo hvað
I Nintendo hyggst gera, en yfir-
I lýsingar þaðan benda til þess að
H það muni einnig setja á markað
» 128 bita leikjatölvu, sem komi
meira að segja út um líkt leyti og
PSX2, en ekkert hefur verið gefíð
upp um vélbúnaðinn annað en að
hún verði öflugri en PSX2 og komi
á markað 2001. Einnig liggur ljóst
fyrii’ að hylkin verða lögð á hilluna,
en ekki er ljóst hvort í tölvunni
verður DVD-drif eða diskar með
sérstöku gagnasniði fyrir Nintendo
Ný PlayStation
SEGA-menn búa sig sem óðast
undir markaðssetningu á Dr-
eamcast-tölvu sinni, en eins og
kunnugt er kemur hún á markað 9.
september næstkomandi. Helsti
keppinauturinn á leikjatölvumark-
aðnum verður vísast Sony, er
spillti nokkuð gleði Sega-vina með
því að kynna nýja gerð PlaySta-
tion, PlayStation II, PSX2, sem er
talsvert öflugri tölva á pappírnum.
Sega setti Dreamcast á markað
á síðasta ári vestur í Japan og hef-
ur gengið bærilega að selja tölvuna
þar í landi. Tölvunni er ætlað að
leysa af hólmi PlayStation Sony,
sem er orðin heldur aldurhnigin og
daufleg í ljósi nýjustu tækni. Dr-
eamcast verður talsvert öflugri en
PlayStation, en ný gerð PlaySta-
tion slær síðan Dreameast ræki-
lega við ef marka má áætlanir
Sony-manna.
Sony vakti mikla athygli fyrir
lýsingar á tölvunni nýju og hyggst
reyndar minna á hana reglulega á
næstu mánuðum, ekki síst til að fá
leikjatölvuvini til að sleppa því að
fá sér Dreamcast og bíða heldur
eftir PSX2.
I kynningu Sony á vélinni nýju
kemur fram að í henni verður 300
MHz 128 bita Toshiba-örgjörvi,
150 MHz Sony grafískur örgjörvi,
32 MB minni, tvær 48 rása 48 KHz
hljóðrásir, MPG2 túlkur og DVD-
drif. Fyrir vikið ætti að vera hægt
að spila mynddiska í tölvunni eða
DVD-tónlistardiska, en talsmenn
Sony vilja þó ekki staðfesta að það
standi til. Á henni verða IEEE
1394, FireWire, tengi og einnig
USB- og PCMCIA-tengi. Á papp-
írnum er tölvan nýja því talsvert
öflugi’i en Dreamcast, hvað þá Nin-
tendo eða eldri gerð PlayStation.
Enn hefur ekki verið smíðuð
PSX2-tölva og því tómt mál að tala
um að bera þessar tölvur saman. Á
pappímum er þó um að ræða gríð-
arstórt skerf í leikjatölvuhönnun
og afli og erfitt verður fyrir Sega-
liða að keppa við PSX2 ef tölvan
verður svo öflug.
Sega hefur mikið lagt uppúr
nettengingunni á Dreamcast og
hefur notið mikilla vinsælda austur
í Japan, en ekkert hefur verið gefið
upp um hvernig málum verður
háttað með PSX2, þ.e, hvort inn-
byggt mótald verður í tölvunni og
hvort Sony hyggst setja upp álíka
netleikjalén og Sega hefur gert í
Japan og mun gera á Vesturlönd-
um á næstu mánuðum.
Hálfs annars árs forskot
Dreamcast hefur hálfs annars
árs forskot á PSX2, því tölvan er
þegar komin út og verður í al-
mennri sölu á þessu ári, en Sony
stefnir að því að koma sinni vél á
markað snemma á næsta ári í Jap-
an og þá í Evrópu og Bandaríkjun-
um um haustið.
Verð á eftir að skipta miklu máli
og menn hafa gert því skóna að
PSX2 eigi eftir að verða talsvert
dýrari en þær tölvur sem eru á
markaði í takt við margfalt I
öflugri og fullkomnari vél- H
búnað. Hægt er að kaupa jap- B
anska Dreamcast-tölvu á Net- 1
inu fyrir um 15.000 kr. en ekk- ■
ert hefur komið fram um hvað 9H
Dreamcast á eftir að kosta á
markaði í vesturálfu. Sam- 'I
kvæmt fréttum frá Bretlandi telja
margir víst að hún muni kosta 199
pund þar í landi sem útleggst á vel
yfir tuttugu þúsund hér á landi ef
að líkum lætur. Sömu heimildir
herma að PlayStation eigi eftir að
lækka enn í haust, líklega til að
svara nýju tölvunni, og þannig fari
verð á Bretlandi niður í 79 pund,
Sumar Krýsi
3 stærðir
Bm. 149,-
kn>S9#>-
RúBSurtuhorn
f Hert \
(öryggis- ]
A gler Aj
n~eí(o
Sturtuhorn úr
öryggisgleri
með segullæs-
ingu, 4ra eða 6
mm þykkt.
Verð fró
kr. 27.350,- stgr,
Rósir í garðinn
og garðskálann
afsláttur
VERSLUN FYRIR ALLA !
Vi& Fellsmúla
Sími 588 7332
i pottum
Aðsendar greinar
á Netinu