Morgunblaðið - 24.04.1999, Side 55

Morgunblaðið - 24.04.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 55 ‘ MINNINGAR þetta. Petta var þó bara fyrsta skensið og lastyrðin um mitt fólk í mín eyru, þau áttu eftir að verða fleiri og mun grófari en þetta. Löngu seinna fannst mér þetta enn sárara þegar ég áttaði mig á að þetta voru ekki hugsanir þessara barna, sem þau voru að tjá sig um. Umhverfið var ekki allt skilnings- ríkt um tilfinningarnar og hjörtun sem undir slógu, hvað móður mína snerti. Systkinin á Kollafjarðarnesi, börn sr. Jóns Brandssonar og Guð- nýjar Magnúsdóttur, voru í nokkrum sérflokki. Þar hafði móðir okkar dvalið í æsku með móður sinni og átti þaðan góðar minningar, því fólki öllu bar hún vel söguna, það mega þau sem enn lifa og af- komendur þeiiTa vita. Yngsti sonur þeirra, Sigurður, varð svo nágranni okkar eftir að aftur hafði verið flutt að Miðhúsum eftir 15 ára veru í Hlíð. Hann reyndist henni einstak- lega nærgætinn og tryggur. Orð hans bættu og styrktu nokkuð sem aldrei verður fullþakkað. Þegar yngsta barn móður minnar var á fyrsta ári veiktist það alvar- lega og þurfti að dvelja á fjórða ár á spítala fyrir sunnan. Allan þennan tíma sé hún ekki þessa telpu sína, hún reyndi að afla af henni fregna eins og hægt var en þessi ár fóru illa með hana og hennar nánustu einnig. Faðir okkar hafði aftm- á móti til- einkað sér það gamla ráð að láta þögnina hýsa harm sinn. Oft leið okkur eins og hún kæmi aldrei til baka og það var eins og allir reikn- uðu með því, en einn vordaginn er hún komin til fólksins síns, og hvílík gleði móður og föður, og barnið hag- aði sér undrafljótt eins og hún hefði aðeins ski-oppið í burtu í nokkra daga, hún festi yndi. En móðm- okkar nægði þetta ekki til lengdar, það voi-u komin of mörg saltkorn í sárin. Gjafmild var hún en hafði jafnan lítið að gefa. Núna er þessari löngu göngu og endalausri leit að því sem lífið frá henni tók og hún aldrei aftur fann loksins lokið. Leiftursnöggt ber fyrir innri augu mín skýra mynd hennar og loksins, loksins, loksins hefur harmur þessa heims yfirgefið hana og ljómi ljóss- ins bjarta lýst upp andlit hennar svo það ljómar líkt og ég örsjaldan man það í æsku. Engum vildi ég það hlut- skipti að þurfa að þræða vegferðina hennar. Og þessi fátæklegu minn- ingarorð eru ekki síst þeim ætluð sem mikið missa og finna fyrir hin- um beiska sársauka og jafnvel reiði sem á hugann sækir. Það er svo mikilvægt að taka þeim þungu byrð- um sem á okkur eru lagðar og um- fram allt að sættast Guð sinn við; Nú er tilefni til að þakka Ástu elstu systur okkar fyrir allt það sem hún gerði fyrir móður okkar síðustu æviáiin, svo og Mai'geiri eiginmanni hennar. Öllum öðimm nákomnum sem vandalausum færi ég sömu inni- legu þakkir fyrii’ mikið umburðar- lyndi og góðvild í hennar garð. Guðfinnur Finnbogason. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. MARGRET DÓRÓTHEA BETÚELSDÓTTIR Margrét Dóróthea Betú- elsdóttir fæddist í Görðum í Aðalvík 14. inaí 1928. Hún lést á Landspítalan- um 17. aprfl síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Vídalínskirkju 23. aprfl. í örfáum orðum vilj- um við minnast góðrar vinkonu okkar, hennar Möggu Bet. eins og við kölluðum hana alltaf. Bai’áttu hennar við erfiðan sjúkdóm er lokið. Hún mætti veikindum sínum með miklu hugrekki og fram í það síð- asta gerði hún að gamni sínu þótt hún væri sárþjáð. Það sýnir svo vel hve mikil kjamakona hún var. Við mæðgur áttum yndislegar stundir saman á Bakka og eins á Bergþórugötu og þær rnunurn við geyma vel í minning- unni. Eins erum við þakklátar iyrir að hafa átt góðan dag með henni um páskana. Þessi fá- tæklegu orð segja svo lítið um einstaka mann- eskju. Blessuð sé minn- ing hennar. Ég veit þú heim ert horfin nú og hafin þrautir yfír, svo mæt og góð, svo trygg og trú, svo tállaus, falslaus reyndist þú, ég veit þú látin lifír! (Steinn Sigurðsson.) Elsku Birna, þú ert í huga okkar á þessum ei'fiðu tímum. Kristín, Inga og Nína. Okkar ástkæra STEFANÍA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Þangbakka 10, andaðist þriðjudaginn 13. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Halldóra S. Jónsdóttir Jóna Guðrún Skúladóttir, Tómas Tómasson, Halldór Óskar Arnoldsson og synir. t Elskuleg móðir okkar, MARGÉT PETERSEN ORMSLEV lést aðfaranótt mánudagsins 19. apríl. Áslaug Gyða Ormslev, Margrét Guðrún Ormslev, Pétur Úlfar Ormslev, Jens Gunnar Ormslev. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LOFTURJÓNSSON forstjóri, Blikanesi 19, Garðabæ, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 21. apríl. Ásta Margrét Hávarðardóttir, Jón Loftsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Ágúst Arason, Sonja Hrund og Ásta Karen Ágústsdætur. t Útför móður minnar, ömmu okkar og lang- ömmu, HALLDÓRU SVEINBJÖRNSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, síðast til heimilis að Kleppsvegi 8, verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 26. apríl kl. 13.30. Ásdís Hafliðadóttir, Hafliði Skúlason, Valdís Kristjánsdóttir, Snorri Már Skúlason, Ragnheiður Halldórsdóttir, Svava Skúladóttir, Skúli Þórisson og langömmubörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR KRISTBJÖRNSSON, Víðivöllum 14, Selfossi, lést á heimili sínu fimmtudaginn 22. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Halldóra Kristrún Hjörleifsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, RICHARD BJÖRGVINSSON, lést á Landspítalanum aðfaranótt föstudagsins 23. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Jónína Júlíusdóttir. t Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, dóttur og ömmu, JÓHÖNNU EDDU SIGFÚSDÓTTUR, Jöklaseli 23, fer fram frá Laugarneskirkju mánudaginn 26. apríl kl. 13.30. Heimir Óskarsson, Halldóra Þorgilsdóttir, Hanna Sif Hafdal, Ögmundur Gíslason, Árni Sigurður Hafdal, Kristín Rós Egilsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir, Sandra, Þorgils og Frosti. t Ástkær eiginmaðir minn og fósturfaðir, SIGURÐUR SIGURÐSSON, Birkivöllum 10, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju í dag, laugardaginn 24. apríl, kl. 11.00 f.h. Jóhanna Guðmundsdóttir, Matthías Viðar Sæmundsson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang- ömmu og langalangömmu, INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Hringbraut 57, Keflavík. Sigríður Júlíusdóttir, Sólborg Júlíusdóttir, Kristján Júlíusson, Steinþór Júlíusson, Bergmann Júlíusson, Jóhanna Júlíusdóttir, Erlingur Björnsson, Páll Óskarsson, Aðalheiður Gunter, Sigrún Hauksdóttir, Eygló Ólafsdóttir, Hermann Friðriksson, Kolbrún Leifsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okk- ur samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNS L. FRANKLÍNSSONAR og langafabarns hans, JÓNU ISIS ÓLIVIU LAUFEYJARDÓTTUR. Sveinborg Jónsdóttir, S. Laufey Ólafsdóttir, Andrea Jónsdóttir, Helga Jónsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Ásrún Jónsdóttir, Ólafur Ragnarsson, Axel Þ. Lárusson, Róslín Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.